20.12.2010
Jólaskemmtanir
Undir lok jólaannar hafa verið haldnar hinar árlegu jólaskemmtanir Árbæjarskóla. Síðastliðinn fimmtudag, 16. desember voru haldin jólaböll fyrir 5.-10. bekk en í dag, 20. desember fara fram jólaskemmtanir 2. - 4. bekkjar. Jólaskemmtun 1. bekkjar fer fram með leikskólum hverfisins, Rofaborg og Árborg.
Sjá myndir HÉR
16.12.2010
Jólaland
Nemendur á yngsta- og miðstigi hafa undanfarið unnið þemaverkefni í íslensku sem tengist ljóðlist og jólunum. Unnið var að skreytingum í tengslum við ljóð og er afraksturinn til sýnis á göngum skólans.
Sjá fleiri myndir HÉR.
16.12.2010
Jólaguðspjallið
Nemendur í 5. bekk Árbæjarskóla hafa síðastliðna viku unnið að þemaverkefni sem tengist jólaguðspjallinu. Gangar E-álmu voru skreyttir með myndum sem lýsa fæðingu Jesú Krists. Myndirnar eru listilega vel gerðar og klæða skólann í hátíðlegan búning nú fyrir hátíðarnar.
Sjá fleiri myndir HÉR.
8.12.2010
Jólatónleikar
Miðvikudaginn 1. desember voru haldnir jólatónleikar á sal Árbæjarskóla. Fram komu barnakórar skólans sem eru þrír talsins. Auk þess fluttu nemendur tónlistar- og sönglistarvals tónlistaratriði. Anna María Bjarnadóttir stýrði tónlistarflutningnum sem tókst mjög vel.
Sjá fleiri myndir HÉR.
2.12.2010
Best(a) stærðfræðikeppnin
Stærðfræðikennarar skólans héldu upp á fullveldisdaginn með hinni árlegu BEST stærðfræðikeppni sem er samnorrænt verkefni fyrir nemendur í 9. bekk. Bekkirnir unnu í hópum og reyndu að leysa 8 þrautir. Þrír bekkir hér í Árbæjarskóla tóku þátt í þessu í ár og var gaman að fylgjast með hvernig krakkarnir nálguðust verkefnin. Hóparnir lögðu fram sín svör og þar sem þeir voru ekki sammála þurfti að finna endalegar lausnir. Þá var gaman að heyra rökræðurnar sem fram fóru. Lokasvörin voru svo send til skipuleggjenda keppninnar og í janúar verður samskonar keppni með 8 nýjum þrautum og eftir það verður fundið út hvaða bekkir á landinu hafa staðið sig best og munu þeir keppa til undanúrslita. Árbæjarskóli hefur mörg undanfarin ár verið með þar og skemmst er að minnast þess að í fyrra vann 9 KV fyrstu verðlaun fyrir bekkjarverkefnið sitt. Það verður gaman að sjá hvað gerist í ár. Gangi ykkur vel krakkar.
1.12.2010
1. desember
Nemendur og kennarar í unglingadeild komu saman á sal skólans í tilefni af fullveldisdeginum. Afhent voru verðlaun í smásagnasamkeppni skólans og verðlaunasögurnar lesnar upp. Nemendur úr unglingadeild buðu upp á tónlistar- og dansatriði. Að lokum var spurningakeppni milli liðs nemenda og kennara.
Margar frábærar sögur bárust í örsögukeppnina þetta árið og var úr vöndu að ráða. Að þessu sinni hlutu fjórir verðlaun og urðu því tvær sögur í þriðja sæti. Gyða Björk Ingimarsdóttir og Sara Rún Guðbjörnsdóttir hlutu þriðju verðlaun, Gyða fyrir söguna Sigrast á óttanum og Sara fyrir söguna Bókahillan. Önnur verðlaun hlaut Hrafnhildur Svala Sigurjónsdóttir fyrir söguna Af hverju ég og fyrstu verðlaun hlaut Þórhildur Vala Kjartansdóttir fyrir söguna Himnabrúin.
Þess má geta að Sólveig Bjarnadóttir var tilnefnd til íslenskuverðlauna og var heiðruð fyrir góðan námsárangur.
Liðsmenn í spurningaliði nemenda Árbæjarskóla að þessu sinni voru Atli Freyr Þorvaldsson, Garðar Árni Skarphéðinsson og Íris Árnadóttir. Í kennaraliðinu voru Skarphéðinn Garðarsson, Una Dögg Guðmundsdóttir og Ragnar Hilmarsson. Skemmst er frá því að segja að kennarar báru sigur úr býtum með 22 stigum gegn 21 eftir æsispennandi keppni sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var.
Sjá fleiri myndir HÉR.
1.12.2010
Jólatónleikar
24.11.2010
Rithöfundaheimsóknir í 3. og 6. bekk
Í byrjun nóvember heimsóttu Gerður Kristný rithöfundur og Þórunn Anna leikkona nemendur í 3. bekk. Lesið var upp úr bók Gerðar, Prinsessunni á Bessastöðum, og slegið á létta strengi með söng og dansi.
Þórarinn Leifsson og Auður Jónsdóttir heimsóttu 6. bekk. Auður kynnti fyrir þeim bók sem hún skrifaði um afa sinn Halldór Laxness sem heitir Skrýtnastur er maður sjálfur. Auk þess gaf hún nemendum góð ráð um hvernig á að semja góða sögu. Þórarinn las upp úr tveimur bóka sinna, Bókasafn ömmu Huldar og Leyndarmálið. Heimsóknin var ánægjuleg tilbreyting og skapar að líkindum áhuga nemenda á bókmenntun og skáldskap í framtíðinni.
22.11.2010
Jólaföndur foreldrafélags Árbæjarskóla
Sunnudaginn 28. nóvember kl. 11 - 13.30
verður hin árlega jólastund
foreldrafélagsins í hátíðarsal skólans.
Boðið verður upp á
Tré og keramikmálun, piparköku-glassúr-skreytingar, jólaföndur- og kortagerð.
Málning, pappír, piparkökur og glassúr verður í boði foreldrafélagsins en
tréföndur, keramik og jólalímmiðar verður selt gegn vægu verði.
Heitt kakó og piparkökur í boði Foreldrafélagsins.
Hvetjum alla litla og stóra til að mæta og eiga notalega jólastund í upphafi aðventunnar.
Munið eftir: að koma með pensla fyrir málun, lím, liti, skæri, límmiða, skapalón og glimmerlím fyrir jólaföndur- og kortagerð, plastpoka undir jólaföndrið, góða skapið og annað sem ykkur finnst þið þurfa fyrir jólaföndurgerðina.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest :)
Jólakveðja, Foreldrafélagið
18.11.2010
Fjölmiðlaheimsókn 7. bekkinga
Miðvikudaginn 10. nóvember og fimmtudaginn 11. nóvember fóru nemendur í 7. bekk í fjölmiðlaheimsókn til 365 miðla í Skaftahlíðinni. Tekið var vel á móti nemendum sem fengu fræðslu um sjónvarps-og útvarpsmenninguna hér áður fyrr og hvernig hún hefur þróast síðastliðin ár. Farið var í skoðunarferð um húsið, m.a. í hljóðstúdíóið þar sem útvarpsstöðin X-ið var með útsendingu og fengu nemendur að ræða við þáttastjórnandann. Því næst var farið í annað stúdío hjá FM 95,7 þar sem Heiðar Austmann var með sinn þátt og komið við hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni. Nemendur 7. AH sömdu útvarpsauglýsingu um bekkjarkvöld en nemendur 7. SS fengu hinsvegar mynd af sér á uppkasti af forsíðu Fréttablaðsins útprentaða . Síðan var fréttastofa Stöðvar 2 heimsótt. Þar var þeim leyft að koma inn í fréttasettið, setjast í fréttastólana og lesa upp fréttir og veðurfréttir. Nemendur fóru ánægðir til baka eftir vel heppnaða heimsókn. Sjá fleiri myndir HÉR.
18.11.2010
Heimilisfræðitími hjá 1. bekk
Nemendur 1. bekkjar lærðu hvernig maður gerir kexpizzu í heimilisfræðitíma. Síðan er nauðsynlegt að læra hvernig á að ganga frá, vaska upp og þurrka. Börnin voru áhugasöm, dugleg og verkfús.
17.11.2010
Dagur íslenskrar tungu
Nemendur og kennarar héldu upp á daginn með þríþættri dagskrá. Nemendur 2. - 4 .bekkjar komu fyrstir saman á sal, síðan 1. bekkur og leikskólabörn. Krakkarnir í 5. - 7. bekk ráku svo lestina.
Nemendur sáu um að kynna atriðin sem voru fjölbreytt. Jónas Hallgrímsson var að sjálfsögðu kynntur til leiks og einnig var Steinn Steinarr áberandi í dagskránni. Lesin voru ljóð eftir skáldin, einnig var sungið, dansað og leikið á hljóðfæri. Stundum komu krakkarnir fram einir og stundum í hópum. Dagskráin rann vel í gegn og mjög gaman að sjá hve nemendur skólans eru hæfileikaríkir. Ekki var annað að sjá að allir skemmtu sér hið besta og eiga bæði nemendur og kennarar þeirra hrós skilið.
Unglingadeildin verður með sína dagskrá sal þann 1. desember.
10.11.2010
Overraskelse
Kristín Valdimars dönskukennari á afmæli í dag. Bekkurinn hennar 10 KV var búinn að undirbúa sig vel fyrir daginn. Þau söfnuðu saman smápening, bökuðu kökur og útbjuggu skreytingar og gjafir fyrir kennarann sinn. Krakkarnir biðu inni í stofu þegar Kristín mætti í umsjónartíma. Taflan var skreytt, kökur á borði, ljósin slökkt en kveikt á kertum. Þegar dönskukennarinn síkáti opnaði svo hurðina, hissa samt á að sjá engan nemanda fyrir utan, þá spruttu þau upp og hrópuðu „overraskelse" og sungu fyrir hana. Kristín varð náttúrulega bara klökk af gleði. En þessi umsjónartími rennur hvorki henni né nemendum hennar strax úr minni. Vel gert krakkar og til hamingju með afmælið Kristín.
10.11.2010
Skrekkur
Það var nóg að gera hjá Skrekkshópnum á mánudaginn 8.nóv. Hópurinn kom saman snemma um morguninn og förðun og fleira sett í fullan gang. Um hálf ellefu leytið sýndi hópurinn nemendum og starfsfólki skólans atriði sitt. Svo kom stutt pása en farið var með rútu fljótlega eftir hádegið upp í Borgarleikhús þar sem hópurinn hitti aðra keppendur og rennt í gegnum atriðin á sviðinu.
Klukkan 20 hófst svo keppnin sjálf. Borgarleikhúsið var þéttsetið af unglingum borgarinnar og átti Árbæjarskóli þar ansi stóran hluta. Áhorfendurnir okkar létu vel í sér heyra og stóðu sig frábærlega að vanda. Atriði okkar, Víma í dós, var annað í röðinni og rann það vel í gegn. Krakkarnir stóðu sig mjög vel á sviðinu og skiluðu sínu fullkomlega.
Þegar atriðunum var lokið var bara beðið í spennu eftir úrslitum en því miður náði Víman ekki nægilega vel í gegn hjá dómurum kvöldsins og komst ekki í úrslit. Breiðholtsskóli og Ölduselsskóli fengu úrslitasætin og óskum við þeim til hamingju með það.
Keppendur og ekki síður áhorfendur frá Árbæjarskóla stóðu sig frábærlega vel og voru góðir fulltrúar hverfisins. Til hamingju krakkar.
5.11.2010
Heildarmat á skólastarfi
Á næstu dögum/viku fer fram heildarmat á skólastarfi í Árbæjarskóla, en samkvæmt lögum um grunnskóla 91/2008 35. gr.- 38. gr. er gert ráð fyrir bæði innra og ytra mati og eftirliti á gæðum starfs í grunnskólum. Með ytra mati er átt við úttekt á starfsemi stofnunar sem unnin er af utanaðkomandi aðilum, s.s. sveitarfélögum og/eða menntamálaráðuneyti.
Heildarmat fer fram í 7 grunnskólum borgarinnar á hverju skólaári samkvæmt ákvörðun menntaráðs Reykjavíkur og í ár er Árbæjarskóli einn af þeim. Á sl. þremur árum hefur farið fram heildarmat í 20 grunnskólum Reykjavíkurborgar. Í kjölfar matsins eru niðurstöður birtar í skýrslu sem skólinn fær í hendur. Á grundvelli niðurstaðna gerir skólinn umbótaáætlun þar sem fram kemur hvernig unnið verður með veika þætti skólastarfsins sem og þætti sem skólinn hyggst efla enn frekar. Umbótaáætlun er skilað til fræðslustjóra.
Starfsfólk Menntasviðs Reykjavíkur sér um matið sem m.a. felst í að afla upplýsinga um skólastarfið með viðtölum og rýnihópum auk þess sem fylgst er með kennslu. Matið er liður í að styðja við skólastarf og kemur til viðbótar sjálfsmati skólanna. Stefna Reykjavíkurborgar í menntamálum er höfð til viðmiðunar í matinu auk annarra ramma um skólastarf, laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnumótunar borgarinnar í starfsmannamálum og mannréttindamálum.
4.11.2010
Foreldrafundur á forvarnardegi
Húsfyllir og góð stemming var á foreldrafundi sem haldinn var í skólanum í gærkvöldi. Magnús Stefánsson frá Maríta á Íslandi var með fræðslufund um skaðsemi fíkniefna og hverju foreldrar þurfa að vera vakandi fyrir. Hægt er að nálgast upplýsingar úr fyrirlestrinum á heimasíðu Maríta á Íslandi.
3.11.2010
Opið hús í Árbæjarskóla
Kæru forráðamenn!
Föstudaginn 5. nóvember verður opið hús í skólanum milli kl. 08:10-16:00. Forráðamenn eru hvattir til að heimsækja skólann á þessum tíma og kynna sér starf barnanna. Hefðbundin kennsla fer fram í skólanum þennan dag en í miðrými hans verða verk nemenda í list- og verkgreinum sýnd, bæði fullunnin verk og verk í vinnslu. Einnig verða til sýnis verkefni tengd námsefni í bókmenntum í 5. bekk og verk nemenda í 9. bekk sem unnin voru í tengslum við eineltisdaginn.
Nemendur í 10. bekk verða með kaffi og kökusölu í miðrýminu.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla
3.11.2010
Góðir gestir í Árbæjarskóla
Síðastliðinn laugardag heimsóttu nemendur úr ´58 árganginum í Árbæjarskóla gamla skólann sinn. Skyldunámi þessara nemenda lauk vorið 1973. Voru þó nokkrir að heimsækja skólann í fyrsta skipti síðan þá en aðrir hafa átt hér börn og sótt skólann heim á liðnum árum. Stjórnendur skólans tóku á móti þeim og sýndu þeim skólann og kynntu fyrir þeim starfsemi skólans í dag. Gaman er að geta þess að sumir úr þessum árgangi gengu í Árbæjarskóla þegar hann var í húsinu niður við á og aðrir sóttu tíma í framfarafélagshúsinu þannig að segja má að þarna hafi verið á ferðinni fólk sem var með fyrstu nemendum skólans. Meðfylgjandi er mynd að hópnum sem tekinn var af þessu tilefni.
2.11.2010
Marítafræðsla í Árbæjarskóla
Þessa dagana fá nemendur í 7. 8. 9. og 10. bekk forvarnarfræðslu á vegum Maríta á Íslandi. Fræðslan fyrir 7. bekk nefnist „Allir hinir mega það" og fjallar um það að standast hópþrýsting. Fræðslan fyrir 8. 9. og 10. bekk "Hættu áður en þú byrjar", er um skaðsemi fíkniefna. Markmiðið með fræðslunni er að fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra. Mikilvægt er að börn og foreldrar þeirra ræði um þessi mál sín á milli. Því er nauðsynlegt að þau fái sömu fræðslu, þó að nálgun efnisins sé ólík á fundunum. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á http://www.marita.is/
Fræðslan í Árbæjarskóla er dagana 1.-3. nóvember.
Miðvikudaginn 3.nóvember verða haldnir foreldrafundir:
Kl. 18.00 fyrir foreldra nemenda í 7. bekk
Kl. 20.00 fyrir foreldra nemenda í 8. 9. og 10. bekk
Foreldrar eru hvattir til að mæta á þessa fundi.
1.11.2010
Skrekkur
Í Árbæjarskóla eru nú 3 valhópar í leiklist. Þeir kepptu um það sín á milli sl. miðvikudag hvaða hópur kæmist áfram með sitt atriði í undankeppni Skrekks sem haldin verður mánudaginn 8. nóvember. Mikil spenna og eftirvænting ríkti enda hóparnir búnir að leggja mikla vinnu og kraft í að fullæfa atriðin sín.
Fyrst var afraksturinn sýndur foreldrum og aðstandendum en svo var sýnt fyrir dómnefnd sem í voru Jóhannes Ásbjörnsson (Jói), Sólveig Hrafnsdóttir aðstoðarskólastjóri, Fróði Guðmundur Jónsson formaður nemendaráðs og Carola Ida Köhler fulltrúi foreldra. Meðan dómnefndin réð ráðum sínum voru sýnd tvö tónlistaratriði , annað frá sönghóp og einnig söng Íris Árnadóttir í 9. bekk einsöng.
Atriðið sem vann heitir Víma í dós og fjallar um orkudrykki. Einnig voru atriði þar sem þemað var krabbamein og móðurást. Öll voru atriðin ákaflega glæsileg og hlutskipti dómnefndar erfitt að gera upp á milli. Spennandi verður að sjá hvernig siguratriðinu reiðir af næstkomandi mánudag og hvort Árbæjarskóla tekst á ný að koma sér í aðalkeppnina sem verður þann 15. nóvember.
Sjá fleiri myndir hér.
1.11.2010
Bangsadagur
Miðvikudaginn 27. október var bangsadagurinn í 1. - 4. bekk. Í tilefni þess dags fóru börnin í heimsókn á bókasafnið. Þriðjudaginn 26. október fóru nemendur í 3. og 4. bekk með kennara sínum á bókasafnið og völdu bangsabók til lestrar í kennslustofu og skoðuðu bangsa í eigu safnsins. Á sjálfan bangsadaginn fóru nemendur í 1. og 2. bekk í heimsókn á safnið og Jana bókasafnsfræðingurinn okkar las fyrir þau bangsasögu. Bangsar í eigu safnsins voru skoðaðir og dagurinn var helgaður böngsum með ýmsu móti og börnin skemmtu sér konunglega.
Sjá fleiri myndir hér.
27.10.2010
Íslandsmeistari í kumite
Ólafur Engilbert Árnason, nemandi í 8. KS, gerði sér lítið fyrir og vann íslandsmeistaratitilinn í kumite í flokki 13 ára. Hann vann allar viðureignir sínar og stuðlaði þannig að því að Fylkir vann sinn 4. Íslandsmeistaratitil í liðakeppni kumite í röð. Ólafur stefnir að því að keppa á Stockholm Open og á Norðurlandamótinu á næstu mánuðum. Spennandi verður að fylgjast með árangri Ólafs sem nú þegar hefur staðið sig með miklum sóma.
26.10.2010
Sigur í jólakortasamkeppni Umhyggju
Alexandra Ösp Snæbjörnsdóttir, nemandi í 5.KJ, tók þátt í jólakortasamkeppni Umhyggju í september síðastliðnum. Alexandra gerði sér lítið fyrir og vann þá keppni og voru verðlaunin m.a. þau að mynd hennar verður á jólakortum Umhyggju í ár.
Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag veikra barna og fjölskyldna þeirra og eru Alexandra og fjölskylda hennar félagsmenn í því félagi. Alexandra hefur aldrei tekið þátt í svona keppni áður og kom sigurinn henni því verulega á óvart.
Við óskum Alexöndru innilega til hamingju með sigurinn og hlökkum til að sjá jólakortið með myndinni hennar á.
26.10.2010
Undankeppni Tíunnar
Stíll er keppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun. Keppnin í ár mun verða tíunda keppni af þessu tagi sem haldin er á vegum Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði mega vera 2-4 einstaklingar, þar af eitt módel.
Síðastliðinn miðvikudag fór fram undankeppni félagsmiðstöðvarinnar Tíunnar fyrir Stíl 2010 þar sem fulltrúi Tíunnar til að taka þátt í lokakeppninni var valinn. Fimm hópar tóku þátt að þessu sinni og fór keppnin fram í Árbæjarskóla. Þriggja manna dómnefnd átti úr vöndu að ráða því þarna voru á ferðinni flottir hönnuðir. Sigurvegari að þessu sinni er Dagný Björt Benjamínsdóttir úr 10. ÁS. Dagný Björt er afar fjölhæf stúlka því hún stóð ein að hönnun sinnar flíkur, auk þess að sjá um förðun, hárgreiðslu og að sýna flíkina.
Nemendur úr Sönglistar- og tónlistarvali skólans stigu á stokk meðan dómnefnd var að störfum og var gerður góður rómur að flutningi krakkanna. Nemendur úr 10. bekk sáu um veitingasölu.
21.10.2010
Efnileg frjálsíþróttakona
Kristín Liv Svabo Jónsdóttir 10.KV
Kristín Liv tók í sumar þátt í alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Gautaborg í Svíþjóð og hlaut silfurverðlaun í hástökki en hún stökk 1,62 metra. Hún hlaut einnig silfur á alþjóðlegu móti á Íslandi í janúar sl. og á Íslandsmótinu sem haldið var sl. vor. Kristín Liv er fædd 1995 en sú sem hlaut fyrsta sætið á báðum mótunum hérlendis er fædd árið 1989 sem sýnir hve efnileg hún er sem hástökkvari.
20.10.2010
Rithöfundaheimsókn
Í dag, þann 20. október, heimsóttu rithöfundarnir Vilborg Davíðsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir 9. bekk en þær hafa báðar leitast við að flétta saman forna og nýja tíma. Nemendur 9. bekkjar eru að lesa sögu eftir Vilborgu sem nefnist Korku saga. Rithöfundarnir fjölluðu meðal annars um skapandi skrif, hvernig hægt er að nota sagnaarfinn og gömul örnefni til að búa til spennandi sögur og hvað fornar hetjur eiga sameiginlegt með nútímamönnum. Yfirskrift fyrirlestursins var Kviknar í höfðinu og vonandi var þarna sáð einhverjum fræjum til rithöfunda framtíðarinnar.
15.10.2010
Bekkjarfulltrúar á miðstigi
Kosnir hafa verið bekkjarfulltrúar í bekkjum á miðstigi í Árbæjarskóla. Valinn var einn fulltrúi úr hverjum bekk. Í 7. bekk fengu kosningu þær Edda Marín 7.SS og Helga Þórey 7.AH. 6. bekkjarfulltrúar eru Arnmundur Backmann og Þorsteinn Hængur. Í 5. bekk voru kosin þau Nanna Lísa í SB og Dagur Dan í KJ og Halldóra í ÞÞ (fyrir áramót) og Elvar Örn (eftir áramót). Hlutverk bekkjarfulltrúa er að taka þátt í að skipuleggja félagsstarf skólans og koma með hugmyndir um ýmislegt sem varðar skólann. Einnig munu þau sitja fundi með nemendaráði unglingastigsins
14.10.2010
Efnilegur knattspyrnumaður í Árbæjarskóla
Hjörtur Hermannsson í 10. ÁS hefur gert það gott í fótboltanum undanfarin misseri svo eftir hefur verið tekið. Síðastliðinn ágúst var hann boðaður í prufu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Reading og mun í lok október reyna sig í herbúðum AC Milan á Ítalíu.
Þrátt fyrir ungan aldur er hann fastamaður í unglingalandsliðinu undir 17 ára aldri og hefur sýnt sig og sannað í undankeppni EM. Landsliðið er komið áfram í milliriðla og skoraði Hjörtur eitt mark í þremur leikjum. Greinilegt er að mikið efni er hér á ferð sem við getum verið stolt af.
6.10.2010
Samkoma á sal
Allir nemendur Árbæjarskóla voru kallaðir á sal þann 5. október þar sem veittar voru viðurkenningar í samkeppni um hönnun bókamerkis í tilefni af alþjóðlegum degi læsis. Viðurkenningar hlutu Hrafnhildur Haraldsdóttir 1. DK, Diljá Mikaelsdóttir 6. SG, Eva Dröfn Guðmundsdóttir 7. SS en Álfdís Helga Þórsdóttir í 10. IA hlaut fyrstu verðlaun og fer bókamerki hennar í prentun. Sjá bókamerki Álfdísar hér.
Skólalið Árbæjarskóla í fótbolta voru einnig heiðruð fyrir mjög góðan árangur í Grunnskólamótinu sem fram fór um síðustu helgi. Nemendur komu fram með dans- og skemmtiatriði sem tókust með eindæmum vel.
6.10.2010
Rútuferðir vegna íþróttaæfinga hjá Fylki
Ágætu foreldrar og nemendur
Frá og með 11. október 2010 hefjast rútuferðir á vegum Fylkis í tengslum við æfingar félagsins víðsvegar um hverfið okkar. Ferðirnar eru ætlaðar nemendum í 1. - 4. bekk í grunnskólum hverfisins. Eldri nemendur geta að sjálfsögðu nýtt sér ferðirnar sé pláss en verða þá að hafa skráð sig á viðeigandi hátt fyrirfram.
Foreldrar sem vilja nýta sér þjónustuna fylla út skráningareyðublað sem finna má á tómstundakrækju hér til hægri á síðunni.
Nánar má lesa um þessa góðu nýjung hjá Fylki hér. Einnig er þessar upplýsingar að finna á tómstundakrækjunni, ásamt heimasíðu Fylkis, en þar má nálgast upplýsingar um tímasetningar rútuferða.
Skólastjórn Árbæjarskóla
4.10.2010
Grunnskólameistarar 2010
Grunnskólamót strákanna í 10 bekk fór fram sl. laugardag. Árbæjarskóli var í A-riðli ásamt Foldaskóla, Víkurskóla og Borgarskóla. Strákarnir okkar unnu alla leikina og þar með riðilinn nokkuð auðveldlega og markatalan var 7-0.
Þar með var liðið komið í undanúrslit og mætti þar Langholtsskóla og vannst þar átakalaus sigur 4-0. Þá var bara úrslitaleikurinn eftir og mættu Árbæingar þar Réttarholtsskóla. Okkar strákar voru klárt betra liðið og skoraði Emil gull af marki með vinstri af löngu færi, stöngin inn. Eftir hornspyrnu komumst við í 2-0 og leikurinn alveg í okkar höndum þar til Emil ákvað að gera leikinn spennandi og skoraði frábært sjálfsmark af 40 metra færi en Stebbi hafði komið út úr markinu enda lítið að gera hjá honum. Þetta urðu úrslit leiksins þ.e. 2-1 og Árbæjarskóli því sigurvegari mótsins.
Unglingalandsliðsmaðurinn okkar Hjörtur forfallaðist á síðustu stundu en það kom ekki að sök í þetta sinn. Liðið var skipað markmönnunum Stefáni Ara og Óla en Óli spilaði nú reyndar mest sem útileikmaður og skoraði 3 mörk meira að segja. Aðrir leikmenn voru Emil, Daníel, Bjarki, Guðni Rúnar, Knútur, Fróði og Hákon úr 10. bekk ásamt Eiríki úr 9. bekk.
Þessir strákar voru klárt besta liðið með fyrirliðann Emil fremstan í flokki og náði hann þeim einstæða árangri að vera markahæsti maður liðsins og andstæðinga liðsins líka þar sem hann skoraði eina markið sem Árbæjarskóli fékk á sig. Geri aðrir betur.
Til hamingju með gullið strákar, þið eruð langflottastir.
4.10.2010
Silfurstelpur
10. bekkingar tóku þátt í grunnskólamótinu í knattspyrnu um helgina. Stelpurnar voru mættar á sunnudagsmorguninn klukkan hálfníu með flott lið. Þær lentu í frekar spennandi riðli með fjórum öðrum skólum. Þær unnu Foldaskóla og Langholtskóla frekar auðveldlega, en leikirnir við Hólabrekkuskóla og Rimaskóla vorum mjög jafnir og spennandi. Okkar stelpur unnu báða þessa leiki 1-0 og unnu því riðilinn sinn með fullu húsi stiga og markatölunni 12-0.
Þetta þýddi auðvitað undanúrslit og lentu stelpurnar aftur á móti Rimaskóla sem var það lið sem var með besta árangurinn í 2. sæti í riðlakeppninni en þrír riðlar voru í mótinu. Það veikti liðið okkar að fyrirliðinn og varnarjaxlinn Laufey meiddist um morguninn og gat ekki verið með í úrslitunum. En leikurinn við Rimaskóla var mjög spennandi. Árbæjarskóli komst yfir en Rimaskóli náði að jafna og leikurinn endaði 1-1. Þá var vítaspyrnukeppni og skoruðu Hulda og Sylvía en Rimaskólastelpurnar misnotuðu tvö fyrstu vítin sín og varði Eva Ýr annað vítið glæsilega og tryggði Árbæjaskóla úrslitasæti.
Úrslitaleikurinn gegn frábæru liði Réttarholtsskóla var geysispennandi. Svava kom okkur í 1-0, Réttó jafnaði. Hulda skoraði síðan fyrir Árbæjarskóla og stelpurnar þurftu að verjast vel til að halda fengnum hlut. Það tókst ekki þrátt fyrir gríðarlega baráttu og góða markvörslu. Aftur var því vítaspyrnukeppni og var ákveðið að sömu stelpur tækju okkar víti. En því miður misnotuðu þær allar spyrnurnar en Réttó skoraði úr einni og þar með urðu þær grunnskólameistarar og óskum við þeim til hamingju með það, frábært lið þar á ferð.
Okkar stelpur voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma og spiluðu frábæran fótbolta. Ekki gátu þær verið nær gullinu en þetta. Liðið var skipað þeim: Laufeyju, Sólveigu, Svövu Rós, Bergdísi, Önnu Elísabetu, Söru Dögg, Guðrúnu Margréti og Sylvíu úr 10. bekk og Evu Ýr og Rakel úr 9.bekk og Huldu úr 8. Bekk. Til hamingju með árangurinn stelpur, frábært hjá ykkur.
22.9.2010
Rannís teiknisamkeppni barna 6 - 9 ára
Nú í aðdraganda Vísindavöku efndi Rannís til teiknisamkeppni fyrir börn 6-9 ára og 10-12 ára. Skilafrestur var til 20. september. Frá Árbæjarskóla fóru skemmtilegar myndir nemenda úr 2. bekk, myndmennt. Þema keppninnar er „ef ég væri vísindamaður.." og er markmið hennar að vekja börn til umhugsunar um ímynd vísindamannsins og þau miklu áhrif sem vísindin hafa á daglegt líf okkar allra.
Verðlaun verða veitt í tveimur aldurshópum á Vísindavöku 2010 sem haldin verður í Listasafni Reykjavíkur 24. september. Einnig verða allar myndirnar þar til sýnis.
Dómnefnd teiknisamkeppninnar skipa: Aðalheiður Jónsdóttir og Katrín Valgeirsdóttir frá Rannís og Ragnar Arnljótsson og María Margeirsdóttir, grafískir hönnuðir á auglýsingastofunni Hnotskógi.
22.9.2010
Haustfundur foreldrafélags Árbæjarskóla
Þriðjudag 21. september var haustfundur foreldrafélags Árbæjarskóla.
Á fundinum var kosið í skólaráð Árbæjarskóla og foreldrar hvattir til að taka þátt í starfi foreldrafélagsins. Frábær tónlistaratriði voru á dagskrá og komu skátarnir og voru með leiki. Bjarni verkefnastjóri Tíunnar kom og fjallaði um mikilvægi foreldrasamstarfs og foreldrarölts í hverfinu á kvöldin.
Þökkum fyrir frábæra skemmtun og góða mætingu.
Stjórn foreldrafélagsins
20.9.2010
Fótbolti.
Hið árlega grunnskólamót í knattspyrnu hófst um helgina með keppni stúlkna í 7.bekk. Að sjálfsögðu var Árbæjarskóli með og mættu þarna 10 galvaskar stelpur klukkan hálfníu um á laugardagsmorguninn. Þá hófst riðlakeppnin en okkar stelpur voru í riðli með Melaskóla, Ölduselskóla og Foldaskóla. Sigur vannst á Ölduseli 1-0 og Foldaskóla 3-0 en tap fyrir Melaskóla 0-1, þrátt fyrir að hafa verið betra liðið og átt fullt af færum sem ekki tókst að nýta. En það kom ekki að sök, Melaskóli tapaði líka leik og vann Árbæjarskóli því ríðilinn sinn og komst í úrslit. Þar léku stelpunar gegn Rimaskóla og Grandaskóla og liðið sem fengi flest stig þar færi í úrslitaleikinn.
Fyrri leikurinn var gegn Rimaskóla sem hafði burstað sína leiki í riðlakeppninn með markatöluna 25-0 og því vitað að leikurinn yrði erfiður. Enda fór það svo að Rimaskóli vann 2-0 sanngjarnt, en baráttan hjá Árbæjarstelpunum var til fyrirmyndar. Þær unnu svo Grandaskóla 3-0 en það gerði Rimaskóli einnig.
Stelpurnar okkar lentu því í 3.-4. sæti af 17 skólum sem mættu til keppni og er það frábær árangur. Þær voru til fyrirmyndar utan vallar sem innan. Rimaskóli vann svo Fossvogskóla í úrslitaleik.
Næsta sunnudag 26.okt. keppa svo strákar í 7.bekk og 10.bekkingar, bæði strákar og stelpur,helgina þar á eftir.
RH.
16.9.2010
Velkomin í Árbæjarskóla
Hið árlega Rósaball Árbæjarskóla var haldið í gærkvöldi (15.09) 10.bekkingar buðu 8.bekkinga velkomna í unglingadeildina og náðu í þau heim og komu með þau á ballið. Samkvæmt hefðinni var það gert á mismunandi hátt og í þetta sinn mátti sjá fólk m.a. mæta á hestvagni, mótórhjólum, torfærubílum ásamt „limmum" og ýmsum öðrum skemmtilegum farartækjum.
Ballið sjálft fór mjög vel fram og skífuþeytir kvöldsins var fyrrverand nemandi skólans hann Ási og hélt hann krökkunum alveg við efnið á dansgólfinu. Krakkarnir voru í sínu fínasta og öll framkoma til fyrirmyndar eins og alltaf.
Þau voru hin ánægðustu með kvöldið og fengu svo að sofa aðeins lengur í morgun. Fleiri myndir hér.
14.9.2010
Rósaballið
Miðvikudaginn 15. sept. verður hið árlega rósaball Árbæjarskóla haldið á sal skólans. Það eru 10. bekkingar sem standa fyrir ballinu og bjóða nemendur í 8. bekk velkomna í unglingadeild með því að sækja þau heim, færa þeim rós og fylgja þeim á ballið.
Hleypt verður inn í salinn kl. 19:30 en ballið sjálft byrjar ekki fyrr en kl. 20:30. Hætt verður að hleypa inn kl. 21:00. Gert er ráð fyrir að gleðinni ljúki kl. 23:30. Rútur bíða nemenda þegar þeir koma út og munu þær fara ákveðinn hring um Árbæinn og skila nemendum af sér.
Verð inn á ballið er 300 kr. fyrir einstaklinga en 500 kr. fyrir parið. Sjoppan verður opin sem fyrr.
Nemendur eru minntir á að fyrstu tvær kennslustundirnar á fimmtudeginum falla niður.
Að venju er mikil og góð stemning fyrir ballinu og búist við góðri mætingu.
9.9.2010
Nemendaráð
Kosið var í stjórn nemendafélags Árbæjarskóla síðastliðinn miðvikudag fyrir skólaárið 2010-2011. Í framboði fyrir 10. bekk voru Atli Freyr Þorvaldsson 10. KV, Dagný Björt Benjamínsdóttir 10. ÁS, Erla Hrönn Gylfadóttir 10. ÁS, Fróði Guðmundur Jónsson 10. ÁS, Hildur Helga Jónsdóttir 10. KV, Sara Líf Magnúsdóttir 10 og Sveinbjörg Sara Baldursdóttir 10. KV. Í framboði fyrir 9. bekk voru Auður Arna Sigurðardóttir 9. MS, Elísa Sif Hermannsdóttir 9. JJ, Tómas Arnar Guðmundsson 9. MS og Þór Daníel Hólm 9. MS.
Talning atkvæða leiddi í ljós að Fróði Guðmundur Jónsson var kjörinn formaður nemendaráðs og Sveinbjörg Sara Baldursdóttir varaformaður. Þór Daníel Hólm var kjörinn meðstjórnandi og er fulltrúi 9. bekkinga í nemendaráði. Til hamingju með kosninguna.
31.8.2010
Foreldrafundir
Dagana 24. - 26. ágúst sóttu foreldrar nemenda Árbæjarskóla fundi þar sem starfsemi skólans var kynnt. Eftir fundinn hittu foreldrar umsjónarkennara barna sinna. Gleðilegt var að sjá hversu margir sáu sér fært að mæta. Vonandi verða fundirnir til þess að efla samvinnu foreldra og skólans.
31.8.2010
Kynning frá Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
Nemendur í 2. - 4. bekk fengu skemmtilega heimsókn á mánudaginn. Þá mættu til leiks fimm hressir kennarar frá Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts sem kynntu hljóðfærin sem þeir spiluðu á og starf Skólahljómsveitarinnar. Spiluð þeir félagar nokkur þekkt lög fyrir krakkana sem kunnu svo sannarlega að meta lúðrablástur og trommuleik, með meiru.
Í Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts (SÁB) eru grunnskólanemar úr Árbæ og Breiðholti. Þrjár blásarasveitir eru innan hennar og skipast nemendur í þær eftir aldri og getu. Megináhersla er lögð á að kenna hljómsveitarsamleik, en hljóðfæranám fer jafnframt fram í einkatímum. Kennt er á þau málm- og tréblásturshljóðfæri sem notuð eru í hefðbundnum blásarasveitum auk slagverks.
Í starfi skólahljómsveitanna er haft að leiðarljósi að auka víðsýni og þroska nemenda, rækta listræna hæfileika þeirra og efla sköpuargáfu. Í skólahljómsveitunum er stuðlað að aukinni tónlistariðkun og félagsþroska, stutt við tónlistaruppeldi grunnskólanema og leitast við að jafna tækifæri nemenda til tónlistarnáms.
Innritun í Skólahjómsveitina er hafin og má nálgast nánari upplýsingar um starf sveitarinnar á flipanum hér til vinstri á síðunni, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts.
23.8.2010
Innritun í mat
Innritun í mat fyrir nemendur fer fram á Rafræn Reykjavík.
Sjá má upplýsingar á fleiri tungumálum hér
6.8.2010
Innkaupalistarnir verða komnir á heimasíðu skólans þriðjudaginn 17. ágúst
1.6.2010
Íþróttaálfur á íþróttahátíð
3. og 4. bekkjar fóru í leiki, boðhlaup og kapphlaup í kringum skólann. Nemendur í 1. og 2. bekk tóku síðan á móti elstu börnunum á leikskólunum Rofaborg og Árborg. Farið var í leiki, hlaup og ýmislegt til gamans gert. Nemendur 1. -4. bekkjar hittust síðan á sal í lok dagsins og þar beið þeirra óvæntur gestur. Íþróttaálfurinn var mættur á svæðið til að skemmta börnunum. Kenndi hann þeim ýmsar æfingar og dans og fékk til liðs við sig nemendur og kennara. Var það foreldrafélag skólans sem stóð fyrir heimsókninni og var hún skemmtileg viðbót við góðan dag.
20.5.2010
Vestmannaeyjaferð
Það voru þreyttir en ánægðir 10.bekkingar sem stigu út úr rútunum við Árbæjaskóla
um átta leytið miðvikudagskvöldið 19.maí. Þau höfðu af mikilli elju safnað það miklu að þau komust í skólaferðalag og var ákveðið að fara til Vestmannaeyja. Í ferðinni var ekið, siglt, sprangað, synt, vakað, spilað, spjallað, sungið, hlegið, gengið, borðað og sofið smávegis líka.
Lagt var af stað frá Árbæjarskóla klukkan hálfellefu deginum áður, þannig að þetta var freka stutt en mjög ánægjuleg ferð. Mæting var frábær og vel yfir 90% nemenda fóru með. Alls vorum 102 í ferðinni þar af vorum við fjórir kennarar.
Móttökur í Vestmannaeyjum voru frábærar. Allir skemmtu sér gríðarlega vel og við kennararnir voru yfir okkur stoltir af krökkunum okkar. Þau voru hverfinu sínu og skólanum til mikils sóma og ekki kannski alveg sjálfgefið að svona ferðir gangi áfallalaust (fyrir utan kennarann sem snéri sig í spröngunni). Við þökkum þeim kærlega fyrir ferðina. Nú taka prófin við og óskum við þeim góðs gengis á þessum lokaspretti þeirra hér í Árbæjarskóla. Sjá MYNDIR HÉR.
Kennarar.
20.5.2010
Eineltisfræðsla í 4. bekk
Undanfarið hafa námsráðgjafar skólans fjallað um hugtakið einelti í 4. bekk. Í tengslum
við það horfðu nemendur á myndbandið Katla gamla og unnu verkefni út frá því. Fólst það í því að teikna sjálfsmynd og skrifa eina setningu umhverfis myndina þar sem fram kom hvað þeir gætu gert til þess að stöðva einelti í frímínútum. Afraksturinn var hengdur upp í anddyri skólans gestum og gangandi til fróðleiks og hvatningar um að huga vel að þeim orðum sem hver og einn notar þegar hann á samskipti við annað fólk. Í leiðinni gæti hinn sami rifjað upp þá gullvægu reglu um aðgátina sem ber að hafa í nærveru sálar.
20.5.2010
Bekkjarkvöld hjá 6. bekkingum
Þann 4. maí var haldið bekkjarkvöld hjá nemendum í 6. bekk. Nemendur 6. bekkjanna
komu saman á sal og voru mjög dugleg á dansgólfinu við dillandi tónlist. Þema kvöldsins var 80‘s klæðnaður og frábært að sjá hve margir lumuðu á grifflum, hárböndum, legghlífum og litríkum klæðnaði sem hæfði þessu þema. Þetta má sjá á myndum sem hér fylgja.
19.5.2010
Vorpróf
Næstkomandi föstudag (21. maí) hefjast vorpróf í 9. og 10. bekk Árbæjarskóla en 8. bekkur tekur fyrsta prófið miðvikudaginn 26. maí. Mæting og próftaka á unglingastigi hefst klukkan 10 og er próftíminn tvær klukkustundir.
Prófdagar á miðstigi hefjast miðvikudaginn 26. maí. Nemendur mæta í prófin klukkan 8:10. Að prófum loknum tekur við almenn kennsla á miðstigi samkvæmt stundaskrá fram til klukkan 12:25.
14.5.2010
Sigurvegarar skákmóts Árbæjarskóla
Skákíþróttin hefur verið stunduð af kappi við skólann í vetur og hafa skákæfingar farið fram á mánudögum undir leiðsögn Gunnars Finnssonar. Skemmst er frá því að segja að skáklið Árbæjarskóla lenti í 5. – 6. sæti í Grunnskólamóti Reykjavíkur í skák.
Í lok mars fór fram skákmót Árbæjarskóla þar sem keppt var í hraðskák og var hver skák 10 mínútur. Sigurvegarar í 1. – 7. bekk voru þeir Þorsteinn Freygarðsson í 1. sæti, Jakob Alexander Petersen og Andri Már Hannesson var í þriðja sæti. Sigurvegari á unglingastigi voru Hafsteinn Esjar Baldursson 8. MS, í öðru sæti var Gunnar Örn Hilmarsson 10. ÞJ og í þriðja sæti var Arnar Geirsson 8. ÞB. Allir þessir piltar hafa sótt skákæfingar við skólann.
Augljóst er að mikil gróska er í skákíþróttinni við skólann og er hugsanlegt að hér séu á ferðinni stórmeistarar framtíðarinnar.
7.5.2010
Bekkjarkvöld hjá 5. bekkingum
Nemendur 5. bekkjanna komu saman í gær á sal og voru duglegir á dansgólfinu við dillandi tónlist. Þema kvöldsins var 80‘s klæðnaður og frábært að sjá hve margir lumuðu á grifflum, hárböndum, legghlífum og litríkum klæðnaði sem hæfði þessu þema. Þetta má sjá á myndum sem hér fylgja. 
MYNDIR
7.5.2010
Ball 7. bekkinga
Miðvikudaginn 28. apríl var haldið hið árlega 7. bekkja ball nemenda úr Ártúnsskóla, Selásskóla og Árbæjarskóla. Nemendur skólanna höfðu fengið kynningu á unglingadeild Árbæjarskóla í vikunni en foreldrum þeirra var boðið til kynningarfundar um morguninn. Á fundinum var farið í helstu atriði hvað varðar skipulag og reglur skólans en þeir sem ekki mættu geta kynnt sér starfsemi skólans hér á heimasíðunni. Um kvöldið var haldinn dansleikur þar sem nemendur skólanna komu saman og sýndu kúnstir sínar á dansgólfinu. Hegðun nemendanna var til fyrirmyndar á dansleiknum sem gefur góð fyrirheit fyrir nám þeirra við unglingadeild skólans næsta haust.
5.5.2010
Landnámssýning 4. bekkjar
Þann 20. apríl kynntu nemendur og kennarar fjórðu bekkja Árbæjarskóla landnámsmenn og sögu þeirra fyrir foreldrum og forráðamönnum barnanna. 
Undirbúningur þessarar veglegu sýningar hófst með lestri bókarinnar Komdu og skoðaðu landnámið þar sem krakkarnir kynntu sér sögu helstu landnámsmanna af báðum kynjum. Samhliða þessu var unnið að verkefnabók.
Í framhaldinu var ein og hálf vika notuð til þemavinnu þar sem krakkarnir unnu í sameiningu að því að teikna víkingaskip og uppdrátt af Íslandi. Einnig teiknaði hver nemandi landnámsmann sem hann hafði lært um og fékk hann sitt pláss og hlutverk á skipinu. Að endingu lögðust nemendurnir á árar og sköpuðu einn stóran landnámsmann og átti hver og einn að semja sína eigin sögu um hann. Afrakstur þessarar vinnu var hengdur upp á veggi til prýðis og skemmtunar og foreldrakynning haldin þann 20. apríl síðastliðinn.
Fullt var út úr dyrum á kynningunni og voru allir sammála um að vel hefði til tekist með sýninguna eins og sjá mátti á stoltu og brosmildu fólki á heimleið þegar það rifjaði upp innra með sér hið sögulega landnám og hugsaði í leiðinni um allt það sem við vitum ekki um fyrstu íbúa Íslands.
28.4.2010
GradPrix meistarar í kumite
Þrír nemendur Árbæjarskóla eru GrandPrix meistarar í kumite 2009-2010. Þeir eru þau
Ólafur Engilbert Árnason 7. SB sem keppir í þyngri flokki drengja 12-13 ára, Helga Kristín Ingólfsdóttir 8. ÞB í léttari flokki stúlkna, 12-13 ára og Jóhannes Gauti Óttarsson 10. ÁB í piltaflokki, 14-15 ára. Um er að ræða þrjú mót og sá stigahæsti úr hverjum keppnisflokki hlýtur titilinn GrandPrix meistari í kumite.
23.4.2010
Opinn skóli
Almenningi var boðið að heimsækja Árbæjarskóla þriðjudaginn 20. apríl s.l. Fólki var
frjálst að koma og fylgjast með kennslustundum og kynnast nánar því starfi sem innt er af hendi við skólann. Talsvert kom af gestum og voru foreldrar af yngra stigi og miðstigi áberandi í þeim hópi. Sumir fylgdu börnum sínum í kennslustundir á meðan aðrir gengu á milli kennslustofa. Nemendur í 10. bekk stóðu fyrir kökusölu í tilefni dagsins og gekk salan vonum framar.
21.4.2010
Árbæjarskóli hlaut verðlaun í Best!
9. KV tók þátt í undanúrslitum stærðfræðikeppninnar Best sem haldin var dagana 20. – 21. apríl í Háskóla Íslands. Keppnin er tvíþætt annarsvegar þrautalausnir og hins vegar bekkjaverkefni sem bekkurinn hefur unnið að síðustu vikur. Þemað í ár var stærðfræði og orka, verkefnið okkar fjallaði um samanburð tveggja virkjana þ.e. Kárahnjúkavirkjunar og Blönduvirkjunar. Einnig tengdum við ferðalag vatnsins í gegnum virkjun við rússíbana og gerðum líkan til útskýringar til að undirstrika mikilvægi fallorkunnar.
Tíu lið kepptu í undanúrslitum en þrjú lið komust síðan í lokalotuna. Sigurvegararnir voru nemendur úr Hagaskóla.
Verðlaun fyrir besta bekkjaverkefnið hlaut Árbæjarskóli.
17.4.2010
Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010
Í tilefni af Barnamenningarhátíð er mikið um að vera í Árbæjarskóla.
Mánudagur 19. apríl
• Nemendur 4. bekkjar taka þátt í hátíðarskrúðgöngu í miðbænum
• Skólaskákmót Árbæjarskóla á efri palli kl. 13:35
Þriðjudagur 20. apríl
Opið hús í skólanum kl. 8:10 -16:00
Hægt verður að kíkja inn í kennslustundir ásamt því að kynnast öðrum þáttum skólastarfsins.
• Gestir geta átt von á óvæntum uppákomum
• Söngleikurinn Fjársjóðurinn eftir Ólaf B. Ólafsson í flutningi
byrjendakórsins - Hátíðarsalurinn kl. 13:15
• Vortónleikar Yngri kórs og Eldri kórs
Hátíðarsalurinn kl. 17:00
• Kökusala nemenda í 10. bekk – fjáröflun vegna vorferðar
Forráðamenn og aðrir góðir gestir eru hvattir til að mæta í skólann
þennan dag. Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér vinnustað
barnanna og það fjölbreytta starf sem þar fer fram.
Sýning á verkum nemenda á Menntasviði
Sýning á verkum nemenda í 1. – 4. bekk Árbæjarskóla í list- og
verkgreinum stendur yfir dagana 14. apríl til 12. maí á Menntasviði
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 1, 2. hæð.
16.4.2010
Spurningakeppni grunnskólanna
Síðastliðinn miðvikudag keppti spurningalið Árbæjarskóla í undanúrslitum
spurningakeppni grunnskóla Reykjavíkur ,,Nema hvað.“ Fyrir keppni var dregið um hvaða skólar skyldu keppa innbyrðis og lenti okkar lið á móti Hagaskóla. Það skal tekið fram að bæði liðin voru taplaus í keppninni en hin liðin, Breiðholtsskóli og Álftamýraskóli, sem lentu saman höfðu tapað sinni viðureigninni hvort. Leikar fóru þannig að Hagaskóli bar sigur úr býtum með 32. stigum gegn 24. stigum Árbæjarskóla. Eftir hraðaspurningar var staðan 21:15 Hagaskóla í vil. Páll Guðmundsson Theódórs þjálfari spurningaliðs Árbæjarskóla var ánægður með gengi liðsins sem hefði vel getið keppt til úrslita ef dregist hefði öðruvísi í undanúrslitin. Liðið er ungt, Auður er í 8. bekk, Atli og Sólveig í 9. bekk svo ástæða er fyrir bjartsýni fyrir keppnina á næsta ári.
16.4.2010
List- og verkgreinasýning á Menntasviði Fríkirkjuvegi 1
16.4.2010
Heimsókn á Þjóðminjasafnið!
13.4.2010
Grunnskólamót Reykjavíkur í skák
Haldnar hafa verið skákæfingar í skólanum í vetur. Vel hefur verið mætt
og mikill hugur í skákfólki. Skáksveitir Árbæjarskóla gerðu sér svo lítið fyrir og lentu í 5. og 6. sæti á grunnskólamóti
Reykjavíkur í skák.
http://www.skak.blog.is/blog/skak/entry/1041715/
Frábær árangur hjá þessu unga skákfólki.
13.4.2010
Undanúrslit Spurningakeppni grunnskólanna
Á morgun, miðvikudaginn 14. apríl, mun spurningalið Árbæjarskóla keppa í undanúrslitum í Spurningakeppni grunnskóla Reykjavíkur, Nema hvað. Keppnin verður klukkan 20:00 í Breiðholtsskóla. Rúta fer héðan klukkan 19:30 og skráningu lýkur fyrir hádegi á morgun. Mætum og hvetjum okkar lið til sigurs.
13.4.2010
Norðurlandameistari
Jóhannes Gauti Óttarsson, 10. ÁB, varð meistari í flokki unglinga undir 70 kg á Norðurlandameistaramótinu í kumite sem fram fór í Tallin Eistlandi um helgina. Úrslitaviðureignin var gegn heimamanninum Dimitri Voronin. Jóhannes Gauti vann eftir hörkuspennandi keppni í framlengingu með þremur stigum gegn engu.
Til hamingju með glæsilegan árangur Jóhannes Gauti!
9.4.2010
Góður árangur í ólympíustærðfræði
Árbæjarskóli hlaut önnur verðlaun bæði í liðakeppni yngri- og eldri deildar í ólympíustærðfræði. Keppendur hafa æft stíft í vetur undir stjórn Rafns Camillussonar. Keppnin var haldin fimm sinnum og glímdu nemendur við nýja þraut í hvert skipti. Niðurstöður þriggja efstu keppenda hvors liðs gilda í keppninni.
Lið yngri deildar skipa Elvar Wang Atlason 6. ÞO, Eyrún Ósk Hjartardóttir 6. AH, Sigurður Alex Pétursson 5.SJ, og systkinin Þorsteinn 5. SJ, Halldóra og Sólrún Elín í 4. DK, Freygarðsbörn. Elvar Wang Atlason var hlutskarpastur í liði Árbæjarskóla.
Lið eldri deildar skipa Eva Ósk Hjartardóttir 8. MS, Katrín Lára Garðarsdóttir 8. ÞB, Maríanna Björk Ásmundsdóttir 8. ÞB og Sandra Lilja Björnsdóttir 8. ÞB. Katrín Lára og Sandra voru jafnar og efstar í liði Árbæjarskóla. Til hamingju með góðan árangur.


7.4.2010
Frá Skólahljómsveitinni
Tekið er á móti nýjum umsóknum allt árið. Sendið nýjar umsóknir til:
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
Breiðholtsskóla, Arnarbakka 1 - 3, 109 Reykjavík
26.3.2010
Páskaleikur
stærðfræði-, ensku- og íslenskuþrautir sem leystar voru af mikilli kappsemi. Sigurvegarar voru strákar úr 8. MB og Tung úr 10 ÞJ. Voru þeir leystir út með páskaeggjum. Eftir herlegheitin gæddum við okkur á vöfflum og muffins. Sjá fleiri myndir HÉR.22.3.2010
Íslandsmót barnaskólasveita 2010
Í vetur hófst skákkennsla í Árbæjarskóla undir leiðsögn Gunnars Finnssonar. Mikill áhugi er fyrir skákinni og hefur hún sett sinn svip á skólastarfið. Um helgina fór fram Íslandsmót barnaskólasveita, fyrir nemendur í 1. – 7. bekk, í Vetrargarðinum í Smáralind. Mótshaldið var í höndum Skákakademíu Reykjavíkur, í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Árbæjarskóli sendi þrjú lið til þátttöku á mótinu og stóðu krakkarnir sig mjög vel. Flestir voru að keppa í skák í fyrsta sinn og eru því reynslunni ríkari eftir mótið. Foreldrar fjölmenntu til að styðja við bakið á hópnum okkar og gaman að sjá þá yngri og eldri leggja á ráðin milli umferða.
Liðin að þessu sinni skipuðu: Hreiðar Páll og Tómas Freyr úr 3. ÁÞ, Bjarki, Fannar, Halldóra, Ólöf Edda, Sólrún Elín og Vilhjálmur úr 4. DK, Andri Már, Jakob Alexander, Sigurður Alex og Þorsteinn Freygarðs úr 5. SJ og Jóhann Ingi og Mateusz úr 7. KJ.
Til hamingju krakkar!
22.3.2010
Stóra upplestrarkeppnin 2010
Árbæjarskóli tók á dögunum þátt í Stóru upplestrarkeppninni í Árbæ og Grafarholti sem
haldin var í Árbæjarkirkju. Þátttakendur komu frá sex skólum, Árbæjarskóla, Ártúnsskóla, Selásskóla, Norðlingaskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla og voru tveir frá hverjum skóla. Fulltrúar Árbæjarskóla voru þær Kristín Anna Jóhannsdóttir og Margrét Sæmundsdóttir en þær voru valdar úr góðum hópi á innanskólakeppni sem haldin var í byrjun mánaðarins. Kristín Anna og Margrét stóðu sig með mikilli prýði og voru verðugir fulltrúar skólans. Sigurvegarinn að þessu sinni kom úr Ártúnsskóla og óskum við honum innilega til hamingju.
22.3.2010
Góður árangur í stærðfræðikeppni
Niðurstöður úr Stærðfræðikeppni grunnskólanna 2010 hafa verið kunngerðar. Þátttaka í keppninni var góð þetta árið. Alls tóku þátt í keppninni 289 nemendur úr 14 skólum. Úr Árbæjarskóla mættu 54 og eiga þeir allir sem einn hrós skilið fyrir þátttöku sína.
Ekki þarf að minna á mikilvægi stærðfræðinnar í tæknivæddu samfélagi nútímans sem grundvöll framfara og nýjunga fyrir utan að vera með skemmtilegri námsgreinum og er von að keppnin hafi glætt áhuga fleiri en þeirra sem þátt tóku í henni núna.
