Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Minniháttar slys

Sá starfsmaður skóla sem kemur fyrstur á vettvang tekur að sér stjórn.  Stjórn felst í því að sjá til þess:

Að þeim slasaða sé sinnt.

Að kallað sé á hjálp.

Að tekin sé stjórn á vettvangi.

  1. Hjúkrunarfræðingur látinn vita og hann fyllir út slysaskráningarblað.
  2. Skólastjórnendur eru látnir vita, þeir virkja áfallaráð ef með þarf.
  3. Skólastjórnendur/umsjónarkennari láta forráðamenn viðkomandi nemenda vita.
  4. Farið er yfir staðreyndir málsins með kennurum og starfsfólki skólans.
  5. Umsjónarkennarar ræða við nemendur um slysið, áfallaráð virkjað ef með þarf.

Alvarlegt slys

Sá starfsmaður skóla sem kemur fyrstur á vettvang tekur að sér stjórn.  Stjórn felst í því að sjá til þess:

Að hringt sé í 112.

Að þeim slasaða sé sinnt.

Að kallað sé á fleiri til aðstoðar. 

Að tekin sé stjórn á vettvangi.

  1. Slys tilkynnt (112).
  2. Skólastjórnendur safna staðreyndum um slysið.  Ef slys verður í skólaferð sjá umsjónarmenn ferðarinnar um þann þátt og upplýsa skólastjórnendur jafnóðum um gang mála.
  3. Skólastjórnendur virkja áfallaráð.
  4. Skólastjórnendur eða aðrir aðilar úr áfallaráði tilkynna forráðamönnum viðkomandi nemenda um atburðinn.
  5. Farið yfir staðreyndir málsins með kennurum og starfsfólki skólans.
  6. Skólastjórnendur í samráði við áfallaráð ákveða hvernig tilkynningu til forráðamanna bekkjar- eða skólafélaga skal háttað.
  7. Áfallaráð ásamt umsjónarkennara ræðir við og vinnur með nemendum í einstaka bekkjum sem tengjast málinu.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð