26.1.2007
Skólahreysti
Í gær tók Árbæjarskóli þátt í skólahreysti. Fyrir hönd skólans tóku þátt Alexander Ágúst Sverrisson, Valdimar Fannar Sölvason, Kristbjörg María Gunnarsdóttir og Stefanía Ósk
Þórisdóttir. Þau stóðu sig öll mjög vel og enduðu í 3.sæti en Hagaskóli var í 1.sæti og Rimaskóli í 2.sæti.
Berglind Daðadóttir
íþróttakennari við Árbæjarskóla
26.1.2007
KappAbel
Hin árlega norræna stærðfræðikeppni 9. bekkinga fór fram í morgun. Þetta felst í að leysa stærðfræðiþrautir þar sem hver bekkur er eitt lið.
Oftast skipta þeir sér í smærri hópa og í lokin sameinast hóparnir um eina lausn. Fyrri lotan fór fram í nóvember og nú voru krakkarnir að ljúka þeirri síðari. Það skapast oft mjög fjörugar umræður um viðfangsefnin og hvernig
svo sem keppninni lyktar þá fer alltaf fram mjög skemmtileg vinna.
En níu bekkir á landinu komst áfram eftir þessa lotu og hefur Árbæjarskóli átt lið þar undanfarin þrjú ár. Sjáum til hvað gerist nú.
RH
26.1.2007
Úrslit í Nema hvað
Í gærkvöldi var úrslitakvöld í hverfi 3 í spurningakeppni grunnskólanna. Lið Árbæjarskóla keppti til úrslita við Hólabrekkuskóla alveg eins og í fyrra. Keppnin
byrjaði vel hjá okkar fólki og tóku þau forystuna eftir hraðaspurningarnar. Fyrir lokasprettinn var staðan jöfn en þá seig Hólabrekkuskóli fram úr og urðu þar með hverfismeistarar. Marta í 10 RH og þeir Sigurgeir og Tryggvi í 9 SÞ sem skipuðu lið Árbæjarskóla stóðu sig eins og hetjur og fengu alltaf yfir 20 stig í sínum leikjum sem er frábær árangur. Þessir þrír krakkar hafa ásamt þeim Árna í 9 SH og Guðrúnu í 10 BB hafa æft vel og verið sjalfum sér og skólanum sínum til mikils sóma. Það sama má segja um þá nemendur sem stutt hafa liðið í þessari keppni. Þeir hafa verið til algjörrar fyrirmyndar í allri hegðun. Vill liðið hér með þakka þeim fyrir stuðninginn.
RH
24.1.2007
Feðgafræðsla
Feðgafræðsla
Foreldrafélag Árbæjarskóla bíður upp á feðgafræðslu sem haldin verður miðvikudaginn, 31. janúar n.k., í Árbæjarskóla kl. 18-20.
Feður, fósturfeður, afar, frændur, eldri bræður og drengir í 6. og 7. bekk
-takið frá daginn.
Nánar auglýst síðar.
Stjórn foreldrafélags Árbæjarskóla
19.1.2007
Bóndadagur
Í dag 19. janúar er bóndadagurinn og upphaf þorra. Af því tilefni fengu nemendur grjónagraut, lifrarpylsu og blóðmör í hádeginu. Einnig var boðið upp á harðfisk og súra sviðasultu. Ánægja var með þorramatinn meðal nemenda.
Þorraþrællinn, Krummavísur og fleiri lög voru síðan sungin af innlifun í hádegismatnum við undirspil Önnu Maríu tónmenntakennara. Margir voru þjóðlega klæddir eins og sést á myndunum og mættu með þjóðlegt nesti.
19.1.2007
Nema hvað
Lið Árbæjarskóla bar sigurorð af liði Breiðholtsskóla í gærkvöldi og er komið í úrslit í spurningakeppni grunnskólanna í borgarhluta 3 úrslitin fara fram að viku liðinni og verða auglýst betur þegar nær dregur það lið sem sigrar í þeirri viðureign keppir við sigurlið hinna borgarhlutanna í útvarpskeppni sem fram fer að loknum borgarhlutakeppnunum. Lið skólans stoð sig með mikilli prýði í gær og úrslitin réðust að kalla má þegar í hraðaspurningum. Fjöldi stuðningsmanna fylgdi liðinu og var hegðun og framkoma þeirra til fyrimyndar. Til hamingju krakkar!
16.1.2007
Próf hjá 6.EG
12.1.2007
Árbæjarskóli sigraði
11.1.2007
1.SS
Hér erum við í 1. - SS mætt aftur í skólann eftir gott jólaleyfi. Við vorum svolítið þreytt fyrstu dagana í skólanum en núna erum við búin að jafna okkur.
Það er mikill hugur í okkur og við erum komin á fullt í alls kyns skemmtilegum verkefnum. Við erum farin að fá bækur að láni á bókasafninu og það finnst okkur mjög spennandi enda erum við svo dugleg að lesa.
Kveðja, Sigrún Snævarr
10.1.2007
Nema hvað 2007
Spurningakeppni grunnskólanna Nema hvað hófst í þessari viku.
Fimmtudaginn 11.jan byrjar keppnin í borgarhluta 3 en þar er Árbæjarskóli ásamt skólum úr
Breiðholtinu. Fyrst mætum við Seljaskóla kl. 19.30
Keppnin er haldin í Miðbergi í Breiðholti eins og undanfarin ár.
Hópurinn í ár er skipaður 5 einstaklingum, þeim Mörtu og Guðrúnu úr 10.bekk og Tryggva, Sigurgeiri og Árna úr 9. bekki. Þrjú þeirra verða í eldlínunni á fimmtudaginn. Á myndinni má sjá krakkanna vera að æfa sig.
Minnum aftur á að á fimmtudaginn 11.jan keppir Árbæjarskóli við Seljaskóla í Miðbergi kl. 19.30. Hvetjum sem flesta til að mæta.
RH.













