Árbæjarskóli á að vera öruggur vinnustaður þar sem nemendum á að líða vel.
Einelti er ekki liðið í skólanum og er litið á það sem alvarlegt brot á skólareglum. Starfsfólk skólans berst gegn því með öllum tiltækum ráðum. Til þess að árangur náist er nauðsynlegt að góð samvinna sé á milli allra sem hlut eiga að máli. Starfsfólk skólans, forráðamenn og nemendur þurfa að standa þétt saman gegn einelti. Mikilvægt er að allir sem vitneskju hafa um eineltismál tilkynni það strax til skólans svo hægt sé að vinna markvisst að því að uppræta það.
Skilgreining á einelti
Einelti er þegar einstaklingur verður margendurtekið og á afmörkuðu tímabili fyrir aðkasti frá einum eða fleiri aðilum. (Olweus)
Einelti getur verið beitt á margan hátt
Líkamlegt einelti er þegar gerendur lemja, hrinda, sparka, stela og skemma eigur annarra.
Andlegt einelti er þegar gerendur hóta, uppnefna, stríða, koma með niðrandi athugasemdir , skilja útundan, breiða út sögur og ljúga upp á náungann.
Það sem einkennir einelti er að sá kraftmeiri ræðst að þeim kraftminni.
Mikilvægt að hafa í huga að gerendur eru ekki alltaf meðvitaðir um hversu sársaukafullt einelti er fyrir þolendur.
Allir geta átt á hættu að lenda í eineltisaðstæðum, annað hvort sem þolendur, gerendur og/eða meðhlauparar.











