Regnboginn í Árbæjarskóla
Í Regnbogaskipulaginu í 3. – 7. bekk er nemandinn í brennidepli. Komið er til móts við hann, þannig að hann fái að dýpka þekkingu sína á fjölbreyttan hátt í frjóu námsumhverfi. Þetta er í samræmi við stefnu skólans sem m.a. miðar að því að skólastarfið mótist af metnaði og hvatningu til sjálfstæðra verka og aukinnar víðsýni, þar sem hver og einn fær notið sín á eigin forsendum. Regnbogaskipulagið nær til kennslu í íslensku og stærðfræði.
Nemendum árganga er skipt í einsleita hópa til þess að koma betur til móts við námslegar þarfir og stöðu hvers og eins. Hóparnir kallast gulur, rauður og grænn hópur. Í gulum hópi eru þeir sem lengst eru komnir í námi sínu. Í rauðum hópi eru þeir nemendur sem sýna meðal námsárangur og í grænum hópi eru þeir nemendur sem þarfnast mestrar aðstoðar í náminu.
- Umsjónarkennarar og fagkennarar skipta nemendum í hópana og færast þeir milli hópa miðað við námsgengi.
- Í Regnboganum er sveigjanleiki milli hópanna sem tryggður er með skilvirku símati í einstökum námsþáttum eða námsgreinum.
- Allir nemendur fá aukin tækifæri í Regnboga til að dýpka þekkingu sína og vinna við sjálfstæð verkefni.












