Dans
1.bekkur
Grunnupplýsingar
Kendar eru 2 kennslustundir á viku.
Námsmarkmið
Að taka þátt í hreyfileikjum.
- Að kunna skil á hægri og vinstri fæti, hæl og tá fram og aftur.
- Að hlusta á tónlist með mismunandi tónfalli.
- Að dansa létta barnadansa og einföld spor í samkvæmisdansi.
- Að bjóða upp í dans.
- Að tileinka sér almenna kurteisi í samskiptum.
Námsþættir
Chasse (polkaspor), Skósmiðadans, Fingrapolki, Byggingardans, Samba,Waltz, Cha Cha, Diskó, Klappdans, Hóky-póky, Marsera, Stafadansinn,Hundadansinn, Línudans, Einstaklingsdans, Tvistdans, Pósturinn Páll, ýmsir hreyfileikir.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, hópvinna, samvinna tveggja (pör), leikir, frjáls tjáning.
Námsgögn
Geislaspilari, geisladiskar og myndbönd.
Námsmat
Nemendaeinkun. Beitt er símati þar sem tekið er mið af áhuga,virkni og vinnubrögðum,einkunn er gefin í bókstöfum sem kemur fram á vitnisburðarblaði nemanda að vori.
Enska
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kenndur er einn kennslutími á viku.
Námsmarkmið
Leitast er við að vekja áhuga nemenda á tungumálinu, mikilvægt að gleði og ánægja ríki í tímum. Nemendur geti tjáð sig í stuttum svörum og að lagður sé jákvæður grunnur að frekara tungumálanámi.
Námsþættir
Nemendur - læri að heilsa, bjóða góðann daginn og kynna sig
- læri tölustafina frá 1 upp í 10
- læri heiti helstu lita
- læri heiti helstu dýrategunda
- læri helstu heiti fjölskyldumeðlime
- læri helstu veðurheiti og heiti árstíða
- læri nokkur heiti líkamshlutanna
- læri ný orð og setningar
- venjist hlustun tungumálsin
- læri lög og texta
- leiki með spil og stafa- og orðabingó
Kennsluaðferðir
Unnið er mikið munnlega með nemendum með hlustun, söng, myndum, leikjum og spilum.Nemendur fá stafa- og orðablöð og læra þannig ný orð.
Námsgögn
Notuð eru leifturspjöld við innlögn stafa og orða, síðan eyðufyllingarblöð sem er námsefni útgefið af Námsgagnastofnun. Eins er unnið með diska og spil með söngvum og leikjum. Áhorf af mynddiskum.Nemendur safna verkefnum í lausblaðamöppu sem þau fara með heim í lok annar.
Námsmat Nemendur fá umsögn í lok annar
Hönnun og smíði
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennt er í 12 vikna lotum þar sem nemendur fá 2x2 stundir á viku.
Námsmarkmið
-Að þekkja og geta beitt einföldum handverkfærum.
-Að þekkja og virða settar reglur í smíðastofunni.
-Að geta gengið frá verkfærum eftir sig og sópað í kringum vinnuaðstöðu sína.
Námsþættir
Nemendur kynnist smíðastofunni og tileinki sér þær reglur sem þar gilda. Þeir læra að beita einföldum verkfærum og vinna með auðunnin efni. Þeir hanni eins og unnt er verkefni sín sjálfir og geti lýst munnlega notagildi og virkni hlutar sem þeir vinna að.
Kennsluaðferðir
Innlögn og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum. Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Ljósrit af verkefnum. Smíðaefni, tæki og áhöld greinarinnar.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþátta kemur fram í verkefnbók nemanda.
Einkunnir eru gefnar í bókstöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda.
Íslenska
1. bekkur
Grunnupplýsingar
12 kennslustundir á viku
Námsmarkmið
- Að læra að hlusta á fyrirmæli kennara og fara eftir þeim.
- Að læra alla stafi stafrófsins, þ.e. heiti þeirra og hljóð.
- Að kynnast rími og hrynjanda.
- Að þekkja hugtök sem tengjast lestri s.s. orð, setning og atkvæði.
- Að vinna fjölbreytt verkefni sem örva lestur og stuðla að auknum orðaforða og málskilningi.
- Að lesa bækur við hæfi.
- Að læra að draga rétt til stafs og þekkja skriftaráttina.
- Að þjálfa fínhreyfingar.
- Að kynnast þeim reglum sem gilda þegar margir þurfa að tjá sig í einu og tala skýrt og áheyrilega.
- Að segja frá eigin reynslu frammi fyrir áheyrendum.
- Að læra ýmsa söngva og þulur.
- Að hlusta á upplestur á sögum og ljóðum, bæði sem kennari les og flutt eru á annan hátt, t.d. af hljóð- eða myndbandi.
- Að skrá sjálf/ur eða með aðstoð frásagnir um atburði úr eigin lífi.
- Að fá tækifæri til að taka þátt í stuttum leikþætti og/eða söngatriði.
Í 1. bekk er mikilvægt að nemendur nái tökum á undirstöðuatriðum í lestri. Til þess að ná þeim markmiðum kynnast þeir bókstöfum, hljóðum þeirra, grundvallar-hugtökum málsins og uppbyggingu þess á fjölbreyttan hátt eins og í hlustun, lestri, ritun og með því að tala.
Námsþættir
Lestur, talað mál og framsögn, hlustun og áhorf, ritun, bókmenntir og málfræði.
Kennsluaðferðir
Kennt er samkvæmt aðferðum Byrjendalæsis sem einkum byggist á para- og hópavinnu. Auk þessa: utanbókarlærdómur, tjáning, samræðuaðferðir, söngur, hlustun, sjálfstæð vinnubrögð, vinnubókarkennsla, ritun og þulunám.
Námsgögn
Bók vikunnar (ýmsar bækur), námsspil og fleiri gögn undirbúin af kennurum og nemendum. Það er leikur að læra; vinnubækur 1 og 2, Orðasafnið mitt, Ítalíuskrift 1a, stafaöskjur og lestrarbækur við hæfi hvers og eins.
Námsmat
Símat á vinnu nemenda (skóla- og heimavinnu), 1., 2. og 3. hluti lesskimunarprófs. Stafakönnun og hraðlestrarpróf eftir því sem við á. Mati á námsframvindu nemenda er komið á framfæri í foreldraviðtölum við lok vorannar.
Íþróttir
1.-10. bekkur
Grunnupplýsingar
1.-7. bekk er kennt í íþróttahúsinu í Árbæjarskóla. 8.-10. bekk er kennt í íþróttahúsi Fylkis (Fylkishöllinni).
Námsmarkmið
1.-4. bekkur
Að ná valdi á helstu grunnhreyfingum líkamans með æfingum sem bæta líkamshreysti, þol og samhæfingu. Að taka þátt í fjölbreyttum leikjum sem efla sjálfstraust, viljastyrk og áræði. Að fara eftir settum reglum, taka tillit til annarra og upplifa skólaíþróttir á jákvæðan hátt.
5.-7. bekkur
Að taka þátt í æfingum og leikjum sem bæta líkamshreysti, þrek og liðleika. Að þjálfast í samhæfingu einfaldra hreyfinga og geta tengt þær saman í eina heild. Að taka þátt í fjölbreyttum leikjum og æfingum sem veita útrás fyrir hreyfiþörf og tengingu við aðra þroskaþætti. Að ná valdi á undirstöðuatriðum ólíkra íþróttagreina. Að taka stöðluð próf til að meta eigið þrek og líkamshreysti.
8.-10. bekkur
Að bæta þol, styrk og liðleika sinn með æfingum og leikjum sem höfða til nemenda út frá þeirra eigin getu og áhuga. Aukið þol styrkir hjarta og æðakerfið sem leiðir til betri heilsu á seinni árum. Að finna sér leið til iðkunar íþrótta eða líkams- og heilsuræktar með fjölbreyttu námsvali. Að tileinka sér heilbrigðan lífstíl og mikilvægi skipulagðar þjálfunar á líkamann. Að taka þátt í óhefðbundinni eða sérhæfðri íþróttagrein og þroska með sér góða siðferðiskennd í íþróttum.
Námsþættir
Unnið er markviss að því að nemendur kynnist og þjálfist í grunnfærni hreyfingar. Kynnist íþróttagreinum á jákvæðan hátt.
Kennsluaðferðir
Kennsla fer fram í íþróttasal og miðast hún við að ná til allra nemenda með einum eða öðrum hætti, þar sem beitt er markvissum æfingum og leikjum.
Námsgögn
1.-7. bekkur Íþróttahús Árbæjarskóla
8.-10. bekkur Íþróttahús Fylkis (Fylkishöll)
Námsmat
Námsmatið fer fram með símati yfir önnina. Verkefnabók gildir 100%.
Kristinfræði
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennsla er samþætt lestrarkennslu í Byrjendalæsi.
Námsmarkmið
- Að kynnast sköpunarsögunni.
- Að kynnast frásögunum af fæðingu Jesú og læra jólasálma.
- Að kynnast íslenskum jólasiðum.
- Að kynnast kirkjunni í hverfinu.
- Að nemendur fræðist um siði í öðrum trúarbrögðum.
- Að fást við siðræn viðfangsefni sem tengjast vináttu og merkingu orðanna rétt og rangt, mitt og þitt og fyrirgefning.
- Að þekkja tilefni páskanna.
- Að kynnast afstöðu Jesú til barna.
- Að kynnast sögunum af bernsku Jesú, heyri um daglegt líf og aðstæður á hans dögum..
- Að kynna nemendum bænir og hvað þær geta falið í sér.
Í kristnum fræðum er leitast við að efla virðingu og skilning nemenda gagnvart hverjum öðrum til að auka gæði samskiptanna. Í íslensku þjóðfélagi hefur kristin trú verið mótandi afl í þúsund ár. Þekking á kristinni trú er því stór þáttur í sögu og menningu þjóðar.
Námsþættir
Sköpunarsagan, fæðing Jesú, íslenskir jólasiðir, jólalög og -sálmar, páskarnir, ævi Jesú, önnur trúarbrögð og bænir.
Kennsluaðferðir
Kennslan er samþætt lestrarkennslunni þar sem beitt er aðferðum Byrjendalæsis sem einkum byggist á para- og hópavinnu. Auk þessa: bein kennsla, sýnikennsla, tjáning, söngur, samræðuaðferðir, sjálfstæð vinnubrögð, ritun, vettvangsferð í Árbæjarkirkju.
Námsgögn
Sköpunin (flettirit), Undrið (flettirit), jólabók, ýmis jólalög og sálmar, Barnabiblían, biblíusögur og fjölrituð verkefni.
Námsmat
Símat á vinnu nemenda.
Lífsleikni
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennd er 1 kennslustund á viku.
Námsmarkmið
- Að efla tilfinningaþroska.
- Að efla samskiptahæfni nemenda.
- Að nemendur læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðru fólki og umhverfi sínu.
Með lífsleikni eflir nemandinn félagsþroska sinn, siðvitund og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Námsþættir
Mér þykir vænt um sjálfa/n mig, líkami minn - hendurnar, líkaminn minn - munnurinn, að kunna að gefa, að hefna sín, væntumþykja, reglur og mikilvægi þeirra, að kunna að sættast, að biðjast fyrirgefningar, vinátta, góð hegðun, líðan í skóla og frímínútur.
Lífsleikni skarast á við aðrar námsgreinar s.s. samfélagsfræði, kristinfræði og íslensku og er vísað til námsþátta í þeim greinum.
Kennsluaðferðir
Umræður, tjáning, leikir og sýnikennsla.
Námsgögn
Spor 1 og Ýma tröllastelpa.
Námsmat
Engin próf eru lögð fyrir nemendur en námið á að skila sér í bættum samskiptum og betri líðan.
Myndmennt
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennt er í 12 vikna lotum, þar sem nemendur fá 2 x 2 stundir á viku.
Námsmarkmið
- Að nemendur séu meðvitaðir um mikilvægi myndlistar, til þess að efla skilning þeirra á umhverfi sínu og stuðla að myndrænni sýn þeirra á tilveruna.
- Að þeir þekki hugtökin myndbygging, nálægð og fjarlægð í myndverkum til þess að auðvelda þeim myndsköpun og uppbyggingu myndverka.
- Að þau þekki 1 íslenskan listamann og verk hans til þess að þau verði strax meðvituð um þá listamenn sem kunnastir eru sem brautryðjendur í íslenskri myndlist.
Námsþættir
Nemendur vinna með:
- Grunnformin, hring, ferhyrning og þríhyrning.
- Grunnliti.
- Teiknun.
- Málun.
- Ţrykk, klippi- og límþrykk.
- Mótun - leir.
Kennsluaðferðir
Innlögn og og sýnikennsla þar sem verkefni tímans er útskýrt fyrir nemendum, að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Ýmsar tegurnir af pappír, neoncolor-, olíupastel-, þekju-, vatns- og akríllitir, teikniblýantar, artlinerpennar, túss, pensla, leir, glerungar, sirkla og reglustikur. Fjölbreytt efni og áhöld til að skapa myndlist. Ýmsar bækur og fræðsluefni til glöggvunar á þeim verkefnum sem á að vinna.
Námsmat
Um er að ræða símat þar sem ekki er aðeins gefið fyrir þau verkefni er nemandinn vinnur, heldur einnig virkni nemandans í tímum; sjálfstæði, vandvirkni og umgengni. Skipting námsþáttanna kemur fram í verkefnabók nemanda.
Einkunnir í 1. Bekk eru gefnar í bókstöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjöldum nemenda.
Samfélagsfræði og náttúrufræði
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennsla er samþætt lestrarkennslu í Byrjendalæsi.
Námsmarkmið
- Að kynnast skólabyggingunni, skólalóðinni og nánasta umhverfi skólans undir leiðsögn kennara.
- Að skilja mikilvægi reglna í skólanum (alveg eins og í umferðinni og í samskiptum fólks) og þjálfist í að hlýða þeim.
- Að ræða um helstu umferðarreglur fyrir gangandi vegfarendur.
- Að læra að þekkja og fjalla um árstíðirnar (haust og vetur), heiti vikudaga og mánaða.
- Að þekkja birki, brennisóley og álft.
- Að sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum.
- Að þekkja líkama sinn, helstu líffæri og hlutverk þeirra.
- Að temja sér að sýna öðrum tillitssemi og bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
- Að gera sér grein fyrir því að ekki eru allir eins.
- Að sýna frumkvæði og sköpun í vinnubrögðum.
- Að læra hver er þjóðhátíðardagur Íslendinga og vita hvað forsetinn heitir. .
- Að læra að þekkja hrossagauk, holtasóley og ýsu.
- Að fara í vettvangsferðir í nánasta umhverfi.
Til að ná þessum markmiðum er fléttuð saman þekking, færni og tilfinning barnsins svo það öðlist vitund um samfélagið, umhverfið og söguna. Með þessu eflist skynjun þess á nánasta umhverfi og stuðlar að því að nemandinn umgangist það af ábyrgð og virðingu.
Námsþættir
Skólinn, skólareglur, samskipti, nánasta umhverfi, mannslíkaminn, árstíðir, húsdýrin, samskipti og sjálfsþekking.
Kennsluaðferðir
Kennslan er samþætt lestrarkennslunni þar sem beitt er aðferðum Byrjendalæsis sem einkum byggist á para- og hópavinnu. Auk þessa: bein kennsla, sýnikennsla, tjáning, samræðuaðferðir, sjálfstæð vinnubrögð, ritun og myndsköpun
Námsgögn
Komdu og skoðaðu umhverfið, Komdu og skoðaðu líkamann og fjölrituð verkefni.
Námsmat
Símat á vinnu nemenda. Mati á námsframvindu nemenda er komið á framfæri í foreldraviðtölum við lok vorannar.
Stærðfræði
1. bekkur
Grunnupplýsingar
6 kennslustundir á viku
Námsmarkmið
- Að skilja talnatákn og tölugildi og læra að skrifa tölustafina.
- Að nota mismunandi hjálpargögn við lausnir verkefna s.s. kubba og talnagrindur.
- Að leysa þrautir þar sem beita þarf útreikningum t.d. samlagning og frádráttur.
- Að skoða form í nánasta umhverfi og greina hvernig ólík form eru notuð í mismunandi tilgangi.
- Að ræða um tímatal, t.d. tímaröð atburða, tímalengd milli atburða og dagatal.
- Að vinna með klukku, læra að lesa af henni hvað tímanum líður (heila tímann).
- Að skoða tölur á talnalínu.
- Að vinna með talnaþulur, fingravísur og talnarunur eins og 2, 4, 6 ..., 5, 10, 15 ... eða 10, 20, 30 ...
- Að kynnast víxlreglu í samlagningu, t.d. með kubbalengju.
- Að leita að mynstrum í umhverfinu, s.s. símynstri sem endurtekningu í tíma (t.d. hljómfalli) eða rúmi.
- Að tákna gefið mynstur með mismunandi gögnum, t.d. kubbum, litum, orðum, hljóðum eða teikningum.
- Að safna gögnum og skrá í súlurit og ræða um þær upplýsingar sem súluritin gefa.
- Að þekkja helstu hugtök stærðfræðinnar s.s. +, -, =, < og >.
Til að nemendum sé tamt að styðjast við stærðfræðileg hugtök þarf að þjálfa þau í ýmiss konar talnavinnu, flokkun, röðun og lýsingu á eiginleikum hluta og umræðu um þá. Áhersla er lögð á að gera stærðfræðina merkingarbæra með því að tengja hana við daglegt líf, reynslu og áhuga nemenda.
Námsþættir
Stærðfræði og tungumál, lausnir verkefna og þrauta, röksamhengi og röksemdarfærslur, tengsl við daglegt líf, tölur, reikniaðgerðir, mynstur, rúmfræði og tölfræði.
Kennsluaðferðir
Innlögn, þjálfunaræfingar, umræður- og spurnaraðferðir, bein kennsla, sýnikennsla, námsleikir/spil, vinnubókarkennsla, töflukennsla, þrautalausnir, hópavinna og sjálfstæð vinnubrögð.
Námsgögn
Sproti 1a (æfingahefti og nemendabók), Sproti 1b (æfingahefti og nemendabók), Viltu reyna? (gulur, rauður) og ýmis fjölrituð verkefni.
Námsmat
Símat á vinnu nemenda (skóla- og heimavinnu). Mati á námsframvindu nemenda er komið á framfæri á vitnisburðablöðum í foreldraviðtölum við lok vorannar.
Sund
1.-10. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennt er í sundlaug Árbæjarskóla eina kennslustund á viku. Stúlkur fyrir áramót og drengir eftir áramót.
Námsmarkmið
1.- 4. bekkur
Að nemendur nái tökum á undirbúningsæfingum og leikjum í vatni. Öðlist grunnfærni í bringusundi, skólabaksundi og skriðsundi.
5.-7. bekkur
Að nemendur hafi náð tökum á ýmsum samsettum hreyfingum í vatni, til þess að þjálfa samhæfingu og þol eftirfarandi sundaðferða: Bringusund, skólabaksund, skriðsund, baksund, kafsund og björgunarsund.
8.-10. bekkur
Að nemendur hafi fengið frekari þjálfun í þeim sundaðferðum sem kenndar eru á miðstigi, til þess að ná góðu valdi á samsettum hreyfingum. Þjálfist í þolsundi til þess að styrkja hjarta og æðakerfi. Tileinki sér ákveðnar sundaðferðir sem auka færni til þess að geta bjargað úr vatni.
Námsþættir
Bringusund, skólabaksund, skriðsund, baksund, kafsund og björgunarsund.
Kennsluaðferðir
Bein kennsla, tilsögn og sýnikennsla, sem miðast að því, að ná sem best til allra nemenda í hópnum.
Námsgögn
Sundlaug Árbæjarskóla. Notuð eru ýmis hjálpartæki s.s. kútur, korkur, sundblöðkur.
Námsmat
Við lok haust- eða vorannar, eiga nemendur að hafa náð tilskildu sundstigi.
1.-2. bekkur. Einkunn er gefin í bókstöfum og fá nemendur afhent sundskírteini í lok annar.
3.-10. bekkur. Einkunn er gefin í tölustöfum og fá nemendur í 3.-4. bekk afhent sundskírteini í lok annar. Í 3.-10. bekk er gefin ein lokaeinkunn fyrir hinar ýmsu sundaðferðir. Námsmatið fer fram með símati yfir önnina. Verkefnabók gildir 100%.
Textílmennt
1.bekkur
Grunnupplýsingar
Kennt er í 12 vikna lotum þar sem nemendur fá 2 x 2 stundir á viku.
Námsmarkmið
- - Að þjálfast í að klippa og sauma þræðispor með grófri og/eða fínni nál.
- - Að vinna með ýmis konar garn, java, ullarkembu og filtefni og kynnist þannig fjölbreytilegum efnivið til þess að búa til fallega hluti.
Námsþættir
Nemendur vefa, puttaprjóna, þæfa og sauma þræðispor í grófan java. Nemendur teikna form á filtefni og klippa út.
Kennsluaðferðir
Innlög og sýnikennsla þar sem verkefnið er útskýrt fyrir nemendum. Að öðru leyti er kennslan einstaklingskennsla.
Námsgögn
Textílefni, tæki og áhöld greinarinnar. Myndbandið Íslenska ullin.
Námsmat
Einkunnir gefnar í bókstöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjaldi nemanda að vori.
Tónmennt
1. bekkur
Grunnupplýsingar
Kennd er 1 kennslustund á viku. Heill bekkur.
Námsmarkmið
> Að nemandi tileinki sér samkennd og að vinna saman.
> Að nemandi þjálfi söng og hreyfingu.
> Að nemandi tengi raddhljóð við hreyfingu og hryn.
> Að nemandi læri að skynja hæð, lengd og styrk tóna.
Námsþættir
Í formi söngva, leikja, hreyfingar, vinnu með grunnhugtök í tónlist og hljóðfæravinnu. Markmiðið er að barnið verði virkt í tónlistarstarfinu og fái með söng, leik, hlustun og frjálsri tjáningu sem mesta reynslu af tónlist og þeim hljóðheimi sem er í kringum okkur. Gegnum tónlistina uppgötvar það nýja hluti og lærir ýmsa færni og þætti sem nýtast því á öðrum sviðum í daglegu lífi og leik
Kennsluaðferð
Lögð er áhersla á að nemendur upplifi tónlist í jákvæðu umhverfi. Námsefnið er kennt með söng og hreyfingu auk þess sem létt skrifleg verkefni eru lögð fyrir. Áherslan er lögð á að nemendur séu virkir í tímum og fái áhuga á tónlist og tónlistariðkun.
Námsgögn
Hljóðrit ýmiskonar, tölvuvarpi, nótna og textabækur, myndbönd, glærur og ýmis hljóðfæri. Vinnubækur(möppur) nemanda. Heimatilbúið efni og námsefni úr ýmsum áttum.
Námsmat
Kennaraeinkunn. Beitt er símati, þar sem tekið er mið af virkni, hegðun og framför nemandans.
Upplýsingatækni - Tölvunotkun
1. bekkur
Grunnupplýsingar
1 kennslustundir 1 sinnum í viku hálfan vetur á móti sundi.
Námsmarkmið
- Að kynnast tölvunni, umgengni við hana og helstu ílags- og frálagstækjum.
- Að þjálfast í réttum vinnubrögðum og líkamsbeitingu við tölvu.
- Að vinna með kennsluforrit sem hæfa aldri og þroska.
- Að kynnast vinnu með teikniforrit og ritvinnsluforrit.
- Að nemendur kynnist undirstöðuatriðum í notkun Internetsins.
Nauðsynlegt að nemendur tileinki sér rétt vinnubrögð í umgengni sinni við tölvur og að þeir venjist því að vinna við tölvur.
Námsþættir
Nemendum kennt að nota og umgangast tölvuna. Nemendur nota kennsluforrit, teikniforrit, ritvinnsluforrit og Internetið við námið.
Kennsluaðferðir
Stuttir fyrirlestrar, sýnikennsla og verklegar æfingar.
Námsgögn
Teikniforritin Paint, ritvinnsluforritið Word, vefskoðarinn Internet Explorer, gagnvirkir námsleikir á netinu, ýmis kennsluforrit og fleira.
Námsmat
Einkunnir gefnar í bókstöfum í lotulok og birtast á einkunnarspjaldi nemanda að vori.












