Árbæjarskóli er grunnskóli þar sem grundvöllur starfsins er fræðsla og uppeldi sem byggir á Aðalnámskrá grunnskóla og þeirri stefnu sem mörkuð er af fræðsluyfirvöldum Reykjavíkur.
Helsti áhersluþáttur í skólastarfinu er að nemendur, kennarar og annað starfsfólk nái hámarksárangri. Góður grunnskóli er ein styrkasta stoðin í hverju samfélagi. Því er nauðsynlegt að gagnkvæmt traust ríki milli grenndarsamfélagsins og starfsmanna skólans og að skólastarfið miði að því að styrkja og efla hvern og einn til framfara og þroska. Mikilvægt er að starfið mótist af metnaði og hvatningu til sjálfstæðra verka og aukinnar víðsýni, þar sem hver og einn fær notið sín á eigin forsendum.
Í skólastarfi Árbæjarskóla er nemandinn í öndvegi. Megináhersla er lögð á vellíðan og vandaða fræðslu en nauðsynlegt er að þetta fari saman, enda á hvorugt að geta verið án hins í þróttmiklu grunnskólastarfi.
Samskipti einstaklinga eiga að grundvallast á gagnkvæmri virðingu, kurteisi og tillitssemi, sem er forsenda þess að hverjum og einum líði vel. Gagnkvæmt traust og jákvæð og uppbyggileg samskipti móta framar öðru góðan starfsanda.
Ánægður og áhugasamur einstaklingur sem tekst á við skyldur sínar af ábyrgð og festu nær árangri í starfi sínu. Þannig er gott sjálfstraust og jákvæð sjálfsmynd grundvöllur sjálfstæðra vinnubragða og góðrar samvinnu. Eins þarf hver einstaklingur að temja sér ábyrga umgengni og bera ábyrgð á sínu nánasta umhverfi og samfélagi.
Árangursríkt skólastarf byggir á góðir samvinnu og gagnkvæmu trausti heimilis og skóla. Forráðamenn nemenda þekkja börnin sín best og því er nauðsynlegt að þeir hafi samband við kennara og skólastjórnendur hvenær sem þeir telja þörf á. Skólastjórnendur og umsjónarkennarar munu á hverjum tíma hafa samband við forráðamenn ef talin er nauðsyn á að efla og styrkja náms- og félagsfærni nemenda.
Stefnukort Árbæjarskóla 2010-2011
Einkunnarorð Árbæjarskóla eru: Ánægja - Áhugi - Ábyrgð - Árangur











