Heimilisfræði
Lokamarkmið
● Að stuðla að heilbrigðu líferni nemenda til að þeir verði hraustir.
● Að kenna um hagsýni í heimilisrekstri.
● Að kenna umhverfisvernd til að geta viðhaldið auðæfum jarðarinnar.
Heimilisfræði
1. - 4. bekkur
Áfangamarkmið
● Að þekkja muninn á hollum og óhollum mat og geti raðað fæðu í fæðuhringinn til að stuðla að heilbrigðum matarvenjum.
● Að fá grunnþjálfun í vinnubrögðum í eldhúsinu til að geta búið til einfalda rétti og orðið sjálfstæð í eldhúsi.
● Að smakka og þekkja fæðutegundir úr öllum fæðuhringnum til að stuðla að fjölbreyttu fæðuvali.
● Að tileinka sér persónulegt hreinlæti og geta vaskað upp eftir sig til að stuðla að hreinlæti og vellíðan.
● Að geta borið saman verð á vöru og geta lesið upplýsingar á matvælum til að gera nemendur að góðum neytendum.
● Að skilja mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna og þekkja leiðir til að vernda hana til að geta skilað henni betri.
Kennsluaðferðir
Nemendur vinna bæði skrifleg og verkleg verkefni. Verkefni í yngstu aldurshópunum eru unnin með kennara. Einnig verður sýnikennsla á ákveðnum verkþáttum sem nemendur reyna síðan sjálfir. Nemendur vinna bæði einir og í hópum.
Tengsl
Heimilisfræði tengist mörgum námsgreinum á ýmsan hátt.
Íslensku þar sem nemendur lesa uppskriftir og verkefni og fara eftir fyrirmælum.
Stærðfræði þar sem nemendur mæla hráefni.
Íþróttum þar sem lögð er áhersla á hollan mat og hreyfingu.
Samfélagsfræði þar sem fjallað er um mat frá því í gamla daga.
Lífsleikni þar sem fjallað er um velferð einstaklingsins og lögð áhersla á heilbrigt líferni.
Námsmat
Frammistaða nemenda metin með símati. Verklegar og skriflegar æfingar eru metnar til að kanna hvort nemendur hafa tileinkað sér þá færni og þekkingu sem ætlast er til.
Metin er vinnusemi nemenda, hegðun og frammistaða. Nemendur í 1. – 4. bekk eru eina sjö vikna lotu yfir veturinn í heimilisfræði, tvisvar í viku og fá einkunn í lok þeirrar annar sem lotan er.
Námsmat í heimilisfræði er birt á einkunnarspjaldi nemenda í annarlok.
Heimilisfræði
5. - 7. bekkur
Áfangamarkmið
● Að þekkja næringarefnin og gera sér grein fyrir að fjölbreytt fæðuval hefur mikla þýðingu fyrir góða heilsu.
● Að þjálfa einfaldar aðferðir við matargerð til að geta eldað létta rétti handa sjálfum sér og öðrum.
● Að þekkja fæðuflokkana og fá þjálfun í að meta gæði matvæla úr öllum fæðuflokkunum.
● Að geta haldi sjálfum sér, fötunum sínum og umhverfinu hreinu til að stuðla að vellíðan og heilbrigði.
● Að geta metið gæði og verð matvæla til að verða virkari neytendur.
● Að skilja mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna og þekkja leiðir til að vernda hana til þess að geta skilað henni betri.
Kennsluaðferðir
Nemendur vinna bæði skrifleg og verkleg verkefni. Einnig verður sýnikennsla á ákveðnum verkþáttum sem nemendur reyna síðan sjálfir. Nemendur vinna bæði einir og í hópum.
Tengsl
Heimilisfræði tengist mörgum námsgreinum á ýmsan hátt.
Íslensku þar sem nemendur lesa uppskriftir og verkefni og fara eftir fyrirmælum.
Stærðfræði þar sem nemendur mæla hráefni og stækka og minnka uppskriftir.
Íþróttum þar sem lögð er áhersla á hollan mat og hreyfingu.
Lífsleikni þar sem fjallað er um velferð einstaklingsins og lögð áhersla á heilbrigt líferni.
Námsmat
Frammistaða nemenda metin með símati. Verklegar og skriflegar æfingar eru metnar til að kanna hvort nemendur hafa tileinkað sér þá færni og þekkingu sem ætlast er til.
Matið fer eftir vinnusemi, frágangi og frammistöðu nemenda. Nemendur í 5. – 7. bekk eru eina sjö vikna lotu yfir veturinn í heimilisfræði, þrisvar í viku og fá einkunn í lok þeirrar annar sem lotan er. Námsmat í heimilisfræði er birt á einkunnarspjaldi nemenda.
Heimilisfræði
8. - 10. bekkur
Áfangamarkmið
● Að þekkja manneldismarkmið Íslendinga og helstu næringarefnin.
● Að geta matreitt fjölbreyttan og girnilegan mat og geta skipulagt matseldina frá innkaupum til framreiðslu til gera nemandann sjálfstæðari í eldhúsinu og við eigin fæðuval.
● Að geta beitt fjölbreyttum matreiðsluaðferðum og tileinkað sér góðar vinnuaðferðir.
● Að átta sig á skaðsemi ýmissa örvera í umhverfinu og þekkja leiðir til að forðast þær og halda sér og umhverfinu hreinu til að stuðla að heilbrigði og vellíðan.
● Að þekkja ýmsa sjúkdóma sem tengjast mataræði svo sem lystarstol, lotugræðgi, offitu, ofnæmi og óþol.
Kennsluaðferðir
Nemendur vinna bæði skrifleg og verkleg verkefni. Einnig verður sýnikennsla á ákveðnum verkþáttum sem nemendur reyna síðan sjálfir. Nemendur vinna bæði einir og í hópum.
Tengsl
Heimilisfræði tengist mörgum námsgreinum á ýmsan hátt.
Íslenska þar sem nemendur lesa uppskriftir og verkefni og fara eftir fyrirmælum.
Stærðfræði þar sem nemendur mæla hráefni og stækka og minnka uppskriftir.
Íþróttum þar sem lögð er áhersla á hollan mat og hreyfingu.
Samfélagsfræði þar sem fjallað er um mat frá ýmsum menningarheimum.
Lífsleikni þar sem fjallað er um velferð einstaklingsins og lögð áhersla á heilbrigt líferni.
Námsmat
Frammistaða nemenda er metin með símati. Verklegar og skriflegar æfingar eru metnar til að kanna hvort nemendur hafa tileinkað sér þá færni og þekkingu sem ætlast er til. Símatið fer eftir vinnusemi, frágangi og frammistöðu nemenda.
Nemendur í 8. bekk eru eina sex vikna lotu yfir veturinn í heimilisfræði, tvisvar í viku og fá einkunn í lok þeirrar annar sem lotan er. Þeir eru í næringarfræði einu sinni í viku og verklegum tímum einu sinni í viku. Í 8. bekk er skriflegt próf, vinnubókareinkunn og símat í verklegum tímum.
Hjá 9. og 10 bekk eru gefnar einkunnir í lok haustannar og vorannar. Í 9.-10. bekkjarvali er símat og tekið er verklegt próf í lok annar. Hjá 10. bekk er gefin lokaeinkunn að vori sem er meðaltal einkunnar af haustönn og vorönn. Námsmat í heimilisfræði er birt á einkunnarspjaldi nemenda.












