Á hverju hausti eru haldnir kynningarfundir fyrir forráðamenn nemenda. Um er að ræða síðdegisfundi þar sem skólastjórnendur fara yfir skipulag skólastarfsins og skólareglur skólans. Einnig kynna námsráðgjafar og skólahjúkrunarfræðingur starf sitt. Á fundina koma fulltrúar frá Árseli sem kynna starfsemi frístundamiðstöðvarinnar og Íþróttafélaginu Fylki sem kynna vetrarstarfið. Foreldrafélagið kynnir hlutverk sitt og starf vetrarins.
Að loknum kynningarfundunum halda forráðamenn til fundar við umsjónarkennara barna sinna þar sem nánar er farið yfir skólastarfið í viðkomandi bekk/árgangi.












