Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Inngangur

Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla frá árinu 2000 ber öllum fyrirtækum og stofnunum sem hafa fleiri en 25 starfsmenn að setja sér jafnréttisáætlun.  Tilgangurinn með lögunum er fyrst og fremst sá að þannig sé best tryggt að hæfileikar og færni allra fái notið sýn.  Til þess að áætlunin þjóni tilgangi sínum þarf að setja fram mælanleg og tímasett markmið eða aðgerðaplan.  

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og í Aðalnámsskrá grunnskóla er víða fjallað um jafnrétti kynjanna og mannréttindi. Þar er áherslan á að bæði kynin hafi jafnan rétt til náms, þátttöku í samfélaginu, fjölskyldu- og atvinnulífi. Markmið námsins og kennslunnar og starfshættir skólans skuli vera þannig að komið sé í veg fyrir mismunun m.a. vegna uppruna, kyns, kynhneigðar, búsetu stéttar og trúarbragða.

Orðið jafnrétti hefur yfir sér blæ réttlætis þar sem allir sitja við sama borð.  Allt skólastarf skal vera í anda jafnréttis.  Jafnrétti á að vera samofið leik og starfi nemenda og starfsfólks og þurfa allir að geta starfað í þeirri vissu að ekkert hamli þeirra starfsánægju.

Jafnréttisáætlun Árbæjarskóla tekur til annars vegar nemenda og hins vegar starfsmanna. Helsti áhersluþátturinn í skólastarfinu er að nemendur, kennarar og annað starfsfólk nái hámarksárangri og skólastarfið miði að því að styrkja og efla hvern og einn til framfara og þroska.  Mikilvægt er að starfið mótist af metnaði og hvatningu til sjálfstæðra verka og aukinnar víðsýni, þar sem hver og einn fær notið sín á eigin forsendum. 

Samskipti einstaklinga eiga að grundvallast á gagnkvæmri virðingu, kurteisi og tillitssemi, sem er forsenda þess að hverjum og einum líði vel.  Gagnkvæmt traust og jákvæð og uppbyggileg samskipti móta framar öðru góðan starfsanda.   

Skólastarf í anda jafnréttis tekur mið af mismunandi hæfileikum fólks, Því er haft að leiðarljósi í skólastarfi Árbæjarskóla að tækifæri nemenda og starfsfólks byggi fyrst og fremst á hæfileikum og færni.

Í Árbæjarskóla á sér reglulega stað innra mat á skólastarfinu, hvort sem um er að ræða starfsmannasamtöl, starfsmannakannanir eða kannanir meðal nemenda og foreldra. Með þessum könnunum gefst gott tækifæri til að kanna og leggja mat á stöðu jafnréttismála í skólanum. 

Jafnréttis- og mannréttindaáætlun skólans er kynnt fyrir öllum þeim sem að skólastarfinu koma. Þar sem um grunnskóla er að ræða er hún kynnt sérstaklega fyrir foreldrum og er þar lögð áhersla á þann hluta hennar sem snýr að nemendum.  Áætlunina má nálgast á heimasíðu skólans.

Mikilvægt er að nemendur og starfsfólk skólans hafi jafnan rétt til að hafa áhrif á skólastarfið, stefnumótun og ákvarðanatöku og skal reynt að tryggja það með sem bestum hætti.

Reykjavíkurborg hefur gefið út Jafnréttisstefnu sem samþykkt var í borgarráði í janúar 2003.  Þar er haft að leiðarljósi að Reykjavíkurborg ætlar sér að verða í fremstu röð hvað varðar frumkvæði og faglegt starf á sviði jafnréttismála.  Til grundvallar stefnunni er vísað til þess að í Stjórnarskrá Íslands er varinn réttur kvenna og karla og einnig í mörgum mannréttindasáttmálum sem Ísland hefur undirritað. 

Í kaflanum um Reykjavík sem miðstöð þjónustu er sérstaklega tekið fram að allt uppeldis- og tómstundastarf, menntun og fræðsla sem fram fer á ábyrgð borgarinnar og stofnana hennar verði að hafa að leiðarljósi jafna stöðu kynjanna.  Það beri að veita börnum og unglingum hvatningu og tækifæri til að rækta hæfileika sína og persónuþroska án þess að hefðbundnar kynjaímyndir hafi þar áhrif.  Einnig segir að skólastjórnendur eigi að leitast við að styrkja jákvæða kynímynd stelpna og stráka og vinna sérstaklega gegn áhrifum klámvæðingar meðal unglinga.

Sérstök ábyrgð er lögð á herðar skólastjórnenda.  Þeir eiga að leggja áherslu á að allt skólastarf miði að því að undirbúa nemendur af báðum kynjum fyrir einkalíf, fjölskyldulíf, félags- og atvinnulíf.  Einnig að námsefni mismuni ekki kynjum og í náms- og starfsfræðslu verði lögð áhersla á að kynna báðum kynjum störf sem hingað til hafa verið talin hefðbundin kvenna- eða karlastörf.

Í nýjum drögum að þingsályktun um jafnrétti kynjanna sem félagsmálaráðherra lagði fram á vorþingi 2004 kemur m.a. fram að áhersla er lögð á að styrkja sjálfsmynd nemenda, nauðsyn þess að vinna gegn stöðluðum kynímyndum og efla náms – og starfsfræðslu og vinna þannig gegn hefðbundnum hugmyndum um karla- og kvennastörf.

Nemendur

Lögð er áhersla á að nemendum lærist að þekkja og tjá eigin tilfinningar sínar. Þeir eiga jafnframt að kunna að virða tilfinningar annarra óháð uppruna, kyni, búsetu, trú eða fötlun. Kennsluaðferðir eða námsgögn mega á engan hátt mismuna nemendum enda eiga allir nemendur jafnan rétt til náms.

Öll vinna nemenda skal vera í anda jafnréttis þar sem lögð er sérstök áhersla á að  nemendur rækti með sér samkennd, samhygð og virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra. Nemendur eiga að hafa jafnrétti að leiðarljósi í öllum samskiptum.

Lögð er reglulega fyrir nemendur í 6. - 10. bekk spurningar um t.d. líðan, sjálfsmynd, áform og virkni. Komi í ljós verulegur munum á svörum kynjanna er unnið með þær niðurstöður og kannað hvað valdi og hvað sé til úrbóta.  Þetta sjálfsmat nemenda má einnig nota sem innlegg í nemenda- og foreldrasamtöl.  Einnig er lögð könnun fyrir yngri nemendur þar sem sömu þættir eru skoðaðir.

Það er lykilatriði að vinna markvist með jafnrétti í lífsleiknitímum.  Þó svo að lífsleikni komi ekki inn í námskrá fyrr en í 4. bekk er allt skólastarf yngri nemenda samofið lífsleikniáherslum eða þjálfun.  Vinna þarf gegn stöðluðum ímyndum kynjanna meðal annars með markvissum heimsóknum foreldra í skóla þar sem þeir kynna mismunandi störf og starfsvettvang sinn.  Einnig  þarf að vinna með gildismat og fordóma í gegnum almennar umræður.  Kynna þarf sérstaklega fyrir stelpum nám og störf í  tækni- og iðngreinum og fyrir strákum hefðbundin störf sem flokkast til uppeldis- og umönnunarstarfa.

Allir kennarar skólans verða að skoða og meta allt námsefni út frá jafnréttissjónarmiði.  Það þarf að hafa að leiðarljósi að vinna með námsefni / kennslugögn sem byggja á jafnréttishugmyndum. Allar námsgreinar tengjast beint eða óbeint jafnrétti.    Sérstaklega er nauðsynlegt að huga að þeim greinum sem tengjast öðru kyninu fremur en hinu, sbr. starfsval síðar á lífsleiðinni.

Kennarar þurfa að beita fjölbreyttum kennsluháttum og þannig að nemendur fái kennslu við hæfi og ólík reynsla og gildismat fái notið sín.

Haft er að leiðarljósi í skólastarfinu að þátttaka kynjanna í sem flestum þáttum starfsins sé sem jöfnust. 

Rík áhersla er lögð á gagnkvæma og trausta samvinnu við heimili nemenda og ýmis félagasamtök í hverfinu t.d. íþróttafélag, félagsmiðstöð og kirkjuna.

Í upphafi skólaárs, að hausti, eru haldnir kynningarfundir í skólanum fyrir forráðamenn nemenda. Þar er skólastarfið kynnt og það skipulag sem unnið er eftir, m.a. sá hluti jafnréttisáætlunar skólans sem snýr að nemendum.

Starfsmenn

Starfsmenn skólans eiga að njóta sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar óháð uppruna, kyni, búsetu, trú eða fötlun.  Þeir eiga einnig að búa við jafna möguleika til  stöðuhækkana, stöðubreytinga og breytinga á vinnuaðstæðum.  Launajafnrétti er í skólanum fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.

Öllum starfsmönnum þarf að vera ljóst að kynferðisleg áreitni verði aldrei liðin í skólanum.  Starfsmenn eiga alls ekki að sætta sig við kynferðislega áreitni, en áreitni getur birst í mörgum myndum s.s. í orðum eða látbragði.  Stjórnendur bera ábyrgð á því að kynferðisleg áreitni viðgangist ekki í skólanum og meðferð slíkra mála er í þeirra höndum.

Í anda jafnréttislaga eiga stjórnendur að leitast við að gera nauðsynlegar ráðstafanir þannig að starfsmenn, jafnt karlar sem konur, geti samræmt sem best starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu. 

Umræðu um jafnréttisáætlunina, bæði það sem snýr að starfsmönnum og nemendum, þarf að taka upp árlega á starfsmannafundum.

Framkvæmd, eftirfylgni og endurskoðun

Mikilvægt er að fram fari faglegt og reglubundið mat á áhrifum jafnréttisáætlunar og jafnréttisstarfs í skólanum. Niðurstöður matsins eru kynntar reglulega fyrir nemendum, starfsfólki og forráðamönnum. Niðurstöðurnar má einnig nálgast á heimasíðu skólans.

Til að jafnréttisáætlun skili árangri er nauðsynlegt að hafa skýra mælikvarða í tengslum við þau markmið sem koma fram í áætluninni. Þau matstæki sem lögð eru til grundvallar eru starfsmannasamtöl, viðhorfskannanir meðal nemenda, starfsmanna og forráðamanna.

Jafnréttisáætlun Árbæjarskóla byggir á:

Mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar frá 2006. Sjá: reykjavik.is.

Lögum um grunnskóla nr. 91/2008

Áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára.  Lögð fram af félagsmálaráðherra á vorþingi 2004.

Lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2008

Aðalnámskrá grunnskóla.

Stefnukorti og skólanámskrá Árbæjarskóla

Um gerð jafnréttisáætlana fyrirtækja og stofnana.

Útg. Jafnréttisstofa. Sjá heimasíðu Jafnréttisstofu; jafnretti.is.

Jafnréttisáætlanir: Aðferð til árangurs.

Útg. Jafnréttisstofa.  Sjá heimasíðu Jafnréttisstofu; jafnretti.is.

 

Jafnréttisáætlun Árbæjarskóla word form

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð