Beint á leiđarkerfi vefsins
Forsíđa

13.12.2011

Skipulag skólastarfs 19. og 20. desember

Mánudagur 19. desember

 

Kennsla samkvæmt stundaskrá í 1. - 7. bekk

1. - 4. bekkur             Litlu jól í heimastofum - Afhending námsmats í 2. - 4. bekk

                                Sparinesti að heiman (smákökur og gos - ekki sælgæti)

5. - 7. bekkur              Jólaskemmtun á sal skólans kl. 17 - 19 / sjoppan opin

8.-10. bekkur              Jólaskemmtun frá 09:00 - 12:45 og jólaball kl. 20:00 -23:00.

 

Ţriðjudagur 20. desember

 

Kl. 8:10-9:30                  5. - 7. bekkur Litlu jól í heimastofu -Afhending námsmats

                                    Sparinesti að heiman (smákökur og gos - ekki sælgæti)

Kl. 09:50-11:15               Jólaball nemenda í 2. - 4. bekk á sal skólans

Kl. 13:00 - 14:30             Jólaball nemenda í 1. bekk og leikskólabarna á Árborg og Rofaborg á sal skólans

Kl. 09:00 - 11:00             8. - 10. bekkur - Litlu jól í heimastofum - Afhending námsmats

Töfrasel opnar kl. 13:00 fyrir þá sem eru í gæslu.

 

Miðvikudagur 21. desember    Jólaleyfi hefst.

 

Fimmtudagur 5. janúar            Kennsla hefst á ný samkvæmt stundatöflu

 

Gleðileg jól - hittumst kát og hress á nýju ári !

6.12.2011

Jólatónleikar

Miðvikudaginn, 7. desember, klukkan 17 verða haldnir jólatónleikar þar sem skólakórar Árbæjarskóla ásamt nemendum úr tónlistarvali og sönglist  munu flytja nokkur vel valin lög undir stjórn Önnu Maríu Bjarnadóttur. Tónleikarnir verða haldnir á sal skólans og  áætlað er að þeir taki rúma klukkustund.

Að sjálfsögðu verður ókeypis aðgangur og eru allir velkomnir.

6.12.2011

1. desember

Nemendur og starfsmenn unglingadeildar komu saman á sal skólans í tilefni af fullveldisdeginum 1. desember. Afhent voru verðlaun í smásagnasamkeppni skólans og verðlaunasögurnar lesnar upp. Margar frábærar sögur bárust í örsögukeppnina þetta árið og var úr vöndu að ráða. Hlutskörpust varð Urður Egilsdóttir 8. KJ með söguna Ţað rignir. Þórhildur Vala, 10. MS, varð í öðru sæti með söguna Stoppistöð en í þriðja sæti voru þau Sigurveig Ankita Sólmundsdóttir 8. SG með Litalausa blómið og Þorvaldur Tryggvason 8. IA með Stuld. Sjá sögur hér.

 

Íslenskuverðlaun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur voru afhent. Að þessu sinni var það Björn Áki Jósteinsson, 10. MS sem hlaut þau verðlaun fyrir ágætan námsárangur í íslensku.

 

Veitt voru verðlaun í Ljósmyndasamkeppni Árbæjarskóla og voru sigurvegararnir þær Theodóra 10. MS (Andlitsmynd), Hólmfríður 10. AA (Andstæður og Náttúra), Nína 10. AA (Frjálst), Elísabet Seselía 8. IA (Hreyfing) og Birgitta Rut 9. ÁB (Andstæður aukaverðlaun). 

 

Haldin var samkeppni um hönnun jólakorta meðal 10. bekkinga í þeim tilgangi að gefa út og selja kortin til ágóða fyrir útskriftarferð 10. bekkjar. Sigurvegararnir voru Emma Lind 10. AA, Una Birna 10. MS, Lilja Björk 10. GP og Gígja 10. MS. 

 

Að auki buðu nemendur unglingadeildar upp á tónlistar- og dansatriði sem voru með eindæmum glæsileg. Sjá myndir HÉR. 

 

5.12.2011

Frábćr árangur á Jólaskákmóti TR

Um helgina fór fram hið árlega Jólaskákmót Taflfélags Reykjavíkur. Árbæjarskóli sendi drengja- og stúlknasveit til keppni skipaða nemendum í 5. - 7. bekk. Drengjasveitin lenti í 2. sæti með 18 ½ vinning af 24 mögulegum og stúlknasveitin hafnaði einnig í 2. sæti, en stúlkurnar unnu helming sinna skáka.

 

Drengjasveitina skipuðu: Andri Már Hannesson, Jakob Alexander Petersen, Sigurður Alex Pétursson og Þorsteinn Freygarðsson, nemendur í 7. bekk og Bjarki og Fannar Sigurðssynir, nemendur í 6. bekk.

 

Stúlknasveitina skipuðu: Eva Dís Erlendsdóttir og Halldóra og Sólrún Freygarðsdætur, nemendur í 6. bekk, og Iveta Chavdarova Ivanova, Rakel Sara Magnúsdóttir og Ragnheiður Dís Embludóttir, nemendur í 5. bekk.

 

Árangur skáksveitanna er eftirtektarverður í ljósi þess að þetta er þriðji veturinn sem skákþjálfun fer fram í skólanum. Gunnar Finnsson er þjálfari liðsins og er hann að vonum í skýjunum með árangurinn líkt og allir í skólanum.

 

Til hamingju krakkar með frábæran árangur.

1.12.2011

Jólaföndur Árbćjarskóla

 

Jólaföndur Árbæjarskóla

                                                                                                 

Laugardaginn 3. desember

kl. 11:00 - 13:30

verður boðið upp á jólastund í hátíðarsal skólans. 

 

Föndurvörur seldar á vægu verði:

Keramik- og trémálun, jólakortagerð og létt

pappírsföndur fyrir þau yngstu.

 

Heitt kakó í boði Foreldrafélagsins eins á undanfarin ár og svo ætla krakkarnir okkar í 10. bekk að vera með kökusölu sem er liður í fjáröflun fyrir útskriftaferðina þeirra í vor.

 

Hvetjum alla til að mæta og eiga saman notalega jólastund.

 

Munið eftir að koma með pensla fyrir keramik- og trémálun, lím, liti, skæri, heftara og glimmerlím fyrir jólakortagerð, plastpoka undir jólaföndrið, góða skapið og annað sem ykkur finnst þið þurfa fyrir jólaföndurgerðina. 

Jólakveðja, Foreldrafélagið

Tilkynningar


Viđburđadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmćli

Röskun á skólastarfi

Slóđin ţín:

Forsíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorđ