Beint á leiðarkerfi vefsins
Forsíða

15.12.2008

Röskun á skólastarfi vegna óveðurs

Tilmæli um viðbrögð foreldra og forráðamanna sjá nánar hér.

12.12.2008

„Stjarnan mín mun allar leiðir lýsa"

Fimmtudaginn 4. desember héldu kórar Árbæjarskóla glæsilega tónleika í Árbæjarkirkju og var kirkjan fullsetin.Tónleikar 2008
Í dag eru starfræktir þrír kórar við skólann, byrjendakór fyrir nemendur í 2. bekk, yngri kór með nemendum úr 3.- 4. bekk og eldri kór sem skipaður er nemendum úr 5. -7. bekk. Kórstjóri er Anna María Bjarnadóttir tónmenntakennari.
Dagskrá tónleikanna var fjölbreytt og skemmtileg. Kórarnir sungu ýmist hver í sínu lagi eða saman. Kynnir var Mekkín Hauksdóttir 4. bekk. Guðrún Friðriksdóttir 7. bekk spilaði undir á flautu í nokkrum lögum og Lilja Eyvör Gunnarsdóttir 10. bekk söng einsöng.
Er Önnu Maríu og kórfélögum óskað til hamingju með frábæra tónleika.
Fleiri myndir frá tónleikunum má sjá hér.

5.12.2008

Skólahreysti

Í nóvember var auglýst eftir nemendum sem hefðu áhuga á að spreyta sig í Skólahreystiskólahreysti. Skemmst er frá því að segja að áhuginn var mikill og mættu um 40 krakkar á fyrstu æfinguna og rúmlega 30 spreyttu sig í úrtaki. Við viljum hrósa öllum sem mættu og sýndu þessu verkefni áhuga.

Eftir það var valinn 14 manna hópur sem æfir saman fram í byrjun janúar. Eftirtaldar stelpur voru valdar: Rósa 10 PH, Birta 9 MS, Viktoría MS, Ylfa 9 BG, Guðrún 8 ÁS, Svava Rós 8 GH og Kristín Liv 8 KV.

Og strákar: Arnór 10 UG, Birkir 10 AA, Jónas 10 PH, Tómas 10 HM, Davíð 10 KJ, Jóhannes Árni 9 MG og Jóhannes Gauti 9 MG.

Þessir krakkar fá góð ráð og æfingar hjá Valla og Óla í Sporthúsinu í Kópavogi. Og einnig munu þau æfa hér í skólanum undir handleiðslu Jóhönnu og Ragga. Í janúar verður svo endanlegt skólalið valið og fer það algjörlega eftir árangri, framförum og ekki síst dugnaði og jákvæðni hverjir taka þátt í skólahreysti fyrir hönd skólans.

 

Gangi ykkur vel krarkkar.

2.12.2008

Fullveldisdagurinn í Árbæjarskóla

Fullveldisdagurinn í Árbæjarskóla var haldinn háðtíðlegur á sal skólans 1. desember 2008. Eftir að skólastjóri hafði boðið nemendur velkomna á sal hélt formaður nemendaráðs, Guðrún Gígja Georgsdóttir, stutta tölu um fullveldisdaginn og þýðingu hans fyrir íslenska þjóð. Þar á eftir voru úrslit örsögukeppni Árbæjarskóla kynnt og verðlaun veitt. Verðlaun fyrir bestu sögurnar hlutu Gunnar Ólafsson í 10. bekk og Auður Hávarsdóttir í 9.bekk. Að auki voru veitt önnur og þriðju verðlaun fyrir þær sögur sem skara þóttu 1. desfram úr. Á eftir fór fram spurningakeppni á milli nemenda og kennara og lauk henni með frækilegum sigri nemenda 31 - 25. Næst var boðið upp á söngatriði þar sem fimm stúlkur sungu ættjarðarlög í bland við hinn ástsæla skólasöng. Var mikið klappað í lokin fyrir öllum þeim sem komu að deginum og viðurkenningar hlutu. Samkomu á sal lauk með því að skólastjóri sleit samkomunni.

Þessi hlutu verðlaun í örsögukeppninni, frá vinstri Gunnar Ólafsson, Auður Hávarsdóttir, Thelma Hulda Símonardóttir, Pétur Holger Ragnarsson og Andri Hrafn Ármansson

Fleiri myndir sjá hér.

28.11.2008

5. bekkur

Fyrir stuttu fór 5. MS og 5. ÞO í heimsókn í Mjólkursamsöluna. Þar sem fyrirtækið er í 5.MShverfinu gátum nemendur og kennarar labbað í góða veðrinu. Sérstaklega vel var tekið á móti hópnum og var gaman að sjá að margir aðrir skólahópar voru á ferðinni þennan morguninn. Gengið var um alla sali og farið yfir framleiðsluferilinn. Mesta aðdáun barnanna vakti flottur pökkunarróbóti. Farið var í stóran kæli og ferðast var á milli hæða í stæðstu fólkslyftu sem til er á Íslandi. Í enda ferðarinnar var öllum hópnum boðið uppá kleinur,epli, heilsukökur og ískalda mjólk. Og í nesti fengu svo allir íspinna. Þessi ferð var afar ánægjuleg og gaman að heimsækja svona gott fyrirtæki í hverfinu okkar . Takk fyrir góðar móttökur.

28.11.2008

BEST – Stærðfræðikeppnin

Nokkrir 9. bekkir Ábæjarskóla tóku þátt í fyrstu lotu hinnar norrænu stærðfræðikeppni sem áður hét KappAbel en ber í dag nafnið BEST. Jafnaldrar þeirra í mörgum skólum landsins og hinna Norðurlandanna hafa verið að glíma við verkefnin sem byggjast upp á 8 þrautalausnum og vinnur hver bekkur fyrir sig að sameiginlegri lausn.BEST

Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með krökkunum og þá sérstaklega þegar þau eru að rökstyðja svörin hvert fyrir öðru. Seinni hluti undankeppninnar verður svo í byrjun næsta árs.

25.11.2008

Jólaföndur Árbæjarskóla

Laugardaginn 29. nóvember, kl. 11.00 – 13.30, verður boðið upp á

jólastund í hátíðarsal skólans.

Boðið verður upp á keramikmálun, jólakortagerð og létt

pappírsföndur fyrir þau yngstu.

Heitt kakó og piparkökur í boði Foreldrafélagsins.

Hvetjum alla til að mæta og eiga notalega jólastund í upphafi

aðventunnar.

Munið eftir að koma með pensla fyrir keramikmálun, lím, liti, skæri

og glimmerlím fyrir jólakortagerð, plastpoka undir jólaföndrið,

góða skapið og annað sem ykkur finnst þið þurfa fyrir

jólaföndurgerðina.

Jólakveðja, Foreldrafélagið

17.11.2008

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu heimsóttu elstu nemendur leikskólanna Árborg og Rofaborg Dagur íslenskrar tungu
nemendur 1. bekkja. Haldin var stutt samkoma inni á sal skólans og má skoða myndir af henni hér.

17.11.2008

Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur

Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur voru afhent, annað árið í röð, á degi íslenskrar tungu hinn 16. nóvember. Rúmlega eitt hundrað nemendur í grunnskólum Reykjavíkur fengu verðlaun að þessu sinni, rúmlega 50 einstaklingar og 8 hópar. Mikil Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkurhátíðarstemning og húsfyllir var í Ráðhúsi Reykjavíkur við afhendingu verðlaunanna, en þangað mættu nemendur ásamt foreldrum sínum, kennurum og skólastjórnendum.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sem er verndari verðlaunanna, flutti ávarp þar sem hún nefndi meðal annars mikilvægi þess að við stöndum vörð um íslenska tungu. Að því búnu afhenti hún verðlaunin ásamt þeim Mörtu Guðjónsdóttur, formanni nefndar um verðlaunin og Oddnýju Sturludóttur fulltrúa í nefndinni.

Þrír nemendur Árbæjarskóla hlutu verðlaun þennan dag, þau Rebekka Rós Ragnarsdóttir 4. BB, Natalia Lukazewska 7.SG og Gunnar Ólafsson 10. ÁB.

13.11.2008

Frétt frá 3. KG

Við í 3. KG erum að læra um risaeðlur. Það sem við vitum um þessar furðulegu skepnur3.KG er sko ýmislegt eins og að sumar risaeðlur eru grænmetisætur, sumar risaeðlur borða risaeðluegg, risaeðlur eru stórar með litlar fætur, risaeðlur hafa lítinn heila, risaeðlur hlaupa hratt, grameðlur hafa beittar tennur og risaeðlur eru útdauðar. Það er margt sem okkur langar að vita um risaeðlur, t.d. hvernig þær urðu til ? Hvar áttu þær heima ? Hvernig náðu þær sér í mat ?

Núna erum við að búa til risaeðlur úr pappaumbúðum, eldhúsrúllum, mjólkurfernum og fleiru sem við komum með að heiman.

12.11.2008

Glerlist

Í glerlist hjá Sóleyju er allt afgangsgler nýtt í listaverk Glerlistmeð speglum og hér má sjá smá sýnishorn af því.

12.11.2008

Hæfileikakeppni?

Í gær fór fram undankeppni Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna. Árbæjarskóli var Skrekk 2008fyrstur á svið og flutti sitt atriði óaðfinnanlega. Þar kom fram fallegur söngur, frábær hljóðfæraleikur, góður leikur og flottir dansar. Atriðið sem við sáum í skólanum í gær í mjög lélegum hljómgæðum var nánast eins og nýtt á sviðinu í Borgarleikhúsinu, þar sem allur texti komst vel til skila. Frábær frammistaða krakkanna hefði átt að skila þeim áfram og miðað við önnur atriði kvöldsins sem voru mörg hver mjög góð, var aldrei spurning í huga okkar flestra að það yrði önnur sýning á úrslitakvöldinu. En af einhverjum orsökum sem við einfaldlega skiljum ekki varð það ekki raunin. En dómarar kvöldsins sáu eitthvað annað og við því er hreinlega ekkert að gera. Skoðun fólks á hæfileikum er greinilega mjög misjöfn.

En frammistaða krakkanna á sviðinu var glæsileg og ekki síður hinna 140 áhorfenda sem áttu salinn gjörsamlega í appelsínugulum bolum og stelpurnar með túberað hárið. Glæsilegur hópur sem var skólanum sínum til mikils sóma.

11.11.2008

ER EINHVER MEÐ SKREKK?

Hæfileikakeppnin Skrekkur verður haldin dagana 10., 11., 12. og 17. nóvember næstkomandi í Borgarleikhúsinu.Skrekk

Í dag sýndi Skrekkshópur Árbæjarskóla 5.-10. bekkingum atriðið sitt á Sal. Í kvöld verður það síðan sýnt í undankeppninni í Borgarleikhúsinu.
Hópurinn fór á kostum í dans og söng og hrifust áhorfendur mjög af atriðinu. Rúmlega 120 nemendur úr unglingadeild munu styðja við bakið á okkar fólki í kvöld og hvetja hópinn til dáða. Miklar væntingar eru bundnar við atriðið enda hefur Árbæjarskóli komist fimm sinnum í úrslit í Skrekk undanfarin sex ár.
Úrslit Skrekks munu fara fram þriðjudagskvöldið 18. nóvember næstkomandi.

7.11.2008

Skólavinir

Skólavinaverkefnið er liður í lífsleiknikennslu í 7. bekk og hefur verið í sífelldri skólavinirendurskoðun og þróun undanfarin ár. Í vetur hefur árganginum verið skipt niður á verkefnið eftir bekkjum og hafa nemendur í 7. AH verið skólavinir frá því skólastarf hófst í haust og eru nú að ljúka störfum. Bekknum var skipt í hópa sem skiptust á að fara út í fyrstu frímínútum. Skólavinirnir hafa leikið við yngri nemendur, kennt þeim leiki, leyst ágreiningsmál og margt fleira. Nemendur 7. AH hafa staðið sig mjög vel sem skólavinir og þakka nemendur og starfsfólk skólans þeim kærlega fyrir samstarfið.

6.11.2008

Forvarnardagurinn

Í dag 6.nóvember er Forvarnardagurinn haldinn í grunnskólum landsins í þriðja sinn. Kjarni Forvarnardagsins fellst í verkefnavinnu í öllum 9.bekkjum grunnskólanna.

Í Árbæjarskóla hefur verið unnið að forvörnum þessa viku og verður því haldið áfram í næstu viku.

Í kvöld verða fundir með foreldrum á vegum Maríta samtakanna á Íslandi.

Fundir verða fyrir forráðamenn nemenda í 7.bekk kl. 18.00 og fyrir forráðamenn nemenda í 9.bekk kl.20.00

Taktu þátt! Hvert ár skiptir máli.

4.11.2008

Fíasól

Miðvikudaginn 29. október fengum við góða gesti í heimsókn. Fíasól

Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Halldór Baldursson myndlistarmaður

komu og sýndu nemendum í 3. og 4. bekk hvernig Fíasól og persónur í bókinni verða til.

Einnig fengu þeir að heyra brot úr nýjustu sögunni um Fíusól.

Allir skemmtu sér konunglega og þökkum við gestunum kærlega fyrir komuna.

4.11.2008

Marítafræðsla í Árbæjarskóla

Athygli er vakin á fræðsluverkefninu, "Hættu áður en þú byrjar", sem beint er gegn Maritas

útbreiðslu fíkniefna. Að verkefninu standa Forvarna- og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík, Félagsþjónustan í Reykjavík og Marita forvarna- og hjálparstarf. Fræðslufundur fyrir nemendur er á skólatíma og foreldra síðar. Markmiðið með fæðslunni er að fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra. Mikilvægt er að börn og foreldrar þeirra ræði um þessi mál sín á milli. Því er nauðsynlegt að þau fái sömu fræðslu, þó að nálgun efnisins sé ólík á fundunum. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á

http://www.marita.is

Fræðslan verður í Árbæjarskóla dagana 4.-6. nóvember.

10. bekkur fær eftirfylgd frá fræðslunni í fyrra.

9. bekkur fær Marítafræðsluna "Hættu áður en þú byrjar".

7. bekkur fær fræðsluna "Allir hinir mega það".

Fimmtudaginn 6.nóvember verða haldnir foreldrafundir:

Kl. 18.00 fyrir foreldra nemenda í 7. bekk

Kl. 20.00 fyrir foreldra nemenda í 9. bekk

Foreldrar eru hvattir til að mæta á þessa fundi.

3.11.2008

Knattspyrnumót grunnskóla 10 bekkir

Um helgina fór fram grunnskólamót í fótbolta fyrir 10.bekkinga. Árbæjarskóli mætti með hörkulið bæði í kvenna og karlaflokki. Knattspyrnumót grunnskóla 10 bekkir

Strákarnir voru mættir kl 9 á laugardagsmorgun og skemmst er frá því að segja að þeir unnu tvo leiki og gerðu eitt jafntefli sem dugði þeim til sigurs í riðlinum og voru þeir því komnir í úrslitariðil.

Stelpurnar mættu aftur á móti kl 9 á sunnudagsmorgun eldsprækar. Þær unnu þrjá fyrstu leikina sína en töpuðu þeim fjórða 1-0 á hálfgerðu klaufamarki sem dugði til að fella þær. Þær náðu sem sagt ekki í úrslit og munaði aðeins einu marki en þrjú lið voru jöfn í riðlinum. Held samt að það sé ekki hlutdrægni þótt ég segi að þær hafi verið með besta liðið í riðlinum þrátt fyrir að geta ekki teflt fram sínu besta liði vegna landsliðsæfinga.

Strákarnir komu svo í úrslitin seinni part á sunnudag beint úr leik í haustmóti með Fylki. Þar unnu þeir KR 3-2 í hörkuleik. Í fyrsta leiknum léku þeir nánast gegn sama liði þar sem þeir mættu Hagaskóla. Strákarnir komust strax í 1-0 og þetta leit vel út. Síðan dró mjög af þeim og fengu þeir á sig 2 mörk nánast á sömu mínútu. Töpuðu leiknum 1-2. Gerðu síðan 1-1 jafntefli við Foldaskóla og þar með var draumurinn um að halda titlinum í Árbæjarskóla úti.

Bæði lið stóðu sig frábærlega vel og voru með nægilega góð lið til að komast í úrslitaleikina en því miður tókst það ekki. Bæði spilaði smáóheppni þar inn í og einnig haustmót strákanna og landsliðsæfingar stelpnanna. En krakkarnir voru sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

31.10.2008

Nafnasamkeppni – Bangsadagur

Í tilefni af bangsadeginum eignaðist bókasafnið tvo nýja bangsa. Haldin var Bangsadagurinnnafnasamkeppni meðal barnanna í 1. – 4. bekk. Hver bekkur valdi tvö nöfn sem skilað var til dómnefndar. Dómnefndin var skipuð Guðrúnu Þóru námsráðgjafa, Andrési kennara á unglingastigi og Guðrúnu Ernu aðstoðarskólastjóra. Nöfnin Benjamín og Birta urðu fyrir valinu og áttu börn í 1.EB og 4. BB hugmyndina að þessum nöfnum. Þau fá að hafa bangsana í sínum heimastofum í vetur. Í framtíðinni verður heimili bangsanna á bókasafninu.

30.10.2008

2. BÞ

Bangsadaginn bar í ár upp á mánudaginn 27. október þegar við vorum enn í vetrarleyfi 2.BÞog því héldum við hann hátíðlegan hér í skólanum s.l. miðvikudag. Nemendur komu með bangsa með sér í skólann og skemmtu bangsarnir sér konunglega með börnunum við leik og störf. Bangsarnir sem heimsóttu 2. BÞ voru mældir og viktaðir, teiknaðir og knúsaðir, og sumir fengu að lesa og hjálpa eigendum sínum að velja verkefni.

23.10.2008

Dúskur litli

Við í 1. MJ eignuðumst yndislegan bekkjarbangsa í haust sem fékk nafnið Dúskur. 1.MJ(Dúskur er reyndar hundur en það plagar okkur ekkert). Á hverjum föstudegi fær Dúskur að fara heim með einhverjum úr bekknum. Dúskur litli á dagbók sem hann hefur alltaf með sér í þessar heimsóknir. Þegar hann svo kemur í skólann á mánudegi les Margrét kennari fyrir okkur úr bókinni hans.

22.10.2008

Uppskerutími

Í tilefni af því að árið 2008 er ár kartöflunnar settu nemendur 4.bekkjar 5. bekkurniður kartöflur í afmælisvikunni s.l. vor. Krakkarnir sem nú eru komin í 5.bekk tóku kartöflurnar upp nýlega. Ekki mátti seinna vera því nokkrum dögum áður snjóaði. Hver nemandi setti niður eina kartöflu og vógu þær samatals 1679g . Uppskeran reyndist hins vegar vega 10418g. Telst hún vera um sexföld sem verður að teljast ágætt miðað við aðstæður á vaxtarstað.

Krakkarnir stóðu sig með prýði og fór hvert þeirra heim með sinn hluta af uppskerunni.

 

20.10.2008

Grunnskólamót í knattspyrnu 7.bekkur

Strákarnir taplausir

Grunnskólamótið í fótbolta fyrir 7.bekkinga var haldið um helgina í Egilshöll. Árbæjarskóli mætti að sjálfsögðu með 2 lið á svæðið. Grunnskólamót í knattspyrnu 7.bekkur

Stelpurnar gerðu tvö jafntefli þar sem þær voru miklu betri aðilinn, en töpuðu einum leik í riðlinum sem dugði þeim ekki til að komast í úrslitariðilinn. En góð frammistaða engu að síður.

Strákarnir unnu sinn riðil, tveir sigrar og eitt jafntefli. Þeir léku í úrslitariðlinum við lið frá Korpuskóla og Borgarskóla, gerðu jafntefli við Borgarskólann en unnu Korpuskólann 4-2. Það var því ljóst að markatala myndi ráða því hvað lið færi í úrslitaleikinn og þurftu strákarnir að bíða og sjá hvernig leik Korpuskóla og Borgarskóla lyki. Því miður hafði Korpuskóli ekki að neinu að keppa og Borgaskóli tryggði sér úrslitasæti með 5-1 sigri. En Árbæjarstrákarnir töpuðu ekki leik í mótinu og stóðu sig frábærlega, ótrúlega hæfileikaríkir knattspyrnumenn.

Bæði strákar og stelpur lögðu sig vel fram og voru til fyrirmyndar á þessu móti.

15.10.2008

10 RH í hreinsunarátaki

Í umsjónartíma fóru krakkarnir í 10 RH einn hring í kringum skólann vopnuð 10.RHgúmmíhönskum og plastpokum. Tilgangurinn var að tínu upp rusl sem á vegi þeirra varð. Þau voru ekki lengi að fylla pokana sem segir okkur tvennt. Þau voru rosalega dugleg og umgengnin er ekki nógu góð. Hvetjum við alla til að ganga vel um. En þetta gekk vel enda frábært veður og bara fínt að vera úti.

Í síðustu viku var sami hópur að þrífa niðri í frímínútum og matartíma og sama sagan þar að þau gerðu þetta mjög vel. En það er líka ástæða til að hvetja nemendur til að ganga enn betur um eftir sig á göngum skólans.

13.10.2008

Sönghópur frá Ártúnsskóla í heimsókn

Síðastliðinn fimmtudag kom sönghópur frá Ártúnsskóla í heimsókn til Eldri kórs KórÁrbæjarskóla . Það var mikið sungið og allir skemmtu sér konunglega. Boðið var upp á hressingu og í lokin var farið í leiki. Þetta var afar ánægjuleg heimsókn og vonandi ekki í langt í það að við getum endurtekið þetta. Kveðja Anna María og stelpurnar.

10.10.2008

8.KV

Í 8. KV komum við saman úr þremur skólum, Selásskóla, Ártúnsskóla og Árbæjarskóla. 8.KVVið höfum kynnst krökkunum ágætlega og flestir eru ánægðir með bekkjarfélagana. Við höfum tekið þó nokkur próf og bekknum í heild hefur gengið vel. Nú ætlum við að segja það sem er okkur efst í huga.

Það var geðveikt gaman á rósaballinu. Allir fríkuðu út og skemmtu sér vel og það var hörkustuð á dansgólfinu. Við dilluðum okkur við hljómsveitnina „Hvar er Mjallhvít". 10. Bekkingar sóttu okkur á t.d. hummerlimmum og húsbílum. Þetta heppnaðist mjög vel þó að margir hefðu haft áhyggjur á að vera ekki sóttir. Við erum ánægð með starfsemi Ársels og erum oft þar. Okkur fannst reyndar frekar fúlt þegar fermingarfræðslan rakst á við haustferð Ársels. En aumingja þið að hafa okkur ekki með Við erum mjög skemmtileg x)

Bæææj :‘)

10.10.2008

3.JL

3. bekkur hefur verið að vinna með hafið í samfélagsfræði.3.JL

Það er margt sem við erum búin að gera. Læra um fiska,fjöru,skip og gera flotta hvalabók fyrir verkefnin okkar.

Í þessari viku höfum við talað um fugla sem lifa við sjóinn og völdum lundann til að teikna og mála. Núna er lundinn tilbúinn og bíður eftir því að við gerum sjó og bjarg fyrir hann.Sjá fleiri myndir hér.

Kveðja Jóhanna Lára

6.10.2008

Ólympíustærðfræði

Háskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið í Ólympíustærðfræði fyrir grunnskólabörn í 5. - 8. bekk, yngri nemendur geta tekið þátt hafi þau sérstakan áhuga. Ólympíustærðfræði eru þrautir sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og krefjandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærðfræði, innsæi og samvinnu. Bæklingar eru sendir heim með nemendum eins er hægt að skoða upplýsingar á heimasíðu námskeiðsins, www.hr.is/os

Árbæjarskóli

5. og 6. bekkur: þriðjudaga kl. 14:45, stofa E9.

7. og 8. bekkur: Þriðjudaga kl. 14:45, stofa E10.

Háskólinn í Reykjavík:

5. og 6. bekkur: laugardaga kl. 10:00, stofa 436 og 437.

7. og 8. bekkur: laugardaga kl. 11:00, stofa 436.

1.10.2008

Lífsleikni í 6.bekk

Lífsleiknihópurinn í 6. bekk hefur verið að gera margt skemmtilegt. Í síðustu viku vorum6. bekkur lífsleikni við boðin í heimsókn til Örnu sem er í hópnum okkar. Hún á á fjóra fallega hvolpa sem við fengum að skoða, stóran páfagauk og gullfisk. Mamma og pabbi Örnu tóku vel á móti okkur og allir höfðu gaman af.

Við höfum verið að fjalla um marga hluti t.d gleði og traust. Núna erum við að ræða um sjálfstraustið og mikilvægi þess að vera ábyrgur. Samvinna er ein tegund af ábyrgð sem við þurfum að takast á við og höfum við verið að æfa okkur í því með leikjum og öðru. Í síðasta tíma gerðum við skrítna og skemmtilega turna þar sem hópurinn varð að vinna vel saman.Sjá fleiri myndir hér.

Jóhanna Lára

29.9.2008

Góður árangur í Nýsköpunarkeppni

Í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanna sem haldið var í gær, 27. Garðar Árni og Heiðrún Una

september, voru veitt verðlaun fyrir þær hugmyndir sem þóttu skara

fram úr. Í almennum flokki fékk Heiðrún Una Unnsteinsdóttir í 7. AH

önnur verðlaun fyrir hugmynd sína, svefnpoka með áfastri dýnu og kodda.

Alls bárust í keppnina 3.630 hugmyndir. Af þeim voru valdar 53

hugmyndir sem komust í úrslit og unnar áfram í sérstakri vinnusmiðju í

Foldaskóla. Auk Heiðrúnar komst Garðar Skarphéðinsson í 7.AH í 53

manna úrslitin.

Hugmyndirnar 53 verða til sýnis til 1. október í húsnæði Marels í

Hafnarfirði. Til að fræðast meira um nýsköpunarkeppnina er hægt að

fara á vef hennar: www.nkg.is.

 

 

26.9.2008

Foreldrafélag Árbæjarskóla

Á foreldrafundinum sem haldinn var miðkudaginn 24. september s.l. hófst dagskrá með söng eldri kórs Árbæjarskóla. Var það frábær skemmtun og mikið klappað fyrir þeim. Kynntar voru breytingar á stjórn foreldrafélagsins og að því loknu var Guðrún Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri með kynningu um skólaráð og bauð fólk sig fram í þau störf og kosning fór fram. Farið var í gegnum þá dagskrá sem foreldrafélagið kemur að í vetur og jafnframt voru breytingar á foreldrastarfi innan bekkja og árganga kynntar upplýsingar um þær má sjá í fréttabréfi foreldrafélagsins sem og á heimasíðunni. Mæting var með besta móti, gaman að sjá það. Fengu allir kaffi og kex í boði foreldrafélagsins.

