Námsver BBB og Ármót
Breytt skipulag – Betra nám – Bætt líðanHlutverk og markmið
Tilgangurinn er að auka gæði náms þeirra nemenda í Árbæjarskóla sem eiga við sértæka námsörðugleika að stríða. Stefnt er að því að auka fjölbreytni kennsluhátta með aukinni samkennslu, þemavinnu og samvinnu nemenda. Auk þess er lögð áhersla á sjálfstæði nemenda.
Markmiðið er:
- að bæta líðan nemenda í skólastarfinu
- að styrkja sjálfsmynd og félagslega færni nemenda
- að nemendur fái kennslu við hæfi
- að bæta mælanlegan námsárangur nemenda
- að auka færni nemenda í samvinnunámi
- að auka metnað og áhuga nemenda sem eiga í námsörðugleikum
- að stuðla að góðri skólasókn nemenda
- að nemendur átti sig á gildi og nauðsyn góðrar grunnmenntunar
- að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum
Skipulag og starfstilhögun
Nemendahópurinn samanstendur af nemendum úr mismunandi aldurshópum og bekkjardeildum sem eiga við námsörðugleika að etja. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og kennslu. Þetta felur meðal annars í sér getumiðaða samkennslu í smáum hópum þvert á árganga þar sem stutt er við sjálfstæð vinnubrögð og samvinnunám.
Hver nemandi tilheyrir ákveðnum umsjónarbekk en stundar nám sitt í námsverinu í einni námsgrein eða fleirum. Umsjónarkennarinn er lykilpersóna nemandans í skólastarfinu og fylgist því reglulega með framvindu hans í náminu. Þegar kemur að ákvörðun um innritun, stöðumat og útskrift skulu allar ákvarðanir teknar í samráði við umsjónarkennara.
Einstaklingsnámskrá hvers og eins er á ábyrgð fagkennara bekkjarins en unnin í samvinnu við kennara í námsverinu. Námsáætlanir eru endurskoðaðar reglulega um leið og lagt er mat á stöðu hvers og eins.
Mikil áhersla er lögð á samskipti við heimilin þar sem nemendur eiga að finna að fylgst er náið með þeim heima og í skóla. Umsjónarkennari upplýsir forráðamann reglulega um stöðu nemandans. Heimanám er því nauðsynlegur þáttur í starfsemi námsveranna og er ætlað að tengja enn betur saman heimili og skóla. Með því eykst enn frekar þátttaka forráðamanna í námi barna sinna.
Verkefnisstjóri sérkennslu fundar vikulega með kennurum námsveranna þar sem farið er yfir stöðu nemenda á hverjum tíma.
Umsókn og innritun
Sækja þarf um þjónustu í námsverinu á sérstöku eyðublaði sem undirritað skal af forráðamanni og umsjónarkennara. Verkefnisstjóri sérkennslu í samráði við umsjónarkennara tekur ákvörðun um innritun.
Ef innritun er samþykkt skal verkefnisstjóri sérkennslu boða til fundar með umsjónarkennara, fagkennara eða fagkennurum og öðrum þeim sem þurfa þykir. Áður en nemandi hefur nám í námsverinu þarf fagkennari að funda með kennara úr námsverinu þar sem einstaklingsáætlun nemandans er lögð fram og útfærð.
Námsverunum er ekki ætlað að þjóna þeim nemendum sem eiga við hegðunarvandkvæði að etja eða standa sig ekki í skólasókn.
Útskrift
Ákvörðun um útskrift í einni eða fleiri námsgreinum skal tekin í samráði verkefnisstjóra sérkennslu, umsjónarkennara og forráðamanns, að fengnu stöðumati kennara í námsverunum.
Nemandi sem hefur útskrifast úr námsveri getur á sama skólaári innritast á ný samkvæmt innritunarferli.












