13.12.2011
Skipulag skólastarfs 19. og 20. desember
Mánudagur 19. desember
Kennsla samkvæmt stundaskrá í 1. - 7. bekk
1. - 4. bekkur Litlu jól í heimastofum - Afhending námsmats í 2. - 4. bekk
Sparinesti að heiman (smákökur og gos - ekki sælgæti)
5. - 7. bekkur Jólaskemmtun á sal skólans kl. 17 - 19 / sjoppan opin
8.-10. bekkur Jólaskemmtun frá 09:00 - 12:45 og jólaball kl. 20:00 -23:00.
Ţriðjudagur 20. desember
Kl. 8:10-9:30 5. - 7. bekkur Litlu jól í heimastofu -Afhending námsmats
Sparinesti að heiman (smákökur og gos - ekki sælgæti)
Kl. 09:50-11:15 Jólaball nemenda í 2. - 4. bekk á sal skólans
Kl. 13:00 - 14:30 Jólaball nemenda í 1. bekk og leikskólabarna á Árborg og Rofaborg á sal skólans
Kl. 09:00 - 11:00 8. - 10. bekkur - Litlu jól í heimastofum - Afhending námsmats
Töfrasel opnar kl. 13:00 fyrir þá sem eru í gæslu.
Miðvikudagur 21. desember Jólaleyfi hefst.
Fimmtudagur 5. janúar Kennsla hefst á ný samkvæmt stundatöflu
Gleðileg jól - hittumst kát og hress á nýju ári !
6.12.2011
Jólatónleikar
Miðvikudaginn, 7. desember, klukkan 17 verða haldnir jólatónleikar þar sem skólakórar Árbæjarskóla ásamt nemendum úr tónlistarvali og sönglist munu flytja nokkur vel valin lög undir stjórn Önnu Maríu Bjarnadóttur. Tónleikarnir verða haldnir á sal skólans og áætlað er að þeir taki rúma klukkustund.
Að sjálfsögðu verður ókeypis aðgangur og eru allir velkomnir.
6.12.2011
1. desember
Nemendur og starfsmenn unglingadeildar komu saman á sal skólans í tilefni af fullveldisdeginum 1. desember. Afhent voru verðlaun í smásagnasamkeppni skólans og verðlaunasögurnar lesnar upp. Margar frábærar sögur bárust í örsögukeppnina þetta árið og var úr vöndu að ráða. Hlutskörpust varð Urður Egilsdóttir 8. KJ með söguna Ţað rignir. Þórhildur Vala, 10. MS, varð í öðru sæti með söguna Stoppistöð en í þriðja sæti voru þau Sigurveig Ankita Sólmundsdóttir 8. SG með Litalausa blómið og Þorvaldur Tryggvason 8. IA með Stuld. Sjá sögur hér.
Íslenskuverðlaun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur voru afhent. Að þessu sinni var það Björn Áki Jósteinsson, 10. MS sem hlaut þau verðlaun fyrir ágætan námsárangur í íslensku.
Veitt voru verðlaun í Ljósmyndasamkeppni Árbæjarskóla og voru sigurvegararnir þær Theodóra 10. MS (Andlitsmynd), Hólmfríður 10. AA (Andstæður og Náttúra), Nína 10. AA (Frjálst), Elísabet Seselía 8. IA (Hreyfing) og Birgitta Rut 9. ÁB (Andstæður aukaverðlaun).
Haldin var samkeppni um hönnun jólakorta meðal 10. bekkinga í þeim tilgangi að gefa út og selja kortin til ágóða fyrir útskriftarferð 10. bekkjar. Sigurvegararnir voru Emma Lind 10. AA, Una Birna 10. MS, Lilja Björk 10. GP og Gígja 10. MS.
Að auki buðu nemendur unglingadeildar upp á tónlistar- og dansatriði sem voru með eindæmum glæsileg. Sjá myndir HÉR.
5.12.2011
Frábćr árangur á Jólaskákmóti TR
Um helgina fór fram hið árlega Jólaskákmót Taflfélags Reykjavíkur. Árbæjarskóli sendi drengja- og stúlknasveit til keppni skipaða nemendum í 5. - 7. bekk. Drengjasveitin lenti í 2. sæti með 18 ½ vinning af 24 mögulegum og stúlknasveitin hafnaði einnig í 2. sæti, en stúlkurnar unnu helming sinna skáka.
Drengjasveitina skipuðu: Andri Már Hannesson, Jakob Alexander Petersen, Sigurður Alex Pétursson og Þorsteinn Freygarðsson, nemendur í 7. bekk og Bjarki og Fannar Sigurðssynir, nemendur í 6. bekk.
Stúlknasveitina skipuðu: Eva Dís Erlendsdóttir og Halldóra og Sólrún Freygarðsdætur, nemendur í 6. bekk, og Iveta Chavdarova Ivanova, Rakel Sara Magnúsdóttir og Ragnheiður Dís Embludóttir, nemendur í 5. bekk.
Árangur skáksveitanna er eftirtektarverður í ljósi þess að þetta er þriðji veturinn sem skákþjálfun fer fram í skólanum. Gunnar Finnsson er þjálfari liðsins og er hann að vonum í skýjunum með árangurinn líkt og allir í skólanum.
Til hamingju krakkar með frábæran árangur.
1.12.2011
Jólaföndur Árbćjarskóla
Jólaföndur Árbæjarskóla
Laugardaginn 3. desember
kl. 11:00 - 13:30
verður boðið upp á jólastund í hátíðarsal skólans.
Föndurvörur seldar á vægu verði:
Keramik- og trémálun, jólakortagerð og létt
pappírsföndur fyrir þau yngstu.
Heitt kakó í boði Foreldrafélagsins eins á undanfarin ár og svo ætla krakkarnir okkar í 10. bekk að vera með kökusölu sem er liður í fjáröflun fyrir útskriftaferðina þeirra í vor.
Hvetjum alla til að mæta og eiga saman notalega jólastund.
Munið eftir að koma með pensla fyrir keramik- og trémálun, lím, liti, skæri, heftara og glimmerlím fyrir jólakortagerð, plastpoka undir jólaföndrið, góða skapið og annað sem ykkur finnst þið þurfa fyrir jólaföndurgerðina.
Jólakveðja, Foreldrafélagið
30.11.2011
1. deshátíđ nemenda í 8. - 10. bekk
Á morgun fimmtudaginn 1. desember 2011 verður árleg hátíðarsamkoma nemenda í 8. - 10. bekk á sal skólans.
Um er að ræða árvissan viðburð og er dagskráin fjölbreytt og skemmtileg.
Hér má sjá dagskrána.
28.11.2011
Heimsókn á Ársafn
Hluti 8. bekkjar Árbæjarskóla heimsótti Ársafn í dag, 28. nóvember. Tilgangur heimsóknarinnar var að hlýða á íslenska höfunda lesa upp úr verkum sínum.
Ţeir sem kynntu bækur sínar voru Arndís Þórarinsdóttir sem las upp úr bók sinni Játningar mjólkurfernuskálds, Jónína Leósdóttir sem las úr bókinni Upp á líf og dauða og Þórarinn Leifsson sem las úr Götumálaranum. Þá kynnti Kristinn Árni Hróbjartsson bók sína Litla herramannakverið.
23.11.2011
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur hér í Árbæjarskóla þann 16. nóvember síðastliðinn.
Í tilefni dagsins fengu 1. bekkingar elstu börnin af Árborg og Rofaborg í heimsókn. Að auki voru skemmtidagskrár fyrir nemendur 2.-4. bekkjar, miðstigs og unglingadeildar. Hér má sjá myndir frá dagskrá yngri nemenda.
Undanfarin ár hefur Menntaráð Reykjavíkur veitt grunnskólanemendum viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku og eru verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn á degi íslenskrar tungu. Þeir sem hlutu verðlaunin fyrir hönd skólans, að þessu sinni, voru þau Björn Áki Jósteinsson 10. MS, Eva Margit Wang Atladóttir 5. VH og Jenný María Jóhannsdóttir 4. IS. Við óskum þeim til hamingju með viðurkenninguna.
21.11.2011
Bronsverđlaun á Norđur-Evrópumóti í fimleikum
Hildur Ólafsdóttir nemandi í 10. JL hlaut bronsverðlaun eftir glæsilega frammistöðu í gólfæfingum á Norður-Evrópumótinu í fimleikum, í flokki 15 ára og eldri, sem haldið var dagana 11.-13. nóvember í Svíþjóð. Árangurinn þykir með eindæmum glæsilegur þar sem Hildur keppir enn í unglingaflokki og á mörg ár eftir í íþróttinni.
Til hamingju með árangurinn.
14.11.2011
Dagur eineltis
Ţriðjudagurinn 8. nóvember var dagur eineltis. Þá undirrituðu æðstu ráðamenn þjóðarinnar þjóðarsáttmála gegn einelti.
Í tilefni dagsins var farið yfir reglur um samskipti innan og utan Árbæjarskóla. Hver árgangur vann að mismunandi verkefnum sem áttu það sameiginlegt að fjalla um góð, jákvæð og uppbyggileg samskipti. Meðal annars unnu nemendur 3. bekkjar veggmynd sem sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
9.11.2011
Árbćjarskóli kominn í úrslit Skrekks
Lið Árbæjarskóla komst áfram í undanúrslitum Skrekks eftir glæsta frammistöðu í Borgarleikhúsinu í gærkvöld, þann 8. nóvember.
Atiðið ber nafnið Tökum þetta á gleðinni og voru það orð að sönnu miðað við leikgleði þátttakenda og viðbrögð stuðningsmanna þegar í ljós kom að Árbæjarskóli var kominn áfram í útslitakeppnina. Stemningin var góð meðal keppenda og áhorfenda en héðan mættu alls 170 áhorfendur.
Flutningur atriðisins gekk prýðilega enda var hópurinn vel undirbúinn eftir þrotlausar æfingar undanfarnar vikur.
Við óskum þeim alls hins besta á úrslitakvöldinu þann 21. nóvember næstkomandi í Borgarleikhúsinu.
9.11.2011
Frábćr árangur í danskeppni
Á laugardaginn fór fram hin árlega LOTTO danskeppni. Árbæjarskóli átti fjölmarga keppendur sem stóðu sig allir með stakri prýði og greinilegt að dansáhuginn er mikill í skólanum sem skilar sér í efnilegum dönsurum sem eru farnir að æfa dans í danskólum víðsvegar um bæinn.
Ţorsteinn Hængur og Rebekka Rós, nemendur í 7. SJ, gerðu sér lítið fyrir og sigruðu bæði í Ballroom og Latin dönsum í sínum aldursflokki. Einnig urðu þau Íslandsmeistarar í gömlu dönsunum en sú keppni var haldin var á sunnudeginum. Þetta er frábær árangur hjá þessu efnilega danspari. Rebekka Rós hefur æft dans um nokkurn tíma en Þorsteinn Hængur hóf að æfa dans í sumar. Rebekka Rós og Þorsteinn Hængur æfa með Dansíþróttafélagi Kópavogs og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
8.11.2011
Undanúrslit í Skrekk
Í kvöld, þriðjudaginn 8. nóvember, munu nemendur úr Árbæjarskóla taka þátt í undanúrslitum Skrekks sem er árleg hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík. Þeir munu etja kappi við Austurbæjarskóla, Álftamýrarskóla, Hamraskóla, Ingunnarskóla, Klébergsskóla og Víkurskóla. Tveir þessara skóla munu komast áfram í úrslit sem verða 21. nóvember. Á myndunum sjást þátttakendur Árbæjarskóla þegar þeir sýndu atriðið með glæsibrag samnemendum.
Við óskum nemendum góðs gengis og góðrar skemmtunar.
3.11.2011
Opiđ hús 4. nóvember
Föstudaginn 4. nóvember er opið hús í Árbæjarskóla. Þann dag eru foreldrar nemenda, afar, ömmur og systkini, hvött til að heimsækja vinnustað barnanna og líta við í kennslustundir. Nemendur miðstigs verða með sína vikulegu samverustund á sal kl. 13:15 og nemendur 10. bekkjar verða í miðrými með kökusölu til fjáröflunar fyrir útskriftarferð sína í vor.
Hlökkum til að sjá ykkur
Nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla
31.10.2011
Frábćr árangur á Íslandsmeistaramóti unglinga í kumite
Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í kumite í Fylkissetrinu í Norðlingaholti en kumite er bardagahlutinn af karate. Rúmlega 50 unglingar á aldrinum 12-17 ára tóku þátt í mótinu og var þeim skipt í flokka eftir aldri og kyni.
Nokkrir nemendur úr Árbæjarskóla, allir liðsmenn Fylkis, voru meðal þátttakenda og stóðu þeir sig með mikilli prýði og lönduðu m.a. fjórum Íslandsmeistaratitlum, auk annarra verðlauna.
Ţorsteinn Freygarðsson, 7. SJ, varð Íslandsmeistari í flokki 12 ára pilta, Edda Kristín Óttarsdóttir, 8. SG, varð Íslandsmeistari í flokki 12 -13 ára stúlkna, Ólafur Engilbert Árnason, 9. ÁB, varð Íslandsmeistari í flokki 14-15 ára pilta og Helga Kristín Ingólfsdóttir, 10. JL, varð Íslandsmeistari í flokki stúlkna 14-15 ára.
Í keppnislok, þegar heildarstigafjöldi félaga var talin, kom í ljós að karatedeild Fylkis hafði hlotið flest stig og þar með orðið, fimmta árið í röð, Íslandsmeistari félaga í kumite unglinga.
Árbæjarskóli óskar krökkunum innilega til hamingju með árangurinn og Fylki með titilinn. Ljóst er að gott starf er unnið innan karatedeildarinnar og verður gaman að fylgjast með þessum efnilegu karatemönnum í framtíðinni.
28.10.2011
Hljóđbćkur á vef Námsgagnastofnunar
Námsgagnastofnun er með umfangsmikið safn hljóðbóka á vefsíðunni http://www.nams.is/ og geta nemendur og aðstandendur hlaðið þeim niður til hlustunar án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða mp3 spilara. Hljóðbækurnar eru gagnlegt námstæki fyrir nemendur sem vilja bæta námsárangur sinn hvort sem þeir eiga við námserfiðleika að stríða eða ekki.
Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika. Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.
26.10.2011
Nýtt skóla- og frístundasviđ
Skrifstofa skóla- og frístundasviðs er í Borgartúni 12-14.
Skóla- og frístundasvið ber ábyrgð á þjónustu leikskóla og dagforeldra, grunnskóla, frístundaheimila, frístundamiðstöðva, frístundaklúbba og félagsmiðstöðva. Skólahljómsveitir og Námsflokkar Reykjavíkur heyra einnig undir sviðið. Þá sér sviðið um úthlutun fjármagns til sjálfstætt starfandi tónlistarskóla, leikskóla og grunnskóla í borginni. Frekari upplýsingar eru um starfsemi sviðsins eru á vef Reykjavíkurborgar: http://www.reykjavik.is/ undir "Skólar og frístundir".
Meginmarkmiðið með stofnun SFS er að tryggja heildstæða þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra, stuðla að sameiginlegri stefnumótun skóla og frístundamiðstöðva i hverfum borgarinnar og auka þverfaglegt samstarf allra stofnana sem þjóna barnafjölskyldum í borginni.
Starfsfólk nýja sviðsins vinnur nú að stefnumótun í samráði við skóla- og frístundaráð og stjórnendur undirstofnana og tekur hún mið af því að efla samstarf og flæði þekkingar milli allra stofnana til að tryggja sem besta þjónustu. Um áramót er gert ráð fyrir því að endanlegt skipulag á nýju sviði liggi fyrir og verður það kynnt á vef Reykjavíkurborgar.
21.10.2011
Undankeppni Stíls 2011
Miðvikudaginn 19. október fór fram undankeppni Stíls í fatahönnun hér í Árbæjarskóla. Fimm hópar kepptu til sigurs eftir að hafa lagt á sig ómælda vinnu við undirbúning fyrir keppnina. Allir hóparnir stóðu sig með stakri prýði og var hönnun, frágangur og förðun til fyrirmyndar. Dómarar kvöldsins voru Harpa Rún Ólafsdóttir listakona, Edda Guðmundsdóttir hönnuður, Sandra Sigurjónsdóttir hárgreiðslukona, Sara Björg Ágústsdóttir viðskipta- og förðunarfræðingur og Dagný Björt nemi við MH og sigurvegari keppninnar í fyrra. Að þessu sinni voru það þær Guðrún Eiríksdóttir, Bergdís Helga Bjarnadóttir og Gríma Katrín Ólafsdóttir úr 10. bekk sem báru sigur úr bítum.
Hönnun þeirra ber nafnið „Ísdrottning Narníu" og samanstendur af kjól, slöri og kórónu. Kjóllinn er úr skeljahvítu satíni, kórónan úr pappír og álpappír sem fest er á spöng með lími. Slörið er úr mjúku efni sem minnir á snjó. Módelið var með túberað hár og lokkarnir snúnir saman til þess að líkja eftir grýlukertum. Förðunin var bláhvít og kuldaleg í samræmi við hönnunina.
Glæsileg keppni í alla staði og verðskuldaður sigur hjá hönnuðunum ungu.
18.10.2011
Stíll 2011
Undankeppni Stíls 2011 verður haldin í Árbæjarskóla miðvikudaginn 19. október. Húsið opnar kl. 19.45 og hefst tískusýning keppenda kl. 20.00.
Stíll er keppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun út frá ákveðnu þema. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel.
Markmið Stíls eru:
- Að hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika.
- Að vekja jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar og gefa þeim kost á að koma sínum hugmyndum á framfæri utan félagsmiðstöðvanna.
- Að unglingarnir komist í kynni við fleiri sem hafa áhuga á sama sviði.
Ţema Stíls árið 2011 er ÆVINTÝRI og verður spennandi að sjá útkomuna hjá hönnuðunum okkar.
10.10.2011
Marítafrćđsla í Árbćjarskóla
Ţessa vikuna fá nemendur í 5.,7.,8., 9. og 10. bekk forvarnarfræðslu á vegum Maríta á Íslandi.
Fræðslan fyrir 5. bekk fjallar um að taka afstöðu með heilbrigðum lífstíl og styrkja sjálfsmynd barna. Fræðslan fyrir 7. bekk nefnist „Allir hinir mega það" og fjallar um það að standast hópþrýsting. Fræðslan fyrir 8. 9. og 10. bekk "Hættu áður en þú byrjar", er um skaðsemi fíkniefna.
Markmiðið með fræðslunni er að fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra. Mikilvægt er að börn og foreldrar þeirra ræði um þessi mál sín á milli. Því er nauðsynlegt að þau fái sömu fræðslu, þó að nálgun efnisins sé ólík á fundunum. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á http://www.marita.is/
Ţriðjudaginn 11.október verða haldnir foreldrafundir:
Kl. 18.00 fyrir foreldra nemenda í 7. bekk
Kl. 20.00 fyrir foreldra nemenda í 8. og 9. bekk
Fimmtudaginn 13.október verða haldnir foreldrafundir:
Kl. 8.15 fyrir foreldra og nemendur í 5. bekk
Kl. 20.00 fyrir foreldra og nemendur í 10. bekk
Foreldrar eru hvattir til að mæta á þessa fundi.
10.10.2011
Samvera á sal
Síðastliðinn föstudag fengu nemendur í 5.-7. bekk góða heimsókn þar sem nemendur í unglingadeild komu og sýndu frábær skemmtiatriði. M.a. voru atriði flutt frá dans- og tónlistarvali.
7.10.2011
Forvarnardagur
Miðvikudaginn, 5. október, var haldinn forvarnardagur í grunnskólum landsins. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem eru til þess ætluð að forða ungmennum frá fíkniefnum.
Forseti Íslands átti frumkvæði að forvarnardeginum í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Fulltrúi verkefnisins kom í heimsókn í skólann og nemendur í 9. bekk ræddu um forvarnir og svöruðu könnun í tengslum við daginn. Að lokum var horft var á myndband sem unnið var í tilefni dagsins.
5.10.2011
Skrekkur í Árbćjarskóla
Í kvöld fer fram keppni um Skrekksatriði Árbæjarskóla 2011. Fimm hópar taka þátt og mun dómnefnd velja það atriði sem byggir á bestu hugmyndinni. Nemendur hafa æft af kappi síðustu daga og verður gaman að sjá afrakstur þeirrar vinnu í kvöld. Nemendur unglingadeildar eru hvattir til að mæta og einnig eru foreldrar velkomnir. Húsið opnar kl. 20.00 og keppnin hefst kl. 20.15.
4.10.2011
Grunnskólameistarar
Grunnskólamót Reykjavíkur í fótbolta var haldið nú um helgina í Egilshöll. Það er óhætt að segja að vel hafi gengið hjá okkar fólki. Strákar úr 9. og 10. bekk skólans urðu grunnskólameistarar eftir harða keppni við Réttarholtsskóla. Stúlkurnar stóðu sig einnig frábærlega og urðu í 2. sæti eftir að hafa lotið í gervigras fyrir Réttarholtsskóla.
Við óskum þeim til hamingju með frábæran árangur.
26.9.2011
10. bekkur
Aðstandendur Kvikmyndahátíðarinnar RIFF buðu 10. bekkingum í Reykjavík að sjá dönsku myndina Hold om mig eftir Kaspar Munk. 95 nemendur í 10. bekk Árbæjarskóla nýttu sér tilboðið á fimmtudaginn var. Þeir voru sammála um að myndin væri afar áhrifarík og höfðaði mjög til þeirra en hún fjallar um vandmál unglinga í hnotskurn þ.e. hópþrýsting og að taka ábyrgð á eigin lífi.
16.9.2011
Samrćmd próf
Vikuna 19. - 23. september verða lögð fyrir samræmd próf í fjórða, sjöunda og tíunda bekk. Samkvæmt 2. grein í reglugerð Menntamálaráðuneytisins um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er tilgangur þeirra eftirfarandi:
- a. athuga eftir því sem kostur er, að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð,
- b. vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur,
- c. veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda,
- d. veita upplýsingar um hvernig skólar standa í þeim námsgreinum sem prófað er úr, miðað við aðra skóla landsins.
Í 10. bekk er prófað í þremur námsgreinum íslensku, ensku og stærðfræði en í 4. og 7. bekk í íslensku og stærðfræði. Dagsetningar prófanna eru eftirfarandi:
10. bekkur
Íslenska - mánudaginn 19. september
Enska - þriðjudaginn 20. september
Stærðfræði - miðvikudaginn 21. september
4. og 7. bekkur
Íslenska - fimmtudaginn 22. september
Stærðfræði - föstudaginn 23. september
Við óskum nemendum góðs gengis.
13.9.2011
Stjórn Nemendafélags Árbćjarskóla
Kosið var í stjórn nemendafélags Árbæjarskóla síðastliðinn miðvikudag fyrir skólaárið 2011-2012.
Eftirtaldir nemendur hlutu kosningu:
Ţór Daníel Hólm (10. JJ), formaður,
Una Birna Haukdal (10. MS), meðstjórnandi,
Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir (9. AH) meðstjórnandi.
Á myndinni má sjá nýkjörna stjórn nemendafélagsins.
Frá vinstri:Una Birna, Þór Daníel og Hrafnhildur Svala
12.9.2011
Rósaball Árbćjarskóla haustiđ 2011
Miðvikudaginn 14. september nk. verður hið árlega Rósaball Árbæjarskóla haldið með pomp og prakt. Mikill spenningur hefur jafnan fylgt ballinu og þátttaka verið mjög góð. Líkast til verður enginn undantekning þar á þetta árið. Rósaballið hefur verið árviss atburður svo lengi sem elstu menn muna. Þá bjóða 10. bekkingar nemendur í 8. bekk formlega velkomna í skólann með því að sækja þá og fylgja á ballið. Mikið umstang fylgir gjarnan viðburðinum og leggja nemendur mikið á sig til að gera hann sem veglegastan. Húsið opnar kl. 19:30 og þurfa allir að vera komnir í hús kl. 21. Ballinu lýkur kl. 23:30.
Á myndinni má sjá nokkra nemendur á Rósaballi 2010.
6.9.2011
Kosningar til nemendaráđs
Kosið verður til nemendaráðs næstkomandi miðvikudag fyrir skólaárið 2011-2012.
Í framboði fyrir 10. bekk verða: Elísa Sif Hermannsdóttir (10. GP), Gígja Björg Guðjónsdóttir (10. MS), Ólöf María Jónsdóttir (10. GP), Maríanna Björk Ásmundsdóttir (10. GP), Una Birna Haukdal (10. MS), Þórhildur Vala Kjartansdóttir ( 10.MS ) og Þór Daníel Hólm (10. JJ).
Úr 9. bekk verða: Birgitta Rut Helgadóttir ( 9.ÁB), Brynja Sigurðardóttir (9. KS), Helga Hlín Stefánsdóttir (9. AH), Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir (9. AH) og Steinunn Birta Hauksdóttir (9. ÁB).
5.9.2011
Kynningarfundir
Vel hefur tekist til á kynningarfundum fyrir foreldra nemenda í 1. - 10. bekk. Sú nýbreytni var tekin upp að fundirnir voru haldnir í upphafi skóladags. Á fundunum var skólastarf vetrarins kynnt og ræddu foreldrar við umsjónarkennara síns barns.
Á myndinni eru foreldrar barna í 5. - 7. bekk.
1.9.2011
Hljóđbćkur á vef Námsgagnastofnunar
Unnt er að nálgast hljóðbækur sem Námsgagnastofnun hefur gefið út á vefsíðunni http://www.nams.is/ og hlaða þeim niður til hlustunar án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða mp3 spilara. Hljóðbækur gagnast ekki aðeins nemendum sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða heldur einnig hverjum þeim sem áhuga hefur á því að hlusta á vandaðan upplestur texta. Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika. Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.
31.8.2011
Nýjung í skólastarfi - samvera á sal
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að nemendur í 1. - 7. bekk hittast á sal skólans einu sinni í viku.
Annars vegar er um að ræða nemendur í 1. - 4. bekk og hins vegar 5. - 7. bekk. Á fyrstu samverustundinni lék Anna María, tónmenntarkennari, undir í samsöng og tóku nemendur vel undir.Tilgangurinn með samverunni er nemendur komi saman til að skemmta sjálfum sér og öðrum og fái tækifæri til koma fram og sýna hvað í þeim býr. Samverustundirnar eru einu sinni í viku, hjá 1. - 4. bekk á miðvikudögum og 5. - 7. bekk á föstudögum.
Á myndinni myndinni má sjá nemendur úr 1. - 4. bekk.
25.8.2011
Skákin hefst á ný
Mánudaginn 29. ágúst hefst skákkennsla á ný í Árbæjarskóla. Gunnar Finnsson mun annast kennsluna sem fyrr. Nemendum í 3. -7. bekk gefst kostur á að sækja þessa kennslu þeim að kostnaðarlausu. Tímasetningar eru sem hér segir:
Mánudagar
kl. 13:40-14:20 Nemendur í 3. - 4. bekk
kl. 14:20-15:00 Nemendur í 5. - 7. bekk
Kennslan fer fram á efri palli skólans milli D - álmu og E - álmu.
Ţau börn sem hafa áhuga á að stunda skákina í vetur verða að skrá sig áður en þau mæta í fyrsta tímann. Forráðamenn eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið: arbaejarskoli@reykjavik.is til að staðfesta þátttökuna.
24.8.2011
Kórstarfiđ í Árbćjarskóla
Kórstarf Árbæjarskóla, skólaárið 2011-2012, hefst ţriðjudaginn 30. ágúst.
Kóræfingar eru:
Byrjendakór: 2. bekkur. Æfingar á ţriðjudögum kl.13:45 - 14:15 í tónmenntastofu.
Yngri kór: 3. og 4. bekkur . Æfingar á miðvikudögum kl.13:45 - 14:30 í tónmenntastofu/sal.
Eldri kór: 5. 6. og 7. bekkur. Æfingar á föstudögum kl.13:55 - 14:50 í salnum.
24.8.2011
Kynningarfundir fyrir foreldra
Á næstu dögum fara fram kynningarfundir fyrir foreldra nemenda á skólastarfinu í Árbæjarskóla. Sú nýbreytni verður í vetur að fundirnir verða að morgni dags kl. 08:15 - 09:15. Fundirnir fara þannig fram að fyrst er kynning á sal skólans og að henni lokinni ræða umsjónarkennarar við foreldra.
Skipulag fundanna er eftirfarandi:
Fimmtudagur 25. ágúst 2011 foreldrar nemenda í 10. bekk.
Föstudagur 26. ágúst 2011 foreldrar nemenda í 8. bekk.
Mánudagur 29. ágúst 2011 foreldrar nemenda í 9. bekk.
Ţriðjudagur 30. ágúst 2011 foreldrar nemenda í 5. - 7. bekk.
Fimmtudagur 1. september 2011 foreldrar nemenda í 2. - 4. bekk.
Með kveðju, skólastjórn Árbæjarskóla.
22.8.2011
Skólasetning
Í dag hófst skólastarf Árbæjarskóla eftir skemmtilegt sumarfrí. Nemendur 2. - 10. bekkjar mættu fullir tilhlökkunar á skólasetninguna. Við bjóðum nemendur velkomna, sérstaklega þá nýju sem byrja hjá okkur í ár. Við vonum að samstarfið gangi vel og allir leggi sig fram við vinnu sína.
9.8.2011
Skólasetning
Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst 2011.
Nemendur mæti á eftirfarandi tímum:
10. bekkur . . . kl. 9.00
9. bekkur . . . . kl. 10.00
8. bekkur . . . . kl. 11.00
5., 6. & 7. bekkur . . . kl. 13.00
2., 3. & 4. bekkur . . . kl. 14.00
Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst.
Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir ásamt foreldrum til viðtals 22. og 23. ágúst.
Kennsla í 1. bekk hefst skv. stundaskrá miðvikudaginn 24. ágúst.
16.6.2011
Sumarlokun í Árbćjarskóla
Skrifstofa skólans verður lokuð frá 20. júní til 3. ágúst.
Skólasetning verður þann 22. ágúst og verður fyrirkomulag hennar auglýst síðar.
Sumarkveðja
Starfsfólk Árbæjarskóla
6.6.2011
Skólaslit í 1. - 9. bekk
Skólaslit í 1. - 9. bekk fóru fram föstudaginn 3. júní. Nemendur komu á sal skólans eftir skólastigum og hlýddu á dagskrá sem samanstóð af fjölbreyttum atriðum sem nemendur skólans sáu um. Fjöldi foreldra lagði leið sína í skólann þennan dag ásamt börnunum sínum og tók þátt í skólaslitunum.
Skólastjórnendur afhentu hvatningarverðlaun Rotary en þær María Rut Arnarsdóttir í 4. bekk og Rebekka Sól Ásmundsdóttir í 7. bekk hlutu þau að þessu sinni, ásamt Jóhanni Bjarna Péturssyni í 10. bekk sem fékk sína viðurkenningu afhenta við útskrift 10. bekkinga á miðvikudaginn.
Einnig voru afhent skólasóknarverðlaun í 5. - 9. bekk og var stór hluti þessara árganga sem verðlaunin hlutu. Verðlaunin að þessu sinni voru sundkort sem vonandi koma nemendum að góðum notum í sumar.
6.6.2011
Útskrift 10. bekkinga
Miðvikudaginn, 1. júní, fór fram útskrift 10. bekkjar Árbæjarskóla í Árbæjarkirkju. Alls útskrifuðust 113 nemendur úr fjórum bekkjardeildum. Þorsteinn Sæberg skólastjóri Árbæjarskóla ávarpaði gesti og minntist á ágætan árangur bæði nemenda og starfsfólks skólans á ýmsum sviðum. Formaður nemendafélags Árbæjarskóla, Fróði Guðmundur Jónsson tók einnig til máls. Hann minntist góðra stunda við skólann og þakkaði stafsfólki fyrir vel unnin störf. Nemendur úr tónlistarvali sáu um tónlistarflutning við söng Jóhönnu Elísu Skúladóttir. Einnig flutti Helga Hlín Stefánsdóttir, 8. KS, lagið ,,Með þér" en Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir, 8. KS, lék undir á flygil. Verðlaun og viðurkenningar voru veittar fyrir góða ástundun og hlaut stór hluti árgangsins verðlaun sem var sundkort í sundlaugar Reykjavíkur. Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í einstaka námsgreinum og hlutu eftirtaldir verðlaun:
Íslenskuverðlaun: Sólveig Bjarnadóttir, 10. KV.
Stærðfræðiverðlaun : Gylfi Tryggvason, 10. ÁS.
Enskuverðlaun: Sólveig Bjarnadóttir.
Dönskuverðlaun: Ída Guðný Jensen, 10. KV.
Samfélagsfræðiverðlaun: Sólveig Bjarnadóttir.
Náttúrfræðiverðlaun: Atli Freyr Þorvaldsson 10. KV.
List og verkgreinar: Álfdís Helga Þórsdóttir 10. IA
Verðlaun fyrir bestan árangur í íþróttum: Hjörtur Hermannsson, 10. ÁS.
Viðurkenning fyrir bestan árangur í norsku: Nína María Hauksdóttir, 10. ÁS.
Viðurkenning fyrir nám í sænsku: Guðborg Nanna Sigurðardóttir, 10. ÁS og Sigurlaug Þórðardóttir 10. ÁS.
Viðurkenningu fyrir góðan árangur í málmsmíði hlutu: Burkni Þór Bjarkason 10. IA, Daníel Ingi Gunnarsson 10. IA, Einar Benediktsson 10. SG, Hörður Helgason 10. IA, Ívar Óli Kristjánsson 10. IA, Jón Guðmann Pálsson 10. IA, Ólafur Íshólm Ólafsson 10. ÁS og Styrmir Ragnarsson 10. SG.
Viðurkenning fyrir bestan námsárangur á grunnskólaprófi: Sólveig Bjarnadóttir.
Auk þess voru veitt verðlaun og viðurkenningar fyrir félagsstarf og góða háttsemi.
Hjörtur Hermannsson, 10. ÁS, var heiðraður en hann fékk nemendaverðlaun menntasviðs fyrir góða hegðun, ástundun og ósérhlífni í námi sem er öðrum nemendum til fyrirmyndar.
Rotaryverðlaunin fyrir hjálpsemi, dugnað og ósérhlífni: Jóhann Bjarni Pétursson, 10. SG.
Viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstarfi hlutu Fróði Guðmundur Jónsson 10. ÁS og Sveinbjörg Sara Baldursdóttir 10. KV.
Að lokinni athöfninni í Árbæjarkirkju buðu foreldrar upp á góðar veitingar í Árbæjarskóla. Þetta er glæsilegur útskriftarhópur sem á hrós skilið fyrir gott starf hér við skólann. Starfsfólk skólans árnar öllum útskriftarnemum heilla í framtíðinni.
Sjá myndir HÉR.
3.6.2011
Heimsókn úr Hólabrekkuskóla
Miðvikudaginn 1. júní heimsóttu nemendur og kennarar úr 8. og 9. bekk unglingadeildar Hólabrekkuskóla okkur í Árbæjarskóla. Gestunum var boðið að skoða skólann en fengu auk þess að njóta skemmtiatriða svo sem tónlistaratriða og stuttmynda. Í lok heimsóknarinnar fengu nemendur sér pylsur og svala í boði foreldrafélags Árbæjarskóla.
Heimsóknin var ánægjuleg í alla staði og er óskandi að hefð hafi skapast um gagnkvæmar heimsóknir skólanna.
1.6.2011
Skólaslit í Árbćjarskóla
Skólaslit nemenda í 10. bekk
Miðvikudaginn 1. júní í Árbæjarkirkju klukkan 18:00
Skólaslit nemenda 1. - 9. bekk föstudaginn 3. júni.
1.- 4. bekkur kl. 8:30 - 9:30
5. - 7. bekkur kl. 10:00 - 11:00
8. bekkur kl. 11:05 - 11:55
9. bekkur kl. 11:05 - 11:55
1.6.2011
Nemendaverđlaun menntasviđs
Í vikunni voru veitt nemendaverðlaun menntasviðs Reykjavíkurborgar.
Verðlaunin fá þeir nemendur eða nemendahópar sem þykja hafa skarað fram úr á árinu. Sá sem fékk tilnefningu frá Árbæjarskóla var Hjörtur Hermannsson nemandi í 10. ÁS. Umsögnin um hann var svohljóðandi:
"Hjörtur Hermannson nemandi í 10. bekk er afburðanemandi og afreksíþróttamaður. Á liðnu skólaári hefur hann stundað mjög tímafrekar æfingar jafnt með sínu félagsliði og landsliðinu en hann er fyrirliði U-17 landsliðsins í knattspyrnu. Þrátt fyrir að sinna knattspyrnunni af heilum hug slær Hjörtur ekki slöku við í náminu. Hann er einstaklega skipulagður, ósérhlífinn og vinnusamur og til fyrirmyndar jafnt innan sem utan skólans. Hann er öðrum nemendum skólans góð fyrirmynd og skiptir þá ekki máli af hvaða skólastigi þeir eru.
Í samskiptum við nemendur sem og kennara kemur Hjörtur fram af mikilli virðingu og kurteisi og er ávallt reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd. Hann er sérlega jákvæður, drífandi og heilsteyptur ungur maður.
Hjörtur Hermannson er vel að því kominn að hljóta Nemendaverðlaun Menntasviðs Reykjavíkur."
Ţetta er náttúrulega frábær umsögn og óskum við Hirti innilega til hamingju með þessi verðlaun. Með honum á myndinni eru stoltir foreldrar hans Hermann Björnsson og Eiríka Ásgrímsdóttir sem bæði voru góðir íþróttamenn og gerðu garðinn frægan í handboltanum fyrir "örfáum" árum síðan. Bræður Hjartar, Björn Orri og Ásgrímur voru áberandi hér í skólanum fyrir nokkrum árum líka. Við óskum Hirti og fjölskyldu velfarnaðar í framtíðinni.
1.6.2011
Ţriđju verđlaun í Töku 2011
Nemendur úr mynd- og hljóðvinnslu Árbæjarskóla unnu til þriðju verðlauna í eldri flokki stuttmynda í stuttmyndakeppni Reykjavíkur, Töku 2011, sem fram fór í Bíó Paradís eða gamla Regnboganum þann 26. maí síðastliðinn. Myndin ber nafnið Facebook óhappið og fékk hún lof dómnefndar fyrir góða eftirvinnslu og tæknivinnu. Myndin var sýnd á verðlaunaafhendingunni og voru viðtökur áhorfenda með eindæmum góðar og bar umsjónarmaður keppninnar, Marteinn Sigurgeirsson, lof á myndina. Arnór Steinn Ívarsson leikstýrði myndinni og samdi handritið, Jóhann Egilsson hafði umsjón með eftirvinnslu en aðalhlutverkið var í höndum Daníels Þórs Gunnarssonar.
Mikil gróska hefur verið í kvikmyndagerð við Árbæjarskóla undanfarin ár og augljóst að kennsla í mynd- og hljóðvinnslu er að skila sér í áhuga og árangri nemenda.
Við óskum öllum þeim sem stóðu að myndinni til hamingju með árangurinn.
Sjá mynd:
http://www.youtube.com/watch?v=9jT7zXv5KHE
31.5.2011
Hvatningarverđlaun menntaráđs
Fyrir nokkrum árum var lagt upp með þróunarverkefni í náttúruvísindum hér við Árbæjarskóla. Markmið verkefnisins var að efla vísindaáhuga nemenda, auka fjölbreytni kennsluhátta og koma til móts við ólíkar þarfir og getu nemenda með nýjum vinnubrögðum og tækni. Til að nálgast framangreind markmið var hlutur verklegrar kennslu í náttúruvísindum aukinn með tilraunum og vísindalegri úrvinnslu. Snillingarnir og reynsluboltarnir Eggert J. Levy og Arnór Árnason hafa verið aðalsprauturnar hér innan skólans en fengið ómetanlega aðstoð frá ýmsu fólki m.a hafa stjórnendur skólans stutt vel við bakið á þeim.
Árlega veitir menntaráð Reykjavíkurborgar hvatningarverðlaun fyrir metnaðarfull þróunarverkefni og var Árbæjarskóli einn þriggja skóla sem fékk verðlaunin í ár fyrir ofangreint verkefni sem ber heitið: Efling verklegrar kennslu í náttúruvísindum.
Óskum við þessum frábæru kennurum, skólanum og öllum sem að þessu verkefni hafa staðið innilega til hamingju með þessi flottu verðlaun.
25.5.2011
Ferđ 7. bekkjar á Úlfljótsvatn
7. bekkur lagði í langferð í blíðskaparveðri þann 18. maí sl. á Úlfljótsvatn þar sem hópurinn átti frábæran dag í útivist og leikjum. Útivistarsvæði skátanna á Úlfljótsvatni er búið ævintýralegum tækjum og þrautabrautum sem gaman var að prófa, s.s. klifurvegg og apabrú. Farið var í skemmtilega hópleiki þar sem reyndi á samheldni og samvinnu. Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði og tóku virkan þátt í hópeflisleikjum. Krakkarnir komu frísklegir og kátir til baka eftir viðburðaríkan dag í ævintýraheimi skátanna.
Sjá fleiri myndir HÉR.
25.5.2011
Grunnskólamót höfuđborga Norđurlanda.
Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda hefst í Reykjavík tveimur dögum seinna en áætlað var vegna eldgossins í Grímsvötnum.
Ţetta mót hefur verið haldið árlega frá árinu 1948. Reykjavík tók fyrst þátt í leikunum árið 2006 í Helsinki og er nú í fyrsta skipti gestgjafi mótsins. Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur veg og vanda að skipulagningu og framkvæmd mótsins fyrir hönd Reykjavíkurborgar í samvinnu við íþróttafélögin í Reykjavík.
Keppt er í eftirtöldum íþróttagreinum á mótinu; knattspyrnu drengja, handknattleik stúlkna og frjálsum íþróttum drengja og stúlkna.
Ţátttakendur koma frá Helsinki,Kaupmannahöfn, Osló og Stokkhólmi auk Reykjavíkur. Hver borg er skipuð 47 manna hópi; 41 unglingur á aldrinum 12-14 ára, 4 þjálfarar og 2 fararstjórar. Hóparnir gista á Farfuglaheimilinu í Laugardal. Reykvísku unglingarnir koma úr 19 grunnskólum í Reykjavík og 10 íþróttafélögum.
Árbæjarskóli á 3 fulltrúa í handbolta, sem eru:
- Diljá Mjöll Aronsdóttir
- Birta Þórisdóttir
- Halldóra Björk Hauksdóttir
Með þeim á myndinni er Thea Imani Sturludóttur úr Ingunnarskóla.
Nú þegar fyrsta leikdegi er lokið hefur liðið gert tvö jafntefli, 13-13 á móti Kaupmannahöfn og 15-15 á móti Helsinki.
Í dag miðvikudag verður spilað á móti Stokkhólmi og svo á móti Osló á fimmtudaginn.
Árbæjarskóli á þrjá aðra keppendur í mótinu, þá Helga Val í 8 bekk sem keppir í fótbolta og Tómas Kolbein í 8.bekk og Alexander Frey í 7.bekk sem eru í frjálsum íþróttum. Ekki leiðinlegt fyrir Árbæjarskóla að eiga 6 keppendur af 41. Flottir krakkar.
Ţetta er mikið ævintýri fyrir alla keppendur en sérstaklega þá sem koma erlendis frá og lenda í seinkun á flugi og öskufalli vegna eldgossins. Íslensku keppendurnir gista saman á farfuglaheimili í Laugardalnum og eyða vikunni saman, án skóla og prófa. Farið verður í opinbera heimsókn í Ráðhús Reykjavíkur í dag, þriðjudag, þar sem borgarstjórinn tekur á móti öllum keppendum. Svo er diskó sundlaugapartý í innilauginni í Laugardal á fimmtudagskvöldið. Við óskum öllum keppendum góðrar skemmtunar þá daga sem eftir lifa af mótinu.
24.5.2011
Skák og mát
Undanfarna tvo vetur hefur Gunnar Finnsson séð um skákkennslu á yngri stigum skólans. Áhuginn hefur farið vaxandi og gaman að sjá krakkana á mánudögum eftir hefðbundinn skólatíma mæta í skáktímana. Í vetur voru á þriðja tug krakka sem æfðu og er kynjaskiptingin nokkuð jöfn. Gunnar er ánægður með börnin en það sem honum finnst verst er að þegar stærstu skákmótin eru þá eru leikir í öðrum íþróttum og þessir krakkar þurfa því oft að velja og hafna. En sökum þessa nær hann sjaldnast að ná saman sinni sterkustu sveit. En það er efnilegt skákfólk í skólanum og í vetur náði Jakob Alexander nemandi í 6. bekk þeim góða árangri að ná 3. sæti á kjördæmismóti Reykjavíkur. Á lokaæfingunni í gær var einmitt hraðskákmót og þar var hart barist. Eftir eina skákina fóru fjórir drengir í gegnum leikina aftur þar sem þeir voru ekki á eitt sáttir um leikaðferð. Það var frábært að hlusta á þá. Gunnar er að gera góða hluti og vonandi mun hann halda áfram að efla skákáhugann í skólanum.
16.5.2011
Útskriftarferđ 10.bekkjar
Fimmtudaginn 12. maí lögðu 10. bekkingar í lokaferð sína. Þau hafa verið að safna fyrir þessu í allan vetur. Þátttaka var ótrúlega góð og yfir 100 nemendur voru mættir með dótið sitt rétt fyrir 10. Skömmu síðar var lagt af stað og fyrsta stopp var í Hveragerði nánar tiltekið hjá Kjörís þar sem farið var stuttlega yfir sögu fyrirtækisins og allir fengu íspinna.
Ţaðan var haldið að Drumboddsstöðum í flúðasiglingu en það var án efa hápunktur ferðarinnar. Tekið var á móti liðinu og allir fræddir um hin ýmsu öryggisatriði og klæddir í þá búninga sem til þarf við þessa iðju. Gaman að sjá hvað krakkarnir tóku vel eftir og fylgdu fyrirmælum leiðbeinendanna. Siglingin tókst mjög vel og á lygnu svæðunum fór fólk að hoppa úr bátunum og vildi meira og minna vera að svamla í ánni. Flestum fannst þetta alltof stutt en þannig er það nú bara alltaf ef eitthvað er skemmtilegt. Flúðasiglingin tókst frábærlega og móttaka starfsmanna og utanumhald þeirra var til algjörrar fyrirmyndar.
Ţá var bara að koma sér til Stokkseyrar þar sem hópurinn gisti. Flestir drifu sig í sund en um leið og grilllyktin var komin í loftið mættu 100 glorhungraðir úlfar með diskana og það náðist ekki almennilega að grilla hamborgarana. En það var nú kannski líka grillurunum að kenna að skella ekki miklu meira af kolum á grillið.
Fólk var engu að síður sátt og um kvöldið var kíkt á bæinn. Upp úr 10 voru allir komnir inn og þá var spilað, leikið og spjallað. Einnig var stór hópur sem söng í marga klukkutíma við gítar- og skeiðaundirspil. Uppúr 3 voru kennarar svo með leiðindi og fóru að beina fólki á dýnurnar sínar við mismikla hrifningu. Það tók rúma 2 tíma að koma ró á mannskapinn.
Morguninn eftir vöknuðu flestir um 10 leytið, þá var bara að fá sér morgunmat og taka saman dótið sitt og koma sér heim. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og ekki annað að heyra en að ferðin hafi verið vel heppnuð og ekki skemmdi það fyrir að veðrið var frábært allan tímann. Það voru því ánægðir en þreyttir 10. bekkingar sem komu heim með rútunum um eitt leytið á föstudeginum.
Sjá myndir HÉR.
16.5.2011
Heimsókn í Húsdýragarđinn
Nemendur 6. bekkjanna í Árbæjarskóla fóru í vikunni á vinnumorgun í Húsdýragarðinum. Þeir fengu að sjá um umhirðu dýranna, hreinsa til í kringum þau og fóðra. Starfsmenn garðsins fræddu þá um dýrin, fjölskyldugerð, nytjar, fjölda afkvæma, fæðu o.fl. Eftir nestisstund unnu nemendur í hópum fyrirlestur um þau dýr sem þeir önnuðust. Í lokin fengu þeir frjálsan tíma í garðinum og söfnuðust svo saman þar sem þau sáu þegar selunum var gefið. Þeir voru margs fróðari við heimferð og ákaflega ánægðir með ferðina.
Sjá myndir HÉR.
5.5.2011
Opiđ hús í Árbćjarskóla 5. maí
Ţað er alltaf fjör í Árbæjarskóla en í dag er sérstaklega mikið líf. Fólk er að koma í heimsókn í kennslustundir og verk nemenda eru til sýnis um allan skóla í stofum og á göngum. Á sal eru skemmtanir í gangi sem rúlla allan morguninn. Má þar nefna flotta dansara á yngra og eldra stigi, tónlistarval unglinga, leiklist og kór skólans svo eitthvað sé nefnt. Tíundu bekkingar eru svo á sveimi um skólann að selja gestum og gangandi kökur til styrktar útskriftarferð sinni sem er í næstu viku. Í kvöld verða unglingarnir svo með opið hús þar sem afrakstur vetrarins hjá listavali verður borinn á borð fyrir gesti. Stefnir í frábæran dag .
Sjá fleiri myndir HÉR.
5.5.2011
Frćđsla á vegum VR
Fulltrúi frá VR heimsótti Árbæjarskóla miðvikudaginn 4. maí og fræddi nemendur 10. bekkja um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Fræðslan hefur forvarnargildi þar sem nokkuð er um að brotið sé á rétti unglinga. Fyrirlesturinn var brotinn upp með myndböndum þar sem Jón Gnarr lék aðalhlutverkið. Efni fyrirlestursins tengist námsefni 10. bekkjar í þjóðfélagsfræði og lífsleikni. Augljóst var að nemendur kunnu vel að meta efni fyrirlestursins og á Verslunarmannafélag Reykjavíkur þökk skilið fyrir þetta góða framlag til menntamála.
4.5.2011
Opiđ hús í Árbćjarskóla 5. maí 2011
Opið hús í Árbæjarskóla 5. maí 2011
Höfum gaman saman
Fimmtudaginn 5. maí verður opið hús í skólanum milli kl. 08:10-16:00. Forráðamenn eru hvattir til að heimsækja skólann á þessum tíma og kynna sér starf barnanna. Hefðbundin kennsla fer fram í skólanum en einnig verður skólastarfið brotið upp með ýmsum hætti. Meðal viðburða má nefna:
- Heimsóknir í bekki.
- Skemmtidagskrá á sal skólans milli kl. 8.30 - 10.15 fyrir 1. -7. bekk þar sem nemendur á öllum aldri stíga á stokk.
- Kökusala 10. bekkinga - fjáröflun fyrir vorferð.
- Sýning á vinnu nemenda í list- og verkgreinum í miðrými skólans.
- Vortónleikar skólakórsins á sal kl. 17:00.
- Menningarkvöld unglingadeildar kl. 19:30 - 21:30.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla
4.5.2011
Skemmtileg heimsókn
6. SJ fékk áhugaverða kynningu í vikunni þegar móðir eins nemandans í bekknum sem vinnur hjá Hafrannsóknarstofnun kom í heimsókn. Hún kynnti fyrir þeim starf Hafrannsóknarstofnunar og sýndi þeim ýmsar tegundir djúpsjávarfiska, s.s. loðháf, gíslaháf, svartháf, áttstrending, svartgómu, langhalabróður og steinsugu. Nemendur fengu tækifæri til að handleika fiskana og voru þó nokkrir sem höfðu gaman af því á meðan aðrir létu sér nægja að horfa. Óhætt er að segja að allir hafi haft bæði gagn og gaman af þessari heimsókn.
2.5.2011
Rafmagnađur dans
Á föstudaginn var 8. bekkjum skólans boðið til dans- og tónlistarsýningar í rafstöðvarhúsinu í Elliðaárdalnum. Verkið sem bar nafnið Amper var prófverkefni og höfundur bauð krökkunum að koma og sjá og heyra. Óhætt er að segja að verkið væri nútímalegt og frumlegt og sýningarsalurinn mjög óhefðbundinn. Nemendur virtust njóta sýningarinnar vel og lagði höfundur fyrir krakkana lítið verkefni í lokin sem fólst í því að búa til hugkort af upplifun þeirra af því sem fyrir augu og eyru bar. Þau leystu það verkefni auðvitað og hafði höfundur gaman af úrlausnum þeirra og var ánægður með heimsóknina í heild.
2.5.2011
9.JJ gerđi sér lítiđ fyrir og landađi öđru sćti í BEST - stćrđfrćđikeppni grunnskólanna 2011
Stærðfræðikeppninni BEST lauk síðastliðinn föstudag. BEST er stærðfræðikeppni fyrir alla 9. bekki á landinu en þetta árið tóku um hundrað bekkir þátt. 9. JJ komst í undanúrslit ásamt fjórtán öðrum skólum. Undanúrslitin fóru fram dagana 28. og 29. apríl í Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Þar kynntu allir bekkir sem voru í undanúrslitum verkefni sín og fékk verkefni 9. JJ virkilega góðar viðtökur enda var kynningin hjá fulltrúum bekkjarins frábær. Fulltrúar bekkjarins voru: Björn, Gríma, Guðrún og Pálmi. Þau stóðu sig vel og voru verðugir fulltrúar bekkjarins. Eingöngu þrír skólar komust í lokaumferðina og fylgdist allur bekkurinn með þeirri viðureign sem var æsispennandi. Eins og áður sagði varð bekkurinn í öðru sæti og verðlaunin sem bekkurinn hlaut er 80.000 krónur verður örugglega hægt að gera margt skemmtilegt fyrir það. Bekkjarverkefnið þeirra var að búa til stærðfræðispilið STÆRÐFRÆÐI 110 og geta nemendur Árbæjarskóla fengið að reyna sig í því.
Ásta Ben, stærðfræðikennari.
29.4.2011
Gaman í Skólahreysti
Í gærkvöldi var úrslitakeppni Skólahreysti í Laugardalshöllinni. Frábærir keppendur tólf skóla landsins voru mættir til leiks og mikil spenna í loftinu enda bein útsending í sjónvarpi. Árbæjarskóli var í fyrsta sinn með í úrslitum og það eitt að ná þangað er frábær árangur. Kynningaratriði skólans kom vel út með þá Pálma og Hlyn í fararbroddi. Þórhildur og Erla Hrönn voru flottar í dýrabúningunum sínum.
Keppnin hófst svo á upphífingum og þetta leit ágætlega út þar sem Hörður bætti sig þar. En næstu þrjár greinar gengu ekki eins vel þar sem vitað er að krakkarnir okkar geta mun betur. Þau hafa æft vel en voru samt nokkuð frá sínu besta og kannski var það stressið sem hafði sitt að segja. En þau Guðrún og Hörður gerðu sitt besta og eru búin að standa sig frábærlega.
Í hraðabrautinni voru Hákon og Auður María í miklu stuði og gerðu sér lítið fyrir og unnu greinina á 2:14 sem er frábær tími. Næst besti tími ársins og aðeins 7 sekúndum frá Íslandsmetinu. Árbæjarskóli hafnaði því í 6. sæti og það er frábært. Besti árangur skólans frá upphafi. Liðið var skipað þeim, Guðrúnu Margréti, Herði, Auði Maríu og Hákoni. Varamennirnir sem áttu nú líka sinn þátt í þessum árangri voru: Jóhann Bjarni, Guðlaug, Unnar og Svava.
Ekki má gleyma að minnast á áhorfendur skólans en það mættu um 250 krakkar á þennan viðburð sem er það fjölmennasta sem frá skólanum hefur komið. Þau stóðu sig glæsilega voru máluð og skreytt og búinn að æfa hvatningatexta ásamt því að koma með trommur og fleira til að krydda þetta. Flottur hópur.
Að lokum viljum við óska keppendum til hamingju með árangurinn í þessari skemmtilegu og vinsælu grein sem Skólahreysti er. Nú er bara fyrir nemendur næsta árs að byrja að æfa og mynda ennþá sterkara lið næsta ár.
28.4.2011
Úrslitakeppnin í skólahreysti
Í kvöld, 28. apríl, mun Árbæjarskóli keppa í úrslitakeppni Skólahreysti 2011 sem hefst klukkan 20:00 í Laugardalshöll. Nemendur í unglingadeild munu mæta á staðinn til að styðja okkar lið til dáða.
Nemendur sem ætla að láta mála sig mæta í skólann klukkan 18:00.
Nemendur sem ætla beint í rútuna mæta stundvíslega klukkan 18:30.
Heimför úr Laugardalshöll er að lokinni keppni eða um klukkan 22:00.
Áfram Árbæjarskóli!
27.4.2011
Málglađir enskunemar
Í vikunni fyrir páska fluttu nemendur Árbæjarskóla frá 5. bekk og upp í 10. bekk munnleg verkefni í ensku fyrir samnemendur sína og kennara. Þeir völdu sér hlut eða persónu til að fjalla um og komu með hann í skólann og sýndu eða mynd af viðkomandi persónu. Nemendur lögðu mikla vinnu og metnað í verkefnið og sumir útbjuggu glærusýningar og jafnvel myndbönd. Margir áhugaverðir hlutir skutu upp kollinum þessa viku, s.s. dansandi og syngjandi beinagrind, ljósapera sem skiptir um lit með fjarstýringu, gamalt armband þar sem safnað var skrauti á keðjuna og fest á. Þetta vakti áhuga og kátínu og þjálfaði bæði hlustun og tal, tvo mikilvæga þætti enskukennslunnar.
14.4.2011
Silfur í 5. flokki stúlkna í handbolta
Stúlkurnar í 5. flokki Fylkis í handbolta fóru í keppnisferð til Húsavíkur um síðastliðna helgi. Þar náðu þær þeim góða árangri að verða í 3.sæti. Sá árangur tryggði þeim silfurverðlaun á Íslandsmótinu. Þær lentu í því á heimleiðinni að þurfa að gista í Reykjaskóla vegna óveðurs sem spillti þó ekki gleðinni. Sannarlega glæsilegur árangur hjá efnilegum stúlkum.
14.4.2011
HIV frćđsla á sal
Gunnlaugur I. Grétarsson, fulltrúi frá HIV-Íslandi (Alnæmissamtökin á Íslandi), fræddi nemendur 10. bekkjar Árbæjarskóla um HIV veiruna á sal skólans miðvikudaginn 13. apríl. Heimsóknin er hluti af umfangsmiklu fræðslu- og forvarnarverkefni samtakanna þar sem skólar víðsvegar af landinu eru heimsóttir. Þetta er mjög þarft og gott verkefni enda hefur fjöldi nýsmitaðra farið fjölgandi undanfarin ár.
12.4.2011
Kór Árbćjarskóla á kóramóti
Eldri kór Árbæjarskóla lagði leið sína á Selfoss sl. föstudag og var alla helgina á landsmóti barnakóra. Þar voru saman komnir kórar víðs vegar af landinu og voru u.þ.b. 450 börn sem tóku þátt. Samæfingar og raddæfingar voru alla helgina fyrir stóra tónleika sem voru hápunktur mótsins. Þeir voru haldnir á sunnudeginum í íþróttahúsi Vallaskóla. Á laugardeginum var farið í sund og haldin kvöldvaka þar sem kórfélagar sýndu dansatriði og í lokin var diskótek. Mótið var tileinkað öllum þeim frábæru íslensku tónskáldum sem hafa auðgað íslenskt tónlistarlíf í gegnum árin. Auk þess voru frumflutt tvö ný verk ungra tónskálda, þeirra Hreiðars Inga Þorsteinssonar og Þóru Marteinsdóttur. Kórfélagar Árbæjarskóla voru skólanum sínum til fyrirmyndar í alla staði og skemmtu sér konunglega.
Sjá myndir HÉR.
8.4.2011
Fylkir deildarmeistari
Stelpurnar í 4. flokki Fylkis léku í vikunni hreinan úrslitaleik við Selfoss um hvaða lið væri stigahæst eftir veturinn og væri þar með deildarmeistari. Eftir hnífjafnan fyrri hálfleik tóku Fylkisstelpurnar mikinn sprett og sigruðu örugglega 26-17 og unnu þar með deildarmeistaratitilinn. Þær hafa því greinilega verið jafnbesta lið vetrarins og óskum við þeim til hamingju með það. Nú tekur við úrslitakeppni hjá stelpunum og byrja þær að leika við liðið sem lendir í 8.sæti. Það verður gaman að fylgjast með hvort að þeim takist að innbyrða Íslandsmeistartitillinn líka. Gangi ykkur vel stelpur.
Efri röð frá vinstri: Sunna Jónsdóttir (Aðstoðarþjálfari), Ásta Lilja Stefánsdóttir, Ragnheiður Ófeigsdóttir, Rannveig Kjartansdóttir, Thea Sturludóttir, Kolfinna Eir Jónsdóttir og Halldór Stefán Haraldsson (Þjálfari)
Neðri röð frá vinstri: Hrafnhildur Leósdóttir, Arna Ösp Gunnarsdóttir, Sunna Rúnarsdóttir, Kolbrún Steinarsdóttir og Unnur Lára Hjálmarsdóttir
Fremst er Fyrirliðinn og unglingalandsliðsmarkmaðurinn Melkorka Mist Gunnarsdóttir
6.4.2011
Meira af fimleikadrottningum
Í síðasta mánuði var Íslandsmót FSÍ í þrepum haldið í íþróttamiðstöð Bjarkar í Hafnarfirði. Hildur Ösp Gunnarsdóttir, sem er nemandi í 9 MS og keppir fyrir Fylki, náði frábærum árangri á mótinu og hlaut silfur í 2. þrepi. Á þessu móti kepptu stigahæstu einstaklingar ársins í hverju þrepi. Þetta er frábær árangur hjá henni og sýnir enn betur hvílíkt afreksfólk Árbæjarskóli á í íþróttum. Skemmst er að minnast árangurs nöfnu hennar og bekkjarsystur í fimleikum svo ekki sé minnst á Skólahreystiliðið. Það er greinilegt að við eigum fullt af fólki sem gæti keppt þar fyrir hönd skólans. Til hamingju með árangurinn Hildur.
6.4.2011
Danssýningar
Í gær hófust danssýningar hjá nemendum í 1. - 5. bekk Árbæjarskóla þar sem þeir sýna þá dansa sem æfðir hafa verið undir leiðsögn Ásdísar Björnsdóttur danskennara. Aðstandendum er boðið á sýninguna og fá þeir boð um mætingu í tölvupósti.
Hér að neðan má sjá myndir af danssýningu frá 3. MJ.
Sjá myndir HÉR.
1.4.2011
Árbćjarskóli í úrslit
Keppni í 9.riðli Skólahreysti fór fram í gær. 14 skólar úr efri byggðum Reykjavíkur mættu til leiks með öflugt íþróttafólk og ekki síður öflugri stuðningslið. Þessi riðill er yfirleitt einn af þeim sterkustu í keppninni. Árbæjarskóli var með um 100 manna stuðningslið sem brást ekki keppendunum sínum og heyrðist jafn mikið í þeim og öllum stuðningsliðum hinna skólanna til samans.
Keppnin hófst á upphífingum og var Hörður fyrstur að reyna sig. Hann náði 22 hífingum og fékk 9 stig. Guðrún Margét var næst og tók 57 armbeygjur sem gaf 2. sætið og 13 stig. Þá voru 3 skólar jafnir og mikil spenna í loftinu. Hörður gerði sér lítið fyrir og vann dýfurnar sem voru næsta grein og Árbæjarskóli var komin með forystu. Guðrún náði að hanga yfir 2 mínútur í hreystigreipinni sem gaf skólanum 5,5 stig og þá var staðan þannig að Árbæjarskóli var í 3ja sæti 2 stigum á eftir forystuskólanum og aðeins hraðaþrautin eftir. Spennan var gífurleg í salnum.
Ţau Hákon og Auður brugðust ekki sínu fólki og hreinlega rúlluðu hraðbrautinni upp, nærri 20 sekúndum á undan næsta skóla og það þrátt fyrir að Hákon steig á dekk og byrjaði aftur. Það var gríðarlegur hraði á þeim báðum og þau áttu í engum vandræðum með kaðalinn. Þetta dugði Árbæjarskóla til sigurs og það meira að segja frekar örugglega.
Ţað verður gaman að fylgjast með þessu afreksfólki í úrslitunum í Laugardalshöll þann 28. apríl nk. og ekki síður öflugu stuðningsliði skólans. Við viljum benda fólki á að fylgjast með Skólahreystiþáttunum í sjónvarpinu og sjá krakkana þar bæði í keppni og viðtölum.
Til hamingju með þennan árangur krakkar og ekki síður Jóhanna og Beggi sem séð hafa um skólahreystivalið í vetur. Já eiginlega bara til hamingju við öll.
Sjá myndir HÉR.
31.3.2011
Heimsóknir í Ţjóđmenningarhús
Í Árbæjarskóla eru þrír 5. bekkir sem nýlega heimsóttu Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu. Þar stendur yfir sýning sem ber nafnið óskabarn þjóðarinnar sem fjallar um ævi og störf Jóns Sigurðssonar.
Vel var tekið á móti hópunum sem í enda heimsóknarinnar skrifuðu ósk sína á blað og innsigluðu þær á gamla mátann.
31.3.2011
6. GJ gerir víđreist
Nú í vikunni fór 6. GJ í tvær vettvangsferðir þar sem vinnustaðir foreldra í bekknum voru heimsóttir. Fyrst þurftu nemendur ekki að leita langt og gengu yfir í verksmiðjuna Vífilfell. Þar fengu börnin að sjá hvernig kókflöskur eru búnar til úr litlum plasthylkjum sem eru hituð, blásin upp og formuð í mismunandi mót sem þau fengu að skoða. Þau gengu um verksmiðjuna og sáu hin ýmsu færibönd sem öll höfðu sinn tilgang, áfyllingu, átöppun, plöstun o.s.frv. Þar voru nemendur svo leystir út með íþróttapokum og kók í dós. Sjá myndir HÉR.
Síðan lá leiðin í 365 miðla þar sem nemendur fengu fyrst kynningu á fyrirtækinu sem rekur útvarps- og sjónvarpsstöðvar, gefur út fréttablöð og framleiðir sjónvarpsefni. Því næst fengu þau að setjast í fréttasettið og lesa upp fréttir og einnig að skoða veðurfréttasettið og sjá sig í mynd á báðum stöðum. Það var mjög merkilegt að sjá að þeir sem voru grænklæddir í veðurfréttasettinu urðu gegnsæir og hægt að lesa veðurkortið í gegnum þá. Sjá myndir HÉR.
Nemendur höfðu mikið gagn og gaman af þessum ferðum sem voru góð tilbreyting fyrir skólastarfið.
31.3.2011
Stćrđfrćđikeppni í Borgarholtsskóla 2011
Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema í 8., 9. og 10. bekk var haldin í Borgarholtsskóla föstudaginn 25/3. Héðan fór nánast full 60 manna rúta af frábærum krökkum og var keppt í stærðfræði innan árganga. Þetta árið tóku þátt skólar úr Árbæ, Grafarvogi, Grafarholti, Norðlingaholti, Mosfellsbæ og Kjalarnesi. Í heildina voru nemendur 177 talsins. Tíu efstu í hverjum árgangi voru síðan boðaðir til verðlaunaafhengingar ásamt foreldrum/forráðamönnum þriðjudaginn 29/3.
Ţær Helga Kristín Ingólfsdóttir og Guðrún Friðriksdóttir í 9. bekk voru í 6. - 10. sæti og Guðrún Guðnadóttir í sama árgangi náði 4. sætinu. Sólveig Bjarnadóttir í 10. bekk var í 6. - 10. sæti. Þær fengu viðurkenningarskjal og lítið páskaegg að launum fyrir þennan góða árangur.
Gylfi Tryggvason í 10. bekk sigraði í sínum árgangi og hlaut að launum 15.000 kr., stórt páskaegg, viðurkenningu og frábæran grafískan vasareikni sem á eftir að nýtast honum í framtíðinni.
Ţeir nemendur sem lentu í 10 efstu sætunum í 10. bekk og kjósa að stunda nám við Borgarholtsskóla fá fyrstu önnina án endurgjalds.
Innilega til hamingju krakkar! Það var virkilega gaman að sjá hve mörg ykkar tóku þátt.
30.3.2011
Íţróttadagur á yngsta stigi
Íþróttir voru í fararbroddi skólastarfs Árbæjarskóla þann 28. mars en þá var haldinn íþróttadagur í 1. til 4. bekk. Brotið var upp hefðbundið skólastarf og stunduðu nemendur alls kyns íþróttir og leiki undir handleiðslu kennara. Dagurinn gekk vel og mátti lesa bros af vörum sérhvers barns sem naut hreyfingar og góðs félagsskapar. Í lok dagsins fóru umsjónarkennarar með nemendur sína á sal þar sem þau dönsuðu saman og skemmtu sér vel.
30.3.2011
Góđur árangur í Stóru upplestrarkeppninni
Fimmtudaginn 24. mars fóru fram úrslit í Stóru upplestrarkeppninni í Árbæ og Grafarholti. Keppnin fór fram í Árbæjarkirkju. Þátttakendur voru 12, tveir nemendur frá hverjum skólanna sex. Skáld keppninnar að þessu sinni voru Gunnar M. Magnús og Hulda/Unnur Benediktsdóttir Bjarklind.
Fulltrúar Árbæjarskóla voru Eva Dröfn H. Guðmundsdóttir og Elvar Wang Atlason. Stóðu þau sig með miklum sóma og fór svo að Elvar hafnaði í 3. sæti keppninnar. Sigurvegarinn var nemandi úr Ártúnsskóla og í öðru sæti var nemandi úr Sæmundarskóla. Óskum við þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn.
29.3.2011
Úrslit í stćrđfrćđikeppni MR
Sólveig Bjarnadóttir, 10. KV lenti í fjórða sæti í Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur í Menntaskólanum í Reykjavík sem fram fór þann 16. mars. Tæplega þrjúhundruð nemendur frá 17 skólum mættu til leiks og þar af 23 úr Árbæjarskóla og var keppnin hörð þetta árið. Sólveig var sú eina úr Árbæjarskóla sem komst í hóp þeirra 10 efstu í keppninni. Sunnudaginn, 27. mars var verðlaunaafhending í Menntaskólanum í Reykjavík. Þar tók Sólveig við verðlaunaskjali fyrir góðan árangur. Óskum við henni til hamingju með þennan glæsilega árangur.
25.3.2011
Leikskólabörn í heimsókn
Mikið og gott samstarf er milli Árbæjarskóla og leikskólanna Árborgar og Rofaborgar. Gagnkvæmar heimsóknir milli staða og skemmtileg samvinna allt skólaárið. Á vorönn koma síðan elstu nemendur leikskólans í skólaheimsókn í Árbæjarskóla. Undanfarnar þrjár vikur hafa hópar barna frá Rofaborg komið í heimsókn. Nemendum er skipt í hópa og hver hópur sækir skólann tvo tíma yfir daginn í 5 daga frá mánudegi til föstudags. Börnin fylgjast með kennslustundum, fara í listgreinar og íþróttir. Á föstudeginum fá þau síðan að fara í matsalinn og borða með nemendahópnum. Í byrjun apríl mætir svo einn hópur frá Árborg. Þetta eru skemmtilegar heimsóknir og nokkurs konar vorboði þegar börnin úr leikskólanum mæta til okkar í skólann.
21.3.2011
Upplestrarkeppni í Árbćjarskóla
Fimmtudaginn 10. mars fór fram hin árlega upplestrarkeppni í Árbæjarskóla þar sem valdir voru tveir fulltrúar skólans til að taka þátt í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árbæ og Grafarholti sem fram fer í Árbæjarkirkju þann 24. mars nk. Þátttakendur voru sex að þessu sinni. Guðjón Orri, Hugrún Birna og Hörður komu frá 7. AH og Elvar, Eva Dröfn og Gunnhildur Ólöf voru frá 7. SS.
Nemendur fluttu textabrot úr sögunni Undraflugvélin eftir Ármann Kr. Einarsson, ljóð eftir Þorstein frá Hamri og ljóð sem þeir völdu sér sjálfir. Stóðu nemendur sig allir með stakri prýði og var mikil spenna í salnum þegar úrslitin voru kynnt. Elvar og Eva Dröfn báru sigur úr bítum og verða fulltrúar skólans í lokakeppninni. Óskum við þeim til hamingju um leið og við óskum þeim góðs gengis í keppninni sem framundan er.
Dómnefndina að þessu sinni skipuðu Friðrik Magnússon, íslenskufræðingur og fulltrúi foreldra, Björn Áki Jósteinsson, fulltrúi nemenda, Jóhanna Lára Eyjólfsdóttir, fagstjóri í íslensku, og Guðný Ýr Jónsdóttir, íslenskufræðingur og fyrrverandi fagstjóri í íslensku, en þær stöllur voru fulltrúar skólans.
Í tilefni dagsins söng yngri kór skólans nokkur lög og Ebba Björg Ísberg lék á píanó. Var gerður góður rómur að þeirra flutningi.
Gaman verður að fylgjast með hvernig okkar nemendum vegnar í lokakeppninni.
17.3.2011
Stćrđfrćđikeppnin í MR
Í gær 16.03 fór fram hin árlega stærðfræðikeppni grunnskóla í MR. Mættir voru tæplega 300 nemendur úr 15 grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Frá Árbæjarskóla mættu 23 nemendur og hafa þeir ekki verið svona fáir áður. Það er greinilegt að efla verður stærðfræðiáhuga nemenda hér og er það verðugt verkefni okkar kennaranna. En þau sem mættu eiga hrós skilið og var ekki annað að sjá en að þau lögðu sig öll fram og virtust hafa gaman af að vera með . Árangur þeirra kemur svo í ljós í næstu viku, en þrír efstu í hverjum árgangi fá peningaverðlaun og 10 efstu fá viðurkenningar og verður fróðlegt að sjá hvernig gengi okkar krakka var. Rektor MR og kennarar taka alltaf vel á móti krökkunum og er skipulag til mikils sóma fyrir skólann.
16.3.2011
Íslandsmeistari í áhaldafimleikum
Íslandsmeistaramótið í áhaldafimleikum fór fram síðastliðna helgi þar sem Hildur Ólafsdóttir 9. MS varð Íslandsmeistari í gólfæfingum, sigraði í fjölþraut og að auki hlaut hún bronsverðlaun fyrir stökk í unglingaflokki. Ásamt Hildi keppti Erla Hrafnkelsdóttir í 9. JJ á mótinu. Þessi frábæri árangur sýnir og sannar uppganginn í fimleikadeild Fylkis. Í Árbæjarskóla eigum við frábæra íþróttamenn sem við getum svo sannarlega verið stolt af.
15.3.2011
Spurningaliđiđ komiđ áfram í nćstu umferđ
Mánudaginn, 1. mars, fór fram fyrsta umferð í spurningakeppni grunnskóla Reykjavíkur. Lið Árbæjarskóla, skipað þeim Ármanni Jakobssyni, Atla Frey Þorvaldssyni og Írisi Árnadóttur, vann fyrstu tvær viðureignirnar við Háteigsskóla og Ingunnarskóla en beið lægri hlut í viðureign við Hagaskóla. Úrslitin dugðu liðinu til áframhaldandi þátttöku í keppninni og verður spennandi að fylgjast með liðinu í næstu umferð.
3.3.2011
Árshátíđ 2011
Haldin var árshátíð nemenda Árbæjarskóla í gærkvöldi þar sem nemendur snæddu og nutu skemmtiatriða. Boðið var upp á þriggja rétta máltíð og þjónuðu foreldrar til borðs. Kynnar kvöldsins voru Fróði Guðmundur Jónsson og Sveinbjörg Sara Baldursdóttir. Meðal skemmtiatriða voru kennaragrín, nemendagrín og tónlistarmyndbönd. Seinna tók við diskótek þar sem DJ Óli Geir sá um tónlistina og hljómsveit skipuð nemendum steig á stokk.
Kvöldið tókst með eindæmum vel og eiga allir þeir sem lögðu hönd á plóg við undirbúning árshátíðarinnar hrós skilið fyrir vel unnin störf.
Sjá myndir hér.
2.3.2011
Árshátíđardagur Árbćjarskóla
Í dag klæddu nemendur unglingadeildar sig upp í búninga og fóru bekkirnir á milli stofa og kepptu í ýmsum þrautum þar sem reyndi á leik-, söng- og hreystihæfileika nemenda. Um ganga skólans hljómuðu baráttusöngvar og mikil gleði og stemning var í hópunum. Eftir bekkjaleikana var farið í skrúðgöngu upp í íþróttahús og þar fór fram bekkjakeppni í brennó með lopavettlinga á höndum þar sem 10. ÁS fór með sigur af hólmi . Nemendur öttu einnig kappi við kennara í fótbolta og skoruðu nemendur eina mark leiksins á lokamínútunni og höfðu þannig sigur. Síðan héldu nemendur til síns heima til að gera sig fína og sæta fyrir árshátíðarkvöldið framundan. Vaskur hópur nemenda og kennara sá svo um að klæða skólann í hátíðarbúning fyrir kvöldið. Dagurinn var frábær og allt stefnir í að kvöldið verði enn betra.
Sjá má myndir frá bekkjarleikum hér
23.2.2011
Vinadagar
Dagana 16. og 17. febrúar voru haldnir vinadagar í Árbæjarskóla þar sem hefðbundið skólastarf var brotið upp.
Fyrri daginn unnu nemendur af ólíkum aldursstigum saman tvö og tvö að vinaverkefni. Verkefnið fólst í samvinnu við gerð myndar af persónu þar sem hvor nemandi sá um að teikna sinn helminginn. Einnig bjuggu nemendur til vinabönd fyrir félaga sína. Í kjölfar þess var spilað og notið ánægjulegrar samvistar. Fyrri vinadeginum lauk með því að nemendur fóru út og mynduðu stærðar faðmlag umhverfis skólann.
Seinni daginn unnu nemendur á yngra stigi og miðstigi að verkefni þar sem búin voru til hjörtu eða eitt stórt hjarta en árgangar á unglingastigi unnu að skapandi verkefnum, snæddu saman og horfðu á kvikmyndir.
Sjá myndir HÉR.
14.2.2011
Námsval veturinn 2011-2012
Námsráðgjafar skólans hafa kynnt fyrir nemendum í 7., 8. og 9. bekk námsval skólans fyrir skólaárið 2011-2012.
Valbók skólans og umsóknareyðublað er að finna hægra megin á heimasíðu skólans undir fyrirsögninni áhugavert efni. Skilafrestur er til 25. febrúar 2011
Námsvalið verður kynnt forráðamönnum nemenda í 8. og 9. bekk á morgun ţriðjudag 15.febrúar í hátíðarsal Árbæjarskóla . Fundurinn hefst kl. 8:10 og stendur til kl. 9:00.
Vonumst til að sjá ykkur öll.
Guðrún Þóra og Linda
Námsráðgjafar Árbæjarskóla
11.2.2011
Ágćtu foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík
Opinn fundur verður fyrir foreldra skólabarna í Reykjavík um skólastarf á tímum efnahagsþrenginga, fimmtudaginn 17. febrúar kl. 17:30.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Jón Gnarr borgarstjóri og Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, verða með framsögu á fundinum.
10.2.2011
Sigurvegarar í stćrđfrćđiţraut
Ţrír nemendur skiluðu öllum lausnum réttum í stærðfræðiþraut sem sett var upp í tilefni dags stærðfræðinnar síðastliðinn föstudag, 4. febrúar. Hlutskarpastir voru Ţóra Silja Hallsdóttir, 9. ÞB, Kristín Kara Ragnarsdóttir 10. ÁS og Sólveig Bjarnadóttir 10. KV. Verðlaunaafhending fór fram 9. febrúar og fengu sigurhafarnir góðar reiknivélar í verðlaun.
Sjá ţrautir.
Sjá myndir frá degi stærðfræðinnar.
Lausnir:
Ţraut 1: S= 7.
Ţraut 2: J, Venni braut rúðuna.
Ţraut 3: Betlarinn er systir mannsins sem dó.
Ţraut 4: Númer 5 er sá ein sem er eftir standandi.
Ţraut 5: Kameldýrin eru númeruð frá 1-10 og jafnmargir pokar eru teknir af hverju dýri samkvæmt því númeri sem er á dýrinu. Pokarnir eru því næst vigtaðir allir í einu og tölustafurinn í einingasætinu segir til um hvaða kameldýr hefur pokana. Þannig að ef talan á vigtinni er með 7 í einingasætinu er dýr nr. 7 með gullpokana.
9.2.2011
Skólahreysti úrslit
Undankeppni í skólahreysti Árbæjarskóla fór fram fimmtudaginn 3. febrúar.
- Keppt var í Upphífingum (strákar)
- Armbeygjum (stelpur)
- Dýfum (strákar)
- Hreystigreip (stelpur)
- Hraðaþraut (strákar og stelpur)
Ţau sem komust áfram í æfingahóp eru:
Auður María 9. JJ - Helga Kristín 9. ÞB - Guðlaug Anna 9.JJ - Lára Sif 9. MS - Guðrún Margrét 10.SG
Hákon Ingi 10. IA - Jóhann Bjarni 10. SG - Eymundur 9. AA - Hörður 10. IA
3.2.2011
Dagur stćrđfrćđinnar.
Föstudagurinn 4. febrúar n.k. verður helgaður stærðfræðinni. Fyrir utan hina hefðbundnu kennslu munu kennarar skólans verða með ýmis verkefni og þrautir sem nemendur geta spreytt sig á.
Í unglingadeild verða t.d.hengdar upp nokkrar skemmtilegar þrautir fyrir utan stofur og í miðrými. Þær munu hanga þar frá fimmtudegi til miðvikudags og geta nemendur sent inn sínar lausnir og eiga þá möguleika á einhverjum stærðfræðitengdum verðlaunum.
Á yngri stigunum verða unnin ýmis verkefni í bekkjunum og á göngum skólans verða lítil veggspjöld með ýmsum þrautum sem krakkarnir geta dundað sér við að leysa.
Stærðfræði er auðvitað bara skemmtileg.
2.2.2011
Skólahreysti forkeppni
Á morgun fimmtudaginn 3. febrúar fer fram í íþróttahúsi skólans forkeppni fyrir skólahreysti þar sem keppnislið skólans verður valið. Nemendur unglingadeildar mæta í íþróttahúsið og hvetja keppendur til dáða. Aðalkeppnin mun svo fara fram í lok mars í Laugardalshöllinni.
2.2.2011
Sigurvegari undankeppni Samfés
Jóhanna Elísa Skúladóttir nemandi í 10. KV gerði sér lítið fyrir og bar sigur úr býtum í undankeppni Samfés sem er söngvakeppni félagsmiðstöðvanna. Diljá Heba Petersen Erludóttir og Rebekka Rut Petersen, nemendur í 10. ÁS, sungu bakraddir listavel. Keppnin fór fram föstudaginn 21. janúar í Tíunni og tóku þær stöllur lagið Ég vil dansa við þig með glæsibrag og munu því taka þátt í úrslitum keppninnar. Texti lagsins er saminn af Jóhönnu sjálfri við lagið I wanna dance with somebody (who loves me) sem Whitney Houston gerði frægt árið 1987. Spennandi verður að fylgjast með úrslitunum enda eru hér efnilegir tónlistarmenn á ferð.
27.1.2011
Stemning á sal
Nemendur og starfsmenn skólans hafa undanfarið fylgst með heimsmeistaramótinu í handknattleik. Síðastliðinn mánudag fylgdust nemendur og starfsmenn með landsleik Íslands og Spánar. Þrátt fyrir slæmt gengi liðsins stóðu allir áhorfendur með íslenska liðinu. Áfram Ísland!
20.1.2011
Undankeppni Samfés
Föstudaginn 21. janúar klukkan 20 er komið að undankeppni söngvakeppni Samfés. Hópur nemenda úr Árbæjarskóla mun stíga á stokk og taka nokkur vel valin sönglög. Keppnin fer fram í Tíunni (Árseli) og eru allir velkomnir.
Ţeir sem koma fram eru:
Íris Árnadóttir og Jón Guðmann með lagið Stúlkan sem starir á hafið.
Ragnhildur Eir Stefánsdóttir sem syngur lagið Róleg og Laufey Þóra Borgþórsdóttir leikur undir á píanó.
Viktoría Berg Henrýsdóttir og Theodóra Róbertsdóttir sem flytja lagið Ég vil þú farir með frumsömdum texta eftir þær stöllur.
Jóhanna Elísa Skúladóttir fytur lagið Ég vil dansa við þig.
Elísa Sif Hermannsdóttir flytur lagið Mundu mig.
Diljá Heba Petersen og Rebekka Rut Petersen flytja lagið Ótrúlega hrifin.
Eyjólfur Jónsson flytur lagið Ástin mín eina.
Brynja Sigurðardóttir flytur lagið Hjá þér.
Keppnin er tilvalið tækifæri fyrir efnilega krakka sem vilja fá æfingu í tónlistarflutningi. Við hvetjum sem flesta til þess að mæta og njóta kvöldsins.
17.1.2011
Framhaldsskólakynning 20. janúar nk. kl. 17:00 - 19:00 í Fjölbrautarskóla Breiđholts
|
Kynningin er fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra. Nemendur í 9. bekk og foreldrar þeirra eru einnig velkomnir á kynninguna. Fulltrúar framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu verða á staðnum og kynna sína skóla, námsframboð og inntökuskilyrði. Hægt er að nálgast allar upplýsingar hér. Einnig er hægt að nálgast glærusýningu um framhaldsskólanna hér. |
12.1.2011
Foreldraviđtöl
Föstudaginn 14. janúar fara fram foreldraviðtöl í Árbæjarskóla. Nemendur mæta ásamt foreldrum sínum til umsjónarkennara. Öll kennsla fellur niður þennan dag.
12.1.2011
Undirbúningur Árshátíđar
Vinna er þegar hafin við skipulagningu árshátíðar nemenda skólans, sem er í höndum stjórnar nemendafélagsins og félagsstarfshóps kennara. Árshátíðin hefur ávallt verið einn af hápunktum félagslífs Árbæjarskóla og mikið í hana lagt. Meðal fastra liða í skemmtiatriðum árshátíðarinnar er hið sígilda kennaragrín sem nemendur eru nú þegar farnir að vinna að. Við eigum áreiðanlega spennandi árshátíð í vændum sem haldin verður 2. mars.












