Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Safnkennsla

Lokamarkmið

  • Að skilgreina upplýsingaþörf í tengslum við ákveðin verkefni.
  • Að geta nýtt sér flokkunar- og leitarkerfi til þess að afla upplýsinga og varðveita þær.
  • Að geta metið gildi upplýsinga fyrir ákveðin viðfangsefni.
  • Að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að afla upplýsinga og vinna með þær.
  • Að átta sig á menningarlegu gildi upplýsinga á öllum tímum og áhrifum þeirra á viðhorf fólks og lífsmáta.

Upplýsingar eru undirstaða þekkingar.  Ábyrg þekking er undirstaða víðsýni og skilnings á ólíkum verkefnum og aðstæðum.  Færni í að afla sér upplýsinga leggur grunninn að ævilangri símenntun og sjálfsnámi.

 

Safnkennsla
1. –  4. bekkur

Áfangamarkmið

  • Að þekkja uppröðunarkerfi bókasafna og geta nýtt sér það til ánægju og fróðleiks.
  • Að geta á sjálfstæðan hátt aflað sér upplýsinga úr bókum, af margmiðlunardiskum og upplýsingaveitum.
  • Að geta unnið úr og nýtt sér þær upplýsingar sem nemandi hefur aflað sér.
  • Að þekkja helstu barnabókahöfunda, íslenska og erlenda.

Þekking á aðferðum við öflun upplýsinga gefur nemendum aukna möguleika á að afla sér fróðleiks á eigin spýtur og leita lausna á daglegum viðfangsefnum.
Lestur skáldverka veitir einnig svör við ýmsum spurningum og vandamálum.

Kennsluaðferðir
Bein kennsla. Innlögn. Leiðsögn við sjálfstæð vinnubrögð.

Tengsl
Tengsl skólabókasafns við nám og kennslu eru þverfagleg.  Bókasafnið er sá staður þar sem nemendur, kennarar og annað starfsfólk geta aflað sér bóka, heimilda og ítarefnis.

Námsmat
Ekkert formlegt námsmat.  Námið og kennslan skilar sér í aukinni og markvissari notkun safnsins.


Safnkennsla
5. - 7. bekkur

Áfangamarkmið

  • Að þekkja leitar- og útlánakerfi safnsins og geta nýtt sér það sér til gagns og ánægju.
  • Að geta aflað sér heimilda úr bókum, af margmiðlunardiskum og neti, geta skipulagt eigin heimildavinnu, úrvinnslu, tilvitnanir, heimildaskrá.
  • Að gera sér grein fyrir þeirri siðferðislegu ábyrgð sem fylgir upplýsingaöflun og upplýsinganotkun.

Þekking á aðferðum við öflun upplýsinga gefur nemendum aukna möguleika á að afla sér fróðleiks á eigin spýtur og leita lausna á daglegum viðfangsefnum.
Lestur skáldverka veitir einnig svör við ýmsum spurningum og vandamálum.

Kennsluaðferðir 
Bein kennsla. Innlögn. Leiðsögn við sjálfstæð vinnubrögð

Tengsl
Tengsl skólabókasafns við nám og kennslu eru þverfagleg.  Bókasafnið er sá staður þar sem nemendur og kennarar geta aflað sér bóka, heimilda og ítarefnis.

Námsmat
Ekkert formlegt námsmat.  Námið og kennslan skilar sér í aukinni og markvissari notkun safnsins.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð