Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Enska

Lokamarkmið
Að nemandi:

  • geti lesið sér til gagns og ánægju
  • skilji mælt mál sér til gagns og ánægju
  • geti hlustað á  mismunandi hátt eftir upplýsingum í töluðu máli
  • geti tjáð sig skriflega á viðeigandi hátt um málefni sem eru honum kunnuleg
  • sé fær um að beita helstu málfræði – og málnotkunarreglum
  • öðlist aukna innsýn í menningu og siði enskumælandi þjóða
  • hafi kynnst ensku af mismunandi málsvæðum
  • sé meðvitaður um notagildi ensku víða um heim
  • geti notfært sér upplýsingatækni
  • sé meðvitaður um eigin ábyrgð á árangri og framförum í námi

Áfangamarkmið 5.-7. bekkur
Að nemandi:

  • geti skilið söngva, ljóð og frásagnir sem hæfa aldri hans
  • skilji leiðbeiningar og fyrimæli kennara
  • geti hlustað eftir aðalatriðum
  • skilji léttlestrarbækur, myndasögur og aðra einfaldaða texta
  • geti lesið til að skilja ákveðin smáatriði
  • geti unnið með orðaforða í texta
  • geti tekið þátt í samskiptum, kynnt sig, heilsað, kvatt, beðið um leyfi
  • geti unnið með orðaforða í tengslum við talað mál og kunni að beita nútíð og þátíð sagna, algengum fornöfnum, lýsingarorðum og greini á viðeigandi hátt.
  • geti skrifað eftir fyrirmyndum stutta, samfellda texta

Áfangamarkmið 8.-10. bekkur
Að nemandi:

  • skilji ensku af helstu málsvæðum enskrar tungu
  • geti tjáð sig á eðlilegum hraða
  • geti hlustað á mismunandi hátt eftir upplýsingum í töluðu máli
  • skilji leiðbeiningar og fyrirmæli
  • skilji þegar nokkrir tala saman
  • geti unnið markvisst með orðaforða
  • geti lesið bókmenntir, skáldsögur, smásögur ætluðum hans aldri
  • skilji megininntak úr aðgengilegu blaðaefni
  • geti lesið í mismunandi tilgangi
  • hafi lesið um efni sem tengist menningu enskumælandi þjóða
  • geti nýtt sér uppslláttarrit
  • geti tjáð sig skýrt og áheyrilega á réttan og viðeigandi hátt um það sem snertir hann persónulega og nám hans
  • geti gefið upplýsingar um sjálfan sig
  • geti veitt upplýsingar um íslenska menningu og umhverfi
  • geti flutt stutt erindi um viðfangsefni í námi
  • geti tekið þátt í samskiptum innan bekkjar
  • geti beitt viðeigandi orðaforða
  •  geti tjáð sig skriflega um óskir sínar, þarfir, tilfinningar og skoðanir
  • geti skrifað texta í mismunandi tilgangi
  • kunni að beita helstu reglum um greinarmerki og algengustu reglum um málfræði og málnotkun
  • geti unnið markvisst á skriflegan hátt með orðaforða

Kennsluaðferðir

  • bein kennsla
  • innlagnir á málfræði
  • utanbókarlærdómur
  • hlustunarverkefn
  • hópverkefni
  • sjálfstæð vinnubrögð (sætisvinna)

Tengls
Ensk tunga tengist nánast hvaða námsgrein sem er, öðrum tungumálum, samfélagsgreinum, náttúruvísindum, list – og verkgreinum.

Námsmat
Námsmat fyrir 6.-10.bekk er:
Haustönn: kennaraeinkunn 50%, jólapróf 50%
Vorönn: kennaraeinkunn 50%, vorpróf 50%

Námsmat fyrir 5.bekk er:
Haustönn:  kennnaraeinkunn 100%
Vorönn: kennaraeinkunn 50%, vorpróf 50%

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð