31.1.2008
Úrslitin í Nema hvað.
Í gærkvöldi fóru fram úrslit spurningakeppni grunnskólanna.
Liðið okkar mætti þar geysisterku liði Hagaskóla. Skemmst er frá því að segja að sigurmöguleikarnir fóru nánast strax. Stressið í hraðaspurningunum var alltof mikið og í stað þess að segja pass var sagt bíddu, bíddu og þar með fékk liðið mun færri spurningar en andstæðingarnir. Staðan var 11-8 fyrir Hagaskóla og þá þurfti að taka sénsa sem ekki gengu upp. En lið Árbæjarskóla er búið að standa sig frábærlega og hefur aldrei náð svona langt í þessari keppni. Strákarnir þrír ásamt Tómasi, Jóhanni, Bjarka og Hafsteini hafa æft vel og viljum við óska þeim öllum til hamingju með árangurinn. Í gær töpuðu þeir bara fyrir betra liði og óskum við Hagaskóla til hamingju með sigurinn. En stóru sigurvegarnir í gær var stuðningslið skólans sem hafði samið baráttusöngva og var til mikillar fyrirmyndar í alla staði í útvarpshúsinu í gær. Þetta er búið að vera mjög gaman en nú er bara að fara finna lið fyrir næstu keppni.
31.1.2008
Fréttir frá 5. K.V.
Í dag fimmtudag er síðasti dagurinn hennar Thelmu í bekknum okkar. Hún er að flytja á Selfoss og fer hún því í annan skóla. Við óskum Thelmu alls hins besta í nýja skólanum og vonum að henni líði þar vel. Við munum hins vegar sakna hennar. 
Í bekknum höfum við verið að vinna með ljóð og ljóðagerð. Sólveig sem er nemandi í 5. KV orti þetta frábæra ljóð sem heitir:
Þegar sólin skín.
Þegar sólin skín, bý ég til rím,
og það er til þín,
ef þú gefur mér
þá gef ég þér,
Ég gef þér dós
ég gef þér rós
ég gef þér eitt lítið hrós
29.1.2008
Sigur í undanúrslitum Nema hvað.
Spurningaliðið okkar vann góðan sigur á Engjaskóla í gærkvöldi. Liðið hafði forystu 15-12
eftir hraðaspurningar og náðu strax í 3 stig í vísbendingaspurningunni og þar með var sigurinn nánast í höfn. Lokastaðan var 21-14. Þar sem þetta var undanúrslit eru "strákarnir okkar" komnir í sjálfan úrslitaleikinn gegn liði Hagaskóla eða Laugalækjarskóla en þau keppa í kvöld. Úrslitin fara svo fram í beinni útsendingu á Rás nk. miðvikudag. Liðinu fylgdu í útvarpshúsið yfir 40 stuðningsmenn sem hvöttu strákana áfram. Frábært að fá svona stuðning. Til hamingju með sigurinn Árni, Sigurgeir og Tryggvi og gangi ykkur vel á miðvikudaginn.
25.1.2008
Bóndadagurinn
Í tilefni af bóndadeginum mættu margir nemendur, í 1. – 4. bekk, í þjóðlegum
klæðnaði s.s. ullarfatnaði og sást jafnvel íslenskur búningur á ferð um skólann. Í hádeginu var þorraþrællinn sunginn við undirleik og svo var smakkað á hákarli, sviðasultu og harðfiski með grjónagrautnum. Veðrið setti líka skemmtilegan svip á daginn sem tókst í alla staði mjög vel.
25.1.2008
Háspenna
Árbæjarskóli varð í gær hverfismeistari í hverfi 3 í spurningakepnni grunnskólanna, Nema hvað. En spennan var gífurleg. Eftir hraðaspurningarnar hafði liðið eins stigs forskot, 13-12. Árbæjarskóli bætti við tveimur stigum í vísbendingaspurningunni og þetta leit
ágætlega út. Liðin fengu sitt stigið hvort í leikþrautinni, en það gekk frekar illa hjá liðunum báðum að svara bjöllu- og valspurningum en þó sýnu betur hjá Seljaskóla sem jafnaði leikinn á síðustu spurningu keppninnar. Staðan var því 17-17. Þá var bráðabani og það liðið sem fyrst svaraði tveimur bjölluspurningum sigraði.
Seljaskóli svaraði 1.spurningunni rétt og var með pálmann í höndunum en eftir nokkrar spurningar jöfnuðu strákarnir þetta og náðu svo að knýja fram sigur að lokum. Þeir hugsa líklega hlylega til Hara systra og Þórarins Eldjárns.
Þetta var frábæar keppni tveggja sterkra liða en eigum við ekki bara að segja að betra liðið vann.
Nú keppir liðið við hverfismeistara hinna 3ja hverfanna um grunnskólameistartitilinn, en þeir eru Hagaskóli, Engjaskóli og Laugalækjaskóli. Keppninni verður útvarpað á ras 2 og fer fram í útvarpshúsinu. Árbæjarskóli dróst á móti Engjaskóla og fer sú keppni fram á mánudagskvöld, en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram degi síðar.
Við viljum þakka þeim krökkum sem komu með og studdi liðið en það hafði mikið að segja og voru áhangendur beggja liða skólum sínum til sóma.
Að lokum óskum við liðinu, þeim Tryggva, Árna og Sigurgeiri til hamingju og sendum þeim baráttukveðjur í úrslitunum.
24.1.2008
1-BH
Fyrstu vikurnar í janúar hafa gengið mjög vel og vinnuandinn er mjög góður eins og sést
á myndinni hérna við hliðinna. En þarna voru börnin við stafavinnu, að finna orð sem á við stafinn B og fleiri stafi. Við erum einnig svo heppin að vera með gest í bekknum hún heitir Thelma Kristín sem er búsett í Ástralíu. Hún verður hér í 4 vikur.
Nú eru einnig komnar fleiri myndir frá bekknum sjá hér.
Kveðja allir í 1-BH
18.1.2008
Glæsisigur í Nema hvað.
Í gærkvöldi keppti spurningalið Árbæjarskóla við lið Hólabrekkuskóla.
Eftir hraðaspurningar var staðan 17-14 fyrir Árbæ. Fljótlega varð staðan 21-20 og var farið að fara um okkar fólk. En þá var sett í gírinn og aldrei litið tilbaka. Það vannst glæstur sigur
29-20 og þar með var náð fram hefndum á Hólabrekku sem sló skólann okkar út í fyrra. Reyndar urðu þeir grunnskólameistarar í framhaldinu. Þannig að þetta var sætur sigur.
N.k. fimmtudag verður svo úrslitaleikur um hverfismeistarann við Seljaskóla sem vann sinn leik 28-18. Sigurliðið keppir síðan við hverfismeistara hinna þriggja hverfa borgarinnar. Úrslitakeppnin hefst kl. 18 og verður haldin í Miðbergi í Breiðholti.
Viljum við hvetja fólk til að mæta og styðja liðið okkar, því það skiptir miklu máli.
Til hamingju með sigurinn Árbæjarskóli.
16.1.2008
Nema hvað verður í Árseli.
Á morgun kl. 20.15 verður fyrsta keppni Árbæjarskóla í spurningakeppninni Nema hvað 2008? Keppt verður við meistara síðasta árs sem er Hólabrekkuskóli, en Árbæjarliðið tapaði naumlega fyrir þeim í fyrra. 
Lið ársins er skipað þeim Tryggva og Sigurgeiri 10 SÞ og Árna Frey 10 SH. Liðstjóri er Tómas 10 SH og með þeim hafa æft þeir Jóhann 10 SÞ, Bjarki og Hafsteinn í 9 RH.
Liðið mætti á sal í morgun og keppti við harðsnúið lið kennara, sem skipað var þeim Sigga tölvukennara, Skarphéðni að ógleymdum aðstoðarskólastjóranum glæsilega, Guðrúnu Þórhalls, en hún er sérlega áhugasöm um þessa keppni.
Skemmst er frá því að segja að nemendur höfðu nauman sigur, 20-19 eftir hörkuspennandi keppni.
Við hvetjum sem flesta til að mæta á morgun og styðja liðið, en takið vel eftir að keppnin verður í Árseli kl. 20 15.
16.1.2008
Hreysti 2008.
Í morgun 16.01 komu allir unglingar saman á sal þar sem nemendaráð kynnti það sem næst er á dagskrá í félagslífinu. Minntust þeir á árshátíðina sem er þann 27. feb og spurningakeppnina sem hefst á morgun.
Ennfremur byrjar Hreysti 2008 á morgun. Þar keppa fyrir hönd skólans þær Viktoría í 8 MS og Stefanía í 10 UG og strákarnir eru þeir Hákon í 10 UG og Dagur Ingi í 10 SH.
Við óskum þeim góðs gengis og vonum að sem flestir mæti og styðji krakkana.
10.1.2008
Fréttir af 1. BÞ
Nokkrar breytingar urðu á bekknum okkar nú um áramótin. Sunna Marín og Benedikt Frank hættu í Árbæjarskóla og eru nú komin í nýja skóla annars staðar. Þeirra er sárt saknað og við óskum þeim alls góðs á nýjum stað. Við vorum hins vegar
9.1.2008
Allir til starfa á ný!
Starfsfólk Árbæjarskóla óskar ykkur gleðilegs nýs árs og hlakkar til skemmtilegs samstarfs á árinu.
Skólastarf er nú hafið að nýju eftir gott jólaleyfi. Allir mættir til starfa, nemendur sem og starfsfólk, og mikill hugur í fólki. Nemendur yngri deilda eru í haustprófum þessa dagana en nemendur unglingadeildar tóku hins vegar prófin í desember og hafa þegar fengið sitt námsmat. Foreldradagur er 1. febrúar nk. og hittast þá kennarar, nemendur og forráðamenn og fara yfir starf haustannar og hvað framundan er á vordögum.
Nokkrar breytingar urðu á fyrirkomulagi matarmála í skólanum um áramótin, þá sérstaklega í unglingadeild. Fjöldi unglinga er nú komin í fasta mataráskrif og snæðir heitan mat í hádeginu. Einnig varð gagnger endurskoðun á vöruúrvali í mötuneyti skólans. Verð drykkjarvara breyttist um áramótin og má nálgast það ásamt verðskrá mötuneytis á heimasíðunni.
Framvegis verður matseðill skólans sendur til forráðamanna í tölvupósti og jafnframt má nálgast hann á heimasíðu skólans.











