Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

Tilgangurinn með áfallaáætlun Árbæjarskóla er að skýrt sé hvernig bregðast á við þegar válegir atburðir sem snerta nemendur og/eða starfsfólk skólans verða.

Áfallaáætlun þessi skal nýtt sem gátlisti þegar skipuleggja þarf áfallahjálp. 

Athuga ber að taka þarf tillit til aðstæðna hverju sinni þegar viðbrögð eru ákveðin og mikilvægt er að starfsfólk skólans sé vel undir það búið að takast á við þá erfiðleika sem fylgja hinum ýmsu áföllum. Starfsfólk skal í viðbrögðum sínum taka tillit til hefðar og reynslu varðandi viðbrögð við áföllum.

Áfallaráð Árbæjarskóla
Í áfallaráði sitja eftirtaldir aðilar:
Skólastjóri, aðstoðarskólastjórar, skrifstofustjóri, námsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingur auk skólasálfræðings. Sóknarprestur Árbæjarkirkju er áfallaráði innan handar.  Skólastjóri eða staðgengill hans er ábyrgur fyrir því að kalla saman áfallaráð og stýra vinnu þess og skipulagi.

Hlutverk áfallaráðs
Í meginatriðum er hlutverk áfallaráðs að gera vinnuáætlun svo bregðast megi fumlaust og ákveðið við, þegar áföll hafa orðið, s.s. bráð veikindi, alvarleg slys, dauðsföll eða aðrir atburðir sem líklegir eru til að kalla fram áfallastreitu og/eða sorgarviðbrögð. 

Lykilatriði er að í hverju tilviki sé mótuð skýr og afdráttarlaus vinnuáætlun um hver sinni hvaða hlutverki, í hvaða röð og hvernig beri að bregðast við. Mikilvægt er að huga vandlega að óskum fjölskyldna þeirra sem hlut eiga að máli hverju sinni.  Við skipulag áfallahjálpar og viðbragða, þarf að hafa í huga alla þá einstaklinga sem koma að starfsemi skólans s.s. nemendur, aðstandendur, kennara, stjórnendur og annað starfsfólk. 

Áföll sem þessi áætlun nær til eru:

Alvarleg slys (nemanda, aðstandenda þeirra eða starfsfólks).               
Alvarleg veikindi (nemanda, aðstandenda þeirra eða starfsfólks).
Langvinnir sjúkdómar (nemanda, aðstandenda þeirra eða starfsfólks).
Andlát (nemanda, aðstandenda þeirra, starfsfólks eða maka starfsfólks).

Áfallaráð skal funda strax að hausti og athuga hvort breyting hafi orðið á aðstæðum nemenda eða starfsfólks vegna alvarlegra slysa, veikinda, dauðsfalla eða annarra áfalla. Áfallaráð skal ræða þau áföll sem upp hafa komið og taka ákvörðun um hvort eða til hvaða aðgerða skal gripið.  Skrifstofa skólans skal halda sérstaklega utan um slíkar upplýsingar.

VIÐBRÖGÐ VIÐ ÁFÖLLUM TENGDUM NEMENDUM

Langvinnir sjúkdómar/alvarleg veikindi nemanda
Fyrstu viðbrögð í skólanum:
Viðkomandi starfsfólki og bekkjarfélögum er greint frá því ef nemandi þarf að vera langdvölum burt frá skóla vegna alvarlegra veikinda.  Áfallaráð ákveður hvernig taka skuli á málinu og metur hve mikið vinna skal með viðkomandi bekki.  Aðilar úr áfallaráði ásamt umsjónarkennara ræða við og vinna með nemendum í einstaka bekkjum sem tengjast málinu eftir aðstæðum.  Athuga skal hvort heimsóknir til viðkomandi nemanda séu mögulegar og hvernig skuli staðið að þeim. 

Þegar nemandi kemur aftur í skólann:
Undirbúa þarf bekkjarfélaga undir það hvernig taka skuli á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann, en það getur auðveldað endurkomuna.  Umsjónarkennari ásamt aðila úr áfallaráði ræða við nemandann áður en hann kemur í skólann.

Alvarlegt slys á nemanda

Slys sem verða í skólanum:
Verði alvarlegt slys á nemanda á skólatíma skal hafa samband við forráðamenn og lögreglu sem allra fyrst.  Áfallaráð fundar og ákveður hvernig bregðast skuli við.  Aðilar úr áfallaráði ásamt umsjónarkennara ræða við nemendur sem tengjast málinu.  Starfsfólki og nemendum er greint frá slysinu.  Skólastjórnendur gæta þess að enginn fari heim úr skólanum með rangar eða misvísandi upplýsingar um neinn þátt málsins. Í því sambandi gæti þurft að senda bréf með helstu upplýsingum heim með nemendum.  Sýni fjölmiðlar áhuga, er skólastjóri eða staðgengill hans eini tengiliður skólans við þá.  Allir aðrir skulu vísa á hann varðandi allar upplýsingar sem gefa á.

Slys sem verða utan skólatíma:
Áfallaráð fundar og ákveður hvernig bregðast skuli við.  Starfsfólki og bekkjarfélögum er tilkynnt um slysið.


Í kjölfar slyss innan eða utan skóla:
Gott upplýsingastreymi til skólans er mikilvægt.  Umsjónarkennari heldur nemendum sínum upplýstum.  Athuga skal hvort heimsóknir til viðkomandi nemanda séu mögulegar.

Þegar nemandi kemur aftur í skólann:
Undirbúa þarf bekkjarfélaga undir það hvernig taka skuli á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann, en það getur auðveldað endurkomuna.  Umsjónarkennari ásamt aðila úr áfallaráði ræða við nemandann áður en hann kemur í skólann.

Andlát nemanda

Fyrstu viðbrögð í skólanum:
Skólastjóri sér um að afla staðfestra upplýsinga um atburðinn og hefur samband við heimilið.  Áfallaráð kallað saman (auk sóknarprests) á fund þar sem fólk skiptir með sér verkum og ákveður fyrstu viðbrögð skólans.  Umsjónarkennara viðkomandi nemanda tilkynnt um andlátið.

Allar aðgerðir skólans eru bornar undir viðkomandi foráðamenn til samþykkis og hafa þá með í ráðum frá upphafi.

Ef mögulegt er skal þess gætt að náin skyldmenni hins látna sem eru við nám eða störf við skólann fái fregnina sérstaklega, ekki yfir hópinn.  Skólastjóri tilkynnir dauðsfallið við fyrsta hentuga tækifæri.  Skrifstofustjóri skólans sér um að kalla allt starfsfólkið saman ef nauðsyn krefur.  Skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði tilkynnir andlátið strax í viðkomandi bekkjardeild og umsjónarkennari kemur með í stofuna.  Stutt er við nemendur í bekknum eins og hægt er með aðstoð hjúkurnarfræðings, námsráðgjafa og sálfræðings.  Umsjónarkennarar með aðstoð áfallaráðs tilkynna andlátið í öðrum bekkjardeildum skólans.

Við skólann er fáni dreginn í hálfa stöng þegar búið er að tilkynna nemendum andlátið.

Vinna í viðkomandi bekk sama dag:
Æskilegt er að umsjónarkennari verði með sínum bekk það sem eftir er skóladags.   Nemendum gefið tækifæri til að ræða um atburðinn.  Sóknarprestur auk hjúkrunarfræðings, námsráðgjafa, skólastjórnenda og/eða skólasálfræðings aðstoða ef þörf er á.  Forráðamönnum nemenda tilkynnt um atburðinn.  (Forráðamenn beðnir um að sækja börn sín í lok skóladags).
Bréf sent heim með öllum nemendum þar sem greint er frá því sem gerðist og sagt hvernig skólastarfið verði næstu daga.  Mikilvægt að skrifstofustjóri skólans athugi hvaða nemendur voru ekki í skólanum þennan dag, svo hægt sé að senda skilaboð til þeirra.  Í lok dagsins skal fundað í áfallaráði ásamt umsjónarkennara, þar sem farið er yfir stöðuna og áætlanir gerðar um áframhaldandi vinnu. 

Vinna í viðkomandi bekk næstu daga:
Bekkurinn útbýr samúðarkveðju og/eða skrifar minnigargrein.  Einnig geta nemendur teiknað myndir, skrifað bréf, ljóð eða sögur.  Nemendum greint frá hvað gerist næstu daga þ.e. kistulagning og jarðarför með aðstoð sóknarprests ef þörf krefur.   Forráðamenn nemenda ákveða hver fyrir sig hvort börn þeirra verði viðstödd jarðarförina/minningarathöfnina.  Nauðsynlegt er að forráðamenn fari með börnunum sínum í jarðarförina/minningarathöfnina ef þeir ákveða að börn þeirra verði viðstödd.  Sóknarprestur getur komið inn í bekkinn og sagt frá því hvernig útförin fer fram ef þess er óskað.  Kennslustundir næstu daga þarf að brjóta upp, ef spurningar vakna, eða ef fram koma viðbrögð sem sýna sorg, reiði, örvæntingu eða sektarkennd. Nauðsynlegt er að nemendum sé gefinn kostur á því að tjá tilfinningar sínar eða koma með reynslusögur.  Mikilvægt er að umsjónarkennari fái sjálfur þann stuðning og hjálp sem hann þarf á að halda.  Skólastjórnendur, umsjónarkennari og þeir starfsmenn sem tengst hafa barninu verða við jarðarförina sé það mögulegt.  Fulltrúar skólans fara í heimsókn til aðstandenda viðkomandi nemanda með samúðarkveðju næstu daga eftir andlát í samráði við aðstandendur.

VIÐBRÖGÐ VIÐ ÁFÖLLUM TENGDUM AÐSTANDENDUM NEMENDA

Alvarleg veikindi aðstandenda nemanda
Fyrstu viðbrögð í skólanum:
Skólastjórnendur eða umsjónarkennnari fá staðfestingu á veikindunum hjá forráðamanni nemandans.  Upplýsingum komið til þeirra sem málið varða.  Áfallaráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu.

Alvarleg slys aðstandenda nemanda
Fyrstu viðbrögð í skólanum:
Skólastjórnendur eða umsjónarkennnari fá staðfestingu á slysinu hjá forráðamanni nemandans.  Upplýsingum komið til þeirra sem málið varðar.  Áfallaráð fundar um málið og ákveður í samráði við forráðamenn hvernig unnið skuli að málinu.

Andlát aðstandenda nemanda
Fyrstu viðbrögð í skólanum:
Skólastjóri aflar staðfestra upplýsinga um atburðinn.  Áfallaráð kallað saman (auk sóknarprests) þar sem ákveðin eru fyrstu viðbrögð skólans.  Umsjónarkennara nemandans tilkynnt um andlátið.

Allar aðgerðir skólans eru bornar undir forráðamann/aðstandanda og hann hafður með í ráðum frá upphafi.

Skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði koma upplýsingunum til bekkjasystkina nemandans.  Ef mögulegt er skal þess gætt að náin skyldmenni hins látna sem eru við nám eða störf við skólann fái fregnina sérstaklega, ekki yfir hópinn.  Starfsfólki skólans er tilkynntur atburðurinn.  Umsjónarkennari stjórnar áframhaldandi vinnu í bekknum.  Hann getur hvenær sem er leitað aðstoðar aðila úr áfallaráði.  Bekkurinn útbýr samúðarkveðju sem send er til nemandanum og fjölskyldu hans sem fyrst í samráði við forráðamann/aðstandanda.  Aðilar úr áfallaráði aðstoða umsjónarkennara við að undirbúa bekkinn undir það hvernig bekkurinn tekur á móti nemandanum þegar hann kemur aftur í skólann.

ÁFÖLL TENGD STARFSFÓLKI SKÓLANS

Alvarleg veikindi starfsmanns skólans
Skólastjóri/áfallaráð ákveður í samráði við viðkomandi starfsmann hvernig tilkynna skuli nemendum veikindin.

Alvarleg slys starfsmanns skólans
Skólastjóri/áfallaráð ákveður í samráði við viðkomandi starfsmann eða aðstandendur hvernig tilkynna skuli nemendum um slysið.

Andlát starfsmanns
Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.  Skólastjóri kallar áfallaráð saman og ákveðin eru fyrstu viðbrögð skólans.  Skólastjóri upplýsir allt starfsfólk skólans um andlátið.  Skrifstofustjóri skólans sér um tilkynningu til þeirra sem fjarri eru.  Ef mögulegt er skal þess gætt að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann, fái fregnina sérstaklega.  Ef umsjónarkennari fellur frá tilkynnir skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði umsjónarbekk andlátið.  Nemendum skólans er tilkynnt um andlátið.  Að því loknu er fáni dreginn í hálfa stöng við skólann.  Áfallaráð ákveður hvernig upplýsingum um andlátið skuli komið til forráðamanna nemenda.  Aðilar úr áfallaráði veita umsjónarbekk stuðning og vinna með bekkinn næstu daga ef þörf krefur.  Aðilar úr áfallaráði ræða við nemendur í öðrum bekkjum sé þess óskað.  Skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði fer heim til nánustu aðstandenda starfsmanns.  Skólinn sendir samúðarkveðju til nánustu aðstandenda. 

Andlát maka/barns starfsmanns
Skólastjóri leitar staðfestra upplýsinga um andlátið.  Skólastjóri kallar áfallaráð saman og ákveðin eru fyrstu viðbrögð.  Starfsfólk skólans er upplýst um andlátið.  Skrifstofustjóri skólans sér um að tilkynna þeim sem fjarri eru um andlátið.  Ef mögulegt er skal þess gætt að náin skyldmenni hins látna, sem eru við nám eða störf við skólann, fái fregnina sérstaklega.  Ef maki umsjónarkennara fellur frá tilkynnir skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði umsjónarbekk andlátið.  Áfallaráð tekur ákvörðun um hvernig upplýsingum skuli komið til forráðamanna nemenda.  Aðilar úr áfallaráði veita umsjónarbekk stuðning og vinna með bekkinn næstu daga ef þess er óskað.  Aðilar úr áfallaráði ræða við nemendur í öðrum bekkjum ef þörf krefur.  Skólastjóri ásamt aðila úr áfallaráði fer heim til starfsmanns.  Skólinn sendir samúðarkveðju til starfsmanns.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð