26.9.2011
10. bekkur
Aðstandendur Kvikmyndahátíðarinnar RIFF buðu 10. bekkingum í Reykjavík að sjá dönsku myndina Hold om mig eftir Kaspar Munk. 95 nemendur í 10. bekk Árbæjarskóla nýttu sér tilboðið á fimmtudaginn var. Þeir voru sammála um að myndin væri afar áhrifarík og höfðaði mjög til þeirra en hún fjallar um vandmál unglinga í hnotskurn þ.e. hópþrýsting og að taka ábyrgð á eigin lífi.
16.9.2011
Samræmd próf
Vikuna 19. - 23. september verða lögð fyrir samræmd próf í fjórða, sjöunda og tíunda bekk. Samkvæmt 2. grein í reglugerð Menntamálaráðuneytisins um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er tilgangur þeirra eftirfarandi:
- a. athuga eftir því sem kostur er, að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð,
- b. vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur,
- c. veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda,
- d. veita upplýsingar um hvernig skólar standa í þeim námsgreinum sem prófað er úr, miðað við aðra skóla landsins.
Í 10. bekk er prófað í þremur námsgreinum íslensku, ensku og stærðfræði en í 4. og 7. bekk í íslensku og stærðfræði. Dagsetningar prófanna eru eftirfarandi:
10. bekkur
Íslenska - mánudaginn 19. september
Enska - þriðjudaginn 20. september
Stærðfræði - miðvikudaginn 21. september
4. og 7. bekkur
Íslenska - fimmtudaginn 22. september
Stærðfræði - föstudaginn 23. september
Við óskum nemendum góðs gengis.
13.9.2011
Stjórn Nemendafélags Árbæjarskóla
Kosið var í stjórn nemendafélags Árbæjarskóla síðastliðinn miðvikudag fyrir skólaárið 2011-2012.
Eftirtaldir nemendur hlutu kosningu:
Þór Daníel Hólm (10. JJ), formaður,
Una Birna Haukdal (10. MS), meðstjórnandi,
Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir (9. AH) meðstjórnandi.
Á myndinni má sjá nýkjörna stjórn nemendafélagsins.
Frá vinstri:Una Birna, Þór Daníel og Hrafnhildur Svala
12.9.2011
Rósaball Árbæjarskóla haustið 2011
Miðvikudaginn 14. september nk. verður hið árlega Rósaball Árbæjarskóla haldið með pomp og prakt. Mikill spenningur hefur jafnan fylgt ballinu og þátttaka verið mjög góð. Líkast til verður enginn undantekning þar á þetta árið. Rósaballið hefur verið árviss atburður svo lengi sem elstu menn muna. Þá bjóða 10. bekkingar nemendur í 8. bekk formlega velkomna í skólann með því að sækja þá og fylgja á ballið. Mikið umstang fylgir gjarnan viðburðinum og leggja nemendur mikið á sig til að gera hann sem veglegastan. Húsið opnar kl. 19:30 og þurfa allir að vera komnir í hús kl. 21. Ballinu lýkur kl. 23:30.
Á myndinni má sjá nokkra nemendur á Rósaballi 2010.
6.9.2011
Kosningar til nemendaráðs
Kosið verður til nemendaráðs næstkomandi miðvikudag fyrir skólaárið 2011-2012.
Í framboði fyrir 10. bekk verða: Elísa Sif Hermannsdóttir (10. GP), Gígja Björg Guðjónsdóttir (10. MS), Ólöf María Jónsdóttir (10. GP), Maríanna Björk Ásmundsdóttir (10. GP), Una Birna Haukdal (10. MS), Þórhildur Vala Kjartansdóttir ( 10.MS ) og Þór Daníel Hólm (10. JJ).
Úr 9. bekk verða: Birgitta Rut Helgadóttir ( 9.ÁB), Brynja Sigurðardóttir (9. KS), Helga Hlín Stefánsdóttir (9. AH), Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir (9. AH) og Steinunn Birta Hauksdóttir (9. ÁB).
5.9.2011
Kynningarfundir
Vel hefur tekist til á kynningarfundum fyrir foreldra nemenda í 1. - 10. bekk. Sú nýbreytni var tekin upp að fundirnir voru haldnir í upphafi skóladags. Á fundunum var skólastarf vetrarins kynnt og ræddu foreldrar við umsjónarkennara síns barns.
Á myndinni eru foreldrar barna í 5. - 7. bekk.
1.9.2011
Hljóðbækur á vef Námsgagnastofnunar
Unnt er að nálgast hljóðbækur sem Námsgagnastofnun hefur gefið út á vefsíðunni http://www.nams.is/ og hlaða þeim niður til hlustunar án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða mp3 spilara. Hljóðbækur gagnast ekki aðeins nemendum sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða heldur einnig hverjum þeim sem áhuga hefur á því að hlusta á vandaðan upplestur texta. Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika. Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.











