Beint á leiđarkerfi vefsins
Forsíđa

22.9.2010

Rannís teiknisamkeppni barna 6 - 9 ára

Nú í aðdraganda Vísindavöku efndi Rannís til teiknisamkeppni fyrir börn 6-9 ára og 10-12 ára. Skilafrestur var til 20. september. Frá Árbæjarskóla fóru skemmtilegar myndir nemenda úr 2. bekk, myndmennt. Þema keppninnar er „ef ég væri vísindamaður.." og er markmið hennar að vekja börn til umhugsunar um ímynd vísindamannsins og þau miklu áhrif sem vísindin hafa á daglegt líf okkar allra.

Verðlaun verða veitt í tveimur aldurshópum á Vísindavöku 2010 sem haldin verður í Listasafni Reykjavíkur 24. september. Einnig verða allar myndirnar þar til sýnis.

Dómnefnd teiknisamkeppninnar skipa: Aðalheiður Jónsdóttir og Katrín Valgeirsdóttir frá Rannís og Ragnar Arnljótsson og María Margeirsdóttir, grafískir hönnuðir á auglýsingastofunni Hnotskógi.

22.9.2010

Haustfundur foreldrafélags Árbćjarskóla

Ţriðjudag 21. september var haustfundur foreldrafélags Árbæjarskóla.

Á fundinum var kosið í skólaráð Árbæjarskóla og foreldrar hvattir til að taka þátt í starfi foreldrafélagsins. Frábær tónlistaratriði voru á dagskrá og komu skátarnir og voru með leiki. Bjarni verkefnastjóri Tíunnar kom og fjallaði um mikilvægi foreldrasamstarfs og foreldrarölts í hverfinu á kvöldin.

Ţökkum fyrir frábæra skemmtun og góða mætingu.

Stjórn foreldrafélagsins

20.9.2010

Fótbolti.

 

Hið árlega grunnskólamót í knattspyrnu hófst um helgina með keppni stúlkna í 7.bekk. Að sjálfsögðu var Árbæjarskóli með og mættu þarna 10 galvaskar stelpur klukkan hálfníu um á laugardagsmorguninn. Þá hófst riðlakeppnin en okkar stelpur voru í riðli með Melaskóla, Ölduselskóla og Foldaskóla. Sigur vannst á Ölduseli 1-0 og Foldaskóla 3-0 en tap fyrir Melaskóla 0-1, þrátt fyrir að hafa verið betra liðið og átt fullt af færum sem ekki tókst að nýta. En það kom ekki að sök, Melaskóli tapaði líka leik og vann Árbæjarskóli því ríðilinn sinn og komst í úrslit. Þar léku stelpunar gegn Rimaskóla og Grandaskóla og liðið sem fengi flest stig þar færi í úrslitaleikinn.

Fyrri leikurinn var gegn Rimaskóla sem hafði burstað sína leiki í riðlakeppninn með markatöluna 25-0 og því vitað að leikurinn yrði erfiður. Enda fór það svo að Rimaskóli vann 2-0 sanngjarnt, en baráttan hjá Árbæjarstelpunum var til fyrirmyndar. Þær unnu svo Grandaskóla 3-0 en það gerði Rimaskóli einnig.

Stelpurnar okkar lentu því í 3.-4. sæti af 17 skólum sem mættu til keppni og er það frábær árangur. Þær voru til fyrirmyndar utan vallar sem innan. Rimaskóli vann svo Fossvogskóla í úrslitaleik.

Næsta sunnudag 26.okt. keppa svo strákar í 7.bekk og 10.bekkingar, bæði strákar og stelpur,helgina þar á eftir.

RH.

16.9.2010

Velkomin í Árbćjarskóla

Hið árlega Rósaball Árbæjarskóla var haldið í gærkvöldi (15.09) 10.bekkingar buðu 8.bekkinga velkomna í unglingadeildina og náðu í þau heim og komu með þau á ballið. Samkvæmt hefðinni var það gert á mismunandi hátt og í þetta sinn mátti sjá fólk m.a. mæta á hestvagni, mótórhjólum, torfærubílum ásamt „limmum" og ýmsum öðrum skemmtilegum farartækjum.

Ballið sjálft fór mjög vel fram og skífuþeytir kvöldsins var fyrrverand nemandi skólans hann Ási og hélt hann krökkunum alveg við efnið á dansgólfinu. Krakkarnir voru í sínu fínasta og öll framkoma til fyrirmyndar eins og alltaf.

Ţau voru hin ánægðustu með kvöldið og fengu svo að sofa aðeins lengur í morgun. Fleiri myndir hér.

14.9.2010

Rósaballiđ

 

Miðvikudaginn 15. sept. verður hið árlega rósaball Árbæjarskóla haldið á sal skólans.  Það eru 10. bekkingar sem standa fyrir ballinu og bjóða nemendur  í 8. bekk velkomna í unglingadeild með því að sækja þau heim, færa þeim rós og fylgja þeim á ballið. 

Hleypt verður inn í salinn kl. 19:30 en ballið sjálft byrjar ekki fyrr en kl. 20:30.   Hætt verður að hleypa inn kl. 21:00.  Gert er ráð fyrir að gleðinni ljúki kl. 23:30. Rútur bíða nemenda þegar þeir koma út og munu þær fara ákveðinn hring um Árbæinn og skila nemendum af sér.

Verð inn á ballið er 300 kr. fyrir einstaklinga en 500 kr. fyrir parið. Sjoppan verður opin sem fyrr.

Nemendur eru minntir á að fyrstu tvær kennslustundirnar á fimmtudeginum  falla niður.

Að venju er mikil og góð stemning fyrir ballinu og búist við góðri mætingu.

9.9.2010

Nemendaráđ

 

Kosið var í stjórn nemendafélags Árbæjarskóla síðastliðinn miðvikudag fyrir skólaárið 2010-2011. Í framboði fyrir 10. bekk voru Atli Freyr Þorvaldsson 10. KV, Dagný Björt Benjamínsdóttir 10. ÁS, Erla Hrönn Gylfadóttir 10. ÁS, Fróði Guðmundur Jónsson 10. ÁS, Hildur Helga Jónsdóttir 10. KV, Sara Líf Magnúsdóttir 10 og Sveinbjörg Sara Baldursdóttir 10. KV. Í framboði fyrir 9. bekk voru Auður Arna Sigurðardóttir 9. MS, Elísa Sif Hermannsdóttir 9. JJ, Tómas Arnar Guðmundsson 9. MS og Þór Daníel Hólm 9. MS.

Talning atkvæða leiddi í ljós að Fróði Guðmundur Jónsson var kjörinn formaður nemendaráðs og Sveinbjörg Sara Baldursdóttir varaformaður. Þór Daníel Hólm var kjörinn meðstjórnandi og er fulltrúi 9. bekkinga í nemendaráði. Til hamingju með kosninguna.

Tilkynningar


Viđburđadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmćli

Röskun á skólastarfi

Slóđin ţín:

Forsíđa

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorđ