Námsráðgjafi veitir nemendum stuðning vegna persónulegra, félagslegra og hegðunarerfiðleika.
Stuðningurinn er einstaklingsmiðaður þar sem nemandanum er hjálpað að leita lausna. Námsráðgjafinn vísar á önnur úrræði sé þess þörf. Sá stuðningur sem námsráðgjafinn veitir hefur það að markmiði að aðstoða nemandann þannig að hann geti náð hámarks árangri í námi sínu.
Námsráðgjafi er bundinn trúnaði um einkamál nemenda.
Dæmi um vandamál sem hægt er að leita aðstoðar við eru:
Námsleiði, mætingar, vandamál í samskiptum við bekkjafélaga, kennara, vini eða fjölskyldu, stríðni, einelti, sorg, þunglyndi, kvíði, feimni og vímuefni.











