Frístundaheimili er starfrækt við alla grunnskóla í Reykjavík. Frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Árbæjarskóla er starfrækt í frístundamiðstöðinni Árseli og heitir Töfrasel.
Þar er boðið upp á skipulagt starf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur fram til kl. 17:15. Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.arsel.is/tofrasel. Foreldrum er einnig bent á að hafa samband við starfsfólk Töfrasels í síma 411 5815 til að fá nánari upplýsingar.












