27.9.2007
10.SH
21.9.2007
Tónmennt
18.9.2007
Stuttmyndasýning grunnskólanemenda í Árbæjarskóla
Þessa vikuna stendur yfir Samgönguvika í Reykjavík. Dagskrá hennar er fjölbreytt og m.a. verður stuttmyndasýning grunnskólanemenda í Árbæjarskóla. Árbæjarhverfi var borgarhverfi Samgönguviku 2006 og í tilefni þess gerðu nokkrir nemendur 9. og 10. bekkjar Árbæjarskóla stuttmyndir um hverfið og samgöngur í því.
17.9.2007
Skólaheimsókn 10. ÞB til Danmerkur
Vikuna 8. – 15. september fór 10. ÞB í ferðalag til Danmerkur. Markmið ferðarinnar var að efla dönskukunnáttu nemendanna og tengsl þeirra við Danmörku. 
Flogið var til Billund og haldið þaðan til Lindved Skole, rétt fyrir utan Vejle á Jótlandi, þar sem nemendur í 9.A (vinabekkur 10. ÞB og jafnaldrar) biðu okkar ásamt foreldrum. Þar var okkur tekið fagnandi. Allir héldu síðan heim til sinnar móttökufjölskyldu þar sem gist var næstu 5 nætur.
Ýmislegt skemmtilegt var gert á Jótlandi m.a. skoðaðar gamlar minjar í Jelling, farið í Legoland, á Himmelbjerget og í Løveparken. Einnig tókum við virkan þátt í dönsku skólalífi ásamt því að kynna Ísland í máli, myndum og söng.
Heimsókn okkar vakti mjög mikla athygli og viðtöl birtust við okkur í 2 dagblöðum, Horsens Folketidende og Vejle Amts Folkeblad.
Við fórum svo með lest til Kaupmannahafnar þar sem gist var í 2 nætur. Þar var haldið á slóðir Jónasar Hallgrímssonar, í Nýhöfn, Amalienborg, að litlu hafmeyjunnni, á Strikið, í Tivoli ofl. Frábær stemning var innan hópsins og var bekkurinn til fyrirmyndar í alla staði og skólanum sínum til mikils sóma.
Enginn vafi er á að svona heimsókn, þar sem nemendur fá að taka virkan þátt í daglegu lífi jafnaldra sinna í öðru landi, skilar miklu. Hún eflir tengsl, er þroskandi og ógleymanleg hverjum þeim sem það upplifir.
Þórunn Sif Böðvarsdóttir og Árni Sverrir Bjarnason
14.9.2007
8. bekkur – Smíði
12.9.2007
Bekkjarkvöld
8 RH var með félagsvist í vikunni. Gaman að sjá að í 17 manna bekk mættu 40 manns þannig að það mættu foreldrar og systkini. Spilað var á 9 borðum í miðrýminu. Vegleg
verðlaun voru í boði fyrir hæsta skor hjá strákum og stelpum. Gerð var smá pitsupása sem mæltist líka frekar vel fyrir. Fólk á öllum aldri var bara ánægt með kvöldið og má mæla með þessari aðferð til að kynnast innbyrðis því að fók er sífellt að færa sig milli borða, sumir minna en aðrir reyndar, og nær því að tala við marga á stuttum tíma.
RH
7.9.2007
Fylkir Íslandsmeistarar í 4.flokki karla
Fylkismenn urðu íslandsmeistarar í 4.flokki karla nú í kvöld eftir sigur á Fram í æsi
spennandi úrslitaleik. Það voru Framarar sem skoruðu fyrsta markið eftir 21 mínútu fyrri hálfleiks sanngjarnt. Við markið vöknuðu leikmenn Fylkis aðeins og áttu nokkrar ágætis sóknir án þess að skapa sér almennileg marktækifæri. Leikurinn jafnaðist nokkuð í seinni hálfleik og fengu bæði lið ágætis færi en inn vildi boltinn ekki. Í uppbótartíma fengu Fylkismenn hornspyrnu og úr hornspyrnunni skoraði Benedikt Óli glæsilegt mark með skalla.
Efri röð frá vinstri: Ólafur Hlynur Guðmarsson þjálfari, Tómas Hrafn Jóhannesson, Benedikt Þorgilsson, Benedikt Óli Breiðdal, Sigurður Jóhann Einarsson, Jón Ófeigur Hallfreðsson,
Árni Þórmar Þorvaldsson, Stefán Víðir Ólafsson, Anton Oddsson, Egill Trausti Ómarsson, Jón Birgir Eiriksson og Kári Jónasson þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Ragnar Bragi Sveinsson, Daði Ólafsson, Ágúst Freyr Hallsson, Kristján Ingi Mikaelsson markmaður, Ásgeir Eyþórsson fyrirliði, Björgvin Gylfason markmaður,
Andri Már Hermannsson, Hjörtur Hermannsson, Styrmir Erlendsson og Ýmir Rúnarsson.
7.9.2007
7. bekkur - Textílmennt
6.9.2007
Textílmennt 5.bekkur
5.9.2007
Námskeið á vegum SAMFOK haustið 2007
Námskeið fyrir foreldraráð
Hvert er hlutverk foreldraráða? Hvað eigum við? Hvað megum við? Hvar er hjálp að fá? Þessar spurningar og aðrar sem brenna á fundarmönnum, verða í brennidepli á námskeiðum fyrir foreldraráðin en þau eru haldin í samstarfi við Þjónustuðmiðstöðvar í hverfum borgarinnar:
4. september kl. 20:00 – 22:00 fyrir foreldraráð í Árbæ og Gafarholti í Félags- og þjónustumiðstöðinni Hraunbæ 105
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfang samfok@samfok.is,
í síma 562-7720 eða í gsm 824-1958 í síðasta lagi á hádegi daginn fyrir námskeiðsdaginn. Þátttaka er foreldrum í Reykjavík að kostnaðarlausu.
Fleiri námskeið sjá www.samfok.net
4.9.2007
Upphaf skólagöngu – ný lífsreynsla
Þessir myndarlegu nemendur í 1. BÞ hófu skólagöngu sína í Árbæjarskóla föstudaginn 24. ágúst sl. Þessa fyrstu skóladaga hafa börnin verið að kynnast hverju öðru, kennurunum sínum og öðru starfsfólki skólans. Einnig hafa þau kynnt sér skólahúsnæðið og þær umgengnisreglur sem allir nemendur skólans þurfa að tileinka sér til þess að samskipti og skólastarf gangi vel fyrir sig. Velkomnir til starfa kæru nemendur í 1. BÞ og farnist ykkur vel.















