28.2.2012
Heimsókn í Gerðuberg
Fimmtudaginn 16. febrúar var 3.bekk boðið á sýningu í Gerðubergi. Um var að ræða tvær sýningar, Þetta vilja börnin sjá, þar getur að líta myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem gefnar voru út árið 2011 og Glitrar á hjarnið og þar er á ferð úrval mynda eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli sem hann hefur þrykkt af svelli, hellum og bergi auk nokkurra steinskúlptúra. Nemendur fóru einnig á bókasafnið og þar var skemmtilegur ratleikur og upplestur. Nemendur skemmtu sér vel , höfðu gagn og gaman af og voru öllum til sóma. Hér má sjá fleiri myndir.
22.2.2012
Öskudagur
Haldið var upp á öskudaginn við skólann með ýmsum uppátækjum. Gaman var að sjá hve margir nemendur og starfsmenn mættu í grímufötum. Nemendur í 1. - 4. bekk dönsuðu á salnum, marseruðu og fóru í leiki. Einnig fengu börnin að koma með dót og spil að heiman.
Nemendur á miðstigi flökkuðu á milli stöðva og unnu að ýmsum skemmtilegum verkefnum eins og að búa til kókoskúlur og að taka þátt í spurningakeppni. Nemendur á unglingastigi hittust í umsjónarstofum og klæddu upp eitt bekkjarsystkini sitt í grímubúning og veitt voru verðlaun fyrir flottasta búninginn. Einnig fóru nemendur í reiptog í íþróttahúsinu.
Í hádeginu fengu nemendur óvænta heimsókn. Hljómsveitin Blár ópal kom og flutti lagið ,,Stattu upp fyrir sjálfum þér" við góðar undirtektir. Í lok skóladags fengu nemendur afhentan sælgætispoka í boði foreldrafélagsins og þökkum við foreldrum kærlega fyrir.
Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og nemendur og starfsfólk skólans skemmti sér konunglega
Sjá MYNDIR HÉR.
21.2.2012
Öskudagurinn í Árbæjarskóla
Miðvikudaginn 22. febrúar 2012
Næstkomandi miðvikudag höldum við Öskudaginn hátíðlegan í Árbæjarskóla.
Þann dag mæta nemendur og starfsfólk skólans í grímubúningum/furðufötum og skemmta sér saman. Nemendur fylgja umsjónarkennurum sínum þennan dag við leik og störf.
Nemendur mega koma með sparinesti en hvorki sælgæti né gosdrykki. Mikilvægt er að þetta verði virt af öllum nemendum skólans.
Nemendur í 1. - 4. bekk mæta til umsjónarkennara í heimastofu sína kl. 8.10 og skóladeginum lýkur kl. 13.35 eins og venjulega.
Nemendur í 5. - 10. bekk mæta til umsjónarkennara í heimastofu sína kl. 8.10 og skóladeginum lýkur að hádegisverði loknum um kl. 12.30.
Um kvöldið, kl.20.00 - 22.30, verður grímuball fyrir nemendur í 8. - 10. bekk í skólanum og er nemendum í vinaskóla okkar, Hólabrekkuskóla, boðið á ballið. Rútur heim að venju eftir ballið.
Um nýbreytni er að ræða í skólastarfinu hjá okkur að nemendur komi í skólann á Öskudegi og er það von okkar að dagurinn verði ánægjulegur og allir skemmti sér vel.
Fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar er vetrarleyfi í skólanum.
20.2.2012
Láttu draumana rætast
Í síðustu viku heimsótti rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson nemendur í 10. bekk. Hann fræddi þá um ábyrgð þeirra á eigin lífi og hvatti til þess að láta drauma sína rætast. Til þess þyrftu þeir að setja sér markmið, virkja hæfileika sína og leggja sig fram til þess að ná árangri.
Þorgrími var vel tekið og voru nemendur ánægðir með komu hans.

6.2.2012
Dagur stærðfræðinnar
Föstudaginn 3. febrúar var haldið upp á dag stærðfræðinnar hér við skólann. Í tilefni af því var haldin stærðfræðikeppni á mið- og unglingastigi sem fór fram fyrr í vikunni. Verðlaun voru veitt á sal skólans og á unglingastigi var Arnar 10. MS hlutskarpastur, önnur verðlaun hlaut Sunneva 8. KJ og í þriðja sæti var Guðbjartur úr 10. GP. Á miðstigi var Bjarki 6. SB í fyrsta sæti, Gauti úr 6. SS í öðru sæti og Ragnheiður Lilja í 5. VH í þriðja sæti. Hver verðlaunahafi fékk verðlaunapening en Arnar fékk að auki farandbikar sem verður í vörslu hans fram að vori. Rizzo Pizzeria gaf verðlaunahöfum pizzuveislu og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Á yngsta stiginu unnu nemendur margvísleg stærðfræðiverkefni í tilefni dagsins. Leikskólabörn úr Árborg og Rofaborg komu í heimsókn og unnu að stærðfræðiverkefnum og stóðu sig með mikilli prýði. Sjá myndir HÉR.
3.2.2012
Handboltamót
Föstudaginn 27. janúar kepptu nemendur í 5. og 6. bekk á handboltamóti sem var haldið í Fylkishöll. Keppt var við Ártúnsskóla, Selásskóla og Norðlingaskóla. Mikil stemning var í höllinni þennan dag og skemmtu nemendur sér konunglega. Okkar nemendur stóðu sig með miklum sóma. Sjá fleiri myndir HÉR.











