Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Ef vitneskja um einelti berst til skólans vinnur starfsfólk hans eftir ákveðnu ferli:

Grunur um einelti tilkynnist til umsjónarkennara, skólastjórnenda eða námsráðgjafa.

Umsjónarkennara er gerð grein fyrir málinu ef tilkynning berst til annarra en hans.

Umsjónarkennari skráir málið í Mentor og greinir málið samkvæmt skilgreiningu skólans á einelti. Til að kanna málið getur umsjónarkennari:

·         Lagt fyrir eineltiskönnun.

·         Látið bekkinn skrifa stíl um líðan nemenda í bekknum.

·         Óskað eftir að lögð verði fyrir tengslakönnun.

Umsjónarkennari ákveður framvindu málsins í samstarfi við skólastjórnendur og námsráðgjafa. Tengist eineltið út fyrir bekkinn vísar umsjónarkennari málinu til skólastjórnenda sem ákveða framhaldið.

Umsjónarkennari hefur samband við forráðamenn þolenda og gerenda í sínum bekk.

Forráðamönnum er gerð grein fyrir:

·         Stöðu málsins.

·         Hvaða leið verður farin til að uppræta eineltið.

·         Þeirri aðstoð sem skólinn veitir viðkomandi nemanda.

·         Hvað forráðamenn geta gert til að aðstoða börn sín.

Umsjónarkennari vinnur markvisst að því að uppræta eineltið í bekknum í samstarfi við skólastjórnendur og námsráðgjafa.

Skólastjórnandi og námsráðgjafi gera nemendaverndarráði grein fyrir stöðu mála.

Umsjónarkennari skráir allt ferlið í Mentor.  

Ef ekki tekst að leiða mál til lykta er málinu vísað til nemendaverndarráðs til úrlausnar.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð