Textílmennt
Lokamarkmið
- Að öðlast grundvallarfærni í undirstöðuaðferðum textílgreinarinnar til sjálfstæðrar sköpunar, hönnunar og persónulegra útfærslna
- Að tileinka sér hagkvæmar vinnustellingar ásamt réttri notkun áhalda og véla
- Að gera sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni.
- Að vekja og efla áhuga fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi.
Textílmennt
1. - 4. bekkur
Áfangamarkmið
- Að þjálfa huga og hönd nemandans, ásamt tilfinningu hans fyrir efni, formi og litum. Mikilvægt er að hafa verkefnin einföld og fljótleg þannig að nemandinn fái að njóta þeirrar gleði sem það gefur að hafa sjálfur skapað og fullunnið einhvern hlut.
- Að geta nýtt kunnáttu sína í verkþáttum eins og vefnaði, prjóni, saumi, þæfingu og þrykki til eigin sköpunar.
- Að geta beitt einföldustu áhöldum greinarinnar, notað hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefnum hverju sinni.
- Að þjálfast í að fara eftir fyrirmælum svo þeir verði sjálfstæðir í vinnu sinni.
Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum. Að öðru leyti er kennslan einstaklingsbundin.
Tengsl
Tengsl við myndmennt, stærðfræði og íslensku þar sem nemendur teikna, vinna með form og liti auk þessa að lesa fyrirmæli.
Námsmat
Námsmat er nauðsynlegur leiðsagnarþáttur og miðar að því að safna upplýsingum um stöðu nemenda , getu þeirra og kunnáttu og á fyrst og fremst að taka mið af settum markmiðum hverju sinni.
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgengni. Einkunnir eru gefnar í lok annar og birtast á prófskírteini nemenda.
Textílmennt
5. - 7. bekkur
Áfangamarkmið
- Að læra og tileinka sér margs konar aðferðir og vinnubrögð, hagkvæmar vinnustellingar, rétta notkun áhalda og véla, samhliða þjálfun til sjálfstæðrar sköpunar eftir því sem aldur og þroski leyfir.
- Að hafa farið í gegnum ferlið frá hugmynd að fullgerðum hlut.
- Að gera sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni.
Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum. Að öðru leyti er kennslan einstaklingsbundin.
Tengsl
Tengsl við myndmennt, stærðfræði og íslensku þar sem nemendur skissa og teikna, vinna með mælingar, útreikning og form, auk þess að lesa fyrirmæli.
Námsmat
Námsmat er nauðsynlegur leiðsagnarþáttur og miðar að því að safna upplýsingum um stöðu nemenda , getu þeirra og kunnáttu og á fyrst og fremst að taka mið af settum markmiðum hverju sinni.
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgengni. Einkunnir eru gefnar í lok annar og birtast á prófskírteini nemenda.
Textílmennt
8. - 10. bekkur
Áfangamarkmið
- Að geta nýtt sér mismunandi aðferðir textílgreinarinnar til sjálfstæðrar sköpunar, hönnunar og persónulegra útfærslna
- Að tileinka sér hagkvæmar vinnustellingar ásamt réttri notkun áhalda og véla.
- Að gera sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni.
- Að gera sér grein fyrir notagildi textílnáms og fatasaums.
- Að meta hvaða litir, snið og efni henta þegar flík er saumuð.
- Að vekja og efla áhuga fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi.
Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum, að öðru leyti er kennslan einstaklingsbundin.
Tengsl
Tengsl við myndmennt, stærðfræði og íslensku þar sem nemendur skissa og teikna, vinna með mælingar, útreikning og form, auk þessa að lesa fyrirmæli.
Námsmat
Námsmat er nauðsynlegur leiðsagnarþáttur og miðar að því að safna upplýsingum um stöðu nemenda, getu þeirra og kunnáttu og á fyrst og fremst að taka mið af settum markmiðum hverju sinni.