Námsmat nemenda í 1. – 10. bekk skólans grundvallast á nemendaeinkunn og lokaprófum haustannar og vorannar.
Nemendaeinkunn gildir 60% af lokaeinkunn en árseinkunn nemenda er samanlögð einkunn haustannar og vorannar. Nemendaeinkunn er einkunn sem nemendur fá fyrir ástundun, stöðupróf, ritgerðir, vinnubækur og lausnir ýmissa verkefna. Vægi þessara þátta er mismunandi eftir greinum.
Í upphafi hverrar annar liggja fyrir náms- og kennsluáætlanir einstakra námsgreina sem nálgast má á heimasíðu skólans.
Námsmat Árbæjarskóla
Skólaárið skiptist í tvær annir, haustönn og vorönn, þar sem hvorri önn lýkur með námsmati sem í flestum tilfellum samanstendur af lokaprófi 40% og nemandaeinkunn 60%.
Nemandaeinkunnir eru vel skilgreindar í námsáætlunum hverrar faggreinar þar sem rík áhersla er lögð á fjölbreytileika í námsmati.
Hver faggrein skilgreinir síðan nánar þá matsþætti sem lagðir eru til grundvallar nemandaeinkunn í kennsluáætlun.
Sem dæmi um þá þætti sem nemandaeinkunn getur staðið fyrir má nefna: Skrifleg próf að hámarki 40%, hlustun, hópverkefni, munnleg próf, þemaverkefni, fyrirlestrar, ástundun o.s.frv. Með ástundun er m.a. átt við: áhuga, vinnubrögð, framfarir og virkni.
Nemandaeinkunn og lokapróf skal skilgreina í verkefnabók í Mentor sem opin er öllum foreldrum.
Á námsmatsblaði að vori birtast haust- og vorannareinkunnir nemenda. Á námsmatsblaði haust og vor skal koma fram skrifleg umsögn umsjónarkennara með hverjum nemanda í 1. - 10. bekk.
Námsmat í 1. bekk
- - Stærðfræði próf að vori 40% og nemandaeinkunn 60%.
- - Skrift 40% próf og 60% vinnubók.
- - Samfélagsfræði/náttúrufræði 100%.
- - Lestrarpróf að vori100%.
Námsmat er eingöngu afhent nemendum að vori í 1. bekk og eru þá einkunnir gefnar í bókstöfum.
Námsmat í 2. - 4. bekk
- - Námsmat í 2. - 4. bekk samanstendur af lokaprófi í faggrein 40% á móti 60% nemandaeinkunn.
- - Stærðfræði próf 40% og nemandaeinkunn 60%.
- - Íslenska, próf 40% og nemendaeinkunn 60%.
- - Samfélagsfræði/náttúrufræði 100%.
- - Lestrarpróf 100%.
Skilgreining á nemandaeinkunn er samræmd í þessum árgöngum.
Námsmat bóklegra greina í 5. - 10. bekk
- - Námsmat bóklegra greina í 5. - 10. bekk samanstendur af lokaprófi í faggrein 40% á móti 60% nemandaeinkunn.
- - Þrepamarkmiðum árgangs er náð að vori enda skal við námsmatið horft til skólaársins í heild.
- - Við námsmat í 10. bekk að vori er, í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku, prófað í námsefni 8. - 10. bekkjar.
Námsmat í lotubundnu námi í 5. - 8. bekk
- - Áfangapróf I 20%
- - Áfangapróf II 20%
- - Nemandaeinkunn 60%
Námsmat nemenda með sérþarfir
- - Nemandi tekur það próf við lok haustannar og vorannar sem lagt er fyrir allan árgang viðkomandi í þeirri námsgrein sem um ræðir.
- - Nemandi fær skriflega umsögn í námsgrein við lok haustannar og vorannar frá kennara sínum í námsveri þar sem viðkomandi tekur ekki það próf sem lagt er fyrir hans árgang.
- - Nemandi fær skriflega umsögn í námsgrein við lok haustannar og vorannar frá kennara sínum í námsveri þar sem vísað er til árgangamiðaðrar stöðu hans.
Námsmat í íþróttum
Kennarar ákveða sameiginlega samræmt nemendamat í árgöngum og skilgreina í kennsluáætlun og verkefnabók.
Námsmat í 1. bekk gefið í bókstöfum
Námsmat í sundi
Námsmat í 1. - 2. bekk er einkunn gefinn með bókstöfum / samræmd skilgreining kennara
3.- 10. bekkur nemendaeinkunn 40% og próf 60% .
Námsmat í list- og verkgreinum
Kennarar ákveða sameiginlega samræmt nemendamat í árgöngum og skilgreina í kennsluáætlun og verkefnabók.
Námsmat í 1. bekk gefið bókstöfum.












