Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Skólinn er hluti af lífi og starfi nemenda og um leið undirbúningur fyrir framtíðina. Samkvæmt grunnskólalögum felst hlutverk grunnskólans einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra. Höfuðáherslan er að veita nemendum góða, alhliða menntun við hæfi hvers og eins sem er besta veganesti sérhvers einstaklings í þekkingar- og upplýsingasamfélaginu.

Kennsla á að beinast að því að hjálpa nemendum að tileinka sér þekkingu og skilning, að móta sér skoðanir og viðhorf og ná leikni og færni á tilteknum sviðum.

Í skólastarfi á að ríkja fjölbreytni í vinnubrögðum og kennsluaðferðum. Kennarar bera faglega ábyrgð á að velja heppilegustu og árangursríkustu leiðirnar til að ná markmiðum aðalnámskrár og skólanámskrár. Við val á kennsluaðferðum og vinnubrögðum verður að taka tillit til markmiða sem stefnt er að, aldurs, þroska og getu nemenda sem í hlut eiga hverju sinni og eðlis viðfangsefnisins. Vönduð kennsla, sem lagar sig að markmiðum og nemendum, eykur líkur á árangri.

 

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Nám og kennsla

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð