Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

27.1.2011

Stemning á sal

Nemendur og starfsmenn skólans hafa undanfarið fylgst með heimsmeistaramótinu í handknattleik. Síðastliðinn mánudag fylgdust nemendur og starfsmenn með landsleik Íslands og Spánar. Þrátt fyrir slæmt gengi liðsins stóðu allir áhorfendur með íslenska liðinu. Áfram Ísland!

20.1.2011

Undankeppni Samfés

Föstudaginn 21. janúar klukkan 20 er komið að undankeppni söngvakeppni Samfés.  Hópur  nemenda úr Árbæjarskóla mun stíga á stokk og taka nokkur vel valin sönglög. Keppnin fer fram í Tíunni (Árseli) og eru allir velkomnir.

Þeir sem koma fram eru:

Íris Árnadóttir og Jón Guðmann með lagið Stúlkan sem starir á hafið.

Ragnhildur Eir Stefánsdóttir  sem syngur lagið Róleg og Laufey Þóra Borgþórsdóttir leikur undir á píanó.

Viktoría Berg Henrýsdóttir og Theodóra Róbertsdóttir sem flytja lagið Ég vil þú farir með frumsömdum texta eftir þær stöllur.

Jóhanna Elísa Skúladóttir fytur lagið Ég vil dansa við þig.

Elísa Sif Hermannsdóttir flytur lagið Mundu mig.

Diljá Heba Petersen og Rebekka Rut Petersen flytja lagið Ótrúlega hrifin.

Eyjólfur Jónsson flytur lagið Ástin mín eina.

Brynja Sigurðardóttir flytur lagið Hjá þér.

Keppnin er tilvalið tækifæri fyrir efnilega krakka sem vilja fá æfingu í tónlistarflutningi. Við hvetjum sem flesta til þess að mæta og njóta kvöldsins.

17.1.2011

Framhaldsskólakynning 20. janúar nk. kl. 17:00 - 19:00 í Fjölbrautarskóla Breiðholts

  

Kynningin er fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra. Nemendur í 9. bekk og foreldrar þeirra eru einnig velkomnir á kynninguna. Fulltrúar framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu verða á staðnum  og kynna sína skóla, námsframboð og inntökuskilyrði.

Mikilvægt er að nemendur í 10. bekk og foreldrar þeirra mæti og kynni sér það nám sem er í boði þar sem nú styttist í að nemendur þurfi að ákveða í hvaða framhaldsskóla þeir vilja fara.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar hér. Einnig er hægt að nálgast glærusýningu um framhaldsskólanna hér.

12.1.2011

Foreldraviðtöl

Föstudaginn 14. janúar fara fram foreldraviðtöl í Árbæjarskóla. Nemendur  mæta  ásamt foreldrum sínum  til umsjónarkennara. Öll kennsla fellur niður þennan dag.

12.1.2011

Undirbúningur Árshátíðar

Vinna er þegar hafin við skipulagningu árshátíðar nemenda skólans, sem er í höndum stjórnar nemendafélagsins og félagsstarfshóps kennara. Árshátíðin hefur ávallt verið einn af hápunktum félagslífs Árbæjarskóla og mikið í hana lagt. Meðal fastra liða í skemmtiatriðum árshátíðarinnar er hið sígilda kennaragrín sem nemendur eru nú þegar farnir að vinna að. Við eigum áreiðanlega spennandi árshátíð í vændum sem haldin verður 2. mars.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð