Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Í 17. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, segir eftirfarandi um nemendur með sérþarfir:  „Nemendur eiga rétt á að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla án aðgreiningar, án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis.  Nemendur sem eiga erfitt með nám sökum sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar, sbr. 2.gr.laga um málefni fatlaðra, nemendur með leshömlun, langveikir nemendur og aðrir með heilsutengdar sérþarfir eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi í samræmi við metnar námsþarfir“.

Í Árbæjarskóla er lögð mikil áhersla á sem fjölbreyttasta stoðþjónustu við nemendur í skólastarfinu.  Þannig er með skilvirkum hætti leitast við að hver og einn nemandi fái þjónustu við hæfi.  Til þess að svo megi verða er sérstaklega horft til fjölbreyttra námsleiða, fjölbreyttra kennsluaðferða, námsmati og góðu framboði á námsefni við hæfi hvers og eins.

Ýmsar greiningar eru framkvæmdar á nemendum til að meta námsstöðu og líðan þeirra.  Með þeim er mögulegt að mæta þörfum þeirra, þar sem þær gefa vísbendingu um hvort nauðsyn sé á sértækum úrræðum.  Yfirlit yfir hinar ýmsu greiningar og greiningaraðila má sjá hér.   Einnig er fylgst vel með framförum nemenda í lestri og gripið til sértækra aðgerða ef þurfa þykir.  Nálgast má yfirlit yfir skipulag lestrarkennslu, próf, skimanir, viðmið og ýmis úrræði hér

Hér til hliðar má sjá hina ýmsu þætti í stoðþjónustu Árbæjarskóla.

Fyrirkomulag stoðþjónustunnar í skólanum er útskýrt á myndrænan hátt hér. 

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Stoðþjónusta

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð