Árbæjarskóli og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts eiga mikið samstarf. Skólinn nýtur sérfræðiþjónustu frá þjónustumiðstöðinni. Markmið þjónustunnar er að veita markvissa og heildtæka þjónustu á þverfaglegum grunni til að mæta sérþörfum barna og fjölskyldna þeirra. Þjónustan er veitt á grundvelli þjónustusamnings á milli Menntasviðs, Velferðarsviðs og Íþrótta- og tómstundarsviðs annars vegar og Þjónustu- og rekstarsviðs hins vegar. Sérfræðingar þjónustumiðstöðvarinnar veita margháttaða ráðgjöf og þjónustu við skólann. Í ráðgjöf og þjónustu felast sálfræðilegar athuganir og ráðgjöf, ráðgjöf vegna sérkennslu, kennslu- og leikskólaráðgjöf, unglinga- og félagsráðgjöf.
Sálfræðingur skólans, Matthildur Gunnarsdóttir, hefur aðsetur á Þjónustumiðstöðinni. Jafnframt hefur hún fastan viðverutíma í skólanum í hverri vikiu auk þess sem hún situr fundi í Nemendaverndarráði skólans.