Efstar á blaði nemenda Árbæjarskóla voru þær Laufey Borgþórsdóttir og Sólveig Bjarnadóttir úr 9. K.V. en þær voru jafnar í 7. – 8. sæti. Er þeim hér með óskað til hamingju með árangur sinn um leið og þær sem og allir hinir sem mættu í keppnina eru hvattir til að stefna að enn betri árangri næst.
19.3.2010
Sigur, nema hvað?
Spurningalið Árbæjarskóla kom, sá og sigraði í átta liða úrslitum spurningakeppni
grunnskóla Reykjavíkur, Nema hvað. Viðureignin fór fram fimmtudaginn 18. mars í Breiðholtsskóla og fóru leikar þannig að lið Árbæjarskóla fékk 24 stig gegn 12 stigum Borgarskóla. Staðan eftir hraðaspurningar var 10 stig gegn 6 okkar liði í vil og jókst munurinn smám saman er leið á keppnina. Liðin voru dyggilega studd af áhorfendum sem fjölmenntu og héldu uppi góðri stemningu. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til þess að mæta á undanúrslit keppninnar enda munar um góðan stuðning áhorfenda.
16.3.2010
Nema hvað
Næstkomandi fimmtudag mun Árbæjarskóli keppa í 8 liða úrslitum Nema hvað,
spurningakeppni grunnskólanna. Eins og allir vita unnu fulltrúar skólans glæsilega sigra bæði á Norðlingaskóla og Breiðholtsskóla og nú er röðin komin að Borgarskóla. Keppnin hefst klukkan 20:00 og fer fram í Breiðholtsskóla. Rútur leggja af stað klukkan 19:30 frá Árbæjarskóla. Þeir sem vilja styðja við bakið á okkar frábæra liði þurfa að skrá sig á skrifstofu skólans. Frestur til að skrá sig rennur út fyrir hádegi næstkomandi miðvikudag.
10.3.2010
Góð þátttaka í stærðfræðikeppni
Þriðjudaginn 9. mars mættu 54 nemendur úr unglingadeild Árbæjarskóla í
Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur 2010 sem haldin var í Menntaskólanum í Reykjavík. Rúmlega 300 keppendur mættu til leiks hvaðanæva af höfuðborgarsvæðinu og leystu margvíslegar stærðfræðiþrautir. Hér á eftir fer ein þraut. Geturðu leyst hana?
Meðalaldur ömmu, afa og sjö barnabarna þeirra er 28 ár. Meðalaldur barnabarnanna 7 er 15 ár. Amma er þrem árum yngri en afi. Hvað er hann gamall?
Tilgangur keppninnar er m.a. að efla þátttöku og áhuga nemenda á stærðfræði. Nemendum Árbæjarskóla hefur gengið vel í keppninni undangengin ár. Afhending viðurkenninga og verðlauna fer fram sunnudaginn 21. mars næstkomandi.
9.3.2010
Viðhorf foreldra
Skólinn hefur fengið í hendur nýja skýrslu um viðhorf foreldra nemenda í Árbæjarskóla. Menntasvið Reykjavíkur stendur árlega fyrir símakönnun og eru niðurstöðurnar birtar í heild sinni hér á síðunni undir Mat á skólastarfi - Foreldrakannanir. Einnig getið þið opnað skýrslun hér. Til gamans birtum við skemmtilega mynd úr skýrslunni um notkun foreldra á Mentor. Hér eru foreldrar og starfsfólk greinilega að nýta Mentor meira en gengur og gerist í öðrum skólum í borginni.

5.3.2010
Árshátíð unglingastigs
Miðvikudaginn, 3. mars, var haldin árshátíð unglingadeildar skólans. Í tilefni dagsins var
breytt út af hefðbundinni kennslu. Nemendur mættu í ýmsum búningum og kepptu bekkjardeildir í margvíslegum þrautum sem kennarar skólans höfðu skipulagt. Fulltrúar bekkja reyndu sig m.a. í pappírskúlukasti, armbeygjum, spurningakeppni og köngulóargöngu. Því næst gengu nemendur og kennarar til Fylkishallarinnar og öttu kappi í knattspyrnu og kapphlaupi. Unglingarnir báru sigur úr býtum þrátt fyrir harða samkeppni lærimeistaranna. Um kvöldið mættu svo nemendur prúðbúnir og nutu veitinga sem bornar voru fram af foreldrum. Á meðan borðhaldi stóð voru skemmtiatriði sem náðu hámarki með sýningu á, Kennaragríni Árbæjarskóla 2010 þar sem gert var grín af starfsliði skólans. Að loknu borðhaldi hófst dansleikur og var dansað fram til 11:30. Dagurinn tókst með ágætum og viljum við í fréttahópnum óska skipuleggjendum, foreldrum og gestum árshátíðarinnar til hamingju með vel heppnaðan dag. Sjá fleiri myndir HÉR.
26.2.2010
Sigur í undankeppni Nema hvað
Fimmtudaginn 25. febrúar gerði spurningalið Árbæjarskóla sér lítið fyrir og tryggði sér
sæti í átta liða úrslitum, Nema hvað, spurningakeppni grunnskóla Reykjavíkur. Fyrri viðureign liðsins var gegn Norðlingaskóla og fóru leikar þannig að lið Árbæjarskóla sló stigamet keppninnar í ár og fékk 26 stig gegn 6 stigum andstæðinganna. Úrslitaviðureignin var bráðspennandi en í henni sigraði Árbæjarskóli Breiðholtsskóla með 24 stigum gegn 22 og réðust úrslitin í bráðabana. Undanúrslitin verða háð dagana 17. – 18. mars og eru nemendur hvattir til þess að styðja við liðið sem er sérlega sterkt í ár.
26.2.2010
Skólahreysti
Riðill Árbæjarskóla í skólahreysti fór fram í gær. Sextán skólar mættu til keppni og var riðill Árbæjarskóla sennilega sá fjölmennasti í sögu keppninnar. Lið skólans var skipað þeim Jóhannesi og Gísla úr 10. bekk og þeim Helgu Kristínu og Láru Sif úr 8.bekk. Þessir flottu krakkar gerðu það sem til var ætlast af þeim og meira til. Gísli varð í öðru sæti í upphífingum og fimmta sæti í dýfum. Lára varð í sjönda sæti í hreystigreip en vann armbeygjukeppnina glæsilega. Helga og Jóhannes lentu síðan í þriðja til fjórða sæti í hraðabrautinni á frábærum tíma, 2.33 mínútum ásamt öðrum skóla. Sigurtíminn var 2.29 og voru tveir skólar jafnir á þeim tíma.
Ölduselsskóli vann riðilinn en Árbæjarskóli lenti í þriðja sæti, aðeins 0,5 stigum á eftir skólanum í öðru sæti. Efsta liðið fer áfram í hverjum riðli en minna má á að tvö sæti eru enn laus í lokakeppninni og því ekki öll nótt úti um að skólinn okkar komist þangað. Óhætt er að segja að keppendur okkar hafi staðið sig frábærlega þrátt fyrir spennuna og ekki má gleyma því að stelpurnar eru enn í 8.bekk og eiga því mikla möguleika á því að vera með tvö næstu árin ef þær halda áfram á sömu braut.
Æfingahópurinn allur á þakkir skilið fyrir glæsilegan árangur en liðið var valið á síðustu stundu og því allt eins sennilegt að í skólanum sé að finna fleiri nemendur sem hefðu án efa einnig staðið sig frábærlega í þessari hörðu keppni.
Árangur keppenda er þó ekki það eina sem vert er að minnast á því hið frábæra stuðningsmannalið skólans fylgdi keppendum okkar eins og skugginn og var það lið eins og oft áður langmest áberandi hópur stuðningsliðanna en kom þó fram af prúðmennsku og virðingu. Vöktu stuðningsmennirnir svo mikla athygli að sjónvarp allra landsmanna hefur ákveðið að sækja þá heim og spyrjast fyrir um hverju það sæti að nemendur Árbæjarskóla eru alltaf í svona miklu stuði þótt Hemmi Gunn sé hvergi á svæðinu. Sjá fleiri myndir HÉR.


24.2.2010
Nema hvað?
Fyrsta umferð Spurningakeppni grunnskólanna fer nú fram í þessari viku og mun
Árbæjarskóli keppa á morgun, fimmtudaginn 25. febrúar.
Keppnin fer fram í Breiðholtsskóla og hefst klukkan 20:00.
Rútur fara frá Árbæjarskóla klukkan 19:30 og er ráðgert að þær verði komnar til baka um klukkan 22:00. Þeir sem hafa áhuga á að mæta og hvetja liðið okkar áfram skulu skrá sig á sérstakan mætingarlista á skrifstofu skólans fyrir klukkan 13: 00.
Þau sem keppa fyrir hönd skólans eru Atli Freyr Þorvaldsson í 9 KV, Auður Arna Sigurðardóttir í 8. MS og Sólveig Bjarnadóttir í 9. KV.
Styðjum við bakið á þeim.
Gangi ykkur sem best krakkar!!!
24.2.2010
Til hamingju 9. KV
Árbæjarskóli kemst áfram í BEST – stærðfræðikeppninni!
9. KV er einn af ellefu bekkjum sem komust áfram í undanúrslit og lokakeppnina í BEST
stærðfræðikeppninni sem fram fer í Reykjavík dagana 20. -21. apríl n.k. Að baki eru þrautaverkefni sem voru unnin í tveimur lotum. Í framhaldinu er bekkjarverkefni sem bekkurinn vinnur en þemað í ár er stærðfræði og orka. Bekkurinn velur síðan tvær stúlkur og tvo drengi sem sína fulltrúa í keppnina. Við óskum 9. KV góðs gengis og skemmtunar í því ferli sem framundan er.
24.2.2010
Skólahreysti 2010
Eftir strangar æfingar úrtökuhóps hefur verið valið í skólalið Árbæjarskóla sem tekur þátt
í Skólahreysti 2010. Liðið skipa Lára Sif Jónsdóttir(8. MS), Helga Kristín Ingólfsdóttir(8. ÞB), Jóhannes Árni Ólafsson (10. ÁB) og Gísli Björnsson (10. RH). Staðgenglar þeirra verða Guðrún Margrét Þórisdóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir, Hákon Ingi Jónsson og Jóhannes Gauti Óttarsson. Keppnin fer fram á morgun, fimmtudaginn 25. febrúar, og munu rútur leggja af stað frá skólanum klukkan 15:15. Nemendur eru hvattir til þess að skrá sig í ferðina á skrifstofu skólans en ferðin kostar ekkert. Mætum og hvetjum okkar fólk til sigurs.
24.2.2010
Skólahreysti 2010
Nú stendur undirbúningur sem hæst fyrir skólahreysti sem haldin verður fimmtudaginn 25. febrúar í íþróttahúsinu Austurbergi. Krakkarnir hafa lagt ómælda vinnu á sig og
greinilegt að mikill metnaður er hjá þeim til þess að standa sig vel. Jóhanna íþróttakennari og Raggi stærðfræðikennari fara fyrir hópnum með fjölbreyttum, krefjandi en jafnframt skemmtilegum æfingum. Keppt verður í þremur riðlum og er Árbæjarskóli í riðli með skólum frá Breiðholti, Grafarvogi, Grafaholti og Norðlingaholti. Flautað verður til leiks kl.16:00. Nú er um að gera fyrir alla þá sem vettlingi geta valdið að taka þennan dag frá og fjölmenna í Austurbergið.
23.2.2010
Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur 2010
Þriðjudaginn 9. mars kl. 15:30-17:00 er nemendum úr 8., 9. og 10. bekk boðið að taka þátt í stærðfræðikeppni í Menntaskólanum í Reykjavík.
Tilgangur með þessari keppni er að auka samstarf við grunnskóla og efla áhuga nemenda á stærðfræði en þessi keppni hefur fengið afar jákvæðar undirtektir og hefur hún skipað sér fastan sess í skólastarfinu.
Til gamans má geta þess að undanfarin ár hafa nemendur úr Árbæjarskóla náð mjög góðum árangri og raðað sér í mörg af efstu sætunum.
Skráning fer fram hjá stærðfræðikennurum vikuna 22. – 26. febrúar.
Nánari upplýsingar ásamt verkefnum má nálgast á heimasíðu skólans mr.is.
17.2.2010
5. bekkur gerir víðreist
Nemendum 5. bekkja Árbæjarskóla var boðið í Borgarleikhúsið föstudaginn 12. febrúar í síðustu viku að sjá leikritið Bláa gullið sem er trúðleikur er fjallar á skemmtilegan hátt um helstu auðlind okkar Íslendinga, vatnið. Sýningin sem var í boði Orkuveitunnar var fyndin og skemmtileg og nemendurnir höfðu mjög gaman af henni. 
Síðan má geta þess að miðvikudaginn 27. janúar. sl. fóru nemendur 5. bekkja Árbæjarskóla gangandi í heimsókn í Mjólkursamsöluna. Bekkirnir fengu hvor sinn leiðsögumanninn sem fór með þeim um fyrirtækið og sýndi þeim ýmsa þætti framleiðslunnar auk þess að skoða minjasafnið sem þar er. Nemendur skoðuðu pökkunarsalinn, stóra kælinn þar sem vörubílarnir koma til að sækja vörurnar, ísgerðina og þeir fóru einnig inn í -30°C frost frystigeymslunnar og varð engum meint af. Heimsókninni lauk með því að Bjarni töframaður steig fram og skemmti börnunum með töfrabrögðum. Þar á eftir settust börnin niður og gæddu sér á ískaldri mjólk, ljúffengum kleinum og eplum. Í eftirrétt fengu þau síðan íspinna. Í salnum þar sem þau snæddu blasti við þeim ótilgreindur fjöldi kókómjólkurferna. Áttu þau til gamans að geta upp á fjölda þeirra. Þau spáðu mikið í þessa þraut og beittu allri sinni fjölþættu kunnáttu til að finna svarið. Öll börnin fengu síðan að gjöf sundpoka og héldu heim eftir fróðlega og skemmtilega stund.
16.2.2010
Starfsdagur - Vetrarleyfi
Miðvikudaginn 17. febrúar er starfsdagur í Árbæjarskóla, fimmtudaginn 18. febrúar og föstudaginn 19. febrúar er vetrarleyfi. Skristofa skólans verður lokuð vetrarleyfisdagana en opin frá kl. 8:00 til 16:00 á starfsdeginum.
Kennsla hefst svo aftur samkv. stundaskrá mánudaginn 22. febrúar.
10.2.2010
Kökusala 10. bekkinga
3.2.2010
Námsval veturinn 2010-2011
Námsráðgjafar skólans hafa kynnt fyrir nemendum í 7., 8. og 9. bekk námsval skólans
fyrir skólaárið 2010-2011.
Valbók skólans og umsóknareyðublað er að finna hægra megin á heimasíðu skólans undir fyrirsögninni áhugavert efni. Skilafrestur er til 12. febrúar 2010
Námsvalið verður kynnt forráðamönnum á síðdegisfundi í hátíðarsal skólans í dag miðvikudaginn 3. febrúar kl. 17.00
Vonumst til að sjá ykkur öll.
Guðrún Þóra og Linda, námsráðgjafar Árbæjarskóla
29.1.2010
Kynning á framhaldsnámi
Fimmtudaginn 28. janúar var haldin kynning á framhaldsnámi fyrir nemendur og foreldra 9. og 10. bekkinga í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti. Kynningin fór fram í nýjum sal Fjölbrautarskólans í Breiðholti. Fulltrúar 11 framhaldsskóla af
höfuðborgarsvæðinu komu, kynntu námsframboð sitt og ræddu við nemendur og foreldra. Kynningin tókst ákaflega vel og aðsókn var mjög góð. Flestir framhaldsskólar ætla að hafa opin hús fyrir nemendur og forráðamenn þeirra og munu námsráðgjafar senda upplýsingar um dagsetningar í tölvupósti til forráðamanna.
28.1.2010
Danskur farandkennari í Árbæjarskóla
Daninn Lone Karstensen hefur verið hjá okkur í janúarmánuði og kennt
nemendum dönsku. Lone er frá Kaupmannahöfn og er hér á Íslandi í eitt ár til að styðja við dönskukennsluna. Hún hefur heimsótt alla 7. og 10. bekki skólans og komið inn með skemmtileg og áhugaverð verkefni. Að sjálfsögðu hefur hún bara talað dönsku, þannig að nemendur hafa bætt miklu við sig bæði í tali og hlustun. Tak for besøget, Lone.
27.1.2010
Nemendakynning í 3.ÁÞ


26.1.2010
Ísland - Russland.
26.1.2010
Framhaldsskólakynning 28. janúar kl. 17:30 - 20:00 í Fjölbrautarskóla Breiðholts
Kynningin er fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra þeirra. Nemendur í 9. bekk og foreldrar þeirra eru einnig velkomnir á kynninguna. Flestir framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu verða á staðnum og kynna sinn skóla, námsframboð og inntökuskilyrði.
Mikilvægt er að nemendur í 10. bekk og foreldrar þeirra mæti og kynni sér það nám sem er í boði þar sem nú styttist í að nemendur þurfi að ákveða í hvaða framhaldsskóla þeir vilja fara.
22.1.2010
Þorradagurinn
Í dag, bóndadag 22. janúar, voru nemendur yngri deilda Árbæjarskóla hvattir til að mæta í hefðbundnum íslenskum klæðnaði eins og lopapeysum og ullarsokkum auk þess að hafa með sér þjóðlegt og gott nesti líkt og skyr, flatkökur, harðfisk eða hákarl. Margir nemendur brugðust við þessu og hér ber að líta skemmtilegar myndir sem teknar voru í morgun.

13.1.2010
Hljóðbók - góður kostur!
Vakin er athygli á því að nú geta nemendur og forráðamenn þeirra nálgast hljóðbækur
og fræðslumyndir á vef Námsgagnastofnunar www.nams.is og halað þeim niður án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða mp3 spilara.
Hljóðbækur gagnast ekki aðeins nemendum sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða heldur einnig hverjum þeim sem áhuga hefur á því að hlusta á vandaðan upplestur texta. Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika. Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.
Hljóðbækur verða áfram til útláns á bókasafni skólans fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvu.
12.1.2010
Íþróttahátíð
Í dag var haldin íþróttahátíð í 1. – 4. bekk. Árgöngum var blandað saman og
mynduðu hópa sem fóru á milli stöðva. Hóparnir báru nöfn ávaxta og grænmetis og ferðuðust hnetur, tómatar og fíkjur ásamt vinum sínum um skólann. Í boði voru hinir ýmsu leikir s.s. Tarsanleikur í íþróttahúsinu, dans í stóra salnum, slökun, spil og andlitsmálning svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin heppnaðist einstaklega vel og skemmtu ungir sem aldnir sér konunglega. Meðfylgjandi eru myndir frá deginum.
11.1.2010
Skólastarf á nýju ári
Skólastarf í Árbæjarskóla hófst að nýju að afloknu jólaleyfi í síðustu viku. Allir mættu úthvíldir til leiks og einkenndist vikan af lífi og fjöri. Skákkennslan hefst í þessari viku og kórarnir hefja einnig æfingar. Á þriðjudaginn er íþróttadagur hjá nemendum í 1. – 4. bekk. Nemendum er skipt í hópa sem færast milli stöðva allan morguninn þar sem nemendum gefst t.d. kostur á að dansa, reyna fyrir sér í Tarsanleik og spila. Á föstudaginn er síðan foreldradagur þar sem nemendur mæta til viðtals við umsjónarkennara ásamt forráðamönnum sínum.




















