Skólasöngur Árbæjarskóla
Höfundur lags: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Höfundur texta: Sóley Ragnarsdóttir
Viðlag:
Árbæjarskóli sem áhuga vekur,
ánægju finnum við vakna í hjarta.
Árbæjarskóli, ábyrgð hann fyllir okkar hug
og árangurinn sýnir okkar dug.
Í viku hverri þar vinna allir saman,
að virðingu og þroska, huga bæði og handa.
Þar vinnum við að því sem okkur þykir gaman,
að ýmis konar verkefnum sem efla okkar anda.
Í okkar skóla við eigum góðar stundir.
Við eflum líka tengslin, jafnt í leik og starfi.
Þar bindum við þau vinabönd, sem okkur fylgja ævina á enda.
Því að Árbæjarskóli er besti skólinn minn.
Viðlag:
Árbæjarskóli sem áhuga vekur,
ánægju finnum við vakna í hjarta.
Árbæjarskóli, ábyrgð hann fyllir okkar hug
og árangurinn sýnir okkar dug.
:’:
Já, Árbæjarskóli, höll minninga minna,
Árbæjarhverfið svo fagurt og gróið.
Árbæjarskóli, sem opnaði hjarta mitt og hug
og árangurinn sýnir okkar dug.
Opnaði mitt hjarta og hug
og árangurinn sýnir okkar dug.












