Bókfærsla
Grunnupplýsingar
2 kennslustundir á viku
Námsmarkmið
- Að nemendur læri helstu undirstöðuatriði almenns bókhalds sem nýtist þeim er hyggja á frekara nám í greininni og í daglegu lífi.
Námsþættir
- Aðaláhersla verður lögð á dagbókarfærslur, bankareikninga, lánsform, vexti, höfuðbók, helstu undirbækur t.d. viðskiptamannabók, uppsetningu á efnahags- og rekstrarreikningi, uppgjör og afstemming.
Kennsluaðferðir
- Bein kennsla með tilheyrandi innlögnum og sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
Námsgögn
- Kennslubók í bókhaldi fyrir grunnskóla og viðeigandi verkefnabók eftir Sigurjón Gunnarsson og ýmis aukaverkefni.
Námsmat
- Lok haustannar: Könnun I 10%, Könnun II 30% Lokapróf annar 40%, Virkni og sjálfstæði 20%.
- Lok vorannar: Könnun I 10%, Könnun II 30% Lokapróf annar 40%, Virkni og sjálfstæði 20%.
Enska 103
Grunnupplýsingar
Fjöldi kennslustunda á viku eru 2 tímar
Námsmarkmið
-Að nemendur sem skarað hafa fram úr í ensku (með 8,0 eða meira) hafi kost á því að ljúka við fyrsta áfanga ensku á framhaldsskólastigi.
- Að nemendur auki orðaforða sinn og lesskilning.
- Að nemendur auki skilning sinn töluðu máli
- Að nemendur geti tjáð sig á ensku.
- Að nemendur auki kunnáttu sína á enskri málfræði.
- Að nemendur geti skrifað texta, bæði formlegan og óformlegan.
- Að nemdendur geti notað orðabók með markvissum hætti.
Námsþættir
Hlustun, lestur, talað mál, ritun og málfræði.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, sjálfstæð vinna, utanbókarnám, einstaklingsvinna, hópvinna, vinna með ólíka miðla og umræður.
Námsgögn
Kennslubækur samkvæmt bókalista Fjölbrautarskólans við Ármúla.
Fast Track to FCE, New English Grammar, 20th century short stories og kjörbækur.
Námsmat
Lokapróf 70%, málfræðipróf 10%, kjörbók 10%, Smásögupróf 5%, og Smásöguritun 5%.

Enska og kvikmyndir
Grunnupplýsingar
Fjöldi kennslustunda eru 2 á viku.
Námsmarkmið
Að nemandinn
- kynnist tungumálinu ensku í gegnum kvikmyndir
- auki orðaforða sinn á tungumálinu með því að horfa á kvikmyndir frá enskumælandi löndum.
- kynnist mismunandi menningu enskumælandi landa í gegnum kvikmyndir.
- kynnist mismunandi framburði á enska tungumálinu í gegnum kvikmyndir frá enskumælandi löndum víðsvegar um heiminn.
- geti skilið talað mál í kvikmyndum.
- geti myndað sér skoðun á mismunandi málefnum tengd enskumælandi kvikmyndum.
- upplifi jákvætt viðhorf gagnvart enska tungumálinu.
- auki skilning sinn á enska tungumálinu með því að horfa á kvikmyndir frá enskumælandi löndum.
.
Kennsluaðferðir
Kvikmyndir frá enskumælandi löndum sýndar og út frá þeim umræður í tíma.
Kynning nemenda sem fer fram á ensku á kvikmynd.
Námsgögn
Mismunandi kvikmyndir frá enskumælandi löndum.
Námsmat
Kynning nemenda 60% og ástundun 40%
Enska og upprifjun
Grunnupplýsingar
Enska upprifjun, 2 kennslustundir á viku
Námsmarkmið
- Að veita sérstakt val fyrir þá nemendur sem hafa átt í erfiðleikum með að læra ensku.
- Að leggja áherslu á að þjálfa nemendur í ákveðinni grunnfærni og fara mjög vandlega í helstu grunnatriði í málfræði.
- Að nota samtalsæfingar til að byggja upp orðaforða og máltilfinningu.
- Að kenna nemendum að nota orðabók og glósur.
- Að læra að tala og hlusta á ensku.
Námsþættir
Enskunámið skiptist í eftirfarandi námsþætti. Hlustun, lestur, talað mál, ritun og málfræði.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, utanbókarlærdómur, hópverkefni, sjálfstæð vinnubrögð.
Námsgögn
Mismunandi kennslubækur, verkefnablöð, myndbönd, glærur, hljómbönd, orðabækur og tímarit.
Námsmat
Kennaraeinkunn, verkefnavinna og kannanir.
Heimilisfræði
Val
Grunnupplýsingar:
Kennt er allan veturinn þar sem nemendur fá 1 x 2 stundir á viku.
Námsmarkmið:
- Að nemendur kynnist mismunandi grunnaðferðum við matargerð og bakstur, bæði hversdags og til hátíðarbrigða.
- Að nemendur þjálfist í vönduðum vinnubrögðum og frágangi.
- Að nemendur læri að vinna með mismunandi matvæli á margvíslegan hátt.
- Að nemendur geri sér grein fyrir að hollt fæði stuðlar að líkamlegu og andlegu heilbrigði og að sérhver einstaklingur beri ábyrgð á eigin fæðuvali.
- Að nemendur þekki helstu matvæli og næringargildi þeirra.
- Að nemendur skilji hvaða áhrif neysluvenjur geta haft á heilsuna.
- Að nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi hreinlætis við meðferð og geymslu matvæla og skilji að persónulegt hreinlæti og hreint umhverfi stuðlar að vellíðan og góðri heilsu.
- Að nemendur geti farið eftir uppskriftum, unnið þær í samvinnu við aðra nemendur og gengið frá eftir sig í lokin.
- Að nemendur geti breytt úr g í dl og öfugt.
- Að nemendur geti stækkað og minnkað uppskriftir eftir þörfum.
Við kennslu heimilisfræði í vali er lagður grunnurinn að heilbrigðu líferni með áherslu á hollustu og hreinlæti. Lögð er áhersla á verklega þætti til að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
Námsþættir:
Farið er í helstu fæðuflokkana og næringarefni þeirra. Orkuefni, steinefni og vítamín.
Stækka og minnka uppskriftir.
Breyta g í dl og öfugt.
Nemendur þvo upp eftir settum reglum.
Læri mismunandi aðferðir við:
- bakstur; t.d. gerbakstur, smákökur og formkökur.
- steikingu á kjöti og fiski bæði á pönnu og í ofni.
- súpur og pottrétti með kjöti, fiski og baunum.
Ţjóðlegir réttir frá ýmsum löndum s.s. ítalskir, austurlenskir og norrænir, verða í brennidepli og ýmislegt fleira eftir því sem áhugi og aðstæður gefa tilefni til.
Kennsluaðferðir:
Innlagnir og umræður.
Sýnikennsla verður á verklegum þáttum þegar þarf.
Verklegar æfingar, hópvinna og einstaklingsvinna.
Nemendur vinna tveir og tveir saman eða í hópum.
Námsgögn:
Námsbækur, Uppskriftahefti og uppskriftabækur er notuð sem grunnefni.
Ýmis áhöld og matvæli úr eldhúsinu.
Námsmat:
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Hönnun og smíði
GrunnupplýsingarKennt er 2 kennslustundir á viku allan veturinn.
Markmið:
- Að nemendur nýti þekkingu sína í hönnun og smíði til að vinna að verkefnum sem þeir hafa áhuga á.
- Að nemendur þjálfi og læri nýja handverksþætti í hönnun og smíði.
- Að nemendur kynnist efnum sem notuð eru í smíðavinnu.
- Að nemendur hanni og útfæri verkefni sín sjálfir.
Námsþættir:Trésmíði, málmsmíði, plastvinna, leðurvinna ofl. Nemendur byggja ofan á þá þekkingu sem þeir hafa fengið í yngri bekkjum. Haldið verður áfram að þjálfa hina ýmsu handverksþætti og að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð. Áhersla verður á að nemendur geti útfært hugmyndir sínar í gegnum hönnunarferli.
KennsluaðferðirInnlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum. Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
NámsgögnLjósrit af verkefnum. Smíðaefni, tæki og áhöld greinarinnar. Bækur og tímarit tengd greininni.
NámsmatUm er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþátta kemur fram í verkefnbók nemanda. Einkunnir eru gefnar í tölustöfum og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Lopapeysan mín
8. - 10. bekkur
Grunnupplýsingar
2 kennslustundir á viku allan veturinn
Námsmarkmið
- Að nemendur prjóni lopapeysu eftir uppskrift.
- Að nemendur læri að lesa og vinna með prjónauppskrift.
- Að nemendur verði sjálfstæðir í vinnubrögðum sínum og byggi ofan á þá þekkingu og færni sem þeir hafa öðlast í textílmennt.
Námsþættir
Lopapeysa - Kennt að prjóna lopapeysu eftir uppskrift.
Efniskostaður: Nemendur fá lopa í eina peysu en þurfa sjálfir að koma með prjóna.
Kennsluaðferðir
Innlögn, einstaklingskennsla og sýnikennsla. Áhersla lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og eigin útfærslur með aðstoð kennara.
Námsgögn
Uppskrifta- og prjónablöð.
Námsmat
Ástundun og vinna 50%, verkefni 50%
Málmsmíði
Grunnupplýsingar
Kennt er 2 kennslustundir á viku allan veturinn.
Markmið:
- Að nemendur þjálf og læri nýja handverksþætti í málmsmíði
- Að nemendur byggi ofan á þá þekkingu sem þeir hafa fengi í málmsmíði.
- Að nemendur kynnist efnum sem notuð eru í málmsmíði.
- Að nemendur hanni og útfæri verkefni sín sjálfir.
Námsþættir:
Unnið verður með fínmálma og búnir verða til nytjahlutir og skartgripir. Áhersla verður á hönnunarferli og yfirborðsmeðferð.
Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum. Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Ljósrit af verkefnum. Smíðaefni, tæki og áhöld greinarinnar. Bækur og tímarit tengd greininni.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþátta kemur fram í verkefnbók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Mótun og glerlist
8.-10. bekkur val
Grunnupplýsingar
Kennt 2 stundir á viku.
Námsmarkmið
- ü Að nemendur kynnist fjölbreyttum mótunaraðferðum í leir og önnur efni.
- ü Að nemendur kynnist verklagi og vinnuferli glervinnslu og geti nýtt sér það í eigin listsköpun.
- ü Að nemendur læri að teikna upp eigin hugmyndir/hönnun, útfæra þær og framkvæma.
Námsþættir
Nemendur vinna með ólíkar mótunaraðferðir í margvísleg og ólík efni.
- ü Leir: þumla-, pulsu- og plötuaðferð.
- ü Gips: mótun skúlptúra og mótagerð fyrir glerbræðslu. Nemendur vinna með rúðugler þar sem þeir læra að skera gler og raða upp í skúlptúra sem og glerbræðslu.
- ü Pappamassi
- ü Blönduðtækni.
Áhersla er lögð á að samtvinna sköpun og hugvit ásamt tæknilegri úrvinnslu eigin hugmynda.
Kennsluaðferðir
Innlögn og og sýnikennsla þar sem verkefni tímans er útskýrt fyrir nemendum, að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Fjölbreytt efni og áhöld til mótunnar, bækur , listtímarit og ljósrit.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Officepakkinn 2010
9. - 10. bekkur
Grunnupplýsingar:
2 kennslustundir í viku
Námsmarkmið:
- Að nemendur kynnist og öðlist færni í notkun póstforritsins Outlook.
- Að nemendur öðlist meiri skilning á ritvinnsluforritinu Word og kunni að setja upp ritgerð.
- Að nemendur öðlist meiri færni í notkun Excel töflureiknisins.
- Að nemendur geti sett upp ítarlegar kynningar í glærugerðarforritinu PowerPoint.
- Að nemendur temji sér siðfræðileg gildi varðandi notkun Internetsins.
- Að nemendur nái góðum tökum á réttri fingrasetningu og blindskrift.
- Að nemendur temji sér snyrtilegan frágang á verkefnum.
Lögð er áhersla á að hnykkja á ýmsum grunnatriðum sem mikilvægt er að nemendur hafi góð tök á í námi sínu.
Námsþættir:
Gerð kynningar með öllum helstu þáttum sem framsetningarforritið PowerPoint býður uppá.
Uppsetning ritgerða og verkefna í Word. Vinna með texta og útlitshönnun.
Notkun helstu reikningsaðgerða og myndritagerð í töflureikninum Excel.
Upplýsingaöflun á Internetinu og nýting póstforrita til samskipta.
Flutningur gagna milli forrita í Office-pakkanum.
Kennsluaðferðir:
Fyrirlestrar, sýnikennsla, verkefni og æfingar.
Námsgögn:
Kennslubók með verkefnum Office 2010 eftir Jóhönnu Geirsdóttur.
Námsmat:
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Skartgripagerð
8. - 10. bekkur val
Grunnupplýsingar
Kennt 2 stundir á viku.
Námsmarkmið
- ü Að nemendur hanni og búi til skartgripi og aðra smáhluti.
- ü Að nemendur kynnist efnum sem notuð eru í skartgripagerð.
- ü Að nemendur hanni og útfæri verkefni sín sjálfir.
Námsþættir
Lögð verður áhersla á listræna útfærslu og notkun mismunandi efna og aðferða. Dæmi um efni sem unnið verður úr eru m.a.: málmur, tré, plast, leir, og perlur.
Kennsluaðferðir
Innlögn og og sýnikennsla þar sem verkefni tímans er útskýrt fyrir nemendum, að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Efni og áhöld til skartgripagerðar, fagbækur, blöð og efni af veraldarvefnum.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Smáhlutir og skart
8. - 10. bekkur val
Grunnupplýsingar
Kennt 2 stundir á viku.
Í valgreininni Smáhlutir og skart fær nemandinn þjálfun í að móta hugmyndir í efni með þeirri verktækni og verkþekkingu sem greinin býr yfir. Lögð er áhersla á að nemendur fái notið sköpunargáfu sinnar og sköpunargleði.
Námsmarkmið
- Að nemendur þjálfi og læri handverksþætti í vinnu með leður, málma, skartgripaleir, perlur, vír og fleira.
- Að nemendur læri yfirborðmeðferð hinna ýmsu efna.
- Að nemendur kynnist afglóðun og samsetningu málma.
- Að nemendur hanni og útfæri verkefni sín sjálfir.
Námsþættir
Nemendur vinna lítil veski, buddur og aðra smáhluti. Einnig búa þeir til skartgripi og fleira. Lögð verður áhersla á listræna útfærslu og notkun mismunandi efna. Áhersla verður á að nemendur geti útfært hugmyndir sínar í gegnum hönnunarferli.
Kennsluaðferðir
Innlögn og og sýnikennsla þar sem verkefni tímans er útskýrt fyrir nemendum, að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Efni og áhöld til skartgripagerðar, fagbækur, blöð og efni af veraldarvefnum.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Slökun/val
Grunnupplýsingar
Kennd eru 1 kennslustund á viku.
Slökun er aðferð sem auðveldar líkama og sál að lækna sig sjálf, koma á innra samræmi og skapa nýjar forsendur fyrir góðri virkni. Aðferðin felst í slökun huga og líkama. Mælt er með slökun fyrir þá nemendur sem erfitt eiga með einbeitingu.
Námsmarkmið
Að nemendur nái betri tökum á stjórnun eigin huga og líkama.
Námsþættir
Ýmsar slökunar og öndunaræfingar
Kennsluaðferðir
Verklegar æfingar undir leiðsögn kennara.
Námsgögn
Hljómtæki, slökunartónlist,dýnur, teppi og koddar.
Námsmat
Ástundun 100% sem skiptist í 50% vinnusemi og 50% vinnubrögð.
Teiknun og málun
8.-10. bekkur val
Grunnupplýsingar
Kennt 2 stundir á viku.
Námsmarkmið
- ü Að nemendur byggi ofan á fyrri þekking og öðlist frekari færni í:
- o Teikningu
- o Formfræði
- o Fjarvídd
- o Myndbyggingu.
- ü Að nemendur verði meðvitaðir um ólíka notkun og meðferð teikniáhalda, lita og málningar.
.
Námsþættir
Línuteikning, hluta- og formteikning, uppstillingar, módelteikning, ýmsar skygginga og áferða aðferðir,fjarvídd og málun.
Fjölbreyttar aðferðir í skissugerð, teiknun og málun kynntar.
Kennsluaðferðir
Innlögn og og sýnikennsla þar sem verkefni tímans er útskýrt fyrir nemendum, að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Blýantur, tússblek, kol og þurrkrít, trélitir, vaxlitir, neoncolor, olíupastellitir, vatnslitir, þekjulitir, akríllitir. Bækur, myndir og efni af veraldarvefnum.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Textílval
8. - 10. bekkur
Grunnupplýsingar
Kenndar er 2 kennslustundir á viku allan veturinn.
Námsmarkmið
Nemandinn:
• geti nýtt sér mismunandi aðferðir textílgreinarinnar til sjálfstæðrar sköpunar, hönnunar
og persónulegra útfærslna
- tileinki sér hagkvæmar vinnustellingar ásamt réttri notkun áhalda og véla
- geri sér grein fyrir mikilvægi vandaðra vinnubragða og góðrar umgengni
- læri að taka upp snið, sníða og sauma flíkur
- læri grunnatriði í prjóni og hekli
- læri að lesa og vinna með uppskriftir
- læri einfaldan bútasaum
- meti hvaða litir, snið og efni henta hverju sinni eftir því hvað er verið að vinna
- verði sjálfstæður í vinnubrögðum sínum
Námsþættir
Hönnunar og endurnýtingar verkefni: Nemendur hanna og útfæra sína eigin flík. Áhersla á hönnun, sköpun og persónulega útfærslu. Öllum skissum og hugmyndum safna nemendur saman í möppu sem er hluti af námsmati.
Fatasaumur: Nemendum er kennt að taka upp snið, sníða og sauma einfalda flík. Kennd máltaka og einfaldar sniðbreytingar.
Bútasaumur: Grunnaðferðir kynntar og nytjahlutur saumaður.
Prjón og hekl: Gerðar prufur þar sem grunnatriði eru tekin fyrir. Safnað í möppu sem er hluti af námsmati.
Saumavélakennsla: Kennt á saumavél að spóla, þræða, sauma fótbreidd frá brún og sikk-sakka efni í brún. Endað á verklegu prófi.
Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnin eru útskýrð fyrir nemendum að öðru leyti er kennslan einstaklingsbundin. Áhersla lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og úrfærslur með aðstoð kennara.
Námsgögn
Textílefni, tæki og áhöld greinarinnar
Handbækur, ljósrit og annað efni frá kennara.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Word - Excel - PowerPoint
Grunnupplýsingar:
2 kennslustundir í viku
Námsmarkmið:
- Að nemendur þjálfist í meðferð tölva og notkunarmöguleikum Windows-stýrikerfisins.
- Að nemendur temji sér snyrtilegan frágang á verkefnum.
- Að nemendur kunni að setja upp ritgerð í ritvinnsluforritinu Word.
- Að nemendur þjálfist í notkun töflureiknisins Excel.
- Að nemendur þjálfist í notkun framsetningarforritsins PowerPoint.
- Að nemendur nái góðum tökum á réttri fingrasetningu og blindskrift.
- Að nemendur kynnist notkun póstforritsins Outlook.
Lögð er áhersla á að hnykkja á ýmsum grunnatriðum sem mikilvægt er að nemendur hafi góð tök á í námi sínu.
Námsþættir:
Gerð kynningar með öllum helstu þáttum sem framsetningarforritið PowerPoint býður uppá.
Uppsetning ritgerða og verkefna í Word. Vinna með texta og útlitshönnun.
Notkun helstu reikningsaðgerða og myndritagerð í töflureikninum Excel.
Upplýsingaöflun á Internetinu og nýting póstforrita til samskipta.
Flutningur gagna milli forrita í Office-pakkanum.
Kennsluaðferðir:
Fyrirlestrar, sýnikennsla, verkefni og æfingar.
Námsgögn:
Ritvinnsluforritið Word, töflureiknirinn Excel, framsetningarforritið PowerPoint, vefskoðarar, póstforrit og fleiri forrit.
Námsmat:
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í tölustöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda. Notaður er einkunnarskalinn frá 1-10. Gefið er í heilum og hálfum tölum.
Ţýska
Grunnupplýsingar
Ţýska er grunnáfangi fyrir 9. og 10. bekk. Kenndar eru 2 kennslustundir á viku.
Námsmarkmið
- v Að kynnast tungumálinu, Þýskalandi, sögu og menningu Þjóðverja.
- v Að geta lesið, skilið og skrifað léttan texta.
Námsþættir
- - Samskipti innan fjölskyldunnar, hlustunarverkefni, bréfaskriftir. Málfræði:
kyn nafnorða, óákveðinn greinir, eignarfornöfn.
- - Vinasamskipti, áhugamál, starfsheiti. Málfræði: persónufornöfn, tölur frá 1 -100, núþálegar sagnir.
- Skólinn, námsgreinar, stundaskrá, vikudagarnir. Málfræði: Reglulegar og
óreglulegar sagnir.
- - Skólinn og skólagögn. Málfræði: Ákveðinn og óákveðinn greinir í þolfalli,
eignarfornöfn, neikvæður greinir, nafnorð í fleirtölu.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, hlustun, lestur, þýðing, utanbókarnám, verkefnavinna, hópvinna og áhorf af mynddiskum.
Námsgögn
Pingpong Neu 1: Kennslubók og vinnubók, hljóðsnældur, glærur, skrifleg verkefni og Þýsk/íslensk-Ísl./þýsk orðabók.Nemendur fá ljósritaðar orðaskýringar úr les- og vinnubók.
Námsmat
Lokapróf gildir 40% og nemandaeinkunn 60%.
Nemandaeinkunn skiptist þannig: Könnunarpróf 20%, Ástundun og virkni 10%, hlustun 10%, ritun 10% og munnlegt próf 10%.