27.1.2009
Kynning á framhaldsnámi
Síðastliðið miðvikudagskvöld var haldin kynning á framhaldsnámi fyrir nemendur og
foreldra 9. og 10. bekkinga í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti. Kynningin fór fram í FB og mættu þar fulltrúar 12 framhaldsskóla og kynntu sitt með miklum myndarbrag. Kynningin tókst ákaflega vel og er talið að vel á annað þúsund manns hafi mætt. Flestir framhaldsskólar munu á vormánuðum hafa opin hús fyrir nemendur og forráðamenn þeirra. Námsráðgjafar munu senda upplýsingar um opin hús í tölvupóst til forráðamanna.
23.1.2009
BEST – Stærðfræðikeppnin.
Seinni lotan í hinni samnorrænu stærðfræðikeppni 9. bekkinga fór fram í Árbæjarskóla í morgun.
Leystar voru átta þrautir og alltaf er jafn gaman að sjá þegar krakkarnir eru komnir á flug og eru að leggja sig öll fram við lausnirnar. Stundum þurfa þau að sýna bekkjarfélögum sínum hvernig þau fóru að og þurfa þá virkilega að rökstyðja mál sitt. Lausnirnar voru svo senda út til Noregs þar sem þær eru yfir farnar og verður spennandi að sjá hvort Árbæjarskóli muni eiga fulltrúa í úrslitunum hér á Íslandi eins og undanfarin ár.
21.1.2009
Niðurstöður úr könnun á foreldradegi.
Hér með þökkum við fyrir mjög góða þátttöku í viðhorfskönnun sem fram fór á meðal forráðamanna á foreldradeginum, 16. janúar sl. Var þetta í þriðja sinn frá því 2005 sem könnun er gerð á viðhorfi forráðamanna gagnvart skólastarfi Árbæjarskóla. Hér má skoða niðurstöður í heild sinni, jafnframt sem hægt er að nálgast niðurstöður úr eldri könnunum á heimasíðunni undir Mat á skólastarfi.
Með þakklæti fyrir góðar viðtökur,
Stjórn og starfsfólk Árbæjarskóla
21.1.2009
ÞAÐ GENGUR BETUR NÆST!
Árbæjarskóli mætti sterkur til leiks í Ársel í gær, þriðjudaginn 20. janúar, í annarri umferð Nema hvað. Mótherjarnir komu úr Hólabrekkuskóla, en það lið stóð sig feikilega vel í
fyrstu umferð keppninnar. Árbæjarskóli sat hjá og mætti því fyrst nú í seinni umferð. Það var því ljóst að baráttan yrði erfið gegn svo öflugu liði. Leikar fóru 15-22 Hólabrekkuskóla í vil.
Afgerandi forusta
Árbæjarskóli kaus að bíða meðan á Hólabrekkuskóli reið á vaðið í hraðaspurningum. Liðið uppskar strax 14 stig sem verður að teljast frábær árangur. Árbæjarskóli stóð sig líka með eindæmum vel en náði þó ekki með tærnar þar sem Hólabrekka var með hælana. Niðurstaðan var 10 stig fyrir okkar fólk. Jöfn og spennandi keppni fylgdi í kjölfarið í vísbendingarspurningum og leik. Stórleikarinn Gunnar Ólafsson 10KJ stóð sig vel í túkun sinni á orðinu "vekjaraklukka" sem Árbæingar lásu vel í og tryggðu sér 2 stig. Þeir unnu hratt upp forskot Hólabrekku og að lokinni þessari umferð stóðu leikar 15-16 Hólabrekku vil og spennan í hámarki. Í valspurningum stungu þeir hins vegar okkar fólk af svo að ekki sást til sólar. Við stóðum í stað með okkar 15 stig en Hólabrekka bætti við sig 6 í viðót. Niðurstaðan var afar verðskuldaður sigur öflugs liðs Hólabrekkuskóla sem við hljótum öll að óska góðs gengis í keppninni. Hægt er að fylgjast með úrslitum á vef ÍTR www.itr.is
Nýr hópur þreytir frumraun sína
Lið Árbæjarskóla skipuðu þau Sólveig og Atli úr 8KV og Hafsteinn og Bjarki úr 10PH. Voru þau öll að taka þátt í keppninni í fyrsta skipti. Góður andi hefur ríkt á æfingum og liðið tekið miklum framförum í vetur. Það er ljóst að þau Atli og Sólveig munu mæta sterk til leiks í Nema hvað að ári. Hafsteini og Bjarka er þökkuð góð þátttaka en þeir útskrifast í vor og verða því ekki með aftur.
15.1.2009
Kynning á framhaldsnámi
Náms- og starfsráðgjafar í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti standa að sameiginlegri kynningu á framhaldsskólum og framhaldsnámi. Kynningin er hugsuð sem tækifæri fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og forráðamenn þeirra, til að kynna sér á einum stað það framhaldsnám sem í boði er á höfuðborgarsvæðinu. Slík kynning fór í fyrsta skipti fram í fyrra og þótti takast vel.
Fyrirkomulagið verður með þeim hætti, að hver framhaldsskóli verður með kynningarsvæði og fulltrúa á staðnum. Nemendum og forráðamönnum þeirra gefst þannig tækifæri til að rölta á milli svæða og ræða við fulltrúana og kynna sér hvað hver skóli hefur upp á að bjóða.
Framhaldsskólarnir sem verða með kynningarsvæði á staðnum eru:
Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Tækniskólinn, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn Hraðbraut, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Sund og Verslunarskóli Íslands.
Kynningin verður miðvikudaginn 21. janúar n.k.
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti frá kl. 17:00 – 20:00.
Með kveðju frá náms- og starfsráðgjöfum í skólahverfi 3.












