Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Hönnun og smíði

Meginmarkmið

  • Að öðlast þekkingu og færni í notkun, meðferð og möguleikum ólíkra efna og verkfæra.
  • Að hafa tileinkað sér ábyrga umgengni og öryggisreglur við verklega vinnu.
  • Að tileinka sér rétta líkamsbeitingu og hollustuvenjur við vinnu.
  • Að vekja og efla áhuga fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi sem gefur færi á að gleðja sig og sína nánustu með því að skapa hluti sem hafa persónulegt gildi.

Hönnun og smíði
1.  –  4. bekkur

Árgangamarkmið

  • Að þjálfa huga og hönd, ásamt tilfinningu fyrir efni, formi og litum.
  • Að þekkja og geta beitt einföldum handverkfærum.
  • Að geta gert lýsandi vinnuteikningar af verkum sínum.
  • Að þjálfast í að fara eftir fyrirmælum svo nemendur verði sjálfstæðir í vinnu sinni.

Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum.  Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.

Tengsl
Tengsl við myndlist, stærðfræði og íslensku þar sem nemendur teikna, mæla, vinna með form og liti auk þess að lesa fyrirmæli.

Námsmat
Námsmat er nauðsynlegur leiðsagnarþáttur og miðar að því að safna upplýsingum um stöðu nemenda, getu þeirra og kunnáttu og á fyrst og fremst að taka mið af settum markmiðum hverju sinn.
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum;  frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgegngi.  Einkunnir eru gefnar í tölustöfum, (nema í 1. bekk) í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10.  Gefið er í heilum og hálfum tölum.
 

Hönnun og smíði 
5. – 7. bekkur

Árgangamarkmið

  • Að læra og tileinka sér margs konar aðferðir og vinnubrögð, hagkvæmar vinnustellingar, rétta notkun áhalda, samhliða þjálfun til sjálfstæðrar sköpunar eftir því sem aldur og þroski leyfir.
  • Að gera sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni.
  • Að vekja og efla áhuga nemenda fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi sem gefur þeim færi á að gleðja sig og sína nánustu með því að skapa hluti sem hafa persónulegt gildi.

Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum.  Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.

Tengsl
Tengsl við myndlist, stærðfræði og íslensku þar sem nemendur skissa og teikna, mæla, vinna með form og liti auk þess að lesa fyrirmæli.

Námsmat
Námsmat er nauðsynlegur leiðsagnarþáttur og miðar að því að safna upplýsingum um stöðu nemenda, getu þeirra og kunnáttu og á fyrst og fremst að taka mið af settum markmiðum hverju sinn. 
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum;  frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgegngi.  Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda.
Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10.  Gefið er í heilum og hálfum tölum.
 
Hönnun og smíði 
8. – 10. bekkur

Árgangamarkmið

  • Að þjálfast í að móta hugmyndir sínar í efni með þeirri verkfærni og verkþekkingu sem smíðagreinin býr yfir.
  • Að hafa tileinkað sér hagkvæmar vinnustellingar ásamt réttri notkun áhalda og véla.
  • Að gera sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni.
  • Að vekja og efla áhuga nemenda fyrir nytsömu og þroskandi tómstundastarfi sem gefur þeim færi á að gleðja sig og sína nánustu með því að skapa hluti sem hafa persónulegt gildi.

Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum.  Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.

Tengsl
Tengsl við myndlist, stærðfræði og íslensku þar sem nemendur skissa og teikna, mæla, vinna með form og liti auk þess að lesa fyrirmæli.

Námsmat
Námsmat er nauðsynlegur leiðsagnarþáttur og miðar að því að safna upplýsingum um stöðu nemenda, getu þeirra og kunnáttu og á fyrst og fremst að taka mið af settum markmiðum hverju sinn. 
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum;  frumkvæði, sjálfstæði, framfarir, vandvirkni og umgengni.  Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok í 8. bekk, annars í  annarlok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda.
Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10.  Gefið er í heilum og hálfum tölum.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð