Upplýsingatækni - Tölvunotkun
Tölvunotkun og ritvinnsla
Lokamarkmið í upplýsingamennt
Viðhorf nemenda
- Að tileinka sér jákvæða afstöðu til tölvunotkunar.
- Að venjast upplýsingatækni sem eðlilegum þætti náms.
- Að venjast því að nota upplýsingatækni til framsetningar á efni, bæði prentuðu og á rafrænu formi.
- Að hafa raunhæfar væntingar til tölvu- og upplýsingatækni.
· Nemendur þurfa að hafa þekkingu og færni til að tileinka sér það sem fram fer í síbreytilegum heimi tækni, upplýsinga og samskipta. Þar af leiðandi er afar mikilvægt að þeir öðlist þá undirstöðufærni sem til þess þarf í námi sínu.
Tæknilæsi / tölvulæsi
- Að þekkja og skilja helstu hluta tölvunnar og jaðartæki hennar og séu færir um að beita þeim.
- Að skilja hlutverk algengs stýrikerfis í einkatölvu og séu sjálfbjarga um viðhald þess.
- Að tileinka sér rétta fingrasetningu, líkamsbeitingu og blindskrift við innslátt tölvugagna.
- Að geta kynnt sér nýjan hugbúnað og viðhald á honum eftir því sem við á.
- Að geta beitt tölvutækni við upplýsingaleit.
geti bent á upplýsingatækni í umhverfi sínu og gert grein fyrir því hvernig hún er notuð
- Að öðlast skilning á forritun sem undirstöðuþætti tölvu- og upplýsingavinnslu.
- Að hafa notað upplýsingatækni til að auka við þekkingu sína og viðhalda henni.
Upplýsingalæsi / Menningarlæsi
· Að gera sér grein fyrir siðferðilegri og lagalegri ábyrgð sem fylgir því að vinna með upplýsingar
· geri sér grein fyrir sérstöku eðli samskipta í netheimi
· Að fá undirstöðuþjálfun í upplýsingavinnslu.
· Að hafa notað tölvusamskipti í markvissum tilgangi.
· Að hafa notað margmiðlunartækni í framsetningu á tölvutæku efni.
· Að hafa vanist því að setja saman stiklutexta á eðlilegan hátt m.t.t. innihalds.
· Átti sig á menningarlegu gildi upplýsinga
Tölvunotkun og ritvinnsla
1. - 4. bekkur
Áfangamarkmið
- Að kynnast tölvunni á jákvæðan hátt, umgengni við hana og helstu ílags- og frálagstækjum.
- Að vinna með kennsluforrit sem hæfa aldri og geta nýtt þau til nánari útvíkkunar á námsefni í öðrum námsgreinum.
- Að þjálfast í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu og kunni að nota ákveðna sérlykla á lyklaborði í stað músar.
- Að kynnast uppbyggingu lyklaborðsins og öðlast grunnfærni í fingrasetningu.
- Að læra einföldustu aðgerðir í tölvuvinnslu
- Að nemendur geit nýtt sér tölvu til að skrifa og prenta út eigin texta.
- Að geta nýtt sér kennsluforrit til nánari útvíkkunar á námsefni í öðrum námsgreinum. (Eyða)
- Að öðlast undirstöðufærni í umgengni við Veraldarvefinn og póstforrit.
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar, sýnikennsla og verklegar æfingar.
.
Námsmat
Mat skal veita nemendum og forráðamönnum þeirra innsýn í stöðu hans í greininni. Verkefni eru metin og vinnusemi í tímum. Gefin er einkunn í bókstöfum í 1. bekk, eftir það er gefi einkunn í tölum, heilum og hálfum, 1 upp í 10
Tölvunotkun og ritvinnsla
5. - 7. bekkur
Áfangamarkmið
- Að læra einföldustu aðgerðir í tölvuvinnslu.
- Að þjálfast í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu.
- Að geta nýtt sér kennsluforrit, ritvinnslu, töflureikni, umbrotsforrit, framsetningarforrit, teikniforrit og kynnist margmiðlunarefni.
- Að halda áfram að þjálfast í réttri fingrasetningu og blindskrift.
- Að öðlast færni í öguðum vinnubrögðum og temji sér siðfræðileg gildi varðandi notkun Veraldarsvefsins.
- Að öðlast þekkingu á möguleikum sem Windows stýrikerfið býður upp á.
- Að geta nýtt sér kennsluforrit til nánari útvíkkunar á námsefni í öðrum námsgreinum.
- Að kynnist hvernig hægt er að afla sér upplýsinga á vefnum.
- Að temja sér snyrtilegan frágang á verkefnum.
- Að nemendur
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar, sýnikennsla og verklegar æfingar.
Námsmat
Mat skal veita nemendum og forráðamönnum þeirra innsýn í stöðu hans í greininni. Metin er vinnusemi í tímum. Gefin er einkunn í tölum, heilum og hálfum, 1 upp í 10.
Tölvunotkun og ritvinnsla
8. - 10. bekkur
Áfangamarkmið
- Að kynnast undirstöðuatriðum í meðferð tölva og notkunarmöguleikum Windows umhverfisins.
- Að temja sér snyrtilegan frágang á verkefnum.
- Að ná grunnfærni í notkun ritvinnsluforrits, framsetningarforrits, töflureiknis og myndvinnsluforrits og geti notfært sér möguleika þeirra.
- Að nemendur nái góðum tökum á réttri fingrasetningu og blindskrift.
- Að kynnast hvernig hægt er að afla sér upplýsinga á Veraldarvefnumog samskiptamöguleikum þar og temji sér einnig siðfræðileg gildi varðandi notkun hans.
- . Að nemendur kynnist m.
Kennsluaðferðir
Fyrirlestrar, sýnikennsla og verklegar æfingar.
.
Námsmat
Mat skal veita nemendum og forráðamönnum þeirra innsýn í stöðu hans í greininni.
Verkefni eru metin og vinnusemi í tímum.
Gefin er einkunn í tölum, heilum og hálfum, 1 upp í 10.












