Skipulag náms í 8. - 10. bekk er með þeim hætti að nemendur í 8.bekk velja sér námsgreinar í frjálsu vali. Í 9. og 10. bekk stunda nemendur nám í kjarnagreinum en gefst kostur á að velja milli námsbrauta auk námsgreina í frjálsu vali.
Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi námsbrauta:
- grunnbraut
- félagsfræðibrautar
- náttúrufræðibrautar
- félags- og náttúrufræðibrautar
Mikilvægt er að nemendur vandi val sitt og séu meðvitaðir um inntak þeirra námsgreina sem þeir velja. Því er mælt með að nemendur afli sér sem mestra upplýsinga um valgreinarnar og ræði við námsráðgjafa ef um einhver vafaatriði er að ræða.











