Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

20.12.2010

Jólaskemmtanir

Undir lok jólaannar hafa verið haldnar hinar árlegu jólaskemmtanir Árbæjarskóla. Síðastliðinn fimmtudag, 16. desember voru haldin jólaböll fyrir 5.-10. bekk en í dag, 20. desember fara fram jólaskemmtanir 2. - 4. bekkjar. Jólaskemmtun 1. bekkjar fer fram með leikskólum hverfisins, Rofaborg og Árborg.

Sjá myndir HÉR

16.12.2010

Jólaland

Nemendur á yngsta- og miðstigi hafa undanfarið unnið þemaverkefni í íslensku sem tengist ljóðlist og jólunum. Unnið var að skreytingum í tengslum við ljóð og er afraksturinn til sýnis á göngum skólans.

Sjá fleiri myndir HÉR.

16.12.2010

Jólaguðspjallið

Nemendur í 5. bekk Árbæjarskóla hafa síðastliðna viku unnið að þemaverkefni sem tengist jólaguðspjallinu. Gangar E-álmu voru skreyttir með myndum sem lýsa fæðingu Jesú Krists. Myndirnar eru listilega vel gerðar og klæða skólann í hátíðlegan búning nú fyrir hátíðarnar.

Sjá fleiri myndir HÉR.

8.12.2010

Jólatónleikar

Miðvikudaginn 1. desember voru haldnir jólatónleikar á sal Árbæjarskóla. Fram komu barnakórar skólans sem eru þrír talsins. Auk þess fluttu nemendur tónlistar- og sönglistarvals tónlistaratriði. Anna María Bjarnadóttir stýrði tónlistarflutningnum sem tókst mjög vel.

Sjá fleiri myndir HÉR.

2.12.2010

Best(a) stærðfræðikeppnin

Stærðfræðikennarar skólans héldu upp á fullveldisdaginn með hinni árlegu BEST stærðfræðikeppni sem er samnorrænt verkefni fyrir nemendur í 9. bekk. Bekkirnir unnu í hópum og reyndu að leysa 8 þrautir.  Þrír bekkir hér í Árbæjarskóla tóku þátt í þessu í ár og var gaman að fylgjast með hvernig krakkarnir nálguðust verkefnin. Hóparnir lögðu fram sín svör og þar sem þeir voru ekki sammála þurfti að finna endalegar lausnir.  Þá var gaman að heyra rökræðurnar sem fram fóru. Lokasvörin voru svo send til skipuleggjenda keppninnar og í janúar verður samskonar keppni með 8 nýjum þrautum og eftir það verður fundið út hvaða bekkir á landinu hafa staðið sig best og munu þeir keppa til undanúrslita.  Árbæjarskóli hefur mörg undanfarin ár verið með þar og skemmst er að minnast þess að í fyrra vann 9 KV fyrstu verðlaun fyrir bekkjarverkefnið sitt. Það verður gaman að sjá hvað gerist í ár. Gangi ykkur vel krakkar.

1.12.2010

1. desember

Nemendur og kennarar í unglingadeild komu saman á sal skólans í tilefni af fullveldisdeginum. Afhent voru verðlaun í smásagnasamkeppni skólans og verðlaunasögurnar lesnar upp. Nemendur úr unglingadeild buðu upp á tónlistar- og dansatriði. Að lokum var spurningakeppni milli liðs nemenda og kennara.

 

Margar frábærar sögur bárust í örsögukeppnina þetta árið og var úr vöndu að ráða. Að þessu sinni hlutu fjórir verðlaun og urðu því tvær sögur í þriðja sæti. Gyða Björk Ingimarsdóttir og Sara Rún Guðbjörnsdóttir hlutu þriðju verðlaun, Gyða fyrir söguna Sigrast á óttanum og Sara fyrir söguna Bókahillan. Önnur verðlaun hlaut Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir fyrir söguna Af hverju ég og fyrstu verðlaun hlaut Þórhildur Vala Kjartansdóttir fyrir söguna Himnabrúin.

 

Þess má geta að Sólveig Bjarnadóttir var tilnefnd til íslenskuverðlauna og var heiðruð fyrir góðan námsárangur.

 

Liðsmenn í spurningaliði nemenda Árbæjarskóla að þessu sinni voru Atli Freyr Þorvaldsson, Garðar Árni Skarphéðinsson og Íris Árnadóttir.  Í kennaraliðinu voru Skarphéðinn Garðarsson, Una Dögg Guðmundsdóttir og Ragnar Hilmarsson. Skemmst er frá því að segja að kennarar báru sigur úr býtum með 22 stigum gegn 21 eftir æsispennandi keppni sem  hefði getað endað á hvorn veginn sem var.

 

Sjá fleiri myndir HÉR.

1.12.2010

Jólatónleikar

Jólatónleikar verða á sal skólans í dag 1. desember kl. 17:00. Fram koma kórar skólans og nemendur í tónlistar og sönglistarvali.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð