Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Kristin fræði, siðfræði og trúarbragðafræði

Lokamarkmið
Nemandi á að:

  • þekkja sögu Biblíunnar sem ritsafns, hafa öðlast færni í notkun hennar,  kunna skil á ólíkum ritum og skilja gildi hennar í helgihaldi og trúarlífi
  • hafa öðlast þekkingu á starfi kirkjunnar, einkum hjálpar- og kristniboðsstarfi bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi
  • hafa kynnst helstu kirkjudeildum og kristnum trúfélögum, hvað þau eiga sameiginlegt og hvað greinir þau að
  • hafa kynnst völdum þáttum úr almennri og íslenskri kirkjusögu, einkum frá siðbótartímanum til okkar daga
  • hafa kynnst áhrifum ólíkra trúarbragða á menningu og listir
  • hafa öðlast færni í að fást við siðferðileg álitamál í ljósi mismunandi gildismats, trúarbragða og lífsviðhorfa, t.d. tengd samskiptum kynjanna, fjölskyldulífi, atvinnulífi, heiðarleika, sannleika og trúnaði, stríði og friði
  • þekkja inntaksþætti og útbreiðslu helstu trúarbragða heims og ólíkra lífsviðhorfa og geta borið þau saman

Áfangamarkmið 1.- 4. bekk
Nemandi á að:

  • kunna skil á Biblíunni sem trúarbók kristinna manna og þekkja vel nokkrar mikilvægar frásagnir af Jesú Kristi og kenningu hans, svo og öðrum persónum í Biblíunni, bæði í Gamla og Nýja testamentinu
  • hafa haft kynni af kristnu helgihaldi og umgjörð þess og tamið sér virðingu fyrir því sem öðrum er heilagt
  • þekkja helstu hátíðir kristninnar og siði og tákn sem tengjast þeim
  • þekkja kirkjuhúsið, helstu tákn, kirkjulegar athafnir og starf kirkjunnar í heimabyggð
  • hafa kynnst listrænni tjáningu trúar og fengið tækifæri til listrænnar tjáningar eigin hugmynda
  • þekkja grundvallargildi kristilegs siðgæðis og hafa fengist við efni sem stuðlar að ábyrgðartilfinningu, sáttfýsi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
  • hafa kynnst öðrum trúarbrögðum, lífsviðhorfum og menningu, m.a. með frásögnum af jafnöldrum


Áfangamarkmið 5.- 7. bekk

Nemandi á að:


  •  þekkja nokkra helstu biblíutexta sem kristin trú og játning byggist á og geta dregið lærdóm af þeim
  • þekkja algengustu tákn kristninnar og merkingu þeirra
  • hafa kynnst völdum þáttum úr almennri og íslenskri kirkjusögu, einkum í fornöld og á miðöldum
  • kunna skil á hvernig kristni barst til Íslands og á atburðum tengdum kristnitökunni árið 1000
  • hafa kynnst áhrifum Biblíunnar og kristinnar trúar á íslenska og erlenda listsköpun í bókmenntum, myndlist og tónlist og þekkja dæmi um þau
  • hafa kynnst nokkrum mikilvægum frásögnum og persónum úr íslenskri kristni sem hafa haft mótandi áhrif á íslenska menningu og samfélag
  • hafa öðlast góða innsýn í kristilegt siðgæði og tileinkað sér samskiptareglur sem byggjast á kærleika, mannhelgi, félagslegu réttlæti og umhyggju fyrir öðrum mönnum, öllu lífi og umhverfi
  • þekkja valda þætti nokkurra helstu trúarbragða
    heimsins, einkum guðshús, tákn, hátíðir og siði, og hafa tamið sér virðingu fyrir þeim
  • hafa fengið þjálfun í að nýta sér upplýsingatækni til að leita svara við spurningum um trúarleg og siðferðileg  efni

 

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð