Í Árbæjarskóla er lögð áhersla á góð tengsl við grenndarsamfélagið. Grenndarsamfélag skóla er annars vegar landfræðilegt, þ.e. náttúran og nánasta umhverfi skólans og hins vegar félagslegt, þ.e. samskipti við fjölskyldur, félög og stofnanir. Grenndarsamfélag skóla getur verið skólahverfið, borgarhlutinn eða borgin sjálf.
Rík áhersla er lögð á það í Árbæjarskóla að umhverfi skólans sé notað á markvissan hátt. Útikennsla í 1. – 7. bekk er einn liðurinn í að ná fram því markmiði. Skólinn hefur gert samning við Umhverfissvið Reykjavíkurborgar um grenndarskóg skólans. Skógurinn er sunnan megin við Elliðaárnar, gegnt skólanum. Skólinn hefur óheftan aðgang að skóginum í skipulegu skólastarfi, til náms og dvalar, en hann er jafnframt opinn almenningi til útivistar.
Umhverfismál s.s. sorpflokkun, endurnýting og umhverfisvernd er ein af undirstöðum skólastarfsins og aðild að Grænfánanum innan seilingar.
Heimsóknir nemenda í stofnarnir og fyrirtæki í nágrenni skólans eiga sér einnig fastan sess í skólastarfinu.
Árangursríkt skólastarf byggir á góðri samvinnu og gagnkvæmu trausti heimilis og skóla. Forráðamenn eru ætíð velkomnir í skólann og eru þeir hvattir til að fylgjast vel með námi og starfi barna sinna í skólanum. Kynningarfundum fyrir forráðamenn, sem haldnir eru á hverju hausti, er ekki síst ætlað að styrkja sambandið milli heimilis og skóla. Við skólann er starfrækt öflugt foreldrafélag sem kemur að skólastarfinu með ýmsum hætti. Einnig eiga fulltrúar foreldra og aðili úr grenndarsamfélaginu sæti í skólaráði skólans.
Samstarf skólans við Árbæjarkirkju á sér langa sögu. Reglulegar heimsóknir nemenda í kirkjuna eru fastur liður, jafnt um jól og páska. Einnig er samvinna skólastjórnenda við presta kirkjunnar nokkur.
Í félagsmiðstöðinni Árseli á sér stað fjölbreytt starfsemi. Þar er m.a. frístundaheimilið Töfrasel sem ætlað er nemendum í 1. – 4. bekk eftir að skóladegi lýkur. Einnig er þar starfrækt félagsmiðstöðin Tían sem ætluð er nemendum í 5. – 10. bekk. Samstarf skólans við Ársel er mikið. FLÁS er samstarfshópur skóla, félagsmiðstöðvar, kirkju, lögreglu og þjónustumiðstöðvar. Hópurinn hittist reglulega þar sem farið er yfir stöðu mála í hverfinu á víðum grunni. Skólinn er einnig í góðu sambandi við lögregluna í tengslum við hverfalöggæslu borgarinnar.
Í Árbæjarhverfi er starfrækt íþróttafélagið Fylkir. Fylkir hefur um margra ára skeið séð um íþróttaskóla fyrir nemendur í 1. bekk í íþróttahúsi skólans og íþróttakennsla eldri nemenda skólans hefur farið fram í Fylkishöllinni. Á haustin hafa fulltrúar félagsins komið í skólann og kynnt starfsemina og einnig hafa þeir tekið þátt í forvarnardeginum í 9. bekk.
Árbæjarskóli og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts eiga mikið samstarf. Skólinn nýtur sérfræðiþjónustu frá þjónustumiðstöðinni. Markmið þjónustunnar er að veita markvissa og heildtæka þjónustu á þverfaglegum grunni til að mæta sérþörfum barna og fjölskyldna þeirra. Þjónustan er veitt á grundvelli þjónustusamnings á milli Menntasviðs, Velferðarsviðs og Íþrótta- og tómstundarsviðs annars vegar og Þjónustu- og rekstarsviðs hins vegar. Sérfræðingar þjónustumiðstöðvarinnar veita margháttaða ráðgjöf og þjónustu við skólann. Í ráðgjöf og þjónustu felast sálfræðilegar athuganir og ráðgjöf, ráðgjöf vegna sérkennslu, kennslu- og leikskólaráðgjöf, unglinga- og félagsráðgjöf.
Samstarf við skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts og Tónskóla Sigursveins er nýtilkomið og er æfingaaðstaða þeirra fyrir nemendur Árbæjarskóla í skólanum. Um er að ræða einkatíma en hópæfingar fara fram utan skólans.
Á undanförnum árum hefur nemendum skólans gefist kostur á að taka þátt í Ólympíustærðfræði sem er skipulögð af Háskólanum í Reykjavík. Um er að ræða 20 vikna námskeið þar sem nemendur í 5. – 8. bekk kljást við skemmtilegar stærðfræðiþrautir. Hafa nemendur skólans náð afar góðum árangri á liðnum árum og eru þessi námskeið orðinn fastur liður í skólastarfinu.
Samstarf Árbæjarskóla við leik- og grunnskólana í hverfinu hefur verið mikið í gegnum tíðina. Nemendur leikskólanna hafa heimsótt skólann reglulega og undirbúið sig þannig fyrir væntanlega skólagöngu. Árbæjarskóli er safnskóli á unglingastigi þegar til náms koma nemendur úr Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla. Samstarf þessara skóla er náið í aðdraganda þess. Einnig er samstarf skólanna í borgarhluta 4 mikið en þar eru skólar úr Árbæ, Breiðholti, Norðlingaholti og Grafarholti.