Nokkrir skrifuðu nafn sitt á ,,hjálparhellu"listann okkar, sem er mjög gott því oft þarf að gera hluti sem ganga betur og hraðar með fleiri höndum.

Að lokum var létt spjall og stóð fundurinn til kl. 19.00.

22.9.2008

Afmælisteppi Árbæjarskóla.

Síðastliðið vor fékk skólinn að gjöf bútasaumsteppi sem nemendur í 1.-7.bekBútasaumsteppiðk höfðu gert í textílmennt. Grein um teppið birtist í Fréttabréfi Íslenska bútasumsfélagsins sem nýkomið er út. Greinina er hægt að lesa hér blaðið er einnig til á bóksafni skólans. Og síðast en ekki síst er hægt að koma í skólann og skoða teppið með eigin augum.

19.9.2008

Falleg fljóð og fríðleikspiltar á Rósaballi

Hið árlega Rósaball Árbæjarskóla var haldið fimmtudagskvöldið 18. september. Tíundu bekkingar sóttu áttundu bekkinga og buðu inn á ballið eins og fyrri ár. Ótrúlegustu farartæki renndu í hlað allt frá Austin Mini, fornbílum upp í stærðartrukka og hjólhýsi fylltum blöðrum.

Það var eins og vera staddur á stjörnumprýddu Hollywoodkvöldi þegar flottir herrar með ungar dömur upp á arminn, og glæsilegar drottningar með unga sveina sér við hlið, stigu út úr bílunum. Myndavélaflassið lýsti upp myrkrið áður en svifið var inn fyrir dyr Árbæjarskóla sem breyttist í sannkallaða töfrahöll þetta kvöld. Rósaþema var allstaðar ríkjandi í skreytingum og pappírsprinsar í froskagervum sátu á liljublöðum á öllum borðum og biðu þess að vera kysstir af verðugum prinsessum. Undir rauðum rósarboga stilltu pör kvöldsins sig upp fyrir ljósmyndara en afurðina er að finna hér á heimasíðu Árbæjarskóla, og hvergi annars staðar!

Geggja stuð á dansgólfinu!

Hljómsveitin; Hvar er Mjallhvít?, hélt uppi botnlausu stuði með töktum sem gáfu þekktustu tónalistarmönnum ekkert eftir í mjaðmasveiflum, gítargripum, trommuslætti og söng. Tryllt stuð var á dansgólfinu þegar hver slagarinn á fætur öðrum var leikinn. Heyrst hefur að titringurinn hafi komið fram á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar.

Fullkominn sæla

Sveitt, þreytt, og upptendruð eins og eldspýtur af sykursjokki eftir ófáar ferðir í gleðubúllu ballsins (sjoppunnar) og hoppin á dansgólfinu hélt glæstur skarinn út í nóttina og heim á leið með gleði í hjarta og roða á kinn.

Eru þau af þessum heimi?

Nemendur Árbæjarskóla eru þekktir fyrir prúðmannlega framkomu og frábæra hegðun hvort sem um er að ræða viðburði á vegum skólans eins og rósaballið og árshátíð eða Skrekk og spurningakeppni grunnskólanna. Nemendur skólans stóðu undir nafni og ballið fór fram eins og best var á kosið, ekkert nema stuð og gleði. Við erum þegar farin að hlakka til jólaballsins! Áfram Árbæjarskóli!

 

5.9.2008

2.BH

Við í 2-BH erum komin á fulla ferð í skólanum og okkur gengur bara vel. 2. BH

Við og reyndar 2-BÞ erum að vinna með bílinn og umhverfi hans í samfélags og náttúrfræði.

Því ætlum við að vinna með söguaðferðina og búa til þorp umhverfis bílinn.

Öll þorp þufa nafn og við völdum það í sameiningu og þorpið heiti Drekabær.

Í Drekabæ er allt til als og bærinn er nú í mótun. Á fimmtudaginn bjuggum við til hús,

Drekabæjarskóla, Drekalaug, Drekakirkju, Bónus og margt fleira.

Hér með fréttinni fylgir mynd af bekknum og afrakstrinum.

Með Kveðju allir í 2-BH

1.9.2008

Vinnuskóli Reykjavíkur "Hverfahugsjónaverkefni"

Tveir 10. bekkjarÁrbær 2

hópar Vinnuskóla Reykjavíkur í Árbæ unnu svokallað Hverfahugsjónaverkefni í

sumar undir leiðsögn leiðbeinanda síns. Hverfahugsjónin er hluti af

Grænfánaverkefni Vinnuskólans og var unnið í öllum hverfum borgarinnar.

Markmiðið var að unglingarnir lærðu að rýna í umhverfi sitt með gagnrýnum

hætti og koma hugmyndum sínum á framfæri bæði sjónrænt og í rituðu máli.

Veggspjöldin eru afrakstur tveggja daga vinnu þar sem myndir voru teknar af

því sem unglingunum fannst ýmist gott eða slæmt í sínu hverfi. Verkefnið var

unnið í samstarfi við félagsmiðstöðina Ársel. Sjá fleiri myndir hér.

4.6.2008

Samstarfsverkefni Árbæjarskóla og leikskólanna Árborgar og Rofaborgar.

Nýlega kom út bæklingur sem segir frá samtarfsverkefni Árbæjarskóla og leikskólanna Árborgar og Rofaborgar. Þar er rakin forsaga samstarfsins og sagt frá skólunum þremur en samvinna skólanna hefur staðið yfir í mörg ár og verið afar ánægjuleg. Bæklinginn má nálgast á heimasíðu skólans og er fólk hvatt til að kynna sér efni hans.

2.6.2008

Glæsileg afmælishátíð

Glæsileg afmælishátíð var í Árbæjarskóla á laugardaginn. Opið hús var í skólanum þar sem gestum gafst kostur á að skoða skólann, sýning var á verkum nemenda og uppákomur 40 ára afmæli Árbæjarskóliá sal. Skólasöngur Árbæjarskóla var frumfluttur en höfundur hans er fyrrverandi nemandi skólans, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, en textinn er eftir Sóleyju Ragnarsdóttur, kennara við skólann. Fjöldi gesta sótti skólann heim og var ánægjulegt að sjá meðal annarra gamla nemendur á gangi um skólann ásamt börnum sínum, rifjandi upp gamlar minningar. Skólanum bárust margar góðar kveðjur og óskir. Nemendur og starfsfólk Árbæjarskólar þakkar þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína í skólann þennan dag fyrir komuna.

Sjá fleiri myndir hér.

30.5.2008

Árbæjarskóli 40 ára

Afmælishátíð skólans  verður haldin laugardaginn 31.  maí. Árbæjarskóli 40 ára

Opið hús verður kl. 10:00—14:00.

Skemmtidagskrá á sviði í hátíðarsal skólans

1.— 4.  bekkur kl. 10:30

5.—7.   bekkur kl. 11:30

8.—10. bekkur kl. 13:00

Útigrill á vegum foreldrafélagsins.

Allir hjartanlega velkomnir!

Nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla

29.5.2008

Fann á ný betra líf

Hann Jakob í 1. bekk er mikill aðdáandi eins virtasta og vinsælasta tónlistarmanni Íslands, Páls Óskars Hjálmtýssonar, sem gaf út plötuna Allt fyrir ástina hér um daginn eins og flestum er kunnugt og hafa lög hans hlotið miklar vinsældir á útvarpsstöðum landsins auk þess er hann einn eftirsóttasti plötusnúður landsins. Aðdáendur hans eru fjölmargir, ungir og aldnir, og Jakob sýndi það og sannaði að hann væri ekkert slakari söngvari en hinn æðislegi Páll, þegar hann tróð upp í fjölskylduboði með laginu Betra líf á dögunum.

Páll Óskar

Í þessu tilefni hringdi móðir Jakobs í söngvarann sjálfan og hann var svo heillaður af sögunni að hann ákvað hvorki meira né minna en að láta sjá sig hér í Árbæjarskóla og ætlaði allt um koll að keyra þegar hann söng mörg af sínum frægustu lögum á borð við International, Allt fyrir ástina, Er þetta ást?, gamla slagarann Stanslaust stuð auk lagsins sem hann helgaði öllum með sjálfsvirðingu, Ég er eins og ég er. Auðvitað tók hann líka Betra líf og tók Jakob og fleiri í salnum vel undir.

 

29.5.2008

3.ÁÞ

Við í 3.ÁÞ erum á fullu að skreyta stofuna okkar svo hún verði frábær á 3.ÁÞ maí 2008laugardaginn.

28.5.2008

Flott án fíknar

Þeir Jón Reginbaldur Ívarsson og Ómar Ragnarsson tóku þátt í auglýsingakeppninni Jón og Ómar"Flott án fíknar". Keppnin gekk út á það að taka upp 30 sekúndna auglýsingu sem forvörn gegn fíkn. Auglýsingin þeirra var ein af þrem auglýsingum sem komst í úrslit.Þann 29.maí verða auglýsingarnar birtar í Íslandi í dag á Stöð 2. Árbæjarskóli óskar strákunum innilega til hamingju með árangurinn.

27.5.2008

Grenndarskógur

Í gær 26. maí voru krakkar í 1.bekk saman komin upp í Grenndarskóg. Krakkarnir voru Grenndarskógurkomnir saman til þess fagna því að Árbæjarskóli fékk svæði í Elliðaárdal til þess að setja upp útivistarsvæði fyrir krakka á öllum aldri sem eru í Árbæjarskóla. Þetta á að stuðla að því að gera kennslu fjölbreyttari og stuðla að meiri útivist.

Þeir nemendur sem eru í stofu A-8 á þemadögunum fá það verkefni að skipuleggja svæðið. Þar eiga að vera settar upp nokkrar stöðvar t.d heimstöð ( sem verður hægt að kveikja bál), mælingastöð(þar sem hægt verður að mæla hæð trjáa), upplifunar og  leikja- og hreyfistöð

 

Krakkarnir voru mjög ánægðir með svæðið og fengnar voru  tvær stelpur að klippa á borðann til þess að opna formlega svæðið. Eftir þetta fengu þau trópí og borðuðu nestið sitt.

26.5.2008

3. ÞÞ

Hafið.

Að undanförnu hafa börnin í 3. ÞÞ unnið að mörgum skemmtilegum verkefnum í 3.ÞÞ maí 2008tengslum við námsefnið Komdu og skoðaðu hafið. Áhuginn hefur verið mikill og hafa þau meðal annars fræðst um íslenska sjómenn sem lentu í sjóslysi, störf í sjávarútvegi, þorskastríðin, sjóræningja og lífverur í hafinu. Bráðum verður farið í fjöruferð og hlakka allir mikið til.

ÞÞ

23.5.2008

5. bekkur færir bókasafninu gjöf

Bókamerki5. bekkur hefur í vetur verið að búa til bókamerki í smíði til að

nota á bókasafninu. Gripurinn er hugsaður þannig að ef krakkarnir koma

á safnið og taka bók til að lesa á safninu, setja þau bókamerkið í

stað bókar og vita þá hvar bókin sem þau eru að lesa á að vera. Þannig

geta þau gengið frá henni sjálf.

5. bekkingar færðu bókasafninu verkin sín að gjöf í gær.

Krakkar, verið nú dugleg að nota bókamerkin!

22.5.2008

Útistærðfræði í 5. bekk

Í dag fór 5. bekkur út í stærðfræðitímanum til að vinna að stærðfræðiverkefnum. 5 KV 21.5.2008Nemendum var skipt í fjóra hópa sem hver um sig vann að sínu verkefni. Einn hópurinn fann út flatarmál fótboltavallanna í skólanum sem kemur að góðum notum þar sem til stendur að merkja útlínur vallarins.

Annar hópurinn sá um að finna út ummál skólans og komust nokkrir nemendur í vandræði þar eð þeir rugluðu saman mælieiningum. Reyndi því á samvinnu nemenda.

Þriðji hópurinn skoðaði ýmis stærðfræðiform í umhverfinu t.d. hring, sívalning, keilu, ferning o.s.frv.

Fjórði hópurinn mældi vegalengdina frá skólanum að íþróttahúsi og áttu þeir að mæla stystu leið. Þarna vildu sumir stytta sér leið með því að fara í gegnum "skóginn" sem ekki var í boði.

Nemendum fannst mjög gaman að vinna að þessum verkefnum og var gaman að sjá hversu vel þeir lögðu sig fram og unnu vel saman.

Í lokin kynntu nemendur niðurstöður sínar fyrir hinum krökkunum en við vorum sameiginlega með báða bekkina.

Sjá fleiri myndir hér.

Kennarar í 5. bekk

21.5.2008

Skólasöngur Árbæjarskóla

Nú eru upptökur hafnar á skólasöng Árbæjarskóla og fór skólakór og þrjár stelpur úr Þorvaldur Bjarni og kórunglingadeild í stúdíó og söngurinn tekinn upp. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður er höfundur lagsins og sá um upptökur. Hann tók vel á móti okkur og var þetta rosalega gaman og mikil upplifun.

AMB

14.5.2008

Útileikjadagur í 1. – 4. bekk

Miðvikudaginn 7. maí var útileikjadagur í 1. – 4. bekk. Elstu börnin í Rofaborg og ÁrborgÚtileikjadagur tóku einnig þátt. Fyrst var hlaupið í kringum skólann og síðan farið í boðhlaup. Að þeim loknum fóru börnin í leiki sem þau höfðu áður valið sér. Þetta var hin besta skemmtun.

14.5.2008

Aðalfundur Foreldrafélags Árbæjarskóla

Miðvikudaginn 14 maí kl 20 verður aðalfundur Foreldrafélags Árbæjarskóla. Fundurinn er haldinn í hátíðarsal skólans og hvetjum við alla foreldra til að mæta.
Dagskrá aðalfundarins eru almenn aðalfundarstörf, formaður stjórnar fer yfir starf vetrarins og gjaldkeri kynnir reikninga félagsins auk annarra mála.

8.5.2008

Loksins, loksins.

Þá eru blessuð samræmdu prófin búin. Nemendur voru að klára stærðfræðiprófið og 10.bekkur ferðsátu margir út tímann eða 3 klst og 45 mín. Það var mikil gleði að ljúka þessu og nú eru flestir 10.bekkingar á leið á Snæfellsnesið ásamt fríðum flokki kennara. Sú ferð getur ekki klikkað. Alltaf frábært fjör, stemning og stuð. Til hamingju með prófalokin og góða skemmtun í ferðinni krakkar.

2.5.2008

Skemmtileg heimsókn

Í dag fengu nemendur 1. bekkjar skemmtilega heimsókn. Fulltrúar frá Kiwanis 1. bekkur 2.5.2008klúbbnum Jörfa mættu í skólann og færðu nemendum reiðhjólahjálma að gjöf. Ræddu þeir við nemendur um mikilvægi þess að nota hjálmana og fara varlega á hjólunum. Hverfislögreglumaðurinn og skólahjúkrunarkonan ræddu einnig við börnin og svöruðu spurningum þeirra og hlustuðu á reynslusögur, sem reyndust margar. Þetta var skemmtileg stund og erum við þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

25.4.2008

Skólabúðir á Úlfljótsvatni

Dagana 22.-23. apríl sl. fór 7. bekkur í skólaferð á Úlfljótsvatn. Úlfljótsvatn

Þar fengu nemendur að spreyta sig á ýmsum leikjum sem reyndu á samvinnu, háðu stríð við hvort annað þar sem puttarnir spiluðu stórt hlutverk, fóru í gönguferð að Krossinum, börðust um að ræna gúmmí fiskum og gúmmí kjúklingum frá hvort öðru, héldu kvöldvöku og diskótek svo eitthvað sé nefnt.

Ferðin var vel heppnuð í allastaði og eiga nemendur 7. bekkjar Árbæjarskóla hrós skilið fyrir framkomu þeirra og háttsemi þann tíma sem við dvöldum á Úlfljótsvatni, sem og starfsmenn Skólabúðanna.

Sjá fleiri myndir hér.

Umsjónakennarar 7. bekkja

23.4.2008

9. RH í BEST-STÆRÐFRÆÐIKEPPNINNI

Hinni samnorrænu stærðfræðikeppni BEST sem áður hét KappAbel lauk áðan. Keppnin er haldin fyrir 9.bekkinga á öllu landinu og sigurvegararnir etja síðan kappi við sigurvegara hinna Norðurlandanna. Um 60 bekkir hefja keppnina en síðan er 9 bekkjum boðið til undanúrslita þar sem fer fram mikil vinna og stærðfræðin er tengd við umhverfið og lífið sjálft. Nú var yfirskriftin Stærðfræði og dýr.BEST

Eins og undanfarin fimm ár átti Árbæjarskóli fulltrúa í undanúrslitum og er skemmst að minnast þess að 10 ÞB náði 2.sæti í þessari keppni í fyrra.

Nú var það 9.RH sem náði þessum árangri. Þau unnu mjög vel saman að ritgerð, framvinduskýrslu og sýningu. Bekkurinn valdi svo fjóra fulltrúa til að hitta fulltrúa hinna skólanna og kynna verkefnið og taka þátt í þrautalausnum.

Þau Bjarki, Hafsteinn, Andrea Katrín og Úndína fóru fyrir hönd bekkjarins og voru þau í þessu verkefni ásamt öðru frá 10-23 í gær. Bekkurinn og fullrúarnir þeirra stóðu sig undravel og verður að taka það fram að þetta voru yngstu nemendur sem hafa tekið þátt í þessari keppni og því er árangurinn ennþá eftirtektarverðari. Þau náðu þó ekki í 3ja liða úrslitin en þeim lauk áðan með sigri Viðistaðaskóla í Hafnarfirði.

Við viljum óska þessum frábæra hópi til hamingju með árangurinn og samvinnuna.

23.4.2008

10.VD

Nú eru 10. bekkir skólans í vorprófum en rétt fyrir próftörnina10.bekkur 22.4.2008 skelltum við í 10.VD okkur í göngu niður Elliðaárdalinn. Það var frábært veður og við skemmtum okkur konunglega.

10.VD

17.4.2008

ESPAD

Hér má sjá Árbæjarskóla 2007 miðað við Reykjavík og landið. Árbæjarskóli er svarta súlan og stendur sig vel í reykleysi en síður varðandi áfengi og aðra vímugjafa. Sjá niðurstöður Espad rannsóknarinnar varðandi skólann hér.

Niðurstöður úr Evrópsku vímuefnarannsókninni European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD) er samvinnuverkefni fræðimanna í rúmlega fjörutíu Evrópulöndum. Meginmarkmið Espad rannsóknarinnar er að safna haldbærum samanburðargögnum um breytingar yfir tíma í vímuefnaneyslu evrópskra unglinga.

 

Hlutfall reykinga

 

 

 

 

 

 

 

17.4.2008

Vinnuskólinn sumarið 2008

Nemendur og forráðamenn athugið að skráning er hafin í Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir sumarið 2008,

Athygli er vakin á því að skráning í sumarstarf er rafræn í gegnum vefsíðuna www.vinnuskoli.is 

Skráningatíma lýkur 25. maí 2008. Nánari upplýsingar um vinnutíma og laun er að finna hér.

11.4.2008

Geggjað stuð á grímuballi!

Haldið var grímuball í Árbæjarskóla fimmtudagskvöldið 10. apríl. Að því stóðu nemendur í unglingadeild. Fjörið hófst klukkan 20:30 og stóð fram til 23:30 þegar rútur biðu fyrir utan og fluttu örþreytta en dansglaða nemendur til síns heima.grímuball 10.4.2008

Þegar nemendur Árbæjarskóla koma saman er jafnan geggjað stuð og það brást ekki að þessu sinni. Dansgólfið var pakkað undir þrumandi stjórn Villa og Ása sem keyrðu græjurnar áfram og héldu stuðinu gangandi fram eftir kvöldi.

Búningar voru með frumlegri og glæstara móti þetta árið. Fjöldi katta fór mjálmandi um, látbragðsleikarar sögðu ekki orð en túlkuðu því meira, Bjarnabræður hegðuðu sér óvenjuvel og komu sáu og sigruðu með frumlegustu búningunum. Faðir Sigurgeir og systir Elísa (Elías) predikuðu Guðs orð og uppskáru verðlaun í karlaflokki en Grimmhildur skelfdi viðstadda með hvítsvörtu útliti sínu. Ekki er ofsögum sagt að kalt vatn hafi runnið milli skins og hörunds hjá öllum hundaeigendum á svæðinu. Rammvilltir ferðamenn, brjálaðar kanínur, prinssessur og töframenn létu heldur ekki sitt eftir liggja. Allir viðstaddir voru sigurvegarar háttprýðisverðlauna kvöldins.

Nemendur Árbæjarskóla þið eruð æði!

sjá fleiri myndir hér.

 

7.4.2008

Skólavinir 7. AÆ

Við í 7.AÆ erum búin að vera skólavinir í 2. vikur.Skólavinir Okkar hlutverk var að fá krakkana í leiki og passa að öllum líði vel í frímínútum. Það gekk mjög vel og öllum fannst mjög gaman.

7.AÆ

4.4.2008

Glæsilegur árangur í Ólympíustærðfræði

Í vetur hafa nokkrir nemendur á miðstigi í Árbæjarskóla tekið þátt í Ólympíustærðfræði fyrir 4.4.2008grunnskóla hjá Háskólanum í Reykjavík. Er þetta annað árið í röð sem slík keppni er haldin og voru þátttakendur að þessu sinni 270 úr 22 grunnskólum í Reykjavík. 29. mars var haldið lokahóf þar sem veitt voru verðlaun til þátttakenda fyrir árangur þeirra í Ólympíustærðfræði. Efstu 50% þátttakenda fengu verðlaun þar af efstu 10% gullverðlaun. Að auki fékk stigahæsti þátttakandi í hverju liði, sem telur 5 einstaklinga eða fleiri, bikar. Eftirtaldir nemendur Árbæjarskóla hlutu silfurverðlaun; Arnar Huginn Ingason 5. GJ, Auður Arna Sigurðardóttir 6. AH og Katrín Lára Garðarsdóttir 6. GS. Gullverðlaunarhafar voru þær Gyða Björk Ingimarsdóttir 6. GS og Eva Ósk Hjartardóttir 6. IH og hlaut Eva Ósk jafnframt bikar sem stigahæsti þátttakandinn í sínu liði. Auk þessa fékk Árbæjarskóli verðlaunaskjöld til eignar fyrir þriðja besta árangur í liðakeppninni.

Við óskum krökkunum til hamingju um glæsilegan árangur og vonum að þessi frammistaða verði öðrum hvatning til þátttöku í Ólympíustærðfræðinni næsta vetur.

Meðfylgjandi er mynd af verðlaunahöfunum.

4.4.2008

Lestrarskimun í 2. bekk

Nú í apríl fer að venju fram lestrarskimun í 2. bekk. Þessi læsiskönnun er lögð árlega fyrir í öllum skólum í Reykjavík og er á vegum Menntasviðs Reykjavíkurborgar. Sjá nánar hér.

Læsikönnun

Hér má sjá þróun árangurs hjá Árbæjarskóla. Græna súlan er Árbæjarskóli.

31.3.2008

Stærðfræðikeppni grunnskólanna.

Fyrir páskafrí fóru tæplega 50 nemendur saman í rútu í MR til að taka þátt í stærðfræðistærðfræðikeppni grunnskóla ásamt um 300 öðrum nemendur úr átta grunnskólum. Mættir voru rúmlega 20 úr 9. og 10. bekk en aðeins 4 úr 8.bekk.

MR kallar svo 10 stigahæstu einstaklinga í hverjum árgangi til verðlaunaafhendingar en hún var haldin í gær sunnudaginn 30.03.

Sjö einstaklingar úr Árbæjarskóla voru boðaðir í þetta hóf. Þrír úr 10. bekk, Magnús Rúnar, Sigrún Hrönn og Árni Sturluson. Þrír úr 9.bekk, þeir Kristján Ingi, Egill og Halldór og síðan Bjarki Páll úr 8. bekk.

Þetta er glæsilegur árangur hjá krökkunum og ber þess að geta að þeir Kristján sem lenti í 2.sæti og Árni í 3-4 sæti í sínum árgangi fengu peningaverðlaun með viðurkenningaskjalinu sínu.

Við óskum þessum krökkum til hamingju með árangurinn og líka öllum þeim sem mættu í þessa keppni.

27.3.2008

Námsval veturinn 2008-2009

Námsráðgjafar skólans hafa í dag og í gær kynnt fyrir nemendum 8. og 9. bekkjar námsval skólans veturinn 2008-2009.

Valbók skólans og umsóknareyðublað er að finna hægra megin á heimasíðu skólans undir fyrirsögninni áhugavert efni. Skilafrestur er til 18. apríl 2008.

Námsvalið verður kynnt forráðamönnum á kvöldfundi þriðjudaginn 1. apríl 2008

Forráðamenn nemenda í 8. bekk kl.18.00

Forráðamenn nemenda í 9. bekk kl. 20.00

Vonumst til að sjá ykkur öll.

Guðrún Þóra og Linda

Námsráðgjafar Árbæjarskóla

11.3.2008

Geggjuð grúppa.

Hljómsveitin Hinir, sem er óopinber skólahljómsveit Árbæjarskóla, tók þátt í undankeppniHinir músiktilrauna sl. mánudagskvöld. Hljómsveitina skipa 5 núverandi nemendur skólans og einn fyrrverandi nemandi. Lögin sem þau fluttu voru Livin’ was easy og I wanna know, en þau eru eftir hljómsveitarmeðlimi. Skemmst er frá því að segja að krakkarnir unnu með glæsibrag og bæði dómnefnd og áhorfendur kusu þau sigurvegara kvöldsins.

Hljómsveitina skipa þau Sunna sem sér um söng, Valli gítarleikari og söngvari, Pétur sér um trommurnar og bakraddir, Gunnar Örn bassi og bakraddir, Sveinn á orgel og Jón Birgir á hljómborð.

Hljómsveitin tekur þátt úrslitakeppninni sem fer fram nk. laugardagskvöld.

Við óskum þessu hæfileikafólki til hamingju og hvetjum þau til dáða á laugardag.

11.3.2008

Stefna Rvíkur í menntamálum 2008

stefna Reykjavíkurborgar

11.3.2008

Afmælisveisla í 1. – 4. bekk

Á þessu skólaári verður Árbæjarskóli 40 ára. Af því tilefni var haldin afmælisveisla í 1.- 4.Afmæli Árbæjarskóli 1 bekk. Hún var haldin föstudaginn 7. mars í hátíðarsal skólans sem var hinn glæsilegasti. Boðið var upp á flotta súkkulaðiköku með nammi, kertum og allt eins og börnin orðuðu það. Á meðan borðhaldi stóð kom óvæntur gestur því á sviðinu birtist Lalli töframaður. Afmælishátíðin tókst í alla staði mjög vel og var mikil ánægja með þessa uppákomu.

MSB

6.3.2008

Krakkarnir í hverfinu!

Við viljum vekja athygli foreldra á könnuninni "Krakkarnir í hverfinu" sem gerð var skólaárið 2006-2007 í unglingadeild (Rannsóknir og Greining). Í skýrslunni má m.a. sjá upplýsingar um reykingar, áfengisneyslu og neyslu annarra vímuefna.  Í henni eru margar athyglisverðar niðurstöður og við hvetjum alla foreldra til að kynna sér niðurstöður skýrslunnar. Hægt er að nálgast skýrsluna hér.   

Krakkar í hverfinu       

 

28.2.2008

Vinadagar og vetrarhátíð

Dagana 26. og 27. febrúar voru vinadagar í 1. – 4. bekk. Árgangar unnu saman að Vetrarhátíð 2008ýmsum verkefnum til eflingar á vináttu og einhverjir fengu heimsókn frá eldri nemendum. Allir gerðu vinabönd og í hátíðarsalnum stendur nú þetta líka glæsilega vinatré þar sem allir nemendur lögðu hönd á grein. Í dag 28. febrúar var svo vetrarhátíð í hádeginu með söng og gleði. Litaþema var í gangi og setti það mikinn svip á þennan glæsilega hóp nemenda.

M.S.B.

Fleiri myndir hér.

28.2.2008

3.ÁÞ

Það er búið að vera rosa gaman á vinadögunum. 3.ÁÞ 28.2.2008Okkar litur var grænn, og við gerðum margt skemmtilegt sem tengist vináttu.

kv. 3.ÁÞ

fleiri myndir hér.

22.2.2008

Þemadagar

Eins og flestir vita er Árshátíð unglingadeildar í næstu viku, þann 27. febrúar. Í aðdraganda og framhaldi af því verða svokallaðir þemadagar, þar sem nemendur unglingadeildar klæðast upp í fötum sem tengjast þemadögunum og viðeigandi tónlist verður spiluð við það.

Þemadagarnir eru eftirfarandi:

Mánudaginn 25. febrúar: Kúrekaþema

Þriðjudaginn 26. febrúar: 80’s þema

Miðvikudaginn 27. febrúar: Hver bekkur velur eigið þema

Fimmtudaginn 28. febrúar: Náttfataþema

Föstudaginn 29. febrúar: Skrifstofuþema

Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu og gera Árshátíðarvikuna eins skemmtilega og mögulegt er.

Kær kveðja,

Nemendaráð

20.2.2008

2.GA

Nemendur í 2. GA. hafa verið að læra um Ísland í samfélagsfræði, forsetann okkar og 2.GA 20.2.2008stjórnarfarið. Þau hlustuðu líka á söguna um konunginn sem sendi galdrakarlinn til Íslands. Hann fór og honum mættu landvættirnir, alls konar

ófreskjur og illþýði sem vernduðu landið. Karlinn sneri við svo búið og konungur hætti við Íslandsförina. Þetta gaf okkur hugmynd að verkefni sem nemendur voru að ljúka við og hér sjáið þið afraksturinn.

Kveðjur frá okkur í 2. GA.

20.2.2008

Marítafræðsla í Árbæjarskóla

Athygli er vakin á fræðsluverkefninu, "Hættu áður en þú byrjar", sem beint er gegnMarítas útbreiðslu fíkniefna. Að verkefninu standa Forvarna- og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík, Félagsþjónustan í Reykjavík og Marita forvarna- og hjálparstarf. Fræðslufundur fyrir nemendur er á skólatíma og foreldra síðar. Markmiðið með fæðslunni er að fá nemendur til að taka afstöðu gegn fíkniefnum og notkun þeirra. Mikilvægt er að börn og foreldrar þeirra ræði um þessi mál sín á milli. Því er nauðsynlegt að þau fái sömu fræðslu, þó að nálgun efnisins sé ólík á fundunum. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á http://www.marita.is

Fræðslan verður í Árbæjarskóla dagana 20.-22. febrúar.

10. bekkur fær eftirfylgd frá fræðslunni í fyrra.

9. bekkur fær Marítafræðsluna "Hættu áður en þú byrjar".

7. bekkur fær fræðsluna "Allir hinir mega það".

Fimmtudaginn 21. febrúar verða haldnir foreldrafundir:

Kl. 18.00 fyrir foreldra nemenda í 7. bekk

Kl. 20.00 fyrir foreldra nemenda í 9. bekk

Foreldrar eru hvattir til að mæta á þessa fundi.

8.2.2008

Kappabel

Seinni hluti norrænu stærðfræðikeppninnar fyrir 9. bekkinga fór fram á dögunum.Kappabel febr 2008

5 bekkir kláruðu forkeppnina, en það voru 9.ÁS, 9 HM, 9 AA, 9 RH og 9 PH.

Bekkirnir stóðu sig mjög vel og það var skemmtilegt að sjá þá vinnu sem fram

fór í stofunum. Við þökkum þeim öllum fyrir þátttökuna og einnig þeim kennurum

sem hliðruðu til svo að þetta væri mögulegt.

Úrslitin voru að koma frá Noregi og tókst 9 RH að komast í undanúrslit ásamt 10 öðrum

9. bekkjum á landinu. Munu þau nú að vinna verkefni undir yfirskriftinni,

Stærðfræði og dýr. Í fyrra komst núverandi 10 ÞB alla leið í úrslit í þessari keppni

og endaði í 2. sæti sem er frábær árangur. Fengu m.a. 80.000 króna peningaverðlaun.

Þeir bekkir sem ekki komast í undanúrslit geta einnig verið með í bekkjarverkefni og veitt eru

sérstök verðlaun þar lika.

Það verður gaman að fylgjast með ungu krökkunum í 9 RH spreyta sig í undanúrslitunum.

Til hamingju með árangurinn krakkar og gangi ykkur vel.

6.2.2008

Frost er úti fuglinn minn

Erfitt hefur verið fyrir smáfuglana að undanförnu og ákváðum við þvi krakkarnir í 2. JL að2.JL 1 fara í gönguferð með fuglamat. Allir fengu poka með fræjum og fundum við góðan stað í dalnum til að gefa þeim. Við vonum að fuglarnir verði ánægðir með okkur en við komu köld og glöð til baka. Fleiri myndir hér.

Kveðja Jóhanna Lára

31.1.2008

Úrslitin í Nema hvað.

Í gærkvöldi fóru fram úrslit spurningakeppni grunnskólanna.Nema hvad 4

Liðið okkar mætti þar geysisterku liði Hagaskóla. Skemmst er frá því að segja að sigurmöguleikarnir fóru nánast strax. Stressið í hraðaspurningunum var alltof mikið og í stað þess að segja pass var sagt bíddu, bíddu og þar með fékk liðið mun færri spurningar en andstæðingarnir. Staðan var 11-8 fyrir Hagaskóla og þá þurfti að taka sénsa sem ekki gengu upp. En lið Árbæjarskóla er búið að standa sig frábærlega og hefur aldrei náð svona langt í þessari keppni. Strákarnir þrír ásamt Tómasi, Jóhanni, Bjarka og Hafsteini hafa æft vel og viljum við óska þeim öllum til hamingju með árangurinn. Í gær töpuðu þeir bara fyrir betra liði og óskum við Hagaskóla til hamingju með sigurinn. En stóru sigurvegarnir í gær var stuðningslið skólans sem hafði samið baráttusöngva og var til mikillar fyrirmyndar í alla staði í útvarpshúsinu í gær. Þetta er búið að vera mjög gaman en nú er bara að fara finna lið fyrir næstu keppni.

31.1.2008

Fréttir frá 5. K.V.

Í dag fimmtudag er síðasti dagurinn hennar Thelmu í bekknum okkar. Hún er að flytja á Selfoss og fer hún því í annan skóla. Við óskum Thelmu alls hins besta í nýja skólanum og vonum að henni líði þar vel. Við munum hins vegar sakna hennar. 5.KV 1

Í bekknum höfum við verið að vinna með ljóð og ljóðagerð. Sólveig sem er nemandi í 5. KV orti þetta frábæra ljóð sem heitir:

Þegar sólin skín.

Þegar sólin skín, bý ég til rím,

og það er til þín,

ef þú gefur mér

þá gef ég þér,

Ég gef þér dós

ég gef þér rós

ég gef þér eitt lítið hrós

29.1.2008

Sigur í undanúrslitum Nema hvað.

Spurningaliðið okkar vann góðan sigur á Engjaskóla í gærkvöldi. Liðið hafði forystu 15-12Nema hvad 3 eftir hraðaspurningar og náðu strax í 3 stig í vísbendingaspurningunni og þar með var sigurinn nánast í höfn. Lokastaðan var 21-14. Þar sem þetta var undanúrslit eru "strákarnir okkar" komnir í sjálfan úrslitaleikinn gegn liði Hagaskóla eða Laugalækjarskóla en þau keppa í kvöld. Úrslitin fara svo fram í beinni útsendingu á Rás nk. miðvikudag. Liðinu fylgdu í útvarpshúsið yfir 40 stuðningsmenn sem hvöttu strákana áfram. Frábært að fá svona stuðning. Til hamingju með sigurinn Árni, Sigurgeir og Tryggvi og gangi ykkur vel á miðvikudaginn.

25.1.2008

Bóndadagurinn

Í tilefni af bóndadeginum mættu margir nemendur, í 1. – 4. bekk, í þjóðlegum Bóndadagurinnklæðnaði s.s. ullarfatnaði og sást jafnvel íslenskur búningur á ferð um skólann. Í hádeginu var þorraþrællinn sunginn við undirleik og svo var smakkað á hákarli, sviðasultu og harðfiski með grjónagrautnum. Veðrið setti líka skemmtilegan svip á daginn sem tókst í alla staði mjög vel.

25.1.2008

Háspenna

Árbæjarskóli varð í gær hverfismeistari í hverfi 3 í spurningakepnni grunnskólanna, Nema hvað. En spennan var gífurleg. Eftir hraðaspurningarnar hafði liðið eins stigs forskot, 13-12. Árbæjarskóli bætti við tveimur stigum í vísbendingaspurningunni og þetta leit Nema hvad 1ágætlega út. Liðin fengu sitt stigið hvort í leikþrautinni, en það gekk frekar illa hjá liðunum báðum að svara bjöllu- og valspurningum en þó sýnu betur hjá Seljaskóla sem jafnaði leikinn á síðustu spurningu keppninnar. Staðan var því 17-17. Þá var bráðabani og það liðið sem fyrst svaraði tveimur bjölluspurningum sigraði.

Seljaskóli svaraði 1.spurningunni rétt og var með pálmann í höndunum en eftir nokkrar spurningar jöfnuðu strákarnir þetta og náðu svo að knýja fram sigur að lokum. Þeir hugsa líklega hlylega til Hara systra og Þórarins Eldjárns.

Þetta var frábæar keppni tveggja sterkra liða en eigum við ekki bara að segja að betra liðið vann.

Nú keppir liðið við hverfismeistara hinna 3ja hverfanna um grunnskólameistartitilinn, en þeir eru Hagaskóli, Engjaskóli og Laugalækjaskóli. Keppninni verður útvarpað á ras 2 og fer fram í útvarpshúsinu. Árbæjarskóli dróst á móti Engjaskóla og fer sú keppni fram á mánudagskvöld, en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram degi síðar.

Við viljum þakka þeim krökkum sem komu með og studdi liðið en það hafði mikið að segja og voru áhangendur beggja liða skólum sínum til sóma.

Að lokum óskum við liðinu, þeim Tryggva, Árna og Sigurgeiri til hamingju og sendum þeim baráttukveðjur í úrslitunum.

24.1.2008

1-BH

Fyrstu vikurnar í janúar hafa gengið mjög vel og vinnuandinn er mjög góður eins og sést1 BH 2008 á myndinni hérna við hliðinna. En þarna voru börnin við stafavinnu, að finna orð sem á við stafinn B og fleiri stafi. Við erum einnig svo heppin að vera með gest í bekknum hún heitir Thelma Kristín sem er búsett í Ástralíu. Hún verður hér í 4 vikur.

Nú eru einnig komnar fleiri myndir frá bekknum sjá hér.

Kveðja allir í 1-BH

18.1.2008

Glæsisigur í Nema hvað.

Í gærkvöldi keppti spurningalið Árbæjarskóla við lið Hólabrekkuskóla.Nema hvad

Eftir hraðaspurningar var staðan 17-14 fyrir Árbæ. Fljótlega varð staðan 21-20 og var farið að fara um okkar fólk. En þá var sett í gírinn og aldrei litið tilbaka. Það vannst glæstur sigur

29-20 og þar með var náð fram hefndum á Hólabrekku sem sló skólann okkar út í fyrra. Reyndar urðu þeir grunnskólameistarar í framhaldinu. Þannig að þetta var sætur sigur.

N.k. fimmtudag verður svo úrslitaleikur um hverfismeistarann við Seljaskóla sem vann sinn leik 28-18. Sigurliðið keppir síðan við hverfismeistara hinna þriggja hverfa borgarinnar. Úrslitakeppnin hefst kl. 18 og verður haldin í Miðbergi í Breiðholti.

Viljum við hvetja fólk til að mæta og styðja liðið okkar, því það skiptir miklu máli.

Til hamingju með sigurinn Árbæjarskóli.

16.1.2008

Nema hvað verður í Árseli.

Á morgun kl. 20.15 verður fyrsta keppni Árbæjarskóla í spurningakeppninni Nema hvað 2008? Keppt verður við meistara síðasta árs sem er Hólabrekkuskóli, en Árbæjarliðið tapaði naumlega fyrir þeim í fyrra. Nema hvad

Lið ársins er skipað þeim Tryggva og Sigurgeiri 10 SÞ og Árna Frey 10 SH. Liðstjóri er Tómas 10 SH og með þeim hafa æft þeir Jóhann 10 SÞ, Bjarki og Hafsteinn í 9 RH.

Liðið mætti á sal í morgun og keppti við harðsnúið lið kennara, sem skipað var þeim Sigga tölvukennara, Skarphéðni að ógleymdum aðstoðarskólastjóranum glæsilega, Guðrúnu Þórhalls, en hún er sérlega áhugasöm um þessa keppni.

Skemmst er frá því að segja að nemendur höfðu nauman sigur, 20-19 eftir hörkuspennandi keppni.

Við hvetjum sem flesta til að mæta á morgun og styðja liðið, en takið vel eftir að keppnin verður í Árseli kl. 20 15.

 

 

16.1.2008

Hreysti 2008.

Í morgun 16.01 komu allir unglingar saman á sal þar sem nemendaráð kynnti það sem næst er á dagskrá í félagslífinu. Minntust þeir á árshátíðina sem er þann 27. feb og spurningakeppnina sem hefst á morgun.8.-10. bekkur á sal

Ennfremur byrjar Hreysti 2008 á morgun. Þar keppa fyrir hönd skólans þær Viktoría í 8 MS og Stefanía í 10 UG og strákarnir eru þeir Hákon í 10 UG og Dagur Ingi í 10 SH.

Við óskum þeim góðs gengis og vonum að sem flestir mæti og styðji krakkana.

10.1.2008

Fréttir af 1. BÞ

Nokkrar breytingar urðu á bekknum okkar nú um áramótin. Sunna Marín og 1 BÞ 2008Benedikt Frank hættu í Árbæjarskóla og eru nú komin í nýja skóla annars staðar. Þeirra er sárt saknað og við óskum þeim alls góðs á nýjum stað. Við vorum hins vegar svo heppin að fá í bekkinn okkar frábæra stelpu sem heitir Elín Helga og öll leggjum við okkur fram við að taka eins vel á móti henni og við getum. Velkomin í Árbæjarskóla Elín Helga og gangi þér allt í haginn!

9.1.2008

Allir til starfa á ný!

Starfsfólk Árbæjarskóla óskar ykkur gleðilegs nýs árs og hlakkar til skemmtilegs samstarfs á árinu.

Skólastarf er nú hafið að nýju eftir gott jólaleyfi. Allir mættir til starfa, nemendur sem og starfsfólk, og mikill hugur í fólki. Nemendur yngri deilda eru í haustprófum þessa dagana en nemendur unglingadeildar tóku hins vegar prófin í desember og hafa þegar fengið sitt námsmat. Foreldradagur er 1. febrúar nk. og hittast þá kennarar, nemendur og forráðamenn og fara yfir starf haustannar og hvað framundan er á vordögum.

Nokkrar breytingar urðu á fyrirkomulagi matarmála í skólanum um áramótin, þá sérstaklega í unglingadeild. Fjöldi unglinga er nú komin í fasta mataráskrif og snæðir heitan mat í hádeginu. Einnig varð gagnger endurskoðun á vöruúrvali í mötuneyti skólans. Verð drykkjarvara breyttist um áramótin og má nálgast það ásamt verðskrá mötuneytis á heimasíðunni.

Framvegis verður matseðill skólans sendur til forráðamanna í tölvupósti og jafnframt má nálgast hann á heimasíðu skólans.

Tilkynningar


Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Auglýsingar


Spakmæli

Röskun á skólastarfi

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd


Einkunnarorð