Samkvæmt 17.gr. laga um grunnskóla nr.91/2008, eiga nemendur sem að mati læknis geta ekki sótt skóla vegna slyss eða langvarandi veikinda rétt til sjúkrakennslu annaðhvort á heimili sínu eða á sjúkrastofnun.
Um einstaklingskennslu er að ræða sem fer eftir þörfum nemenda hverju sinni.
Skólastjórn ákveður hverju sinni hver fær notið sjúkrakennslu í samráði við fagaðila.












