Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

29.1.2010

Kynning á framhaldsnámi

Fimmtudaginn 28. janúar var haldin kynning á framhaldsnámi fyrir nemendur og foreldra 9. og 10. bekkinga í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti. Kynningin fór fram í nýjum sal Fjölbrautarskólans í Breiðholti.  Fulltrúar 11 framhaldsskóla af Kynning á framhaldsnámihöfuðborgarsvæðinu komu, kynntu námsframboð sitt og ræddu við nemendur og foreldra. Kynningin tókst ákaflega vel og aðsókn var mjög góð. Flestir framhaldsskólar ætla að hafa opin hús fyrir nemendur og forráðamenn þeirra og munu námsráðgjafar senda upplýsingar um dagsetningar í tölvupósti til forráðamanna.

28.1.2010

Danskur farandkennari í Árbæjarskóla

Daninn Lone Karstensen hefur verið hjá okkur í janúarmánuði og kennt Lone Karstensennemendum dönsku.  Lone er frá Kaupmannahöfn og er hér á Íslandi  í eitt ár til að styðja við dönskukennsluna.  Hún hefur heimsótt alla 7. og 10. bekki  skólans og komið inn með skemmtileg og áhugaverð verkefni.  Að sjálfsögðu hefur hún bara talað dönsku, þannig að nemendur hafa bætt miklu við sig bæði í tali og hlustun.  Tak for besøget, Lone.

27.1.2010

Nemendakynning í 3.ÁÞ

Í dag kynntu tvær stúlkur löndin sem þær hafa búið í.  Iveta kemur frá Búlgaríu og fræddi hún okkur í máli og myndum um Búlgaríu og spilaði tónlist með. Thelma Kristín bjó í Ástralíu og hún fræddi okkur einnig í máli og myndum um dvöl sýna þar. Stúlkurnar komu með muni frá löndunum og bækur með myndum sem nemendur máttu skoða og gátu handleikið. Í lokin fengum við okkur skúffuköku.
Frábær skemmtun.3.ÁÞ .
3.ÁÞ

26.1.2010

Ísland - Russland.

26.1.2010Salur Árbæjarskóla er nú fullur af starfsfólki og nemendum að horfa á leik strákanna okkar gegn Rússum. Brjáluð stemning enda staðan í hálfleik 19-10 fyrir okkar menn. Áfram Ísland.

26.1.2010

Framhaldsskólakynning 28. janúar kl. 17:30 - 20:00 í Fjölbrautarskóla Breiðholts

Kynningin er fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra. Nemendur í 9. bekk og foreldrar þeirra eru einnig velkomnir á kynninguna. Flestir framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu verða á staðnum  og kynna sinn skóla, námsframboð og inntökuskilyrði.

Mikilvægt er að nemendur í 10. bekk og foreldrar þeirra mæti og kynni sér það nám sem er í boði þar sem nú styttist í að nemendur þurfi að ákveða í hvaða framhaldsskóla þeir vilja fara.

 

22.1.2010

Þorradagurinn

Í dag, bóndadag 22. janúar, voru nemendur yngri deilda Árbæjarskóla hvattir til að mæta í hefðbundnum íslenskum klæðnaði eins og lopapeysum og ullarsokkum auk þess að hafa með sér þjóðlegt og gott nesti líkt og skyr, flatkökur, harðfisk eða hákarl.  Margir nemendur brugðust við þessu og hér ber að líta skemmtilegar myndir sem teknar voru í morgun.22. jan 201022.jan 2010

13.1.2010

Hljóðbók - góður kostur!

Vakin er athygli á því að nú geta nemendur og forráðamenn þeirra nálgast hljóðbækur Hljóðbókog fræðslumyndir á vef Námsgagnastofnunar www.nams.is og halað þeim niður án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða  mp3 spilara.

Hljóðbækur gagnast ekki aðeins nemendum sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða heldur einnig hverjum þeim sem áhuga hefur á því að hlusta á vandaðan upplestur texta. Foreldrar  og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika.  Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.

Hljóðbækur verða áfram til útláns á bókasafni skólans fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvu.

12.1.2010

Íþróttahátíð

Í dag var haldin íþróttahátíð í 1. – 4. bekk. Árgöngum var blandað saman og Íþróttadagur 1.-4. bekkurmynduðu hópa sem fóru á milli stöðva. Hóparnir báru nöfn ávaxta og grænmetis og ferðuðust hnetur, tómatar og fíkjur ásamt vinum sínum um skólann. Í boði voru hinir ýmsu leikir s.s. Tarsanleikur í íþróttahúsinu, dans í stóra salnum, slökun, spil og andlitsmálning svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin heppnaðist einstaklega vel og skemmtu ungir sem aldnir sér konunglega. Meðfylgjandi eru myndir frá deginum.

 

11.1.2010

Skólastarf á nýju ári

Skólastarf í Árbæjarskóla hófst að nýju að afloknu jólaleyfi í síðustu viku.  Allir mættu úthvíldir til leiks og einkenndist vikan af lífi og fjöri. Skákkennslan hefst í þessari viku og kórarnir hefja einnig æfingar. Á þriðjudaginn er íþróttadagur hjá nemendum í 1. – 4. bekk.  Nemendum er skipt í hópa sem færast  milli stöðva allan morguninn þar sem nemendum gefst t.d. kostur á að dansa, reyna fyrir sér í Tarsanleik og spila. Á föstudaginn er síðan foreldradagur þar sem nemendur mæta til viðtals við umsjónarkennara ásamt forráðamönnum sínum.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð