Beint á leiđarkerfi vefsins
Forsíđa

16.5.2012

7. bekkur

Síðastliðinn miðvikudag var haldið ball þar sem 7. bekkur Árbæjarskóla  bauð jafnöldum sínum úr Ártúnsskóla og Selásskóla  á sal skólans.  Diskótek var á svæðinu og skemmtu nemendur sér hið besta við glimrandi tónlist sem plötusnúðurinn Deividas Deltuvaite sá um. Ballið var kjörið tækifæri til þess að nemendur hittu og kynntust verðandi skólasystkinum úr nágrannaskólunum. Sjá MYNDIR HÉR.

14.5.2012

Reykjavíkurmeistarar

Í gær urðu stelpurnar á eldra ári í 5. flokki Fylkis Reykjavíkurmeistarar í handbolta eftir æsispennandi úrslitaleik við ÍR.
Stelpurnar eru allar í 8. bekk. Þær heita Alexandra Brynja, Tinna Karen, Ástríður Glódís, Edda Marín, Þórdís Petra, Eva Dröfn, Eyrún Ósk, Helga Þórey og Úlfhildur Eir úr Árbæjarskóla og Anna Bríet úr Ingunnarskóla. Með þeim á myndinni er þjálfari þeirra, Pétur Stefánsson.

9.5.2012

Gunnskólamót höfuđborga Norđurlanda

Sjö nemendur úr Árbæjarskóla hafa verið valdir til þess að taka þátt í Grunnskólamóti höfuðborga Norðurlandanna sem fram fer í Osló dagana 20. - 25. maí næstkomandi.

Mótið hefur verið haldið árlega allt frá árinu 1948 en Reykjavík tók fyrst þátt árið 2006. Alls er keppt í þrem íþróttagreinum þ.e. frjálsum íþróttum, handknattleik stúlkna og knattspyrnu drengja. Á mótinu keppa fulltrúar höfuðborga Norðurlandanna.

Fulltrúar Árbæjarskóla sem valdir voru í liðið eru:

Frjálsar íþróttir: Alexander Freyr Lúðvíksson, Hlynur Magnússon og Helena Sveinbjörg Jónsdóttir.

Knattspyrna drengja: Kristján Óli Guðbjartsson.

Handknattleikur stúlkna: Tinna Karen Victorsdóttir, Eyrún Ósk Hjartardóttir og Eva Dröfn Guðmundsdóttir.

Spennandi verður að fylgjast með árangri okkar fólks á mótinu.

8.5.2012

Magnús Jóhann Ragnarsson

Fimmtudaginn 3. maí fór fram verðlaunaafhending í Bíó Paradís þar sem Reykjavíkurborg verðlaunaði nemendur í grunnskólum fyrir stuttmyndagerð. Magnús Jóhann Ragnarsson nemandi í 10 MS fékk sérstök verðlaun fyrir að standa með dugnaði að gerð stuttmynda og að vinna að stórum hlut sjálfur að gerð þeirra. Við óskum Magnúsi innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með honum í framtíðinni.

8.5.2012

Samvera á sal

Sú nýbreytni var tekin upp í ár að fá nemendur af miðstigi og yngra stigi á sal skólans einu sinni í viku. Tilgangurinn er að brjóta upp skólastarfið á skemmtilegan hátt og veita nemendum tækifæri til þroskandi listsköpunar.   Almenn ánægja er með verkefnið og stendur til að halda því áfram á næsta ári. Nemendur af yngra stigi hafa farið á sal á miðvikudögum en nemendur á miðstigi  á föstudögum.  Börnin hafa skemmt hvert öðru með söng, dansi, leiklist og upplestri svo dæmi séu tekin. 
Sjá myndir hér.

7.5.2012

Reykjavíkurmeistari

Thelma Kristín í 5. ÁÞ náði glæsilegum árangri á Reykjavíkurmótinu í listhlaupi á skautum þar sem hún vann í flokki 10 ára og yngri B. Thelma æfir stíft með Skautafélagi Reykjavíkur í Laugardalnum. Spennandi verður að fylgjast með árangri þessa efnilega listdansara í framtíðinni.

7.5.2012

Bronsverđlaun í karate

Helga Kristín Ingólfsdóttir náði glæsilegum árangri á Norðurlandameistaramótinu í  karate sem haldið var í Svíþjóð. Helga hlaut 3. verðlaun í cadet í mínus 54 kílógramma flokki. Helga æfir með Fylki en mikil gróska hefur verið í karate undanfarin ár. Augljóst er að hér er efnileg íþróttakona á ferð og óskum við henni til hamingju með árangurinn.

3.5.2012

Íslandsmeistarar í handbolta

Helgina 27.-29. apríl fór handboltalið á eldra ári 6. flokks kvenna hjá Fylki á lokamót Íslandsmótsins sem haldið var á Húsavík.  Liðið vann alla sína leiki og stóð uppi sem sigurvegari á mótinu.  Þar með tryggði Fylkir sér Íslandsmeistaratitilinn með því að ná bestum samanlögðum árangri í þeim 5 mótum  sem haldin voru í vetur.  Árbæjarskóli átti 3 fulltrúa í liðinu, þær Hrefnu Sæmundsdóttur í  6. SB og Sólrúnu og Halldóru Freygarðsdætur í 6.ÞÞ.  Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.

Íslandsmeistarar í handbolta

2.5.2012

GRÍĐARLEG STEMMNING - UPPSKERUHÁTÍĐ 10.BEKKJAR

10.bekkingar stigu á stokk fyrir fullu húsi mánudaginn 30.apríl á sal Árbæjarskóla. Skipulögð hafði verið vegleg skemmtidagskrá þar sem söngur, dans og tónlist var í aðalhlutverki. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, dynjandi klapp eftir hvert atriðið á fætur öðru. Nemendur höfðu einnig galdrað fram kræsingar og svignuðu borðin undan þeim. Gestir gerðu sér skemmtiatriðin að góðu sem og góðgætið sem innifalið var aðgönguverðinu. Allir viðstaddir, nemendur, kennarar, foreldrar, systkini, ömmur, afar og aðrir ættingjar héldu út í vornóttina léttir í lundu og með fulla maga. Sjá MYNDIR HÉR.

27.4.2012

Barnamenningarhátíđ í Reykjavík

Barnamenningarhátíð í Reykjavík fór fram dagana 17.-22. apríl síðastliðinn. Hátíðin var sett með viðhöfn í Hörpu og var nemendum allra 4. bekkja grunnskólanna í Reykjavík boðið þangað, alls um 1200 nemendum. Nemendur 4. bekkjar Árbæjarskóla létu sig að sjálfsögðu ekki vanta (vel merktir Árbæjarskóla í appelsínugulum bolum) enda dagskrá setningarinnar hin skemmtilegasta.
Jón Gnarr borgarstjóri setti hátíðina og hvatti t.a.m. börnin til dáða á listabrautinni.  Síðan dönsuðu börnin dansinn „Time" á göngum Hörpu og skunduðu svo inn í Eldborgarsalinn þar sem þeim varð boðið upp á tónleika með Ingó veðurguð og Bláum Ópal.
Skemmtu börnin sér hið besta (og kennararnir líka) eins og sjá má á meðfylgandi myndum og myndupptöku, http://vimeo.com/40593204

20.4.2012

Yndislestur

Í vetur hefur skólinn verið þátttakandi í þróunarverkefni sem ber heitið Orð af orði. Verkefninu er stýrt af Skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri. Einn veigamikill þáttur í verkefninu er lestur og lesa nemendur í 4. - 10. bekk í 15 - 20 mínútur dag hvern. Þessi lestrarstund heitir yndislestur og hefur gefist afar vel í vetur. Áhugi á lestri hefur aukist hjá nemendum skólans og útlán á bókasafni eru mikil. 

 

18.4.2012

Opiđ hús

Í dag var opið hús þar sem foreldrum var boðið að koma í heimsókn í skólann og skoða vinnu barna sinna. Nemendur í 10. bekk voru með kökusölu sem tókst með miklum ágætum. Í tilefni dagsins var skemmtidagskrá á sal þar sem nemendur komu fram með söng, dans, upplestur og hljóðfæraleik. Allir skemmtu sér hið besta og höfðu gaman af.

Sjá myndir HÉR.

18.4.2012

Prjónađ í góđa veđrinu

Nemendur í valgreininni lopapeysan mín nutu útiveru í dag, miðvikudaginn 18. apríl. Kennari námskeiðsins var með útikennslu og nýtti sér góða veðrið sem nemendur kunnu svo sannarlega að meta.

17.4.2012

Opiđ hús í Árbćjarskóla 18. apríl 2012

 

Við tökum þetta á gleðinni

Á morgun miðvikudaginn  18. apríl verður opið hús í skólanum milli kl. 08:10-16:00. Forráðamenn eru hvattir til að heimsækja skólann á þessum tíma og kynna sér starf barnanna. Hefðbundin kennsla fer fram í skólanum en einnig verður skólastarfið brotið upp með ýmsum hætti. Meðal viðburða má nefna:

  • Vortónleikar skólakóranna kl. 8:30 - 9:15 á sal skólans
  • Skemmtidagskrá á sal skólans kl. 10:00 - Nemendur á öllum aldri stíga á svið
  • Kökusala 10. bekkinga - fjáröflun fyrir vorferð
  • Sýning á vinnu nemenda

Hlökkum til að sjá ykkur.

Nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla

17.4.2012

Stćrđfrćđikeppni grunnskólanna

Fyrir nokkru var Stærðfræðikeppni grunnskólanna haldin í Borgarholtsskóla.
Valdir grunnskólar taka þátt í þessari árlegu keppni og að þessu sinni voru þátttakendur 118, þar af 19 frá Árbæjarskóla.
Venju samkvæmt stóðu nemendur sig frábærlega og var mikil stemning meðal keppenda.
Elvar Wang Atlason hlaut 1. verðlaun í 8. bekk,
Katrín Kjartansdóttir varð í 4. sæti í sama árgangi,
Seselia Huld Erin Gísladóttir varð í 6. - 10 sæti í 9. bekk og Guðrún Guðnadóttir í 6. - 10. sæti í 10. bekk.
Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Á myndina vantar Seseliu Huld.

13.4.2012

Landsliđsfólk í kumite á leiđ á Norđurlandameistaramót

Ólafur Engilbert  Árnason, nemandi í 9. bekk, og Helga Kristín Ingólfsdóttir, nemandi í 10. bekk, eru bæði í landsliðinu í kumite sem er bardagahluti karate. Þau æfa með Fylki og hafa gert það gott á mótum vetrarins. Í febrúar voru þau síðan valin í landsliðið í kumite sem heldur um helgina á Norðurlandameistaramótið í karate sem haldið er í Kristianstad í Svíþjóð. Keppnin fer fram á laugardaginn og verður spennandi að fylgjast með gengi þeirra.

12.4.2012

Grandprixmeistarar unglinga í kumite

Ţorsteinn Freygarðsson, nemandi í 7. bekk, og Ólafur Engilbert Árnason, nemandi í 9. bekk, voru krýndir Grandprixmeistarar í kumite í sínum aldursflokkum um páskana en kumite er bardagahluti karate.  Þrjú mót eru haldin yfir veturinn sem hvert um sig gefa keppendum stig eftir því í hvaða sætum þeir lenda. Samanlögð stig vetrarins gefa síðan til kynna sigurvegara mótaraðarinnar.  Þorsteinn og Ólafur æfa báðir hjá karatedeild Fylkis.

 

Óskum við drengjunum til hamingju með glæsilegan árangur.

30.3.2012

Páskafrí

Ágætu nemendur og foreldrar!

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra páska og vonum að þið hafið það gott í fríinu, minnum við á að skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 11. apríl.

kveðja Skólastjórn Árbæjarskóla

30.3.2012

Fólkiđ í blokkinni

 

Síðustu vikur hafa nemendur í 6. bekk unnið verkefni í íslenskutímum í tengslum við bókina Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson. Bókin fjallar um fjölskyldu sem býr á  níundu hæð í blokk í Hólunum og nágranna þeirra. Í blokkinni býr ótrúlega skrítið og skemmtilegt fólk sem fjölskyldan á níundu þekkir ágætlega og verða oft margar skondnar uppákomur í húsinu.

 

Verkefnin sem nemendur  hafa verið að vinna í eru mjög fjölbreytt. Ákveðinn hópur vann verkefni um  persónur í bókinni, nokkrir bjuggu til blokkina og umhverfið í kring, nokkrir settu upp leikrit, aðrir æfðu tónlist í tengslum við söguna og enn aðrir þöndu raddböndin.

 

Kynning á verkefninu var síðan haldin á sal skólans og fjölmenntu foreldrar til að líta afraksturinn augum. Góður rómur var gerður að verkefninu og fengu nemendur mikið hrós fyrir frammistöðuna. Hluti verkefnisins verður endurfluttur á opnu húsi í skólanum þann 18. apríl sem haldið er í tengslum við Barnamenningarhátíðina í borginni.

 

29.3.2012

Frestun á opnu húsi.

Föstudaginn, 30. mars, var fyrirhugað að hafa opið hús í Árbæjarskóla. Ákveðið hefur verið að fresta því til miðvikudagsins 18. apríl. Vikuna 16. – 22. apríl er Barnamenningarhátíð í Reykjavík og við viljum tengja opna húsið hjá okkur þeim viðburði. Dagskrá opna hússins verður birt á heimasíðu skólans fljótlega eftir páska auk þess sem póstur verður sendur á foreldra. Síðasti kennsludagur fyrir páska er föstudagurinn 30. mars og þá er venjan að nemendur og starfsfólk mæti með margvísleg höfuðföt í skólann.  Skóli hefst að afloknu páskafríi þann 11. apríl.

29.3.2012

Hattadagurinn

Við minnum á hattadaginn næstkomandi föstudag,  síðasta kennsludag fyrir páskaleyfi.
Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að bera höfuðfat þennan dag - því furðulegra, því betra ;)

 

28.3.2012

Keppni grunnskólanemenda í stćrđfrćđi

Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda var haldin þriðjudaginn 13. mars í Menntaskólanum í Reykjavík og tóku 286 nemendur úr nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu þátt. Keppnin var árgangaskipt og stóðu nemendur Árbæjarskóla sig frábærlega, venju samkvæmt. Katrín Kjartansdóttir úr 8. bekk varð í 7. sæti og Seselia Huld Erin Gísladóttir úr 9. bekk í  6.-7. sæti. Nemendur í 10 efstu sætunum í hverjum árgangi fengu viðurkenningarskjal frá MR. Óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

22.3.2012

Páskabingó

  Verður haldið í sal Árbæjarskóla fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra

mánudaginn 26. mars 2012

kl. 19:00 - 21:00, húsið opnar kl. 18:30

spjaldið kostar kr. 500,-

10. bekkur verður með veitingasölu í hléi

Ath. Tökum því miður ekki kort

 

Meðal vinninga eru:

Páskaegg frá Nóa Síríus

Gjafabréf frá Max1

Fjör til enda frá Stemmning ehf.

Rökkurhæðir frá Bókabeitunni

Glaðningar frá Íslandsbanka

Gjafabréf frá Rizzo Pizzeria

Gjafabréf frá Italiano Pizzeria

Inneign á ljósmyndavef frá Prentsmiðjunni Odda

Minigolf frá Skemmtigarðinum í Grafarvogi

Hálsmen frá Meba

 Meira af páskaeggjum...og fullt af þeim...

Spilastokkar, matvara, páskaskraut og fleira sem kemur skemmtilega á óvart.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla

15.3.2012

Árshátíđ unglingadeildar Árbćjarskóla og Tíunnar

Hin árlega árshátíð unglingadeildar fór fram miðvikudaginn 14. mars sl. Undirbúningur árshátíðarinnar stóð í nokkra daga og hönnuðu nemendur m.a. bekkjarbúninga sem þeir klæddust á árshátíðardaginn. Ýmsir skondnir karakterar sáust á ferð um skólann m.a. rómverskir riddarar, strumpar, klappstýrur, Batman og ýmsar aðrar ofurhetjur. Árshátíðardagurinn hófst á bekkjarleikjum þar sem keppt var í ýmsum áhugaverðum og sjaldgæfum íþróttum t.d. blöðruuppblæstri, húllakeppni, kóngulóargöngu, langstökki aftur á bak og þannig mætti lengi telja.

 

Um kvöldið viku grímubúningarnir fyrir sparifötunum og mættu nemendur prúðbúnir til kvöldverðar á hátíðarsal skólans. Nemendur og kennarar höfðu unnið hörðum höndum að því undanfarna daga að skreyta salinn og leggja á borð. Foreldrar nemenda sáu um þjónustuna þetta kvöld og um matinn sá matreiðslumeistari skólans. Margt var til gamans gert á borðhaldinu, úrslit í Tíukjörinu voru kunngerð, skemmtiatriði Tíunnar og kennara ásamt hinu ómissandi kennaragríni úr smiðju nemenda.

 

Að borðhaldi loknu var stiginn dans og rútur biðu síðan nemenda fyrir utan skólann og fluttu þá „dansþreytta" heim að lokinni skemmtilegri kvöldstund.

 

Ţegar um svo stóran viðburð er að ræða í skólastarfinu er gott að eiga góða að. Íþróttafélagið Fylkir lagði skólanum til borð, stóla og borðbúnað, Árbæjarkirkja lánaði einnig borðbúnað og foreldrar nemenda þjónuðu til borðs eins og fyrr sagði. Kann skólinn þessu góða fólki bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Einnig ber að þakka Tíunni fyrir ánægjulegt og gott samstarf.

Sjá MYNDIR HÉR.

                                                                                                                            

13.3.2012

Upplestrarkeppni í Árbćjarskóla

Í dag fór fram hin árlega upplestrarkeppni í Árbæjarskóla þar sem tveir nemendur úr 7. bekk voru valdir til þátttöku í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Fjölmargir foreldrar voru viðstaddir keppnina ásamt nemendum úr 6. og 7. bekk og kennurum þeirra.

 

Að þessu sinni voru átta keppendur sem tóku þátt. Þetta voru Sunna Björk Karlsdóttir, Sóley Dögg Davíðsdóttir, Andri Þór Diego, Rebekka Rós Ragnarsdóttir, Lúkas Jónsson, Helga Bryndís Einarsdóttir, Jón Kristján Ólafsson og Thu Thao Vú. Stóðu keppendur sig með mikilli prýði og ljóst að hlutskipti dómnefndar yrði ekki létt.

 

Dómnefndina skipuðu að þessu sinni; Jóhanna Lára Eyjólfsdóttir, fagstjóri í íslensku og formaður dómnefndar, Davíð Snorri Jónasson, íslenskukennari, Friðrik Magnússon, íslenskufræðingur og var hann fulltrúi foreldra og Helga Hlín Stefánsdóttir, nemandi í 9. bekk, sem var fulltrúi nemenda.

 

Keppendur stigu þrívegis í pontu. Fyrst lásu þeir úr bók Þorgríms Þráinssonar, Margt býr í myrkrinu, þá fluttu þeir ljóð eftir valinkunna íslenska höfunda og í þriðju og síðustu umferðinni lásu keppendur ljóð að eigin vali.

 

Ţær Vanessa í 6. ÞÞ og Elísabet Sesselja í 8. IA sáu um tónlistarflutninginn að þessu sinni. Vanessa lék á þverflautu og Elísabet Sesselja söng.

 

Ţeir nemendur sem valdir voru sem fulltrúar Árbæjarskóla að þessu sinni voru Sunna Björk og Andri Þór. Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn um leið og við hvetjum þau til dáða fyrir lokakeppnina í næstu viku. Eins og fyrr segir stóðu keppendur sig afar vel og er þeim þökkuð þátttakan ásamt öllum þeim sem komu að keppninni með einum eða öðrum hætti.

 

 

12.3.2012

Mikiđ um ađ vera

Árshátíðarvika - Stóra upplestrarkeppnin á miðstigi - Stærðfræðikeppni MR

 

Mikið er um að vera í skólanum þessa vikuna. Á morgun þriðjudag er Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk. Átta nemendur í 7. bekk  þau Andri Þór, Jón Kristján, Lúkas og Sóley öll í 7. KV ásamt Helgu Bryndísi, Sunnu, Rebekka og Thi Thao úr 7. SJ taka þátt í keppninni. Þeir nemendur sem lenda í tveimur efstu sætunum verða fulltrúar Árbæjarskóla í aðalkeppninni sem fram fer eftir tvær vikur.

 

Á morgun munu nemendur á unglingastigi taka þátt í stærðfræðikeppni MR. Keppnin er árlegur viðburður og hafa nemendur okkar staðið sig vel undanfarin ár og er von okkar að það verði áframhald á því. Lagt verður af stað klukkan þrjú á morgun og heimkoma ráðgerð um fimm leytið.

 

Árshátíð skólans verður haldin á miðvikudaginn með glæsibrag. Dagurinn hefst með því að nemendur mæta í umsjónarstofu  hjá umsjónarkennara í búningi sem þau hafa valið sér.  Síðan hefjast bekkjarleikar þar sem nemendur etja kappi í ýmsum þrautum. Því næst ganga nemendur fylktu liði niður í Fylkishöll þar sem skemmtunin heldur áfram. Um kvöldið verður haldin sjálf árshátíðin. Þar verður hátíðarkvöldverður og  skemmtun. Húsið opnar klukkan 17:50 og ætlast er til að allir séu mættir  18:20. Rútur munu keyra nemendur heim klukkan 23:30 að árshátíð lokinni. 

 

5.3.2012

Kökusala á ţriđjudögum

Á morgun, þriðjudag, hefst kökusala á vegum nemenda í 10. bekk. Ástæðan er fjáröflun fyrir árlegri útskriftarferð 10. bekkinga. Ráðgert er að kökusalan verði alltaf á þriðjudögum fram að vori. Vonandi gengur salan vel og viljum við hvetja sem flesta starfsmenn og nemendur til að kaupa kökur.

1.3.2012

Skólahreysti

Keppnislið Árbæjarskóla hefur verið valið fyrir riðlakeppni Skólahreysti sem fram fer þann 8. mars í íþróttahúsinu Austurbergi klukkan 16:00. Lið Árbæjarskóla skipa þau Eiríkur Ari Eiríksson, Óðinn Arnarsson, Auður María Óskarsdóttir og Helga Kristín Ingólfsdóttir sem keppa í hraðabrautinni. Unnar Örn og Richard Már Guðbrandsson keppa í upphífingum og dýfum, Erla Hrafnkelsdóttir, Hildur Ösp Gunnardóttir spreyta sig í armbeygjum og höngu.

 

Vonandi gengur okkar fólki sem allra best og hvetjum við sem flesta til þess að mæta og styðja okkar lið.

28.2.2012

Heimsókn í Gerđuberg

Fimmtudaginn 16. febrúar  var 3.bekk boðið á sýningu í Gerðubergi.  Um var að ræða tvær sýningar, Þetta vilja börnin sjá, þar getur að líta myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem gefnar voru út árið 2011 og Glitrar á hjarnið  og þar er á ferð  úrval mynda eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli sem hann hefur þrykkt af svelli, hellum og bergi auk nokkurra steinskúlptúra. Nemendur fóru einnig á bókasafnið og þar var skemmtilegur ratleikur og upplestur. Nemendur skemmtu sér vel , höfðu gagn og gaman af og voru öllum til sóma. Hér má sjá fleiri myndir.

22.2.2012

Öskudagur

Haldið var upp á öskudaginn  við skólann með ýmsum uppátækjum. Gaman var að sjá hve margir nemendur og starfsmenn mættu í grímufötum. Nemendur í 1. - 4. bekk dönsuðu á salnum, marseruðu og fóru í leiki. Einnig fengu börnin að koma með dót og spil að heiman. 

Nemendur á miðstigi flökkuðu á milli stöðva og unnu að ýmsum skemmtilegum verkefnum eins og að búa til kókoskúlur og að taka þátt í spurningakeppni. Nemendur á unglingastigi hittust í umsjónarstofum og klæddu upp eitt bekkjarsystkini sitt í grímubúning og veitt voru verðlaun fyrir flottasta búninginn. Einnig fóru nemendur í  reiptog í íþróttahúsinu.

Í hádeginu fengu nemendur óvænta heimsókn. Hljómsveitin Blár ópal kom og flutti lagið ,,Stattu upp fyrir sjálfum þér" við góðar undirtektir. Í lok skóladags fengu nemendur afhentan sælgætispoka í boði foreldrafélagsins og þökkum við foreldrum kærlega fyrir.

Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og nemendur og starfsfólk skólans skemmti sér konunglega

Sjá MYNDIR HÉR.

21.2.2012

Öskudagurinn í Árbćjarskóla

 

Miðvikudaginn 22. febrúar 2012

Næstkomandi miðvikudag höldum við Öskudaginn hátíðlegan í Árbæjarskóla.

Ţann dag mæta nemendur og starfsfólk skólans í grímubúningum/furðufötum og skemmta sér saman. Nemendur fylgja umsjónarkennurum sínum þennan dag við leik og störf.

Nemendur mega koma með sparinesti en hvorki sælgæti né gosdrykki.  Mikilvægt er að þetta verði virt af öllum nemendum skólans.

 

Nemendur í 1. -  4. bekk mæta til umsjónarkennara í heimastofu sína kl. 8.10 og skóladeginum lýkur kl. 13.35 eins og venjulega.

 

Nemendur í 5. - 10. bekk mæta til umsjónarkennara í heimastofu sína kl. 8.10 og skóladeginum lýkur að hádegisverði loknum um kl. 12.30.

 

Um kvöldið, kl.20.00 - 22.30, verður grímuball fyrir nemendur í 8. - 10. bekk í skólanum og er nemendum í vinaskóla okkar, Hólabrekkuskóla, boðið á ballið. Rútur heim að venju eftir ballið.

 

Um nýbreytni er að ræða í skólastarfinu hjá okkur að nemendur komi í skólann á Öskudegi og er það von okkar að dagurinn verði ánægjulegur og allir skemmti sér vel.

 

Fimmtudaginn 23. febrúar og föstudaginn 24. febrúar er vetrarleyfi í skólanum.

20.2.2012

Láttu draumana rćtast

Í síðustu viku heimsótti rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson nemendur í 10. bekk. Hann fræddi þá um ábyrgð þeirra á eigin lífi og hvatti til þess að láta drauma sína rætast. Til þess þyrftu þeir að setja sér markmið, virkja hæfileika sína og leggja sig fram til þess að ná árangri.

Ţorgrími var vel tekið og voru nemendur ánægðir með komu hans.

6.2.2012

Dagur stćrđfrćđinnar

Föstudaginn 3. febrúar var haldið upp á dag stærðfræðinnar hér við skólann. Í tilefni af því var haldin stærðfræðikeppni á mið- og unglingastigi sem fór fram fyrr í vikunni. Verðlaun voru veitt á sal skólans og á unglingastigi var Arnar 10. MS hlutskarpastur, önnur verðlaun hlaut Sunneva 8. KJ og í þriðja sæti var Guðbjartur úr 10. GP. Á miðstigi var Bjarki 6. SB í fyrsta sæti, Gauti úr 6. SS í öðru sæti og Ragnheiður Lilja í 5. VH í þriðja sæti. Hver verðlaunahafi fékk verðlaunapening en Arnar fékk að auki farandbikar sem verður í vörslu hans fram að vori. Rizzo Pizzeria gaf verðlaunahöfum pizzuveislu og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Á yngsta stiginu unnu nemendur margvísleg stærðfræðiverkefni í tilefni dagsins. Leikskólabörn úr Árborg og Rofaborg komu í heimsókn og unnu að stærðfræðiverkefnum og stóðu sig með mikilli prýði. Sjá myndir HÉR.

 

3.2.2012

Handboltamót

Föstudaginn 27. janúar kepptu nemendur í 5. og 6. bekk á handboltamóti sem var haldið í Fylkishöll. Keppt var við Ártúnsskóla, Selásskóla og Norðlingaskóla. Mikil stemning var í höllinni þennan dag og skemmtu nemendur sér konunglega. Okkar nemendur stóðu sig með miklum sóma.  Sjá fleiri myndir HÉR.

 

30.1.2012

Skólahreysti 2012 - forkeppni Árbćjarskóla

Miðvikudaginn 1. febrúar fer fram forkeppni fyrir Skólahreysti 2012 þar sem keppnislið skólans verður valið. Þátttökurétt hafa allir nemendur 9. og 10. bekkjar skólans og þurfa þeir að skrá sig á skrifstofu skólans í síðasta lagi fyrir kl.16:00 á morgun, þriðjudag.
Forkeppnin fer fram í íþróttahúsi skólans og stendur frá kl. 9:50 - 11:00. Stúlkur og piltar keppa í hraðaþraut, stúlkur í armbeygjum og hreystigreip og piltar í upphífingum og dýfum.
Keppnislið skólans hefur þátttöku 8. mars nk. og etur þá kappi við lið úr Breiðholti, Grafarvogi, Grafarholti og Norðlingaholti.
Tólf lið komast svo áfram í lokakeppnina sem fer fram í Laugardalshöll 26. apríl.

30.1.2012

Spurningakeppni grunnskólanna

Miðvikudaginn 1. febrúar, mun spurningalið Árbæjarskóla keppa í undankeppni Spurningakeppni grunnskólanna sem fram fer í Kópavogsskóla klukkan 20:00. Liðið er skipað þrem piltum úr unglingadeild þeim Garðari Árna Skarphéðinssyni, Elvari Wang Atlasyni og Ármanni Jakobssyni. Fjölmennum í Kópavoginn og styðjum okkar lið til sigurs.

27.1.2012

Undankeppni söngvakeppni Samfés

Síðastliðinn föstudag var haldin undankeppni söngvakeppni Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á landinu. Unglingar frá þremur grunnskólum kepptu þ.e. Norðlingaskóla, Grafarholtsskóla og Árbæjarskóla. Nemendur Árbæjarskóla stóðu sig frábærlega. Elísabet Sesselja, 8. bekk, fékk sérstök verðlaun fyrir frumlegt atriði. Í þriðja sæti urðu Margrét Sæmundsdóttir og Brynja Sigurðardóttir í 9. bekk. Viktoría Berg, Elísa Sif, Þórhildur Vala og Alma, allar úr 10. bekk, höfnuðu í öðru sæti. Sigurvegarar voru þau Jónas úr 10. bekk, Helga Hlín og Hrafnhildur Svala úr 9. bekk. Sigurvegararnir munu keppa í aðalkeppninni fyrir hönd hverfisins og verður keppnin sýnd beint í opinni dagskrá á Skjá einum.

23.1.2012

,, Fönn, fönn, fönn, fönn, íslensk fönn."

Nemendur af grunn- og miðstigi hafa notið útiverunnar í snjónum undanfarnar vikur. Þessar myndir voru teknar af nemendum á þriðjudaginn í síðustu viku.

20.1.2012

Framhaldsskólakynning

Fimmtudaginn 19. janúar var haldin kynning á framhaldsnámi fyrir nemendur og foreldra 9. og 10. bekkinga í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti. Kynningin fór fram sal Fjölbrautarskólans í Breiðholti.  Fulltrúar flestra framhaldsskóla af höfuðborgarsvæðinu komu, kynntu námsframboð sitt og ræddu við nemendur og foreldra. Kynningin tókst ákaflega vel og aðsókn var mjög góð. Margir framhaldsskólar ætla að hafa opin hús fyrir nemendur og forráðamenn þeirra og munu námsráðgjafar senda upplýsingar um dagsetningar í tölvupósti til forráðamanna.

16.1.2012

Ţorradagur (bóndadagur) 20. janúar

Nú nálgast þorrinn óðfluga. Bóndadagurinn er á föstudaginn kemur. Þá er mælst til að nemendur og starfsfólk skólans klæðist þjóðlegum flíkum og því tilvalið að mæta í lopapeysunni og sauðskinnskónum. Í askinum (nestisboxinu) má gjarnan vera harðfiskur, slátur, hákarl, flatbrauð með hangiketi eða skyr.

9.1.2012

Gleđilegt ár

Skólastarf í Árbæjarskóla hófst á fimmtudaginn síðastliðinn. Hefðbundið félagsstarf við skólann er hafið að nýju og verður skákkennsla og kórastarf með sama sniði og í fyrra. Velkomin til starfa og gangi ykkur vel á nýju ári.

Tilkynningar


Viđburđadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmćli

Röskun á skólastarfi

Slóđin ţín:

Forsíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorđ