Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

17.12.2009

Prófalokum fagnað

Nemendur og kennarar héldu upp á prófalok í dag, fimmtudaginn 17. desember. Farið var í Árbæjarkirkju þar sem jólaboðskapurinn var fluttur og jólalögur sungin. Flutt voru skemmtiatriði á sal skólans þar sem fulltrúar bekkjardeilda stigu fram og sungu eða spiluðu á hljóðfæri svo dæmi séu tekin. Stuttmyndir voru sýndar frá haustönn sem unnar voru  af nemendum skólans við góðar undirtektir.

17.12.200917122009

17.12.2009

Jólatónleikar í Árbæjarkirkju

Hinir árlegu jólatónleikar skólakóra Árbæjarskóla voru haldnir í Árbæjarkirkju í gær. Kór 17.12.2009 Krakkarnir stóðu sig með stakri prýði og gaman að sjá hvað margir mættu til að hlýða á söng þeirra.

15.12.2009

Jólaskemmtanir

Jólaskemmtun í 5. – 7. bekk  17. desember

Fyrirkomulag  jólaskemmtunar í Árbæjarskóla í 5. – 7. bekk verður sem hér segir:

Kl. 16:55 Nemendur mæta í heimastofu bekkjarins til umsjónarkennara.

Kl. 19:00 Jólaskemmtun lýkur.

Jólaskemmtanir 1. – 4. bekkjar 18. desember

Fyrirkomulag jólaskemmtana í Árbæjarskóla í 1. – 4. bekk verða sem hér segir:

Nemendur í 2. – 4. bekk

Kl. 9:45 Nemendur mæta í heimastofu bekkjarins til umsjónarkennara.

Kl. 11:15 Jólaskemmtun lýkur

Nemendur í 1. bekk og leikskólabörn frá Árborg og Rofaborg

Kl. 12:45 Nemendur mæta í heimastofu bekkjarins til umsjónarkennara.

Kl. 14:30 Jólaskemmtun lýkur

8.12.2009

Rauður dagur

Í dag 8.des var rauður dagur hjá starfsfólki og nemendum Árbæjarskóla. Alltaf gaman að brjóta hversdagsleikann aðeins upp. Langflestir voru með eitthvað rautt, frá Rauður dagur.jólasveinahúfum upp í allan jólasveinabúninginn. Manchester United, Liverpool og Arsenal treyjur nutu mikilla vinsælda einnig. Hér má sjá hluta af 8. MS í stærðfræðitíma. Þau voru að sjálfsögðu vel rauð enda með eindæmum flottir krakkar sem eru alltaf til í að vera með í því sem er í gangi í skólanum.

8.12.2009

Heimsókn

Það er virkilega gaman að því hvað gamlir nemendur er duglegir að koma í heimsókn til okkar. Við höfum fengið marga í haust og bara rétt áðan datt inn fríður hópur inn í Heimsóknstofu A-13 til mín en þau voru hér í skólanum í fyrra. Þau eru nú í MS, FB, MK og Borgó og sum voru nú búin í prófum en önnur áttu 1-2 próf eftir. Gaman að heyra í þessum krökkum hve vel þau bera Árbæjarskóla söguna og eru sammála um það að þau komi vel undirbúin inn í framhaldskólana. Við þökkum þeim fyrir komuna og vonumst til að sjá sem flest þeirra í framtíðinni.

RH.

7.12.2009

Best-stærðfræðikeppnin

Í síðustu viku tóku nokkrir 9.bekkir þátt í hinni árlegu Best stærðfræðikeppni. Hún fer Bestfram á öllum Norðurlöndunum og bekkurinn saman á leysa 8 þrautir. Það skapast oft skemmtilegar umræður þegar nemendur sýna bekkjarfélögum sínum hvernig þau komust að lausnunum.

Síðari hluti keppninnar fer fram fljótlega á næsta ári og þá komast nokkrir bekkir áfram í úrslit. Árbæjarskóli hefur átt fulltrúa þar mörg undanfarin ár.

3.12.2009

FULLVELDISDEGINUM FAGNAÐ

Þann 1. desember blésu nemendur unglingadeildar til fullveldisfagnaðar á sal skólans. Skólasöngurinn var fluttur af miklum myndarbrag en hann skipar orðið veglegan sess þegar nemendur koma saman. Tónlistarval skólans var með atriði og Guðrún Eiríksdóttir lék einleik á píanó.

Fullveldisávarp og menntaverðlaun.

Hildur Helga Jónsdóttir úr stjórn nemendaráðs flutti hið árlega fullveldisávarp Árbæjarskóla þar sem farið var yfir gildi 1. desember í fortíð og nútíð og þörfinni á að standa saman á erfiðum tímum. Ávarpið er hægt að nálgast hér. Pétur Holgeir Ragnarsson nemandi í 10. bekk tók við bókargjöf frá skólanum en hann var tilnefndur af skólanum til hinna árlegu íslenskuverðlauna Menntaráðs úr hópi nemenda í unglingadeild.

Örsögukeppnin

Það ríkir alltaf spenna þegar úrslit örsögukeppninnar eru tilkynnt en að þessu sinni bárust 143 sögur sem sýnir fádæma áhuga nemenda. Formaður dómnefndar var Guðný Ýr Jónsdóttir, íslenskufræðingur og fyrrverandi fagstjóri í íslensku við skólann. Valið var erfitt enda úr mörgum góðum sögum að velja. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin og lásu íslenskukennarar unglingadeildar upp verðlaunasögurnar. Fyrsta sætið hlaut Hildur Helga Jónsdóttir með söguna Brauð með sultu,  öðru sætinu deildu þær Jóhanna Elísa Skúladóttir og Helga Kristín Ingólfsdóttir með sögurnar Mér er alveg sama og Ég, um mig, frá mér, til mín og þriðja sætið féll í skaut Ragnhildar Söru Arnarsdóttur með söguna Pakkaflóð. Sögurnar er hægt að lesa hér. Þær eiga það allar sameiginlegt að vera afar áhrifamiklar og grípandi.

Æsispennandi keppni

Spurningalið Árbæjarskóla var kynnt til leiks en það skipa: Sólveig Bjarnadóttir, Atli Freyr Þorvaldsson og Auður Arna Sigurðardóttir. Þjálfari liðsins er Páll Guðmundsson. Það þreytti svo keppni við lið kennara skipað þeim Söru, Ragnari og Árna Sigurði. Liðin skildu jöfn eftir harða keppni sem endaði í framlengingu. Óhætt er að segja að skólinn væntir mikils af hinu unga liði sem er skipað nemendum úr 8. og 9.bekk. 

Frábær dagur

Óhætt er að segja að fullveldisdagurinn sé með hátíðlegri dögum og skipar sem slíkur veglegan sess í skólastarfinu. Hátíðleiki í bland við keppni, tónlist og upplestur brýtur upp hversdagsleikann í aðdraganda prófa. Það er alltaf skemmtilegt að fá að taka þátt í þessum degi.

1. des1. des 1

20.11.2009

List- og verkgreinasýning á Menntasviði, Fríkirkjuvegi 1

Dagana 20. nóvember – 4. desember stendur yfir sýninga á hluta af verkum  nemenda í 5. - 8. bekk sem þeir hafa unnið í  list- og verkgreinatímum síðastliðnar sjö vikur. Einnig eru til sýnis verk frá nemendum í valhópum á unglingastigi. Allir sem leið eiga í miðbæinn eru hvattir til að líta við og skoða.

List- og verkgreinakennarar.

List og verkList og verk 2

20.11.2009

Heimsókn afreksfólks

Þann 18. nóvember fengum við Hólmfríði Magnúsdóttur, landsliðskonu í knattspyrnu og atvinnumann og Sigurð Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfara kvenna í knattspyrnu í Heimsókn afreksfólksheimsókn. Hittu þau stelpur í 1. – 7. bekk . Sýnt var myndband af kvennalandsliðinu, Hólmfríður var spurð spjörunum úr um sín afrek og líf og Sigurður Ragnar hvatti stelpurnar til að prófa að æfa knattspyrnu. Þökkum við þessu afreksfólki kærlega fyrir skemmtilega heimsókn.

16.11.2009

Dagur íslenskrar tungu

Haldið var upp á dag íslenskrar tungu á grunn- og miðstigi. Nemendur hittust á sal skólans og nutu skemmtiatriða á borð við kórsöng, rapp, ljóðalestur og samsöng. Leiksólakrakkar úr Árborg og Rofaborg komu í heimsókn og tóku þátt í skemmtanahaldi og gleði með nemendum úr 1. bekk Árbæjarskóla. Nemendur 7. bekkjar fóru á Ársafn og lásu þjóðsögur í eins konar lestrarmaraþoni. Dagurinn tókst með ágætum og voru nemendur skólans sjálfum sér og skólanum til mikillar prýði. Dagur íslenskrar tunguDagur íslenskrar tungu 2

 

13.11.2009

Úr Snorra-Eddu

8. bekkir skólans hafa undanfarna viku verið að vinna að verkefni um norrænu goðin. Úr Snorra-EdduÞeir hafa lesið um uppruna þeirra og í kjölfarið teiknuðu þeir og lituðu myndir af goðum, ásum og jötnum sem þeir síðan hengdu upp innan skólans.

11.11.2009

ÁRBÆJARSKÓLI ÁFRAM Í SKREKK!

Árbæjarskóli kom sá og sigraði í forkeppni Skrekks sem haldin var í Borgarleikhúsinu Skrekkþriðjudagskvöldið 10. nóvember fyrir troðfullum sal áhorfenda þar sem appelsínugulur litur Árbæjar var mest áberandi. Stuðningshróp Árbæinga endurómuðu veggjanna á milli og gott ef titringurinn fannst ekki á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar sem er þar nálægt.

Bollywood á sviði Borgarleikhússins

Atriði Árbæjarskóla var í anda indverskra kvikmynda þar sem dans og hreyfing, gleði og skrautlegir búningar eru jafnan í forgrunni. Það var engu líkara en leikhópurinn hefði dvalið á Indlandi við æfingar síðasta mánuðinn, svo vel tókast krökkunum til í hlutverkum sínum. Hugað var að hverju smáatriði til að skapa rétta stemningu, allt frá tonni af brúnkukremi og skósvertu til litfagurra klæða, skrautmuna og velútsettra dansspora. Skrekk 2

Ótrúleg stemmning

Það var einmitt í mögnuðum dansatriðum sem sýningin náði sér best á flug ekki síst í lokin þar sem allur hópurinn steig dansinn saman og fullkomnaði þann góða stíganda sem einkennt hafði atriðið fram að því. Annars var það leikgleðin, grínið og glensið sem skein af hverju andliti sem ekki síst fangaði áhorfendur og fékk salinn til að springa af fögnuði við lok atriðisins. Án efa hefur sá þáttur skilað sér vel til dómaranna sem komu víða að úr listageiranum að þessu sinni.

Leiksigur

Skrekkshópur Árbæjarskóla á heiður skilinn fyrir magnaða frammistöðu en ekki síst frábæra skemmtun sem lét engan ósnortinn sem í Borgarleikhúsinu var þetta kvöldið. Hópurinn stóð fyllilega undir væntingum og vel það. Hver veit nema leið sumra stjarnanna úr hópnum liggi til sjálfrar Bollywood  í náinni framtíð.

9.11.2009

51 mættu í Skólahreysti

Síðasta þriðjudag var auglýst eftir áhugasömum unglingum að prófa hraðabrautina fyrir SkólahreystiSkólahreysti 2010. Eins og menn muna var Árbæjarskóli með mesta hraðann í sínum riðli í fyrra. Í ár mættu hvorki fleiri né færri en 51 til að spreyta sig og nokkrir komust ekki vegna veikinda og annarra ástæðna. Þetta sýnir glöggt þvílíkur áhugi er fyrir þessari keppni. Margir sýndu snilldartakta og það er öruggt að það verður erfitt að velja liðið. En næsta fimmtudag verður prufa fyrir hreystigreip og armbeygjur hjá stelpunum og upphífingar og dýfur hjá strákum. Það fer fram nk. fimmtudag (12.nóv) í íþróttahúsinu okkar hér við Árbæjarskóla kl. 15.15

6.11.2009

Gullverðlaun í kumite

Jóhannes Gauti Óttarsson 10 ÁB fór með landsliðinu um síðustu helgi til Svíþjóðar og sigraði á Stockholm Open í flokki 14-15 ára, -70 kg flokki, í kumite sem er bardagahluti karate. Áður en hann hélt utan hafði hann tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í + 63 kg flokki 14-15 ára. Spennandi verður að fylgjast með Jóhannesi í framtíðinni og greinilegt að hér er efnilegur íþróttamaður á ferð.

