Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða
Tónmennt


Lokamarkmið
Í tónmennt er markmiðið að nemendur tileinki sér þekkingu á eðli tóna og hljóða, þ.e. tónhæð, tónlengd, hljómum, tónblæ, tónstyrk, formi og túlkun og geri sér grein fyrir framsetningu frumþáttanna í fjölbreyttri tónlist. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist tæknilega færni og tjáningu, þ.e. hafi ákveðið vald á söng og raddbeytingu, lestri og ritun, hljóðfæranotkun, hreyfingu, hlustun, og sköpun  Mikilvægt er að nemendur geri sér grein fyrir því menningalega samhengi sem fjölbreytt tónlist sprettur úr.  Einnig er mikilvægt að nemendur öðlist skilning og þekkingu á eðli tónlistar og hæfni til að hlusta, greina og meta fjölbreytta tónlist.

Tónmennt
1. – 4. bekkur
                                 
Áfangamarkmið

  • Að kynnast sönglögum, íslenskum og erlendum, frá ýmsum tímum.
  • Að þekkja verk ýmissa tónskálda og kynnast helstu straumum og stefnum í tónlist.  
  • Að þekkja og greina algeng tónlistarhugtök.
  • Að þekkja og greina helstu hljóðfæraflokka og raddgerðir. 
  • Að geta sýnt viðbrögð við fjölbreyttri tónlist.

Kennsluaðferð
Mikill söngur, hópvinna, vinnubók og samvinna. Upptökur á flutningi nemenda.  Nemendur fá tvær kennslustundir á viku og einnig er boðið upp á kórstarf.

Tengsl
Tónmennt tengist öðrum námsgreinum skólans á margvíslegan hátt.

Námsmat
Lokapróf annar, hópverkefni og vinnubók  50%.  Beitt er símati, þar sem tekið er mið af virkni, hegðun og framför nemandans 50 % .



Tónmennt
1. – 5. bekkur
                                 
Áfangamarkmið

  • Að kynnast sönglögum, íslenskum og erlendum, frá ýmsum tímum.
  • Að þekkja verk ýmissa tónskálda og kynnast helstu straumum og stefnum í tónlist.  
  • Að þekkja og greina algeng tónlistarhugtök.
  • Að þekkja og greina helstu hljóðfæraflokka og raddgerðir. 
  • Að geta sýnt viðbrögð við fjölbreyttri tónlist.

Kennsluaðferð
Mikill söngur, hópvinna, vinnubók og samvinna. Nemendur fá tvær kennslustundir á viku og einnig er boðið upp á kórstarf.

Tengsl
Tónmennt tengist öðrum námsgreinum skólans á margvíslegan hátt.

Námsmat
Lokapróf annar 30%.  Beitt er símati, þar sem tekið er mið af virkni, hegðun og framför nemandans. 40% Hópverkefni,vinnubók og söngur 30 %.

Tónlist

Markmið
Að nemendur auki þekkingu sína á tónlist. 

Námsþættir
Taktæfingar, hljómfræði, tónfræði, hlustun, hljóðfæraleikur og söngur. Algengustu hrynform æfð og útskýrð, tónstigar og brotnir hljómar. Hljómfræðikennslan verður útfærð á hljóðfæri í tímum með samspili. Heimahljómar í dúr og moll. Nótnaskrift, lyklar, lengdargildi, formerki, taktboðar, bygging dúr og moll tónstiga, tónbil, og tónflutningur. Umræður um fjölbreytt hlustunarefni. Æfingar í bassalínubyggingu og spuni.

Námsmat
Ástundun og vinna 50%.  Verkefni og próf 50%

Tímamagn
2 kennslustundir á viku.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð