Íslenska
Lokamarkmið
- Að ná valdi á frumþáttum móðurmálsins; töluðu máli og hlustun, lestri og ritun og rækta með sér virðingu fyrir málinu.
- Að geta tjáð skoðanir sínar, hugmyndir og tilfinningar á glöggu og auðugu máli, töluðu og rituðu.
- Að öðlast skilning á sögulegu, menningarlegu og félagslegu gildi íslenskrar tungu og bókmenntum og kynnast völdum bókmenntaverkum þjóðarinnar frá ýmsum tímum.
- Að auka þekkingu sína á eðli málsins og lögmálum þess og gera sér grein fyrir hlutverki móðurmálsins í daglegu lífi.
- Að verða fær um að leggja sjálfstætt mat á atburði og málefni sem birtast í töluðu máli, rituðu máli og myndum.
Íslenska
1. - 4. bekkur
Áfangamarkmið
- Að geta lesið margvíslega texta, bæði upphátt og í hljóði, á sæmilegum hraða, skýrt og áheyrilega og með góðum skilningi.
- Að geta tekið þátt í samræðum og virt þær reglur sem þar gilda.
- Að hafa náð tökum á undirstöðuatriðum hlustunar og áhorfs og geta farið eftir fyrirmælum.
- Að geta skrifað einfalda texta af ólíkum gerðum og sett fram á læsilegan og skipulegan hátt.
- Að geta notað tölvu við ritun.
- Að hafa kynnst nokkrum grundvallarhugtökum í málfræði; orð, setning, málsgrein, efnisgrein, kyn, tala, fall, tíð, samheiti, andheiti og samsett orð og notað þau í tengslum við lestur og ritun.
- Að hafa tileinkað sér jákvætt viðhorf til móðurmálsins og öryggi við beitingu þess.
Á fyrstu námsárunum er mest áhersla lögð á þjálfun í lestri enda lestur og lesskilningur grundvöllur frekara náms. Mikilvægt er að leggja grunn að færni í ritun og meðferð texta til þess að nemendur séu færir um að tjá skoðanir sínar og upplifanir í rituðu máli. Þjálfun í munnlegri tjáningu er nauðsynleg til þess að geta tekið þátt í samræðum, hlustað og skipst á skoðunum um ýmis málefni.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, innlagnir t.d. á ýmsum málfræðiatriðum. Utanbókarlærdómur
á ljóðum og þulum og ýmsum málfræðiatriðum. Einstaklings- og hópverkefni unnin undir leiðsögn kennara. Námsleikir, spil og myndbönd.
Tengsl
Tengsl íslensku við aðrar námsgreinar eru augljós þar sem öll kennsla fer fram á íslensku. Hugtök og talað mál sem notuð eru í öðrum námsgreinum tengjast öll íslensku.
Námsmat
Námsmat byggir á prófi sem gildir 50% og kennaraeinkunn sem gildir 50%. Gefnar eru einkunnir í lestri, skrift, stafsetningu og lesskilningi í 1. - 3. bekk en í lestri, skrift, stafsetningu og lesskilningi og málnotkun í 4. bekk.
Íslenska
5. - 7. bekkur
Áfangamarkmið
- Að geta lesið ýmsa texta í máli og myndum sér til gagns og ánægju.
- Að hafa náð tökum á áheyrilegum upplestri og geta tjáð sig munnlega á skýran og skipulegan hátt.
- Að geta nýtt sér upplýsingar í töluðu máli og myndum.
- Að geta tjáð sig skriflega á skýran og læsilegan hátt.
- Að kynnast íslenskum og erlendum bókmenntum af ýmsu tagi og frá ýmsum tímum og þekkja helstu bókmenntafræðileg hugtök og stíltegundir.
- Að kunna algengustu málfræði- og stafsetningarreglur íslenskunnar og átta sig á uppbyggingu málsins og setningagerð.
Lestur fjölbreytilegra texta eykur orðaforða og skilning, víkkar reynsluheim og veitir upplýsingar. Í upplýsingasamfélagi nútímans þar sem margt er í boði er nauðsynlegt að fólk geti nýtt sér upplýsingar í ýmsu formi og tjáð sig skýrt í ræðu og riti. Tungumálið er undirstaða rökvísrar hugsunar og haldgóð þekking á málfræði og setningagerð stuðlar að slíkri hugsun. Ekkert tungumál – engin hugsun.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, innlagnir á ýmsum málfræðiatriðum og ljóðahugtökum. Utanbókarlærdómur t.d. á ýmsum málfræðiatriðum og ljóðum. Einstaklings- og hópverkefni unnin undir leiðsögn kennara. Námsleikir, spil og myndbönd.
Tengsl
Tengsl íslensku við allar aðrar námsgreinar eru augljós þar sem kennsla fer fram á íslensku. Þau hugtök sem notuð eru í öðrum greinum auka orðaforða nemenda.
Námsmat
Gefnar eru einkunnir í lestri, skrift, stafsetningu og málfræði og bókmenntum.
Námsmat byggir á prófum sem gilda 50% og kennaraeinkunn sem gildir 50%. Kennaraeinkunn skiptist þannig: vinnubækur, ástundun og heimavinnu.
Íslenska
8. - 10. bekkur
Áfangamarkmið
- Að lesa margvíslega texta til að auka orðaforða sinn, efla les- og málskilning og myndi sér gagnrýna skoðun á þeim.
- Að geta gert grein fyrir skoðunum sínum, eigin reynslu og upplifun á skipulegan hátt og af öryggi til að geta tekið þátt í samræðum í misstórum hópum um fjölbreytt málefni.
- Að þjálfast í að skrifa margs konar texta og tileinki sér viðeigandi stíl, uppsetningu, byggingu og frágang til að efnið komist vel til skila.
- Að ná tökum á helstu málfræðiatriðum og stafsetningarreglum íslenskunnar til að geta tjáð sig skriflega og munnlega.
Í nútímaþjóðfélagi er hverjum og einum sérstaklega mikilvægt að hafa gott vald á móðurmáli sínu til að geta komið hugsun sinni og öðru efni á framfæri á skýran og skipulagðan hátt. Einnig er gott vald á móðurmálinu grundvöllur fyrir nám í erlendum tungumálum.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla; innlagnir á málfræði-, bókmennta- og ljóðahugtökum, myndbönd, utanbókarlærdómur á ýmsum málfræðiatriðum, námsleikir/spil, umræðuhópar, hlustunarefni, hópverkefni, sjálfstæð vinnubrögð og ritun.
Tengsl
Íslenskan tengist öllum námsgreinum í skólanum þar sem kennsla fer fram á íslensku, námsefni er oftast á íslensku og nemendur þurfa að geta tjáð sig bæði munnlega og skriflega á því máli.
Námsmat
Haustannareinkunn: Lokapróf annar 50% og kennaraeinkunn 50%.
Námkvæmt skipting kennaraeinkunnar kemur fram á kennsluáætlun í hverjum árgangi.












