30.9.2009
Forvarnardagurinn 30. september 2009
Í ár er fjórða árið sem Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta
Íslands. Dagurinn er haldinn í samvinnu við ýmsa aðila sem koma, með einum
eða öðrum hætti, að málum unglinga. Dagskrá fer fram í 9. bekkjum grunnskóla
um land allt þar sem nemendur eruð beðin um að taka virkan þátt í umræðum um
forvarnir gegn fíkniefnum.
30.9.2009
Ólympíustærðfræði
“Stærðfræði er skemmtileg”
Námskeið byrja í næstu viku.
Við verðum í samvinnu við Háskólinn í Reykjavík um námskeið í Ólympíustærðfræði í vetur sem við bjóðum krökkum hér í skólanum að taka þátt í.
Ólympíustærðfræði eru námskeið þar sem leystar eru þrautir sem reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og ögrandi verkefni fyrir krakka sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er á ánægju af stærðfræði, innsæi og frumleika í lausnum á þrautum. Áhersla er lögð á samvinnu á æfingum.
Markmið Ólympíustærðfræði er...
* að örva áhuga á stærðfræði
* að kynna mikilvæg stærðfræðileg hugtök
* að kenna megin aðferðir við þrautalausnir
* að þróa stærðfræðilegan sveigjanleika í þrautalausnum
* að styrkja stærðfræðilegt innsæi
* að örva sköpun og hugvit í stærðfræði
* að veita ánægju og spennuna af því að takast á við ögrandi verkefni
Ólympíustærðfræðiverkefnin eru fyrir krakka í 5.-6. bekk annars vegar og 7.-8. bekk hins vegar. Hóparnir hittist einu sinni í viku í klukkutíma í senn í skólanum. Reglulega er svo keppt og í vor er svo verðlaunaafhending þar sem veitt eru verðlaun eftir frammistöðu einstaklinga og liða.
Námskeiðið stendur í 20 vikur og kosta 2.000 kr.
Æfingar og keppnir eru hér í skólanum vikulega fyrir og eftir jól á eftirfarandi tímum.
Yngra ár (5.-6. bekkur)
Miðvikudagur klukkan 14:45
Eldra ár (7.-8. bekkur)
Þriðjudagur klukkan 14:45
Skráning og nánari upplýsingar á www.hr.is/os
Allir sem hafa áhuga á að prófa eru velkomnir í prufutíma.
25.9.2009
Rósaball í Árbæjarskóla
Hið árlega Rósaball Árbæjarskóla var haldið með pompi og prakt fimmtudagskvöldið 24. september. Þar buðu eldri nemendur unglingadeildar 8.bekkinga velkomna í skólann með því að sækja þá heim og bjóða þeim á dansleik sem haldinn var í hátíðarsal skólans. Prúðbúnir nemendur streymdu í skólann á fjölbreyttum farartækjum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Eins og alltaf voru nemendur til fyrirmyndar, kurteisir, skemmtilegir og sönn ánægja að hafa fengið að vera með þeim á þessu frábæra kvöldi.
23.9.2009
Rósaball
Fimmtudaginn 24. sept. fer hið árlega rósaball Árbæjarskóla fram á sal skólans.
Undanfarin ár hefur aðsókn verið góð og verður þetta ár engin undantekning frá því. Undirbúningur stendur nú sem hæst og hafa nemendur og starfsfólk skólans lagt á sig ómælda vinnu til þess að gera kvöldið sem eftirminnilegast.
Það eru 10. bekkingar sem standa fyrir ballinu og bjóða 8. bekkinga velkomna í unglingadeild með rós um leið og þeir síðarnefndu eru sóttir á ballið.
Hleypt verður inn í salinn kl. 19:30 en ballið sjálft byrjar ekki fyrr en 20:30 og er gert ráð fyrir að gleðinni ljúki 23:30. Rútur bíða nemenda þegar þeir koma út og munu þær fara ákveðinn hring um Árbæinn og skila nemendum af sér.
Verð inn á ballið er 300 kr. fyrir einstaka nemendur en 500 kr. fyrir parið. Sjoppan verður opin sem fyrr.
Nemendur eru minntir á að fyrstu tvær kennslustundirnar ( kl. 8:10 - 9:30 ) á föstudeginum falla niður.
21.9.2009
Samræmd próf
Síðastliðna viku fóru fram samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk við skóla landsins. Könnuð var geta nemenda í ensku, íslensku og stærðfræði.
Prófin voru með nýju sniði þannig að aukin áhersla var lögð á lesskilning í öllum þessum greinum.Niðurstöðurnar verða sendar til grunnskóla og nemenda og munu nýtast sem stöðumat í viðkomandi greinum.
16.9.2009
Nemendaráð 2009
11.9.2009
Uppeldisnámskeið
Kæru foreldrar / forráðamenn
Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts fyrirhugar að halda uppeldisnámskeið í október og nóvember nk. ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og heitir „SOS!-hjálp fyrir foreldra“. Þetta er sex vikna námskeið sem sálfræðingurinn Lynn Clark þróaði og hefur verið haldið reglulega, í nokkur ár, á Íslandi.
8.9.2009
Skólapúlsinn
Skólapúlsinn er sjálfsmatsverkefni sem Árbæjarskóli mun taka þátt í nú í vetur og næstu vetur.
Skólapúlsinn er vefkerfi sem miðar að því að veita skólastjórnendum stöðugan aðgang að nýjum upplýsingum sem aflað er mánaðarlega um þætti sem tengjast virkni nemenda í 6. – 10. bekk og líðan þeirra í skólanum.
Samræmdar mælingar . Góð líðan, virkni og skóla- og bekkjarandi eru ekki síður en einkunnir mikilvæg markmið í skólastarfi. Með skólapúlsinum er í fyrsta sinn hægt að vinna með samræmdar upplýsingar um líðan nemenda á sama hátt og niðurstöður samræmdra prófa. Hér á heimasíðunni munum við birta reglulega niðurstöður skólans miðað við landsmeðaltal og svæði. Fylgist með og skoðið gögn undir flipanum Mat á skólastarfi hér til vinstri. Nánar um verkefnið á heimasíðunni: http://skolapulsinn.is/um/
3.9.2009
Hljóðbækur á vef Námsgagnastofnunar
Hljóðbók er lesin útgáfa af námsbók. Nú er unnt að nálgast hljóðbækur sem Námsgagnastofnun hefur gefið út á vefsíðunni www.nams.is og hlaða þeim niður til hlustunar án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða mp3 spilara. Hljóðbækur gagnast ekki aðeins nemendum sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða heldur einnig hverjum þeim sem áhuga hefur á því að hlusta á vandaðan upplestur texta. Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika. Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.
Hljóðbækur verða áfram til útláns á bókasafni skólans fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvu.
2.9.2009
Framboðsfundur í Tíunni
Starfsemi Tíunnar er hafin af fullum krafti. Nemendur eru hvattir til þess að taka þátt í
þroskandi félagsstarfi sem þar er í boði. Í kvöld (miðvikudag 2. sept.) klukkan 19:00-22:00 verður framboðsfundur þar sem frambjóðendur til Tíuráðs og DJ-ráðs fá tækifari til þess að sannfæra okkur um það hvers vegna við ættum að kjósa þá. Að sjálfsögðu ættu sem flestir að mæta því hvert atkvæði telur. Næstkomandi föstudag (4. sept.) fara kosningar fram og haldið verður upp á lok þeirra með balli sem hefst stundvíslega klukkan 20:00.
2.9.2009
Íþróttaskóli Árbæjarskóla
Nú í vetur verður starfræktur Íþróttaskóli Fylkis fyrir börn í fyrsta bekk
Árbæjarskóla.
Skólinn er styrktur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og er því ókeypis.
Skólinn hefst 3. september og verður tvisvar sinnum í viku, þ.e. á fimmtudögum og föstudögum. Vegna mikillar aðsóknar þarf að skipta nemendum í tvo hópa og mun annar hópurinn vera kl. 13:50-14:30 en hinn kl. 14:30-15:10.
Upplýsingar um hópaskiptinguna munu liggja fyrir 2. september og verða þær sendar til foreldra með tölvupósti.
Skólinn helst í hendur við skóladagtal Árbæjarskóla hvað varðar frí. Kennt er í íþróttasal skólans og skulu þátttakendur taka með sér íþróttaföt (bol, stuttbuxur eða síðar íþróttabuxur). Íþróttaskór verða ekki leyfðir. Ekki verður farið í sturtu eftir tímana.
Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem mismunandi íþróttagreinar verða kynntar fyrir nemendum.
Kennari er Bergþór Stefánsson s: 695-0917.
Umsjónarmaður Íþróttaskóla Árbæjarskóla er Hörður Guðjónsson, íþróttafulltrúi Fylkis:
S: 567-6467













