Fréttir
5.4.2017
Árbæjarskóli sigraði í spurningakeppni grunnskólanna
Spurningakeppni grunnskólanna var haldin þriðjudaginn 4. apríl í Laugalækjarskóla. Eftir spennandi viðureignir og drengilega keppni stóð spurningalið Árbæjarskóla uppi sem sigurvegari og náði þar með að verja titilinn þriðja árið í röð.
Úrslitaviðureignin var við Laugalækjarskóla og fóru leikar 22-11 Árbæjarskóla í vil. Setbergsskóli lenti í þriðja sæti eftir sigur á Valhúsaskóla. Sigurlið Árbæjarskóla skipa Gabríel Máni Ómarsson, Sindri Smárason, Jenný María Jóhannsdóttir og Bjarki Kjartansson en þjálfari liðsins er Árni Björnsson. Undanfarin ár hefur keppnin verið í höndum Hannesar Daða Haraldssonar sem hefur samið spurningar og verið spyrill keppninnar.