Jóhannes 1

Jóhannes 2

4.11.2009

Rithöfundar í heimsókn

Þann 2. nóvember fengum við góða gesti til okkar.  Þeir Einar Kárason og Einar Már Einar Már og Einar KárasonGuðmundsson komu og hittu nemendur í  8. bekk. Yfirskrift heimsóknarinnar var,  Tveir ógeðslega frábærir.  Lesið var úr bókum,ljóð flutt og spjallað við nemendur. Þökkum við þessum frábæru rithöfundum fyrir  skemmtilega stund .

3.11.2009

Marítafræðsla í Árbæjarskóla

Þessa dagana fá nemendur í 7., 9. og 10. bekk forvarnarfræðslu á vegum Maríta á MaritasÍslandi. Fræðslan fyrir 7. bekk nefnist „Allir hinir mega það“ og fjallar um það að standast hópþrýsting.  Fræðslan fyrir 9. og 10. bekk "Hættu áður en þú byrjar", er um skaðsemi fíkniefna. Markmiðið með fræðslunni er að fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra. Mikilvægt er að börn og foreldrar þeirra ræði um þessi mál sín á milli. Því er nauðsynlegt að þau fái sömu fræðslu, þó að nálgun efnisins sé ólík á fundunum. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á http://www.marita.is

Fræðslan í Árbæjarskóla er dagana 2.-4. nóvember.

Miðvikudaginn 4.nóvember  verða haldnir foreldrafundir:

Kl. 18.00 fyrir foreldra nemenda í 7. bekk

Kl. 20.00 fyrir foreldra nemenda í 9. og  10. bekk

Foreldrar eru hvattir til að mæta á þessa fundi.

2.11.2009

Strákarnir fengu silfrið

Strákarnir mættu á laugardeginum og hófu leik með 5-0 og 7-1 sigri. Þeir kláruðu riðilinnStrákarnir fengu silfrið. sinn með fullu húsi stiga og komust í undanúrslit og léku þar gegn Hamraskóla. Þann leik kláruðu strákarnir nokkuð auðveldlega 2-0.

Þá var bara úrslitaleikurinn eftir. Þar var Réttarholtsskóli andstæðingurinn. Það lið var geysisterkt.  Réttó komst í 1-0 en Árbæingar jöfnuðu. Leikurinn var í nokkru jafnvægi en Réttó þó ívið betri og á síðustu 5 mínútunum náðu þeir að skora 2 mörk og urðu þar með grunnskólameistarar. En Árbæjarskóli lenti í 2.sæti sem er frábær árangur hjá flottu liði. Til hamingju með það strákar.

2.11.2009

Grunnskólamót 10 bekkjar – Stelpur

Stelpurnar mættu með á sunnudagsmorgun án unglingalandsliðmanna okkar. Engu að Grunnskólamót 10 bekkjar – Stelpursíður var þetta hörkulið og flottar stelpur. Vogaskóli mætti ekki til leiks og þar var því auðveldur sigur. Næst léku þær gegn Engjaskóla og unnu öruggan 2-0 sigur.

 Þá var bara úrslitaleikurinn í riðlinum við Foldaskóla eftir. Okkar stelpur áttu allan leikinn, voru með boltann 70% af leiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið. Það tókst Foldaskóla hins vegar einu sinni í einni af fjórum sóknum sínum í leiknum  og það dugði þeim í úrslitin en Árbæjarskóli hafði þar með lokið leik. En hörkuflott lið og áttu meira skilið. Svona er fótboltinn.

2.11.2009

Skólakór Árbæjarskóla

Eldri skólakórinn heimsótti eldri borgara að Hraunbæ 105 í gær á menningardögum KórÁrbæjar. Kórinn söng nokkur lög og var gerður góður rómur að söng hans.  Þetta var skemmtileg heimsókn og verður álíka heimsókn fljótlega endurtekinn. Kórinn vill þakka fyrir hlýlegar móttökur og hlakkar til að mæta á ný í desember.

30.10.2009

Uppákomur í Árbæjarskóla á menningardögum

Í dag verður opin æfing hjá yngri kór skólans í tilefni menningardaga í Árbænum. Forráðamenn og aðrir góðir gestir eru hjartanlega velkomnir. Æfingin hefst kl. 13:40 og stendur yfir í tæpa klukkustund.

Á morgun, laugardag, mun Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, vígja formlega sparkvöllinn við Árbæjarskóla sem var gjöf borgarinnar til skólans á 40 ára afmæli hans. Nemendur, forráðamenn og aðrir velunnar skólans eru hvattir til að mæta. Athöfnin hefst kl. 13:45 og að henni lokinni hefst skemmtidagskrá við Fylkishöllina.

30.10.2009

Mæting forráðamanna á foreldradögum

Hér má sjá samanburð á mætingum forráðamanna á foreldradögum í október frá því haustið 2006.

Nokkur atriði  vekja athygli. Sífellt fjölgar þeim foreldrum sem kjósa að mæta bæði í viðtal í skólanum og er það ánægjuleg þróun. Af þeim sem mæta einir í viðtal eru feður að sækja í sig veðrið, en mun algengara hefur verið að mæður mæti einar. Með góðum vilja er einnig hægt að sjá frávik á foreldradeginum í oktober 2008. Eins og allir vita var hrunið að skella á þá.  Á myndinni má sjá hlutfall allra mætinga.

súlurit

29.10.2009

Bangsadagur

Þriðjudaginn 27. október var bangsadagurinn í 1. – 4. bekk. Í tilefni þess dags fóru Bangsadagurinnbörnin í heimsókn á bókasafnið. Mánudaginn 26. október  fóru nemendur í 3. og 4. bekk með kennara sínum á bókasafnið og völdu bangsabók til lestrar í kennslustofu og skoðuðu bangsa í eigu safnsins. Á sjálfan bangsadaginn fóru  nemendur í 1. og 2. bekk í heimsókn á safnið og Jana bókasafnsfræðingurinn okkar las fyrir þau söguna Vertu ekki hræddur við myrkrið bangsi litli. Bangsar í eigu safnsins voru skoðaðir og dagurinn var helgaður böngsum með ýmsu móti og börnin skemmtu sér  konunglega.

28.10.2009

Lesum enn meira saman – góður gestur í Árbæjarskóla

Í dag heimsótti frú Vigdís Finnbogadóttir skólann í tengslum við setningu Lesum enn meira saman menningardaga í Árbænum. Heimsóknin var liður í lestrarátaki í samstarfi Menntasviðs og Félags eldri borgara undir yfirskriftinni Lesum enn meira saman. Markmið verkefnisins er að auka áhuga grunnskólanema á lestri, örva málvitund þeirra og lestrarhæfni. Frú Vigdís hitti nemendur 3. bekkjar á bókasafninu, las fyrir þá sögu og spjallaði við þá um lífið og tilveruna. Lagði hún áherslu á hversu ríkir þeir væru sem kynnu að lesa og gætu þannig aflað sér fróðleiks og ánægju úr bókum. Nemendur tóku vel á móti henni og spunnust skemmtilegar umræður.  Nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla þakka frú Vigdísi Finnbogadóttur einstaklega ánægjulega heimsókn.

27.10.2009

Spurningalið Árbæjarskóla

Valið var í spurningalið samkvæmt könnun sem lögð var fyrir miðvikudaginn Spurningalið14. október. Hlutskörpust urðu þau Sólveig Bjarnadóttir, Atli Freyr Þorvaldsson í 9. KV og Auður Arna Sigurðardóttir 8. MS. Þjálfari liðsins er Páll Guðmundsson Theódórs kennari við Árbæjarskóla og fyrrverandi liðsmaður Borgarholtsskóla í Gettu betur.  Æfingar fyrir Nema hvað, spurningakeppni grunnskóla Reykjavíkur, eru þegar hafnar og samkvæmt Páli er liðið skipað einvala liði og á án efa eftir að standa sig vel.

27.10.2009

Menningarreisa

Nemendum 5. bekkja Árbæjarskóla var boðið að koma í heimsókn í Háskólabíó til að5. bekkur hlusta á svítu úr balletti  Ígors Stravinskíj við gamalt rússneskt ævintýri um  Eldfuglinn fimmtudaginn 8. október  sl. í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.  Nemendur höfðu undirbúið heimsóknina með því að hlýða á stutta útgáfu af sögunni í tíma og tóndæmi.  Þeir teiknuðu einnig hver og einn mynd af eldfuglinum sem var límd á plakat.  Myndirnar voru síðan hengdar upp til sýnis í anddyri Háskólabíós og voru þar til sýnis fram til 10. október.   Halldóra Geirharðsdóttir leikkona sagði söguna með leikrænum áherslum meðan tónverkið var flutt.  Þetta var skemmtileg og vel heppnuð ferð og frábært að fá að hlýða á þetta magnaða tónverk flutt af listamönnunum.

19.10.2009

Grunnskólamót 7. bekkjar

Grunnskólamótið – stelpur.Stelpurnar mættu kl 9 á sunnudagsmorguninn og léku gegn sömu skólum og strákarnir daginn áður, þ.e Austurbæjarskóla, Víkurskóla, Laugalæk og Hvassaleitisskóla. Skemmst er frá því að segja að þær unnu alla leikina mjög örugglega nema Laugalæk en sá leikur var mjög spennandi og endaði 2-1 fyrir Árbæjarstelpurnar. Þær flugu því í úrslitakeppnina og mættu aftur kl 16. Í millitíðinni þurftu nokkrar þeirra að spila handbolta með Fylki og voru orðnar dálítið framlágar en með hugarfarið í lagi. Þær byrjuð á að vinna Hólabrekkuskóla 1-0 í spennandi og erfiðum leik og fengu svo enga hvíld og þurftu að leika strax gegn geysisterku liði Rimaskóla. Stelpurnar komust yfir en svo var bensínið bara búið og þær töpuðu 1-3. Rimaskóli vann svo Hólabrekku 1-0 og sigraði svo Laugalækjarskóla í úrslitaleiknum 1-0. Stelpurnar þurftu að fara mjög erfiða leið í þessu móti og stóðu sig frábærlega. Hefði verið virkilega gaman að sjá þær mæta Rimaskóla við aðrar aðstæður. En þriðja sætið er snilldarárangur.  Til hamingju með það stelpur.

19.10.2009

Grunnskólamót 7.bekkjar

Strákarnir hófu leik kl. 9 á laugardagsmorgun og léku gegn Austurbæjarskóla.Grunnskólamót 7.bekkjar  Þeir áttu óteljandi færi í læknum og það var í rauninni orðið fyndið að boltinn færi ekki inn. Leikurinn endaði 0-0. Þeir unnu svo 2 leiki stórt og töpuðu gegn sterku liði Laugarlækjarskóla sem vann riðilinn. Ef strákarnir hefðu skorað í fyrsta leiknum hefðu þeir komist í úrslitakeppnina þar sem besta annað sæti í riðli hefði dugað. En það tókst því miður ekki en þeir sýndu frábæra leiki og voru með rétta hugarfarið allan tímann. Flott frammistaða.

14.10.2009

Skólapúlsinn

Fyrstu niðurstöður

Árbæjarskóli er þátttakandi í vefkerfi Skólapúlsins sem miðar að því að veita skólum aðgang að upplýsingum sem aflað er mánaðarlega um þætti sem tengjast virkni nemenda og líðan þeirra í skólanum og um skóla- og bekkjaranda.

Matið er langtímamiðað þannig að auðvelt er að bera saman stöðuna frá mánuði til mánaðar og frá ári til árs.

Stærsti kostur Skólapúlsins er samanburður við landsmeðaltal. Eitt er að vita stöðu eineltis, svo dæmi sé tekið,  í skólanum en annað er að sjá mælinguna í samanburði við landsmeðaltal. Landsmeðaltalið er búið til úr svörum allra hinna þátttökuskólanna. Þeir eru 54 í byrjun skólaársins 2009-2010,   samtals yfir 9000 nemendur í 6. – 10. bekk af öllu landinu.   Sjá niðurstöður septembermánaðar hér.

7.10.2009

Starfsdagur og foreldradagur framundan

Næstkomandi föstudagur, 9. október, verður starfsdagur í Árbæjarskóla og fá því nemendur frí þann dag. Mánudaginn 12. október verða foreldraviðtöl haldin við skólann þar sem foreldrar mæta með nemendum til umsjónarkennara.

7.10.2009

Nýr gervigrasvöllur

Langþráð stund rann upp þegar nemendur Árbæjarskóla fengu aðgang að nýjum og Sparkvöllurglæsilegum gervigrasvelli við framhlið skólans.  Völlurinn er gjöf Reykjavíkurborgar í tilefni 40 ára afmælis Árbæjarskóla sem haldið var í fyrra. Það stóð til að völlurinn yrði tilbúinn í upphafi skólaárs en verkið tafðist fram til 29. september.  Nemendur hafa þyrpst á völlinn sem er í stöðugri notkun alla daga vikunnar.

30.9.2009

Forvarnardagurinn 30. september 2009

Í ár er fjórða árið sem Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta

Íslands. Dagurinn er haldinn í samvinnu við ýmsa aðila sem koma, með einum

eða öðrum hætti, að málum unglinga. Dagskrá fer fram í 9. bekkjum grunnskóla

um land allt þar sem nemendur eruð beðin um að taka virkan þátt í umræðum um

forvarnir gegn fíkniefnum.

30.9.2009

Ólympíustærðfræði

“Stærðfræði er skemmtileg”

Námskeið byrja í næstu viku.

Við verðum í samvinnu við Háskólinn í Reykjavík um námskeið í Ólympíustærðfræði í vetur sem við bjóðum krökkum hér í skólanum að taka þátt í. 

Ólympíustærðfræði eru námskeið þar sem leystar eru þrautir sem reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og ögrandi verkefni fyrir krakka sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er á ánægju af stærðfræði, innsæi og frumleika í lausnum á þrautum. Áhersla er lögð á samvinnu á æfingum.

Markmið Ólympíustærðfræði er...

   * að örva áhuga á stærðfræði

   * að kynna mikilvæg stærðfræðileg hugtök

   * að kenna megin aðferðir við þrautalausnir

   * að þróa stærðfræðilegan sveigjanleika í þrautalausnum

   * að styrkja stærðfræðilegt innsæi

   * að örva sköpun og hugvit í stærðfræði

   * að veita ánægju og spennuna af því að takast á við ögrandi verkefni

Ólympíustærðfræðiverkefnin eru fyrir krakka í 5.-6. bekk annars vegar og 7.-8. bekk hins vegar. Hóparnir hittist einu sinni í viku í klukkutíma í senn í skólanum. Reglulega er svo keppt og í vor er svo verðlaunaafhending þar sem veitt eru verðlaun eftir frammistöðu einstaklinga og liða.

Námskeiðið stendur í 20 vikur og kosta  2.000 kr.

Æfingar og keppnir eru hér í skólanum vikulega fyrir og eftir jól á eftirfarandi tímum.

Yngra ár (5.-6. bekkur)

Miðvikudagur klukkan 14:45

Eldra ár (7.-8. bekkur)

Þriðjudagur klukkan 14:45

Skráning og nánari upplýsingar á www.hr.is/os

Allir sem hafa áhuga á að prófa eru velkomnir í prufutíma.

25.9.2009

Rósaball í Árbæjarskóla

Hið árlega Rósaball Árbæjarskóla var haldið með pompi og prakt fimmtudagskvöldiðRósaballið    24. september. Þar buðu eldri nemendur unglingadeildar 8.bekkinga velkomna í skólann með því að sækja þá heim og bjóða þeim á dansleik sem haldinn var í hátíðarsal skólans. Prúðbúnir nemendur streymdu í skólann á fjölbreyttum farartækjum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Eins og alltaf voru nemendur til fyrirmyndar, kurteisir, skemmtilegir og sönn ánægja að hafa fengið að vera með þeim á þessu frábæra kvöldi.

23.9.2009

Rósaball

Fimmtudaginn 24. sept. fer hið árlega rósaball Árbæjarskóla fram á sal skólans.Rósaball  Undanfarin ár hefur aðsókn verið góð og verður þetta ár engin undantekning frá því. Undirbúningur stendur nú sem hæst og hafa nemendur og starfsfólk skólans lagt á sig ómælda vinnu til þess að gera kvöldið sem eftirminnilegast.

 

Það eru 10. bekkingar sem standa fyrir ballinu og bjóða 8. bekkinga velkomna í unglingadeild með rós um leið og þeir síðarnefndu eru sóttir á ballið.

 

Hleypt verður inn í salinn kl. 19:30 en ballið sjálft byrjar ekki fyrr en 20:30 og er gert ráð fyrir að gleðinni ljúki 23:30. Rútur bíða nemenda þegar þeir koma út og munu þær fara ákveðinn hring um Árbæinn og skila nemendum af sér.

 

Verð inn á ballið er 300 kr. fyrir einstaka nemendur en 500 kr. fyrir parið. Sjoppan verður opin sem fyrr.

Nemendur eru minntir á að fyrstu tvær kennslustundirnar ( kl. 8:10 - 9:30 ) á föstudeginum  falla niður.

21.9.2009

Samræmd próf

Síðastliðna viku fóru fram samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk við skóla landsins. Könnuð var geta nemenda í ensku, íslensku og stærðfræði.  

Prófin voru með nýju sniði þannig að aukin áhersla var lögð á lesskilning í öllum þessum greinum.Niðurstöðurnar verða sendar til grunnskóla og nemenda og munu nýtast sem stöðumat í viðkomandi greinum.

16.9.2009

Nemendaráð 2009

 

Kosið var til nemendaráðs við skólann. Formaður er  Andri Hrafn NemendaráðÁrmannsson 10. ÁB og varaformaður er Ylfa Rúnarsdóttir  10. ÁB. Meðstjórnandi er Hildur Helga Jónsdóttir 9. KV.

11.9.2009

Uppeldisnámskeið

Kæru foreldrar / forráðamenn

Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts fyrirhugar að halda uppeldisnámskeið í október og nóvember nk. ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og heitir „SOS!-hjálp fyrir foreldra“.  Þetta er sex vikna námskeið sem  sálfræðingurinn Lynn Clark þróaði og hefur verið haldið reglulega, í nokkur ár, á Íslandi.

8.9.2009

Skólapúlsinn

 

Skólapúlsinn er sjálfsmatsverkefni  sem Árbæjarskóli mun taka þátt í nú í vetur og næstu vetur.

Skólapúlsinn er vefkerfi sem miðar að því að veita skólastjórnendum stöðugan aðgang að nýjum upplýsingum sem aflað er mánaðarlega um þætti sem tengjast virkni nemenda í 6. – 10. bekk og líðan þeirra í skólanum.

Samræmdar mælingar . Góð líðan, virkni og skóla- og bekkjarandi eru ekki síður en einkunnir mikilvæg markmið í skólastarfi. Með skólapúlsinum er í fyrsta sinn hægt að vinna með samræmdar upplýsingar um líðan nemenda á sama hátt og niðurstöður samræmdra prófa.  Hér á heimasíðunni munum við birta reglulega  niðurstöður  skólans miðað við landsmeðaltal og svæði.  Fylgist með og skoðið gögn undir flipanum Mat á skólastarfi hér til vinstri. Nánar um verkefnið á heimasíðunni:  http://skolapulsinn.is/um/

 

3.9.2009

Hljóðbækur á vef Námsgagnastofnunar


Hljóðbók er lesin útgáfa af námsbók. Nú er unnt að nálgast hljóðbækur sem Námsgagnastofnun hefur gefið út á vefsíðunni
www.nams.is  og hlaða þeim niður til hlustunar án endurgjalds. Einnig er hægt að setja hljóðskrárnar í iPod eða  mp3 spilara. Hljóðbækur gagnast ekki aðeins nemendum sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða heldur einnig hverjum þeim sem áhuga hefur á því að hlusta á vandaðan upplestur texta. Foreldrar  og nemendur eru eindregið hvattir til að kynna sér þennan möguleika.  Á síðu Námsgagnastofnunar er að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við niðurhal hljóðbókanna og tillögur um notkun þeirra.

Hljóðbækur verða áfram til útláns á bókasafni skólans fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvu.

Hér er hægt að skoða lista yfir hljóðbækurnar

2.9.2009

Framboðsfundur í Tíunni

Starfsemi Tíunnar er hafin af fullum krafti. Nemendur eru hvattir til þess að taka þátt í ITRþroskandi félagsstarfi sem þar er í boði. Í kvöld (miðvikudag 2. sept.) klukkan 19:00-22:00 verður framboðsfundur þar sem frambjóðendur til Tíuráðs og DJ-ráðs fá tækifari til þess að sannfæra okkur um það hvers vegna við ættum að kjósa þá. Að sjálfsögðu ættu sem flestir að mæta því hvert atkvæði telur. Næstkomandi föstudag (4. sept.) fara kosningar fram og haldið verður upp á lok þeirra með balli sem hefst stundvíslega klukkan 20:00.

2.9.2009

Íþróttaskóli Árbæjarskóla

Nú í vetur verður starfræktur Íþróttaskóli Fylkis fyrir börn í fyrsta bekk ÍþróttaskólinnÁrbæjarskóla.

Skólinn er styrktur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og er því ókeypis.

Skólinn hefst 3. september og verður tvisvar sinnum í viku, þ.e. á fimmtudögum og föstudögum.  Vegna mikillar aðsóknar þarf að skipta nemendum í tvo hópa og mun annar hópurinn vera kl. 13:50-14:30 en hinn kl. 14:30-15:10. 

Upplýsingar um hópaskiptinguna munu liggja fyrir 2. september og verða þær sendar til foreldra með tölvupósti.

Skólinn helst í hendur við skóladagtal Árbæjarskóla hvað varðar frí. Kennt er í íþróttasal skólans og skulu þátttakendur taka með sér íþróttaföt (bol, stuttbuxur eða síðar íþróttabuxur). Íþróttaskór verða ekki leyfðir.  Ekki verður farið í sturtu eftir tímana.

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem mismunandi íþróttagreinar verða kynntar fyrir nemendum.

Kennari er Bergþór Stefánsson s: 695-0917.

Umsjónarmaður Íþróttaskóla Árbæjarskóla er Hörður Guðjónsson, íþróttafulltrúi Fylkis:

S: 567-6467

hordur@fylkir.com

www.fylkir.com

27.8.2009

Kórastarf Árbæjarskóla

Kórastarf Árbæjarskóla, skólaárið 2009-2010, hefst mánudaginn  31. ágúst.

Stefnt er að því að vera með þrjá kóra eins og undanfarna vetur.

Byrjendakór: 2. bekkur.  Æfingar á mánudögum kl. 13:45 – 14:15 í tónmenntastofu.

 

Yngri kór: 3. og 4. bekkur .  Æfingar á föstudögum kl. 13:45  - 14.15  í salnum

 

Eldri  kór: 5, 6, 7 og 8. bekkur. Æfingar á mánudögum  kl. 14:30 – 16:00 í salnum.

27.5.2009

Vortónteikar

Vortónteikar yngri skólakóra Árbæjarskóla voru haldnir í Árbæjarkirkju síðastliðinn fimmtudag. Annars vegar söng byrjendakórinn en hann er skipaður nemendum í 2. bekk og hinsvegar yngri kórinn en hann skipa nemendur í 3. - 4. bekk. Foreldrar og aðrir gestir fjölmenntu í kirkjuna þennan sólríka sumardag og var gerður góður rómur að söng barnanna.Tónleikar 1Tónleikar

27.5.2009

Hjólaferð í Björnslund

Miðvikudaginn 20.maí fóru 4. bekkirnir hjólandi í Björnslund ásamt foreldrum og 4. bekkur 20.5.2009systkinum. Björnslundur er útikennslustofa við Norðlingaholtsskóla. Þegar í lundinn var komið tók við skemmtilegt útivistarsvæði sem krakkarnir kunnu svo sannalega að meta. Það voru ánægðir krakkar sem hjóluðu heim á leið eftir góða samveru Í Björnslundi.

26.5.2009

Útileikjadagur

Miðvikudaginn 20. maí var útileikjadagur í yngri deild skólans. Nemendur í 1. – 4. bekk og börn frá leikskólunum hittust úti og léku sér saman með starfsfólki skólanna. Útileikjadagur 1.-4. bekkur

Allir nemendur hlupu hringinn í kringum skólann og var tilkynnt hverjir hrepptu fyrstu þrjú sætin í hlaupinu. Síðan var farið í boðhlaup á milli bekkja og í leiki.

Krakkarnir skemmtu sér vel í blíðskaparveðri.

Sjá myndir hér.

ÞÞ

20.5.2009

Stærðfræði í góða veðrinu

Þessa góðviðrisdaga er stundum erfitt að halda nemendum inni í þunga loftinu í 10.RH 18.5.2009skólastofunum og ákváðum við í 10. RH að taka einn stærðfræðitíma á grasinu bakvið Árbæjarkirkjuna. Þetta var fínasta tilbreyting og unnu flestir bara vel í sólinni, en það verður samt að viðurkennast að kennslustundin leystist upp í kjaftatíma í lokin. En hver svo sem að fást um þaðí blíðunni?                                                                   

                              

20.5.2009

Textílmennt

Fyrstu bekkingar í List og verkgreinahópi A eru búin að vera sérstaklega dugleg í 1. bekkur textílmennttextílmennt. Þau eru búin að sauma dúk með þræðispori, búa til kónguló, vefa, æfa sig í að klippa efni og nú síðast þæfðu þau blóm og fræddumst um íslensku ullina.

Birna G, textílkennari.

19.5.2009

Dansað í Laugardalshöll

Helgina 9. og 10. maí var haldið í Laugardalshöll íslandsmeistaramót í samkvæmisdönsum.

Er gaman frá því að segja að Árbæjarskóli átti þar góðan hóp keppenda.íslandsmeistaramót í samkvæmisdönsum

Eru þetta krakkar sem eru farnir að stunda dans hjá hinum ýmsu dansskólum.

Stóðu krakkarnir sig með mikilli prýði, mörg þeirra komust í úrslit í sínum riðlum og nokkur sem enduðu sem íslandsmeistarar.

Sjá fleiri myndir frá mótinu hér.

18.5.2009

Aðalfundur Foreldrafélags Árbæjarskóla

Þriðjudaginn 19. maí næstkomandi klukkan 17:30 verður aðalfundur Foreldrafélags Árbæjarskóla haldinn í hátíðarsal skólans. Dagskrá aðalfundarins eru almenn aðalfundarstörf, formaður stjórnar fer yfir starf vetrarins og gjaldkeri kynnir reikninga félagsins auk annarra mála. Áætlaður tími fundarins er um ein klukkustund.

Hvetjum við eindregið alla foreldra til að láta sjá sig.

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla

18.5.2009

Vortónleikar í Árbæjarkirkju

Á þriðjudaginn 19. maí kl 17:00 verða vortónleikar Byrjendakórs og Yngri kórs Árbæjarskóla. Tónleikarnir verða í Árbæjarkirkju og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

18.5.2009

Reiðhjólahjálmar

Nemendur 1. bekkja Árbæjarskóla duttu heldu betur í lukkupottinn í 1. bekkur hjálmaafhending
á föstudaginn var þegar þeir Haraldur og Jón Jakob frá Kiwanisklúbbnum Jörfa komu í
heimsókn og gáfu þeim reiðhjólahjálma. Hér má sjá börnin í 1. EB með hjálmana góðu ásamt þeim Haraldi og Jóni Jakobi.

18.5.2009

10. bekkjarferð Árbæjarskóla.

Á fimmtudaginn var lögðu 117 nemendur og sex kennarar af stað í stutta ferð. 10.bekkur skólaferðalagÁkvörðunarstaður var Stokkseyri og var hópurinn kominn þangað um miðjan dag.

Fólk fór strax í að koma sér fyrir , en öll aðstaða var til fyrirmyndar á staðnum. Stór salur og fín eldunaraðstaða með kæli og öllum græjum. Á veröndinni var hægt að grilla og tjilla og þar var útsýni yfir sjóinn í suður og bæinn norður og austur. Krakkarnir hlupu strax út að kanna aðstæður og endaði stór hópur í fótbolta (hvað annað?). Þar var mikið fjör en leikurinn endaði ekki vel þar sem Baldvin í 10. AA meiddist það illa að kalla þurfti til sjúkrabíl. Skemmst er frá því að segja að þetta reyndist ekki alvarlegt og er Baldvin allur að koma til.

En ferðin hélt áfram og það voru grillaðir borgarar um kvöldið þar sem kennarar og nemendur hjálpuðust að og síðan var fólk við alls konar iðju, söng, dans, samtöl, fótbolta, sund, göngur, spil og ýmislegt annað. Kennarar voru með lítið atriði eftir miðnætti og Hjörtur sagði draugasögu af sinni alkunnu snilld. Ýmsir voru ákveðnir í að sofna ekki neitt og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að standa við það en frekjuhundarnir sem stjórnuðu ferðinni náðu samt öllum í pokana og voru langflestir sofnaðir uppúr fimm.

Hafragrautur var soðinn ásamt öðru góðgæti í morgunmat og síðan var lagt úr vör á kajökum í snillarveðri þar sem fólk var meira utan borðs en innan. Sara og Ingunn sýndu snilldartakta í róðri, ekki síst Ingunn sem átti stórleik þegar hún var að kom sér í bátinn en hún endaði með miklum tilþrifum í vatninu. Þarna skemmtu krakkarnir sér mjög vel og var þetta fullkominn endir á góðri ferð.

Það liggur við að óþarfi sé orðið að hrósa krökkunum þar sem framkoma þeirra í svona ferðum er undantekningarlaust góð. En aldrei er góð vísa of oft kveðin og vorum við kennararnir sem með krökkunum fóru rosalega ánægðir með þá þar sem þeir voru alltaf bæði kurteisir og skemmtilegir. Þar fer sómi okkar lands á komandi árum. 

Takk fyrir ferðina krakkar! Þið voruð stórkostlegir!

13.5.2009

8. ÞB

8. ÞB er lítill bekkur fullur af hressum krökkum. Þrátt fyrir smæð er þar að finna 8.ÞBeinstaklinga af ýmsu þjóðerni t.d. frá Kósovó, Portúgal og Serbíu. Einnig er þar að finna stúlkur með sterk tengsl við Noreg, Danmörku og Bandaríkin. Allir eru góðir í einhverju og má þar meðal annars nefna rapparann, fótboltasnillinginn, tölvusnillinginn, borðtennismeistarann, teiknarann, dansarann, júdókappann og biljarðsmeistarann. Okkur finnst gaman að fara saman í Tíuna (Ársel) að leika okkur, spila og spjalla. Allir í bekknum stefna á að fara í Vinnuskólann í sumar og læra þar allt um gróðursetningu, illgresi og snyrtingu umhverfisins.

11.5.2009

Vinnuferð í Fjölskyldu– og húsdýragarðinn

Nú nýverið fóru nemendur 6. GJ og 6. AÁ í skemmtilega vinnuferð í Fjölskyldu– og 6.GJ maí 2009húsdýragarðinn.  Þar var nemendum skipt í þrjá vinnuhópa  Einn hópurinn sá um kýrnar og svínin.  Nemendur fengu að sjá mjaltir, þrifu og hreinsuðu stíur og bása og settu sag yfir og gáfu dýrunum grasmeti og fóður.  Annar hópur sá um hestana og kindurnar.  Þar var hestunum kembt, stíurnar sópaðar, hestarnir settir út og fóðraðir og þrifið hjá kindunum.  Þriðji hópurinn sá um hreindýrin, minkana og refina.  Hreindýrastíur voru þrifnar hátt og lágt og gler og salur í minka– og refahúsi hreinsuð.  Nemendur fengu einnig að fara út til minkanna og refanna án þess að gerast of nærgöngulir og gáfu þeim að borða.6.AÁ maí 2009   Hver hópur fékk fræðslu um þau dýr sem hann sá um, m.a. hvenær dýrin komu fyrst til Íslands og hvernig, þau mörgu nöfn sem til eru yfir dýrin og hvað það heitir þegar þau eignast afkvæmi auk ýmissa fróðlegra upplýsinga um lifnaðarhætti þeirra.  Að starfi loknu borðuðu nemendur nesti og þegar maginn var mettur kom kynntu hóparnir hvað þeir höfðu lært og starfað um morguninn.  Því næst fræddu starfsmenn garðsins nemendur um öll dýrin í garðinum.  Að síðustu fengu þeir að fara og skoða hamstra, naggrísi, skjaldbökur, litríkan páfagauk, froska og salamöndrur.  Vinnusemi, áhugi og prúðmennska nemendanna var skólanum til sóma og þeir fóru glaðir heim eftir skemmtilegan dag með nýja vitneskju og upplifun í farteskinu.

Sjá fleiri myndir hér.

6.5.2009

10. KJ

Í KJ bekknum eru mjög skemmtilegir og duglegir krakkar.  10.KJ Þau vinna vel saman og koma alls staðar vel fyrir.    Áhugamál þeirra eru fjölbreytt og hæfileikarnir mjög miklir. Eins og sjá má á þessari  mynd er þetta fríður og fallegur hópur.

Vænta má mikils af þessum krökkum í framtíðinni

5.5.2009

MAGNAÐ RÆÐULIÐ SEM SKILAÐI SÍNU

Árbæjarskóli braut blað í sögu sinni með því að senda til leiks ræðulið til þátttöku í Ræðulið Árbæjarskólaræðukeppni grunnskólanna. Fyrsta viðureignin var haldin í Lindaskóla í Kópavogi þar sem unninn var sætur sigur á lindskælingum. Önnur viðureignin fór fram á heimavelli hér í Árbæjarskóla miðvikudaginn 29.apríl þar sem tekið var á móti liði Seljaskóla.

Keppnisdagurinn

Ræðukeppnin var vel kynnt í Árbæjarskóla meðal annars með myndbandi sem Atli Þór Einarsson gerði í tilefni dagsins og vakti mikla kátínu. Ræðuliðið gekk í bekki og plaköt og auglýsingar var að finna út um allan skóla.

Húsfyllir

Salurinn var þéttskipaður stuðningsmönnum beggja liða hátt í 200 manns í heildina og skáru nemendur Árbæjarskóla sig úr í appelsínugulum stuðningsmannatreyjum skólans. Mikið var lagt í allan undirbúning og umgjörð sem jók á stemninguna í salnum. Höfðu bæði dómarar og aðkomumenn á orði hve vel hefði til tekist.

Góðir gestir

Þótt hart væri tekist á ríkti mikið bróðerni með ræðuliðunum tveimur sem og stuðningsmönnum og gekk kvöldið ákaflega vel fyrir sig og höfðu allir hina bestu skemmtun af sem var vitanlega markmiðið.

Viðureignin

Ræðulið Árbæjarskóla skipuðu sem fyrr: Árni Þórmar, Andri Már, Björgvin og Lilja sem mæltu fyrir efninu; handrukkarar. Ekki verður sagt að ráðist hafi verið á garðinn þar sem hann er lægstur, en ræðuliðið skilaði sínu af miklum krafti og sannfærandi rökum sem þó dugði ekki til. Lið Seljaskóla, sigurvegararnir síðan í fyrra, fóru hreinlega á kostum og uppskáru verðskuldaðan sigur. Óskum við þeim góðs árangurs í úrslitunum gegn Hagaskóla.

Ísbrjótar

Allt ræðulið Árbæjarskóla er skipað útskriftarnemendum og því bíður okkar að það verkefni að manna nýtt lið á komandi skólaári. Árna, Andra, Björgvini og Lilju verður seint fullþakkað þeirra framlag til nýrrar hefðar í skólanum, ræðuhefðar. Má með sanni segja að þessir nemendur hafi skrifað sig með afgerandi hætti í sögubækur Árbæjarskóla.

30.4.2009

Á bak við leikhústjöldin

Tjöldin eru dregin fyrir. Áhorfendur bíða. Örlítið tvíbent bros, skjálfti í hnjánum. Spenna. Við erum stödd á leiksviði Borgarleikhússins með Lilju Eivor Gunnarsdóttur. Lilja Eivor

Vafalaust var hún heppin því af þeim 4000 krökkum sem þreyttu áheyrnarprufur fyrir leikritið Söngvaseið fékk hún hlutverk í kjölfarið sem eitt af systkinunum fjórum í sýningunni. En hvað með hæfileikana? Jú, hún lumar á þeim. Glaðbeitt og brosandi. Og jákvæð þótt leikhúsið sé harður heimur. Sumir segja miskunnarlaus og grimmur en Lilja brosir bara yfir því. Hún horfir til þess jákvæða í tilverunni. Leikhúsið er svo þroskandi. Þangað stefnir hugur hennar eftir framhaldsskóla. En hún er raunsæ. Það eru margir um hvert hlutverk og samkeppnin hörð. Samt dreymir hana um fjölbreyttari hlutverk en þetta sem hún er að leika núna. Dreymir – því leikhúsið er ævintýra- og töfraheimur.

Æfingarnar hafa verið strangar og skólinn stundum orðið að sitja á hakanum. En þegar stundir gefast frá æfingum leggst hún yfir námsbækurnar af krafti. Hún segist hafa notið góðrar aðstoðar heiman að. Og starfsfólk Árbæjarskóla hefur einnig sýnt henni mikinn skilning. Fyrir það vill hún þakka. Hún gefst ekki upp stúlkan sú. Brosandi og jákvæð. Þá halda óskirnar áfram að rætast.

Tjöldin eru dregin frá. Gangi þér sem best Lilja Eivor!

HM

28.4.2009

Samvera að vori

Elstu nemendur leikskólanna Árborg og Rofaborg heimsóttu nemendur 1. bekkja Samvera að voriþriðjudaginn 21. apríl sl. Samkoma var á sal skólans þar sem börnin sýndu skemmtiatriði og sungu saman undir dyggri stjórn Önnu Maríu tónmenntakennara.
Þessi samvera er einn liður í samstarfsverkefni milli Árbæjarskóla og leikskólanna Árborgar og Rofaborgar. Markmið þess er að brúa bilið milli skólastiganna, stuðla að heildstæðu námi barna, styrkja og efla starfsmenn á báðum skólastigum. Þessi samstarfsvinna hefur þróast afar farsællega og er almenn ánægja með heimsóknirnar hjá kennurum, foreldrum og ekki síst börnunum sjálfum.
Fleiri myndir sjá hér.

27.4.2009

Ræðukeppni í Árbæjarskóla

Miðvikudaginn  29. apríl mun ræðulið Árbæjarskóla taka á móti ræðuliði Seljaskóla í Ræðulið Árbæjarskóla annarri umferð ræðukeppni grunnskólanna, MORGRON. Keppnin verður haldin á Sal Árbæjarskóla og eru nemendur unglingadeildar hvattir til þess að mæta og hvetja sitt lið. Ræðulið skólans er skipað þeim Árna Þórmari, Andra Má, Björgvin og Lilju en þau unnu lið Lindaskóla svo eftirminnilega í fyrstu umferð.
Áfram Árbæjarskóli!

27.4.2009

3.KG

Við í 3. KG hlökkum til sumarsins. Við getum núna leikið okkur í vatnsstríði, fótbolta og3.KG apríl 2009 alls konar leikjum.Íþróttabandalag Reykjavíkur gaf okkur bolta og við ætlum að vera dugleg að nota þá.

Gleðilegt sumar, kveðja frá öllum í 3. KG

22.4.2009

BEST-Stærðfræðikeppnin

Hin árlega norræna stærðfræðikeppni Best var að ljúka núna. Yfir 60 bekkir á landinu tóku þátt og fjórir bekkir héðan úr Árbæjarskóla. 9 BG var einn af 11 bekkjum sem 9.BG apríl 2009komst í undanúrslit og og þá tók við mikil vinna hjá bekknum. Þau fengu þemað stærðfræði og umhverfið og ákváðu að taka Keops pýramídann. Unnið var að ritgerð, framvinduskyrslu, sýningu og kynningu. Einn hópur gerði líkan af pýramídanum í smíðastofunni, annar vann framvinduskýrslu sem er einhvers konar dagbók og þriðji hópurinn gerði ritgerð. Síðan valdi bekkurinn 4 einstaklinga til sem sína fulltrúa til að kynna verkefnið og leysa þrautir ásamt fulltrúum hinna bekkjanna sem komust áfram í undanúrslit. Þau Andri, Sveinn, Helga og Sigriður völdust til verksins og skemmst er frá því að segja að þau stóðu sig einstaklega vel og voru bekknum sínum og skólanum til sóma. Þau náðu þó ekki í 3 liða úrslit sem haldin er í dag. En árangur bekkjarins er einstaklega góður ekki síst með tilliti til þess að kennari þeirra hefur átt við veikindi að stríða og því verið auka álag á þeim. En hjartanlega til hamingju með árangurinn krakkar.

20.4.2009

Landsmót barnakóra

Stelpur úr eldri skólakór Árbæjarkóla mættu á landsmót barnakóra um helgina 17.-19. Kór apríl 2009apríl. Mótið var haldið í Seljaskóla í Reykjavík og gistu þær tvær nætur í skólanum. Mikið af skemmtilegum lögum voru sungin og má nefna lagið hennar Emelíönu, Jungle drum, Halleluja eftir Cohen og Þú komst við hjartað í mér sem Páll Óskar og Hjaltalín hafa gert svo vinsælt. Kórinn söng svo með 250 krökkum frá öllu landinu á stórum tónleikum á sunnudeginum í íþróttahúsi Seljaskóla og var húsfyllir. Sjá fleiri myndir hér.

kv. Anna María

20.4.2009

7. bekkur AH

Fórum út í blíðskaparveðri og tíndum rusl á skólalóðinni. Í trjánum leyndist hellingur af 7. AH apríl 2009rusli sem ekki fann sína réttu leið í ruslatunnurnar. Eftir ruslatínsluna góðu brugðu nemendur sér á leik í klifurgrindinni og rólunum. Að lokum endaði allur bekkurinn í stórfiskaleik. Eftir góða útiveru komu þau endurnærð og hress í næstu kennslustund

15.4.2009

Teiknun og málun

Í teiknun og málun erum við að gera dýragrímur úr keramik  þær eru fjölbreyttar ogDýragrímur áhugaverðar og eru hengdar upp á göngunum í unglingadeildinni, þær verða til sýnis frá 15. apríl til 15. maí. Sjá fleiri myndir hér.

Silvía, myndlist

 

2.4.2009

Stærðfræðikeppni MR

Sunnudaginn 29. mars 2009, fór fram í Menntaskólanum í ReykjavíkStærðfræðikeppni MR verðlaunaafhending í stærðfræðikeppni grunnskólanna. Í keppninni tóku þátt um 260 nemendur víða að og náðu nemendur Árbæjarskóla frábærum árangri. Meðal 30 efstu nemenda í 8. – 10. bekk voru 9 nemendur frá skólanum okkar (Hafsteinn,Halldór Bjarni, Hrafn og Kristján í  10.bekk Benedikt í 9. bekk og Gylfi, Laufey Þóra og Sólveig í 8. bekk). Við óskum þeim öllum til hamingju með einstaklega góðan árangur.

 

1.4.2009

9.MS

Þetta er 9 MS. Í bekknum okkar er mikið af hæfileikaríku fólki t.d eru Ágúst Freyr og9.MS 1.4.2009 Ragnar Bragi í unglingalandsliðinu í fótbolta (undir 16 ára), Arnar Þór á nýja vespu og er leitun að öðrum eins snillingi í að keyra vespu, Viktoría og Birta eru einar af fremstu fimleikastúlkum landsins, Alex er frábær gítarleikari, Gísli er góður handboltamaður, Ásdís er á listdansbraut Jassballet skóla Báru, Arnór Þorri er að undirbúa sig fyrir stórt gólfmót, Nína er að æfa dans, Oddur er frábær teiknar og góður í karate, Ágúst Örn er æðislegur, Ebbý er frábær söngkona, Emelía og Helgi eru að æfa box og hafa náð góðum árangri, Jakob er snillingur í playstation og svo á Helgi líka tvo froska....

Þó að þetta séu aðeins örfá dæmi um kosti og hæfileika nemenda í bekknum sést að það eru frábærir krakkar í 9 MS.

30.3.2009

Árbæjarskóli í fyrsta sæti í Olympíustærðfræði.

Á undanförnum árum hefur Háskólinn í Reykjavík staðið fyrir keppni íOlympíustærðfræði

Olympíustærðfræði fyrir krakka úr 5. til 8. bekk í grunnskólum. Í Árbæjarskóla eins og fjölda mörgum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu koma þátttakendur saman einu sinni í vikur yfir veturinn og æfa stærðfræði og keppa í þrautalausnum.

Ólympíustærðfræði byggir á þrautum sem reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Markmiðið með keppinni er að örva áhuga á stærðfræði með því að nota stærðfræði sem krakkarnir læra í skólanum til að leysa þrautir. Þrautirnar eru erfiðar, en skemmtilegar, og með hvatningu og stuðningi læra nemendurnir að leysa þær. Með því að glíma reglulega við þrautir byggja krakkarnir upp færni í þrautalausnum. Við það styrkist hæfileikinn til að hugsa rökrétt, draga ályktanir, og vera úrræðagóður og þrautseigur. Um helgina var uppskeruhátíð í Háskólanum í Reykjavík þar sem frammistaðan í vetur var verðlaunuð. Þar vou saman komin þeir nemendur sem best stóðu sig frá hverjum skóla og áttu góða stund saman. m.a skemmti Jónsi í Svörtum fötum. Við segjum að sjálfsöðu stolt frá því að krakkarnir okkar voru í fyrsta sæti í keppni sem fer fram á milli skóla. Meðfylgjandi eru myndir af hluta af okkar þátttakendum og Sólveigu að taka á móti viðurkenningu sem skólinn fékk.

 

27.3.2009

KOMU, SÁU OG SIGRUÐU!

Ræðulið Árbæjarskóla skipað þeim, Árna Þórmar, Andra Má, Björgvin og Lilju, sótti Lindaskóla í Kópavogi heim fimmtudagskvöldið 26.mars. Með í för var fríður hópur stuðningsmanna sem lét vel í sér heyra. Tilefnið var ræðukeppni grunnskólanna, MORGRON, sem haldin er nú í fyrsta skiptið. Ræðulið Árbæjarskóla

Magnaðar ræður komu fram á skjálftamælum

Umræðuefni kvöldsins var, eru trúarbrögð slæm, og mælti lið Árbæjarskóla fyrir þeirri fullyrðingu en lið Lindaskóla á móti. Lilja, liðstjóri Árbæjarskóla steig fyrst upp í pontu og kynnti liðið, frummælandann Andra og meðmælendurnar Árna og Björgvin. Með frammistöðu sinni gaf Lilja tóninn fyrir það sem koma skyldi. Hver kyngimagnaða ræðan fylgdi eftir af hálfu okkar manna svo ekki er laust við að skjálfti hafi farið um viðstadda.

Þéttur hópur sem stuðlaði að sigri

Lið Árbæjarskóla vann verðskuldaðan sigur yfir andstæðingum sínum sem reyndu við illan leik að verjast glæsilegum tilþrifum og mögnuðum rökum okkar fólks. Segja má að uppskeran hafi verið eins og sáð var til enda lögðu liðsmenn á sig ómældan tíma og erfiði til þess að vera sem best undirbúnir. Guðlaug og Andrés, ábyrgðarmenn liðsins, leituðu til Ásgríms Hermannssonar nemanda við MS, sem útskrifaðist úr Árbæjarskóla síðast vor, með þjálfun og andlega uppbyggingu liðsins. Hann gat einnig í gegnum víðtækt tengslanet sótt stuðning víðar að, meðal annars, til Ingvars Ásmundsssonar sem einnig er fyrrum nemandi við okkar ástkæra skóla. Verður ekki annað sagt en að römm sé taugin! Okkar óslípuðu demantar umbreyttust í þá ljómandi fögru steina sem færðu Árbæjarskóla þennan sæta sigur.

Appelsínugula byltingin

Engin frétt um keppnislið Árbæjarskóla verður skrifuð án þess að minnast á okkar frábæru nemendur sem skipa stuðningsmannahóp skólans, þeir sigra hvert sem þeir koma með óaðfinnanlegri framkomu og sönnum keppnisanda klæddir appelsínugulum litum sínum.

Næsta keppni handan við hornið

Við munum að sjálfsögðu ekki gefa neitt eftir í næstu keppni en nánari upplýsingar um hana verða birtar síðar og mun ekki fara fram hjá neinum! Mikilvægt er að fjölmenna og veita ómissandi stuðning. Vinir, vinkonur, skólafélagar, kennarar og starfsmenn, þið gerið gæfumuninn. Þið gerið hvern viðburð sem Árbæjarskóli tekur þátt í, að stanslausri gleðiveislu að stanslausu fjöri. Sjá fleiri myndir hér.

Áfram Árbæjarskóli!

25.3.2009

Kynningarfundur

Fimmtudaginn 26. mars nk. boða skólastjórnir Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla til kynningarfundar fyrir forráðamenn nemenda sem hefja nám í 8. bekk Árbæjarskóla næsta haust.

Á fundinum verður skólastarf unglingadeildarinnar kynnt og þær breytingar sem fylgja því að hefja þar nám. Á fundinum verða auk skólastjóranna, námsráðgjafar Árbæjarskóla, Jóhann Davíðsson hverfislögreglumaður, Jóhannes Guðlaugsson, forstöðumaður Ársels, og Þorgeir Magnússon, frá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.

Fundurinn verður á sal skólans og hefst kl. 8.15. Fundurinn stendur í klukkustund.

Skólastjórnir Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla

24.3.2009

Náttúrufræði – verkefni sem virka

Nemendur á náttúrufræðibraut skólans í 9. og 10. bekk framkvæma margar tilraunir í Náttúrufræði – verkefni sem virkaskólanum.  Hér sjáum nemendur í 10. bekk framkvæma tilraun, þar sem þeir eru að finna fallhröðun með hreyfinema.  Tölvuforrit frá Pasco er tengt hreyfinema sem skynjar fall og hopp superbolta.  Tölvan safnar saman gögnum og reiknar út fallhröðun boltans.  Nemendur vinna síðan með gagnasafnið og skila skýrslu um tilraunina hálfum mánuði síðar.  

Til fróðleiks má geta þess að verkleg kennsla vegur 25% af námsmati nemenda í eðlisvísindum.

Sjá fleiri myndir hér.

Eggert J Levy

Kennari.

23.3.2009

Áhugasamir nemendur

Börnin í 2. BÞ eru alltaf að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt. Um þessar mundir eru þau að 2.BÞ mars 2009fræðast um landið okkar Ísland, þjóð og menningu. Börnin sýna þessu efni mikinn áhuga og líflegar umræður skapast iðulega í kennslustundum. Eitt af því sem hefur verið fjallað um er skjaldarmerki Íslands og sagan á bak við það. Þessa vikuna er unnið í hópum að gerð skjaldarmerkja sem verða síðan hengd upp í skólanum. Á meðfylgjandi mynd má sjá börnin sýna hversu langt þessi vinna er komin.

20.3.2009

Áfram Árbæjarskóli – til hamingju stelpur!

Fimmtudaginn 19. mars tóku þrjár stúlkur úr 7. bekk þátt í úrslitum Stóru Upplestrarkeppnin 19.3.2009upplestrarkeppninnar. Keppnin fór fram í Árbæjarkirkju og voru þátttakendur 18 að þessu sinni frá 6 skólum. Fulltrúar skólans, þær Hallfríður Elín Pétursdóttir, Helga Kristín Ingólfsdóttir og Íris Árnadóttir, stóðu sig mjög vel og er skólinn afar stoltur af frammistöðu þeirra. Einungis voru veitt verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin og var val dómnefndar allt annað en auðvelt.

Sigurvegari keppninnar að þessu sinni kemur frá Ingunnarskóla en okkar fulltrúar gerðu það gott því Helga Kristín gerði sér lítið fyrir og lenti í 2. sæti og Hallfríður í því þriðja.

 

20.3.2009

Fáninn

Í stofu A3 hangir uppi á suðurveggnum mynd af íslenska fánanum. Þar hefur hann Íslenski fáninnhangið allt frá vorlokum þegar minnst var 40 ára afmælis skólans. Hreyfingarlaus á veggnum: Í kyrrð og þögn; hávaða og skvaldri; loftleysi og mollu eða þegar tært loft leikur um stofuna. Hreyfingarlaus og aldrei sagt neitt. Aldrei brugðið litum þrátt fyrir allt sem dunið hefur yfir þjóðina þessi síðustu misseri. Og enn þá birtir hann okkur hugmynd um fjallabláma, ís og eld. Hugmynd um land sem enn er til. Og einnig þjóð. Hreyfingarlaus í sömu litunum.

Hjörtur Marteinsson

17.3.2009

Íþróttaskóli Fylkis

Eins og undarfarin skólaár er Íþróttaskóli Fylkis starfræktur fyrir nemendur í fyrsta bekk Íþróttaskóli FylkisÁrbæjarskóla. Kennslan fer fram á þriðjudögum og föstudögum í íþróttasal Árbæjarskóla og kennari er Bergþór Stefánsson. Skólinn er styrktur af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og er ókeypis. Kennslan er fjölbreytt, kynntar eru fyrir nemendum helstu íþróttagreinar og fá þeir að spreyta sig á þeim. Tíðindamaður Árbæjarskóla leit við í íþróttasalnum á dögunum og þá voru börnin m.a. að spila fótbolta. Fleiri myndir má sjá hér.

17.3.2009

Stærðfræðikeppni í Menntaskólanum í Reykjavík.

Síðastliðinn fimmtudag stormuðu rúmlega fimmtíu nemendur úr unglingadeild Árbæjarskóla í MR til að taka þátt í stærðfræðikeppni Grunnskólanna.  Verkefnin reyndust erfiðari en í fyrra en þá oft meira gaman að glíma við þau. Nú bíðum við eftir tilkynningum um hverjum verður boðið á verðlaunaafhendinguna 29. mars.  Vafalítið verða þar einhverjir nemendur frá Árbæjarskóla eins og undangengin ár.

16.3.2009

Til hamingju með sigurinn

Fjórði flokkur kvennaliðs Fylkis vann bikarmeistaratitilinn fyrir árið 2009 í handbolta. LiðiðBikarmeistarar sigraði Gróttu í úrslitaleik 22 - 19 í jafnri og spennandi viðureign þar sem Fylkisstúlkur voru sterkari á lokakaflanum. Maður leiksins var Sara Sigurðardóttir úr Fylki.

13.3.2009

Skólahreysti

Í síðustu viku keppti Árbæjarskóli í skólahreysti við skólana í Breiðholti og Grafarvogi.

Alls voru 13 skólar í riðilinum. Þessi riðill reyndist með þeim sterkari og enduðu tveir skólar jafnir með 65 stig, en Ábæjarskóli lenti í 4 sæti með 58,5 stig. Skólahreysti 2009

Þau Viktoría og Jónas stóðu sig prýðilega og náði Jónas sínum besta árangri í sínum greinum.

Í hraðabrautinni var Árbæjarskóli bestur þrátt fyrir mistök beggja keppenda sem sýnir bara á þvílíkum hraða þau Tómas og Rósa voru á. Þau stóðu sig frábærlega og náðu í fullt hús stiga fyrir skólann sinn.

Ekki er hægt að segja annað en liðið hafi staðið sig vel, en í fyrsta sinn í ár voru æfingar sérstaklega fyrir keppnina og lið valið eftir frammistöðu. Fengum við hjálp frá þeim Val og Óla í Sporthúsinu í Kópavogi. Væntingar voru líka miklar og liðið ætlaði sér að vinna riðilinn og komast í úrslit. Það grátlega var að liðið var nógu gott til þess en það náðist ekki að stilla upp sterkastasta liðinu af óviðráðanlegum orsökum.

En engu að síður frábær frammistaða og verður liðið í sjónvarpinu sennilega nk. laugardag kl. 18.

13.3.2009

Mæðgnafræðsla

Fyrirlestur og umræða.

Þriðjudaginn 17. mars, kl. 18:00 – 20:00, í hátíðarsal Árbæjarskóla.   

Áslaug hjúkrunarfræðingur og Linda Pálsdóttir námsráðgjafi, verða með fræðslu fyrir stúlkur í 5. og 6. bekk og kvenkyns fylgdarmanneskju þeirra.

Boðið verður upp á súpu og brauð í hléi.

Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta til að eiga skemmtilega og fróðlega kvöldstund saman.

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla.

12.3.2009

9. MG

Síðastliðinn miðvikudag var árshátíð nemenda í unglingadeild. Þetta var allasvaðalegur 9.MGdagur og skemmtu nemendur sér konunglega. Dagskráin var háskaleg og var keppt í ýmsum  óskaplega spennandi íþróttum, til dæmis pappírskúlukasti sem var gríðarlega spennandi og singstar keppni sem Sædís rústaði. Hún náði 9550  stigum hvorki meira né minna. Hulda Elísabet brilleraði í spilaborgarkeppni. Bekkurinn var klæddur sem sveitalubbar (hillbillies). Svo var haldið niður í Fylkishöll og keppt var þar á móti kennurum í handbolta og fótbolta. Nemendur rústuðu kennurum i báðum greinum.

Síðan var ballið um kvöldið og byrjað var á forrétt sem var aspassúpa , svo aðalréttur sem var kjúklingabringur og eftirréttur að hætti Unnsteins. Þjónar kvöldsins voru auðvitað kennararnir sjálfir. Meðan maturinn var borinn fram voru skemmtiatriði og tilnefningar. Jóhanna Ósk var meðal annars tilnefnd sem ungfrú 9. bekkur, einnig var  Benedikt tilnefndur sem „Bjartasta vonin“. Því næst kom plötusnúðurinn Heiðar Austmann og allir tjúttuðu í takt. Nemendur skemmtu sér gríðarlega vel þetta kvöldið og héldu svo heim í sæluvímu.

 Í dag verður haldin stærðfræðikeppni MR og nokkrir krakkar úr 9.MG keppa þar á meðal Benedikt, Sveinbjörn, Hjalti og Halldór. Við vonum það besta að  sjálfsögðu.

9.MG

12.3.2009

Fjör á Kirkjuhólnum

Fyrir nokkrum vikum ákváðu börnin í 1. MJ að fara ásamt skólasystkinum sínum í 1. EBFjör á Kirkjuhólnum og 1. IS út á Kirkjuhól og renna sér á snjóþotum. Börnin skemmtu sér konunglega þar sem þau þeyttust niður hólinn og ekki spillti veðrið fyrir, sól og nánast blankalogn.

Sjá fleiri myndir hér.

11.3.2009

Stóra upplestrarkeppnin

27. febrúar sl. kepptu níu nemendur úr 7. bekk í innanskólakeppni Stóru Stóra upplestarkeppninupplestrarkeppninnar. Þetta voru þau Elvar, Hallfríður og Laufey úr 7. AH, Íris, Maríanna og Una Birna úr 7. IH og Andri Freyr, Gyða Björg og Helga Kristín úr  7. SG.
Hallfríður, Íris og Helga Kristín fóru með sigur af hólmi og munu þær stöllur keppa fyrir hönd skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fer fram 19. mars nk. í Árbæjarkirkju. Þar munu þær etja kappi við nemendur úrÁrtúnsskóla, Selásskóla, Norðlingaholtsskóla, Sæmundarskóla og Ingunnarskóla.
Er þeim óskað góðs gengis í lokakeppninni.
Írís, Helga Kristín og Hallfríður ásamt þjálfara sínum, Guðnýju Ýri Jónsdóttur.

10.3.2009

Pizzuveisla hjá "Yngri Kór"

Það var mikið fjör í pizzuveislu hjá "Yngri Kór" síðastliðinn mánudag. Pizzan var góð ogYngri kór atriðin sem flutt voru af meðlimum kórsins fjölbreytt. Allir skemmtu sér konunglega. Sjá fleiri myndir hér.

9.3.2009

Námsval veturinn 2009-2010

Námsráðgjafar skólans hafa kynnt fyrir nemendum í 8. og  9. bekk námsval skólans fyrir skólaárið 2009-2010.

Valbók skólans og umsóknareyðublað er að finna hægra megin á heimasíðu skólans undir fyrirsögninni áhugavert efni. Skilafrestur er til 13. mars 2009

Námsvalið verður kynnt forráðamönnum á síðdegisfundi í hátíðarsal skólans  þriðjudaginn 10. mars  kl. 17.30.

Vonumst til að sjá ykkur öll.

Guðrún Þóra og Linda, námsráðgjafar Árbæjarskóla

5.3.2009

Árshátíð Árbæjarskóla

Árshátíð Árbæjarskóla var haldin miðvikdaginn 4. mars. Byrjaði dagurinn á að allir bekkirÁrshátíð 2009 skólans klæddu sig upp í búninga og hófust síðan Stofuleikarnir þar sem keppt var í hinum ýmsu greinum þar á meðal skultlukasti og Singstar. 10. ÁB vann bæði búningakeppnina, þar sem þeir voru í gervi Valla í heimagerðum búningum og sýndu einstaka samheldni sem hópur og höluðu inn 115 stigum í Stofuleikunum. 10.PH lenti í öðru sæti og 10.KJ í því þriðja. Hópurinn hélt síðan af stað í skrúðgöngu í Fylkishöllina þar sem nemendur og kennarar kepptu í handbolta og fótbolta og verða úrslit ekki birt opinberlega.

Sú nýbreytni var á árshátíðinni í ár að hún var haldin í skólanum. Starfsfólk skólans vann hörðum höndum við að breyta matsal skólans í glæsilegan veislusal. Nemendur mættu prúðbúnir til veislu rétt fyrir sjö og gengu eftir rauðum kertaupplýstum dregli sem hefði sæmt stórstjörnum. Þegar inn var komið blasti við þeim stórfenglegur veislusalur með uppdúkuðum borðum og stjörnuprýddu sviði. Unnsteinn matreiðslumeistari sló hressilega í gegn og sýndi það og sannaði að hæfileikar hans í eldhúsinu einskorðast ekki við grjónagraut og kjötbollur heldur galdraði hann fram silkimjúka asparssúpu, kjúklingabringur með kartöflukökum, gufusoðnu grænmeti og himneskri villisveppasósu og endaði máltíðina á súkkulaðiturni með hnetufyllingu, ís og hindberjasósu. Kennarar og starfsfólk skólans voru í þjónustuhlutverki og dekruðu við nemendur.  Á meðan maturinn var borinn fram sýndu nemendur og kennarar skemmtiatriði sem aldrei hafa verið glæsilegri og var hápunkturinn þegar Kennaragrín ársins 2009 var frumflutt og gaf leikur, myndvinnsla og leikstjórn atvinnumönnum í þessum greinum lítið eftir. Skífuþeytirinn Heiðar Austmann mætti síðan á svæðið og hófu nemendur þá trylltan dans sem endaði skömmu fyrir miðnætti þegar glaðir og sárfættir nemendur héldu heim á leið.

Nemendur Árbæjarskóla hafa löngum verið þekktir fyrir prúmannlega framkomu og stóðu sannarlega undir því nafni á árshátíðinni og fór skemmtunin betur fram en bjartsýnustu menn þorðu að vona.

Guðlaug Harpa var myndasmiður kvöldsins og hér má sjá afrakstur hennar.

4.3.2009

Árbæjarskóli í skólahreysti.

Fimmtudaginn 5.mars keppir lið Árbæjarskóla í skólahreysti í íþróttahúsinu við SkólahreystiAusturberg.

Keppnin hefst kl .16 og mun síðasti tíminn á fimmtudaginn ( kl 15.20) verða felldur niður.

Eru nemendur hvattir til að mæta og styðja liðið, en skólinn er með mjög gott lið í ár.

Það er þannig skipað:

Armbeygjur og krafthanga: Rósa 10 PH

Upphífingar og dýfur: Jónas Atli 10 PH

Hraðabraut: Viktoría 9 MS og Tómas 10 HM

Varamenn: Birkir 10 AA, Jóhannes Árni 9 MG, Svava Rós GH, Guðrún 8SG og Ylfa 9BG.

Liðið hefur æft gríðarlega vel og framfarir verið miklar.

Allir að mæta og hvetja á fimmtudaginn í Fylkislitunum.

26.2.2009

Myndmennt 1. og 2. bekkur

Í myndmennt hjá Silvíu hafa 1. og 2. bekkur verið að búaFiðrildi og froskar 1.-2. bekkur til fiðrildi og froska og var mjög gaman hjá þeim. Sjá fleiri myndir hér.

26.2.2009

Stóra upplestarkeppnin.

Nemendur 7. bekkjar hafa frá því í nóvember, á Degi íslenskrar tungu, undirbúið sig 7. bekkurfyrir stóru upplestrarkeppnina sem haldin er ár hvert.  Nemendur skólans hafa æft framsögn og upplestur undir handleiðslu kennara sinna og voru 9 nemendur valdir í innanskólakeppnina sem fram fer föstudaginn 27. febrúar nk. Hafa þeir síðustu daga notið leiðsagnar Guðnýjar Ýrar Jónsdóttur sem undirbýr þá undir lokasprettinn.

Upplesararnir að þessu sinni eru Elvar, Hallfríður og Laufey úr 7. AH, Íris, Maríanna og Una Birna úr

 7. IH og úr  7. SG koma þau Andri Freyr, Gyða Björg (er ekki á myndinni) og Helga Kristín. Dómnefnd keppninnar í Árbæjarskóla að þessu sinni skipa; Hjörtur Marteinsson, fagstjóri í íslensku, Guðlaug Gunnarsdóttir, íslenskukennari á unglingastigi, fulltrúi frá foreldrafélaginu og einn fulltrúi nemenda af unglingastigi.

Víst er að framundan er spennandi keppni meðal þessara öflugu  upplesara og gaman að sjá hvaða þrír nemendur verða fulltrúar okkar á Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Árbæ og Grafarholti sem haldin verður í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 19. mars nk.

24.2.2009

Við erum vinir

Haldnir voru vinadagar hjá nemendum 1.-7. bekkja í síðustu viku. Guðrún Vinadagar 2aðstoðarskólastjóri setti vinadaga á sal skólans og af því tilefni sungu nemendur skólasöng Árbæjarskóla.

Á vinadögum unnu börnin ýmiskonar verkefni um vináttu og stofnað var til sambanda milli bekkja innan skólans. Í tilefni daganna var blásið til furðufataballs fyrir nemendur í 5.-7. bekk (sjá frétt hér á síðunni). Börnin í 1.-4. bekk komu saman á sal skólans í lok vinadaga og skemmtu hvert öðru með söng, upplestri og hljóðfæraleik.

Fleiri myndir frá vinadögum má sjá hér.

23.2.2009

Til hamingju!

Félagsmiðstöðin Ársel vann söngkeppni Samfés á laugardaginn var. Ólöf Kristín SamfesÞorsteinsdóttir, 15 ára, flutti lagið Mercy sem velska söngkonan Duffy hefur gert frægt. Henni til aðstoðar voru þau Auður, Lilja, Heiðdís, Jón Birgir og Andri en þau eru öll nemendur við Árbæjarskóla. Er þeim óskað innilega til hamingju með árangurinn.

23.2.2009

Hundrað daga hátíð í 1. IS

Fyrir nokkrum dögum héldu nemendur í 1. bekk hátíð í tilefni þess að 100 dagar voru 1. bekkurliðnir frá því að þeir byrjuðu í skólanum. Þeir fengu 10 mismunandi tegundir af góðgæti og töldu í 10 tugi og fengu svo að borða á eftir við mikla gleði eins og myndirnar sýna. Sjá fleiri myndir hér. Kær kveðja, Ingibjörg Soffía og 1. IS

23.2.2009

Vinahópar

Á vinadögum 18. – 20. febrúar eignuðust nemendur í 1. – 4. bekk vinahópa á miðstigi. Hittust hóparnir einu sinni á vinadögunum og gerðu sér glaðan dag. Á meðfylgjandiVinadagar myndum sést hvar 4. bekkur hittir sinn vinahóp en það eru nemendur úr 7 AH.

ÞÞ

20.2.2009

Furðufataball 5.-7. bekkur

Margar furðuverur voru á sveimi í Árbænum í gær. Þarna voru afar, ömmur, frænkur ogBall 5.-7. bekkur frændur. Klæðaburður þessa fólks var sérstaklega eftirtektaverður sökum fjölbreytileika og mikillar litagleði.Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þetta voru nemendur í Árbæjarskóla á leið í skólann sinn að skemmta sér á furðufataballi. Þessi skemmtun var í tengslum við vinadaga sem nú standa yfir í skólanum. Allir skemmtu sér hið besta og var mikið dansað og hlegið að klæðaburði félaganna.

Margrét Sigurðardóttir

5.MS

 

20.2.2009

Gerðuberg

Þann 19. febrúar fór 3. bekkur í heimsókn í Gerðuberg menningarmiðstöðina. Þar fórum við í ratleik um bókasafnið og þurftum að raða saman ljóðum, höfundum að bókum og 3. JL Gerðubergþekkja frægar sögupersónur. Við skoðuðum sýningu á myndum úr barnabókum og völdum bækur sem okkur finnast skemmtilegar og fékk Maxímús Músíkús flest atkvæði.

Í Gerðubergi er leikbrúðusýning sem unnin er úr Völsungasögu og heitir "Heyrðist eins og harpa væri að gráta". Við fengum leiðsögn um hana og var okkur sögð sagan í leiðinni.

Þetta var mjög skemmtileg ferð og stóðu allir sig vel líka kennararnir.

Sjá fleiri myndir hér.

Kveðja 3.bekkur.

19.2.2009

Undanúrslit í BEST stærðfræðikeppni

Í Árbæjarskóla tóku nokkrir 9. bekkir þátt í þessari norrænu stærðfræðikeppni. Einn af BEST 9.BGþeim bekkjum, 9. BG komst í undanúrslit og var einn af ellefu öðrum skólum. Undanúrslitin og lokakeppnin verður í Hafnarfirði 21.-22. apríl 2009.

Við óskum 9. BG innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Það verður gaman að sjá hverning þeim gengur í undanúrslitunum. Þeir bekkir sem ekki komast í úrslit geta tekið þátt í bekkjarverkefnum sem þetta árið er Stærðfræði og umhverfið.

18.2.2009

Textílmennt 6. bekkur

Stelpurnar í 6. bekk hafa verið iðnar við að prjóna og sauma undanfarið. Þær mæta 6. bekkur saumarspenntar í tíma og vinna sín verkefni af miklum áhuga. Helmingur þeirra byrjaði á því að velja sér prjónaverkefni á meðan hinn helmingurinn tókst á við saumavélaæfingar. Þær sauma sér svo bútasaumspúða úr flísefni, sauma út stjörnumerkið sitt og þegar þær hafa lokið við þau verkefni, tekur svo við val.

Steinunn Svansd.

Textílkennari

16.2.2009

Feðgafræðsla

Fyrirlestur og umræða.

Árni Guðmundsson, uppeldis- og menntunarfræðingur M.Ed, verður með fræðslu fyrir drengi í 6. og 7. bekk og karlkyns fylgdarmanni,   
þriðjudaginn 17. febrúar, kl. 20:00, í hátíðarsal Árbæjarskóla.   
Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan á fyrirlestri stendur.

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla.

13.2.2009

Frétt frá 10. – ÁB

Ónefndur fréttaritari hjúfraði um sig í stofu A6 í Árbæjarskóla, föstudaginn þrettánda10.ÁB(7,9,13). Þar var bekkurinn 10 ÁB að leik í stærðfræðitíma, margir voru vinnandi, en þó nokkrir svartir sauðir voru í hópnum. En annars get ég ekkert annað sagt en að þessi bekkur er frábær og hæfileikamótun Ástu Ben hefur svo sannarlega skilað sér í ystu æsar.

10.ÁB.

10.2.2009

Íslandsmeistarar í innanhússknattspyrnu

Nemendur úr Árbæjarskóla urðu Íslandsmeistarar í innanhússknattspyrnu nú um helgina eftir góðan sigur á KFR 3 - 1 í úrslitaleik.

Kjartan Stefánsson kennari við skólann er þjálfari 3.flokks karla.
 
Efri röð frá vinstri: Hermann Erlingsson liðsstjóri, Páll Pálmason, Árni Þórmar Þorvaldsson, Ásgeir Eyþórsson,   Íslandsmeistarar
Egill Trausti Ómarsson og Kári Jónasson þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Andri Már Hermannsson, Ragnar Bragi Sveinsson, Björgvin Gylfason, Ágúst Freyr Hallsson og
Benedikt Óli Breiðdal. Á myndina vantar Kjartan Stefánsson þjálfara.

 

9.2.2009

Skákmaður framtíðarinnar.

Sólrún Elín Freygarðsdóttir í 3. D.K. er nýkrýndur Íslandsmeistari stúlkna 3.DK Sólrún Elínsem fæddar eru árið 2000,  í skák. Eftir æsispennandi keppni stóð hún ein uppi sem sigurvegari með 3,5 vinning. Sú stúlka sem næst kom hlaut 3 vinninga.

Sólrún lærði mannganginn af föður sínum þegar hún var á sjötta ári. Hún á tvíburasystur, Halldóru að nafni, sem einnig teflir ásamt bróður þeirra Þorsteini  sem er níu ára. Er því oft tekin skák á heimili Sólrúnar.

Sólrún Elín byrjaði að tefla að ráði í janúar 2008 en það ár hóf hún æfingar hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Æfir hún reglulega á laugardögum undir handleiðslu Sævars Bjarnasonar þjálfara þar sem hún etur kappi við 16 – 20 stúlkur að jafnaði á æfingum.

Sólrún  segist vera hörð kepnismannsekja og alltaf tefla til vinnings og sættir sig illa við ósigra eða jafntefli. Uppáhaldsbyrjun hennar með hvítt er einföld en áhrifarík: e2-e4.

Stefnir Sólrún hátt í skákinni í framtíðinni og segir að í skák gildi það sem allir viti – að æfingin skapi meistarann! Að lokum saknar hún þess að ekki skuli vera kennd skák í Árbæjarskóla en vonar að svo verði í framtíðinni enda skákin göfug og góð hugaríþótt, full af spennu og keppni. 

9.2.2009

8.GH

Í 8. GH eru 21 hressir krakkar. Í síðustu viku fengu þau fræðslu um heilsu og hollustu. 8.GHÁhersla fræðslunnar var hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja og hugrekki. Fram kom að þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi geti stuðlað að auknu sjálfstrausti, betri félagsþroska og minnkað líkurnar á ýmiss konar áhættuhegðun. Þá kom einnig fram að samfelldur svefn sé nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska og að unglingar eigi að sofa 10 klukkustundir á nóttu. Nemdur í 8. GH stunda flestir íþróttir og passa að hvíla sig vel og borða hollan og góðan mat.

4.2.2009

Fyrirlestur og umræða.

Árni Guðmundsson, uppeldis- og menntunarfræðingur M.Ed, verður með fræðslu fyrir drengi í 6. og 7. bekk og karlkyns fylgdarmanni,   
þriðjudaginn 17. febrúar, kl. 20:00, í hátíðarsal Árbæjarskóla.   
Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan á fyrirlestri stendur.

Tekið er á þeim breytingum sem drengir ganga í gegnum á leið sinni til fullorðinsára. Fjallað um kynslóðabilið, netið, sjálfsmynd,  líkamlegar breytingar, einelti, heilbrigðan lífsstíl,  áhugamál og margt fleira sem lýtur að strákum og uppvexti þeirra.

Við í stjórn foreldrafélagsins vonumst til að feður/karkyns aðstandendur, nýti sér þessa fræðslu sem er einkar góð forvörn fyrir unga drengi á kynþroskaárum.

Kær kveðja,

Stjórn Foreldrafélags Árbæjarskóla.

3.2.2009

Landnám í Reykjavík.

7. SG fór á sýninguna Reykjavík 871+- 2 í Aðalstræti 16 í vikunni. Miðpunktur 7.SGsýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi. Mjög vel var tekið á móti hópnum og safnkennari leiddi okkur um safnið og sagði frá ýmsum fróðleik um skálann og líf íbúanna. Eftir leiðsögnina gátu nemendur síðan skoðað safnið sjálfir og prófað hina ýmsu tækni sem notuð er á skemmtilegan hátt í safninu. Þetta er glæsileg sýning sem gaman er að skoða. Takk fyrir góðar móttökur.

27.1.2009

Kynning á framhaldsnámi

Síðastliðið miðvikudagskvöld var haldin kynning á framhaldsnámi fyrir nemendur og Kynning á framhaldsnámiforeldra 9. og 10. bekkinga í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti. Kynningin fór fram í FB og mættu þar fulltrúar 12 framhaldsskóla og kynntu sitt með miklum myndarbrag. Kynningin tókst ákaflega vel og er talið að vel á annað þúsund manns hafi mætt. Flestir framhaldsskólar munu á vormánuðum hafa opin hús fyrir nemendur og forráðamenn þeirra. Námsráðgjafar munu senda upplýsingar um opin hús í tölvupóst til forráðamanna.

23.1.2009

BEST – Stærðfræðikeppnin.

Seinni lotan í hinni samnorrænu stærðfræðikeppni 9. bekkinga fór fram í Árbæjarskóla í morgun.BEST

Leystar voru átta þrautir og alltaf er jafn gaman að sjá þegar krakkarnir eru komnir á flug og eru að leggja sig öll fram við lausnirnar. Stundum þurfa þau að sýna bekkjarfélögum sínum hvernig þau fóru að og þurfa þá virkilega að rökstyðja mál sitt. Lausnirnar voru svo senda út til Noregs þar sem þær eru yfir farnar og verður spennandi að sjá hvort Árbæjarskóli muni eiga fulltrúa í úrslitunum hér á Íslandi eins og undanfarin ár.

21.1.2009

Niðurstöður úr könnun á foreldradegi.

Hér með þökkum við fyrir mjög góða þátttöku í viðhorfskönnun sem fram fór á meðal forráðamanna á foreldradeginum, 16. janúar sl. Var þetta í þriðja sinn frá því 2005 sem könnun er gerð á viðhorfi forráðamanna gagnvart skólastarfi Árbæjarskóla. Hér má skoða niðurstöður í heild sinni, jafnframt sem hægt er að nálgast niðurstöður úr eldri könnunum á heimasíðunni undir Mat á skólastarfi.

Með þakklæti fyrir góðar viðtökur,

Stjórn og starfsfólk Árbæjarskóla

21.1.2009

ÞAÐ GENGUR BETUR NÆST!

Árbæjarskóli mætti sterkur til leiks í Ársel í gær, þriðjudaginn 20. janúar, í annarri umferð Nema hvað. Mótherjarnir komu úr Hólabrekkuskóla, en það lið stóð sig feikilega vel í Nema hvaðfyrstu umferð keppninnar. Árbæjarskóli sat hjá og mætti því fyrst nú í seinni umferð. Það var því ljóst að baráttan yrði erfið gegn svo öflugu liði. Leikar fóru 15-22 Hólabrekkuskóla í vil.

Afgerandi forusta

Árbæjarskóli kaus að bíða meðan á Hólabrekkuskóli reið á vaðið í hraðaspurningum. Liðið uppskar strax 14 stig sem verður að teljast frábær árangur. Árbæjarskóli stóð sig líka með eindæmum vel en náði þó ekki með tærnar þar sem Hólabrekka var með hælana. Niðurstaðan var 10 stig fyrir okkar fólk. Jöfn og spennandi keppni fylgdi í kjölfarið í vísbendingarspurningum og leik. Stórleikarinn Gunnar Ólafsson 10KJ stóð sig vel í túkun sinni á orðinu "vekjaraklukka" sem Árbæingar lásu vel í og tryggðu sér 2 stig. Þeir unnu hratt upp forskot Hólabrekku og að lokinni þessari umferð stóðu leikar 15-16 Hólabrekku vil og spennan í hámarki. Í valspurningum stungu þeir hins vegar okkar fólk af svo að ekki sást til sólar. Við stóðum í stað með okkar 15 stig en Hólabrekka bætti við sig 6 í viðót. Niðurstaðan var afar verðskuldaður sigur öflugs liðs Hólabrekkuskóla sem við hljótum öll að óska góðs gengis í keppninni. Hægt er að fylgjast með úrslitum á vef ÍTR www.itr.is

Nýr hópur þreytir frumraun sína

Lið Árbæjarskóla skipuðu þau Sólveig og Atli úr 8KV og Hafsteinn og Bjarki úr 10PH. Voru þau öll að taka þátt í keppninni í fyrsta skipti. Góður andi hefur ríkt á æfingum og liðið tekið miklum framförum í vetur. Það er ljóst að þau Atli og Sólveig munu mæta sterk til leiks í Nema hvað að ári. Hafsteini og Bjarka er þökkuð góð þátttaka en þeir útskrifast í vor og verða því ekki með aftur.

15.1.2009

Kynning á framhaldsnámi

Náms- og starfsráðgjafar í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Norðlingaholti standa að sameiginlegri kynningu á framhaldsskólum og framhaldsnámi. Kynningin er hugsuð sem tækifæri fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og forráðamenn þeirra, til að kynna sér á einum stað það framhaldsnám sem í boði er á höfuðborgarsvæðinu. Slík kynning fór í fyrsta skipti fram í fyrra og þótti takast vel.

 

Fyrirkomulagið verður með þeim hætti, að hver framhaldsskóli verður með kynningarsvæði og fulltrúa á staðnum. Nemendum og forráðamönnum þeirra gefst þannig tækifæri til að rölta á milli svæða og ræða við fulltrúana og kynna sér hvað hver skóli hefur upp á að bjóða.

 

Framhaldsskólarnir sem verða með kynningarsvæði á staðnum eru:

Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Tækniskólinn, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn Hraðbraut, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík,  Menntaskólinn við Sund og Verslunarskóli Íslands.

 

Kynningin verður miðvikudaginn 21. janúar n.k.

í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti frá kl. 17:00 – 20:00.

 

Almennar upplýsingar um nám að loknum grunnskóla

 

Með kveðju frá náms- og starfsráðgjöfum í skólahverfi 3.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð