Myndlist
Lokamarkmið
· Að öðlast færni í undirstöðuaðferðum myndlistar til sjálfstæðrar sköpunar, tjáningar og persónulegra útfærslna
· Að tileinka sér góð vinnubrögð ásamt réttri notkun áhalda og efna.
· Að gera sér grein fyrir mikilvægi vandaðara vinnubragða og góðrar umgengni og að vekja og efla áhuga fyrir skapandi og þroskandi myndlistariðkun.
Myndlist
1. - 4. bekkur
Áfangamarkmið
· Að virkja huga og hönd nemenda, ásamt tilfinningu þeirra fyrir formi og litum. Gott er að hafa verkefnin einföld og ekki of erfið þannig að nemandur fái að finna þá gleði sem það getur gefið að hafa skapað myndverk.
· Að geta nýtt kunnáttu sína í aðferðum eins og teiknun, málun og leirmótun til eigin sköpunar.
· Að geta beitt einföldustu áhöldum greinarinnar, notað hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefnum hverju sinni. Að þjálfast í að fara eftir fyrirmælum svo þeir verði sjálfstæðir í vinnu sinni
Kennsluaðferðir
Munnleg innlögn verkefna. Aðferðir sýndar á töflu. Einstaklingkennsla.
Námsgögn
Nemar hafi með sér pennaveski með blýanti, strokleðri og túss- eða trélitum. Skólinn leggur til pappír, þekjuliti og teikniblýanta. Pensla, leir, glerunga. Sirkla og reglustikur. Neoncolor litkrít og sloppa.
Námsmat
Til grundvallar námsmati er 50% verkefni nemenda og 50% kennaraeinkunn, sem gefin er fyrir vinnubrögð og færni (25%)og umgengni og frágang (25). Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgegngi. Einkunnir eru gefnar í tölustöfum, (nema í 1. bekk) í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Myndlist
5. - 7. bekkur
Áfangamarkmið
· Að virkja huga og hönd nemenda, ásamt tilfinningu þeirra fyrir formi og litum. Gott er að hafa verkefnin hæfilega erfið þannig að nemandur fái að finna þá gleði sem það getur gefið að takast á við hæfilega erfitt verkefni.
· Að geta nýtt kunnáttu sína í aðferðum eins og teiknun, málun og leirmótun til eigin sköpunar.
· Að geta beitt öllum almennum áhöldum greinarinnar, notað hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefnum hverju sinni. Að þjálfast í að fara eftir fyrirmælum svo þeir verði sjálfstæðir í vinnu sinni. Að geta unnið í hópum.
Kennsluaðferðir
Munnleg innlögn verkefna. Aðferðir sýndar á töflu. Einstaklingkennsla.
Námsmat
Til grundvallar námsmati er 50% verkefni nemenda og 50% kennaraeinkunn, sem gefin er fyrir vinnubrögð og færni (25%)og umgengni og frágang (25). Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgegngi. Einkunnir eru gefnar í tölustöfum, (nema í 1. bekk) í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Myndlist
8. - 10. bekkur
Áfangamarkmið
· Að virkja huga og hönd nemenda, ásamt tilfinningu þeirra fyrir formi og litum. Gott er að hafa verkefnin hæfilega erfið þannig að nemandur fái að finna þá gleði sem það getur gefið að takast á við hæfilega erfitt verkefni.
· Að geta nýtt kunnáttu sína í aðferðum eins og teiknun, málun og leirmótun til eigin sköpunar. Að geta aflað sér gagna til myndgerðar og að geta beitt öllum almennum áhöldum greinarinnar, notað hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefnum hverju sinni. Að þjálfast í að fara eftir fyrirmælum svo þeir verði sjálfstæðir í vinnu sinni. Að geta unnið í hópum bæði við myndgerð og gagnaöflun.