19.12.2007
Jólatónleikar í Árbæjarskóla
Mánudaginn 17. desember fóru fram árlegir jólatónleikar skólakórs Árbæjarskóla. Kórinn er tvískiptur sem fyrr, yngri kór og eldri kór. Yngri kórinn skipa nemendur í 2.-3. bekk en eldri kórinn er skipaður nemendum í 4.- 6. bekk.
Yngri kórinn hóf tónleikana og söng nokkur jólalög. Þrjár stúlkur úr 3. ÞS þær Ísabella, Mekkín og Helga leiddu sönginn í einu laganna. Einnig var boðið upp á tónlistaratriði þriggja drengja úr kórnum. Jón Ísak lék á píanó og bræðurnir Bjarki og Fannar sungu. Allir eru þeir nemendur í 2. GA. Eldri kórinn tók síðan við og söng nokkur jólalög. Gestasöngvari með kórnum að þessu sinni var stúlka úr 10. bekk, Ingibjörg Þórhallsdóttir, einnig lék Guðrún Friðriksdóttir nemandi í 6. AH á þverflautu í einu laganna.
Í lok tónleikanna sameinuðust kórarnir og sungu saman Bjart er yfir Betlehem.
Fjöldi gesta hlýddi á yndislegan söng og klappaði kórnum lof í lófa í tónleikalok. Þetta var ánægjuleg kvöldstund og heiður hverjum skóla að geta státað af svo góðum skólakór.
13.12.2007
Örsögukeppni Árbæjarskóla
Föstudaginn 30. nóvember gerðu nemendur í unglingadeild sér glaðan dag þegar úrslit í örsögukeppni Árbæjarskóla voru kynnt.
Nemendur í tónlistarvali hjá Önnu Maríu tónmenntakennara fluttu nokkur lög og 10. ÞB söng Borðsálm eftir Jónas Hallgrímsson.
Yfir 100 sögur bárust í keppnina, sem er orðinn fastur liður í skólastarfinu, og stóð dómnefndin í ströngu. Formaður dómnefndar var sem fyrr Guðný Ýr og henni til aðstoðar voru þær Guðrún Erna Þórhallsdóttir og Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir.
Fjórar sögur stóðu uppi að lokum og hlutu þriðju verðlaun þær Rósa Guðný Arnardóttir í 9-ÁS fyrir söguna Hvítar flygsur og Lilja Gylfadóttir í 9-PH fyrir söguna Af hverju. Annað sætið hreppti Óðinn Kári Rúnarsson í 9-ÁS fyrir söguna Ekkert endist að eilífu. Snorri Heimisson í 10-SÞ fékk svo fyrstu verðlaun fyrir söguna Allt fyrir eina kind.
Krakkarnir fóru svo í Útvarpshúsið og lásu upp sögurnar fyrir þáttinn Stjörnukíki sem verður útvarpað á Rás 1 föstudaginn 21. desember.
3.12.2007
3.ÞS
Nemendur í 3. ÞS eru hafa nýlokið við verkefni um snjótittlinginn. Einnig hafa börnin lært um lundann og unnið skemmtileg verkefni um vináttuna. Í kristinfræði unnu börnin hópverkefni. Hér má sjá myndir af því verkefni og fleiri verkefnum sem börnin hafa unnið að undanförnu. Það eru m.a. geimverur, ljóð um vináttuna, vina verkefni og hópverkefnið í kristinfræði. Ásamt jólaskreytingum sem nemendur unnu í þessari viku.
Fleiri myndir hér.
29.11.2007
3.ÞÞ
Í gær byrjuðum við að skreyta stofuna okkar. Við föndruðum gluggaskraut og
bjuggum til snjókarl. Allir skemmtu sér vel og hlakka til þess tíma sem framundan er.
Hér má sjá fleiri myndir.
ÞÞ
28.11.2007
Íþróttahátíð
Þriðjudaginn 27. nóvember var haldin íþróttahátíð í 1. – 4. bekk. Árgöngum var blandað
saman og mynduðu hópa sem fóru á milli stöðva. Í boði voru hinir ýmsu leikir s.s. tarsanleikur, limbó, ávaxtalat og borgin sefur. Allir sem vildu fengu andlitsmálningu. Hátíðinni lauk með skemmtun á sal þar sem þau Stígur og Snæfríður úr Stundinni okkar komu í heimsókn. Á sal voru einnig snæddir frostpinnar. Dagskráin á salnum og frostpinnarnir voru í boði foreldrafélagsins. Takk kærlega fyrir okkur. Þetta var frábær dagur og góð tilbreyting.
sjá fleiri myndir hér.
27.11.2007
KappAbel 2007
Í dag 27. nóv fór fram fyrsti hluti hinnar árlegu KappAbel stærðfræðikeppni sem er
samnorrænt verkefni. Um 60 íslenskir 9. bekkir eru með frá byrjum og þar af 5 úr Árbæjarskóla. Bekkirnir keppa sem ein heild og höfðu 90 mínútur til að leysa 8 þrautir. Mjög gaman var að sjá krakkana í morgun takast á við þetta og þeim gekk mjög vel. Gaman verður að sjá árangurinn en skemmst er að minnast að 10 ÞB lenti í 2. sæti í þessari keppni í fyrra.
21.11.2007
3.ÁÞ
Við í 3.ÁÞ erum búin að vera í ýmsu skemmtilegu undanfarið. Við gerðum bangsmynd í gluggann á Bangsadaginn, geimverur í tengslum við Komdu og skoðaðu himingeiminn og við erum nýbúin að fjalla um Lundann og gera verkefni um hann. 
Atli Gíslason fékk Íslenskuverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur á Degi íslenskrar tungu. Við látum fylgja með myndir af okkur svo þið getið séð hvað við höfum gert.
Sjá fleiri myndir hér.
kv. 3.ÁÞ
21.11.2007
21. nóvember - Forvarnardagur
Í dag er haldinn Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Nemendum 9. bekkjar verða kynnt nokkur heillaráð sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. Auk þess munu nemendur vinna að ýmsum forvarnartengdum verkefnum.
Íslenskar rannsóknir leiða í ljós að:
Unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna
Ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum
Því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði fíkniefnum að bráð
Við viljum hvetja foreldra/forráðamenn til kynna sér þetta verkefni á heimasíðunni www.forvarnardagur.is.
Bestu kveðjur.
Námsráðgjafar Árbæjarskóla
20.11.2007
Punktaferð nemenda í 5.-10. bekk
Eins og fram kemur á skóladagatali Árbæjarskóla fyrir skólaárið 2007-2008 og kynnt var á síðdegisfundum með foreldrum/forráðamönnum og síðar nemendum á sal skólans, var ákveðið að umbuna þeim nemendum 5. – 10. bekkjar sem sýnt hafa afburðaskólasókn. Miðað var við einkunnina 9 í skólasókn sem samsvarar 6 punktum eða færri frá skólabyrjun fram að punktaferð.
20.11.2007
Dagur íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember var haldinn hátíðlegur hjá 5.-7.bekk á sal
skólans. Margt skemmtilegt var gert til að halda uppá daginn. Kórinn söng undir stjórn Önnu Maríu Bjarnadóttur og nemendur úr 6. og 7. bekk léku á hljóðfæri. Nemendur úr 8.bekk lásu æviágrip Jónasar Hallgrímssonar og ljóð eftir hann. Þá var sagan "Leggur og skel" lesin af nokkrum nemendum í 7. bekk. Að lokum sungu allir saman lagið "Á íslensku má alltaf finna svar."
20.11.2007
Íslenskuverðlaun menntaráðs Reykjavíkur
Á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn, voru afhent íslenskuverðlaun
Menntaráðs Reykjavíkur, við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu. Markmið þeirra er að auka áhuga æskufólks á íslenskri tungu og hvetja það til framfara í tjáningu talaðs máls og ritaðs. Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
Sérhver grunnskóli í Reykjavík gat tilnefnt þrjá nemendur eða nemendahóp til verðlaunanna og þeir sem tilnefningu hlutu fengu verðlaunagrip. Skólar gátu til dæmis tilnefnt þá sem sýnt hafa færni, frumleika eða sköpunargleði í að nota tungumálið sem samskiptatæki í hagnýtum eða listrænum tilgangi.
Árbæjarskóli tilnefndi þrjá nemendur til verðlaunanna, þá Atla Gíslason, 3. ÁÞ, Aron Þór Heimisson, 7. EG og Árna Sturluson, 10. SH. Allir hlutu þeir tilnefningu fyrir skapandi skrif þar sem litríkur texti og orðaforði glæða persónur og sögusvið lífi.
Óskum við verðlaunahöfunum þremur hjartanlega til hamingju. Án efa eiga þeir bjarta framtíð fyrir sér á ritvellinum.
19.11.2007
Menntamálaráðherra í heimsókn á degi íslenskrar tungu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var gestur á skemmtun í 2. – 4. bekk sem haldin var í
tilefni af degi íslenskrar tungu. Börnin stóðu sig með mikilli prýði þar sem þau sungu saman nokkur lög og svo var hver árgangur með atriði. Nemendur úr 2. bekk sungu mánaðarvísur, 3 bekkur flutti heilræðavísur, frumsamdar sögur og ljóð og 4. bekkur söng Bokki sat í brunni með tilheyrandi bumbuslætti. Þetta var hin besta skemmtun og tókst í alla staði hreint frábærlega.
Í lok samverunnar opnaði Þorgerður Katrín tvo vefi. Annan í tengslum við börn með lestrarerfiðleika
http://lesum.khi.is og hinn með forláta lesvél
Við hvetjum alla til að skoða þessar vefsíður.
Sjá fleiri myndir hér.
16.11.2007
Góðir gestir á degi íslenskrar tungu.
13.11.2007
Skrekkur 2007
Í gærkvöldi 12.nóv hófst undankeppni Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna. Þar var
Árbæjarskóli með sitt atriði Skemmtun spyr ekki um aldur og skemmst er frá því að segja að krakkarnir fluttu atriði sitt óaðfinnanlega og það flaug áfram í úrslit ásamt atriði frá Korpuskóla. Listamennirnir okkar voru glæsilegir á sviðinu og þeir fjölmörgu nemendur frá skólanum sem voru á áhorfendabekkjunum stóðu sig ekki síður vel. Alltaf jafn gaman að vera með svona skemmtilegu fólki. Úrslitakeppnin verður svo þriðjudagskvöldið 20. nóvember og hefst kl. 19. Bein útsending verður frá því kvöldi á Skjá 1. Til hamingju með árangurinn krakkar.
Fleiri myndir hér.
12.11.2007
Skáld í Árbæjarskóla
Fimmtudaginn 8. nóvember sl. heimsóttu Kristín Steinsdóttir og Brynhildur Þórarinsdóttir nemendur í 6. bekk. Töluðu þær við þá um víkinga, ambáttir, kempur og konunga og hve Íslendingasögurnar eru stútfullar af æsispennandi efni. Lásu þær úr bókum sínum og svöruðu fyrirspurnum nemenda.
Föstudaginn 9. nóvember komu einnig góðir gestir í skólann en
það voru Gerður Kristný og Þórarinn Eldjárn. Hittu þau nemendur í 3. og 4. bekk og töluðu við þá um allt það sem getur orðið að efni í skáldskap og að hugmyndir geti leynst víða. Lásu þau fyrir nemendur og hvöttu þá til að skrifa og skapa og vera óhrædda við að láta hugmyndaflugið leika lausum hala.
Heimsóknir þessara rithöfunda voru einkar ánægjulegar og er það von okkur að þær hafi vakið ne mendur til umhugsunar um gildi góðra bókmennta og hvatt þá til að reyna fyrir sér á ritvellinum. Nemendur tóku vel á móti gestunum og var framkoma þeirra til stakrar fyrirmyndar.
9.11.2007
Tölvutímar hjá 1. og 2. bekk
Nú er farið að síga á seinni hlutann í lotu tvö í list og verkgreinunum og krakkarnir í E
hópum 1. og 2. bekk eru búin að vera alveg einstaklega dugleg að læra á allskonar hluti í tölvunum. Þau eru t.d. búin að prófa að búa til hljómsveit á createbands.com og gera og skoða listaverk á artpad.art.com. Þau fengu að prófa leiki á learn4good.com og dr.dk og svo eru þau búin að kynnast fullt af teikni og málaraforritum eins og Krazy Artroom, Artrage, Tux Paint, Paint og Drawing for Children. Einnig eru þau búin að leika sér með Innipúkann og fara í forrit eins og Sebran, Glóa geimveru og Boga blýant og forritin sem eru á nams.is. Þau hafa líka fengið að prófa að skrifa í Wordpad og skoðað ClipArt myndir. Allir eru að verða búnir að læra lykilorðin sín og kunna að skrá sig inn í og út úr tölvunum sem er heilmikið mál þegar maður er bara í 1. eða 2. bekk.
Sjá fleiri myndir hér.
7.11.2007
Glerlistatími hjá Sóleyju
Mósaikspeglar unnir af nemendum í glerlistarvali. 
Nemendur fullir áhuga við vinnu sína.
Sjá fleiri myndir hér.
30.10.2007
Bangsadagurinn
Föstudaginn 26. október var bangsadagurinn haldinn hátíðlegur í skólanum en þá
mættu nemendur í 1.-4. bekk með bangsana sína í skólann. Margt var til gamans gert og heimsóttu allir bekkirnir bókasafnið þar sem lesið var fyrir börnin um tilurð bangsadagsins, bangsabækur voru í öndvegi og bangsar bókasafnsins til sýnis. Teknar voru myndir og má sjá afrakstur þess hér á síðunni. Allir skemmtu sér konunglega og bangsarnir voru eins fjölbreytilegir og þeir voru margir.
Sjá fleiri myndir hér.
30.10.2007
Rithöfundarnir Guðrún Helgadóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttur
Fimmtudaginn 25. október fengu nemendur 5. bekkjar skemmtilega heimsókn en það voru rithöfundarnir Guðrún Helgadóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttur. Voru þær með skemmtilega dagskrá þar sem þær skoðuðu m.a. hverjir væru þægir og hverjir óþekkir, hvort fullorðna fólkið ætti erfitt með að hlýða og hvort hinir fullorðnu eigi stundum erfitt með að skilja duglega og hugmyndaríka krakka. Guðrún las fyrir krakkana úr bók sinni um Jón Odd og Jón Bjarna og Kristín Helga las um Móa hrekkjusvín. Einnig töluðu þær um hvernig var þegar þær voru litlar. Krakkarnir höfðu gaman af heimsókninni og erum við í Árbæjarskóla afar ánægð með að hafa fengið þessar hressu konur til okkar.

29.10.2007
Kóramót
Á föstudaginn kom Barnakór Biskupstungna og kórstjórinn, Hilmar Örn, í heimsókn til
okkar í Árbæjarskóla. Kórkrakkarnir gistu í skólanum og var pizza og náttfatapartý á föstudagskvöldið. Krakkarnir fluttu atriði hvern fyrir annan og síðan var diskótek langt fram eftir kvöldi. Kóramótið stóð fram á miðjan laugardag og lauk með tónleikum þar sem mörg skemmtileg lög voru sungin.
Sjá fleiri myndir hér.
26.10.2007
1. BH
25.10.2007
2. KG
24.10.2007
9. PH
22.10.2007
Grunnskólameistarar í knattspyrnu
Nú um helgina 20.-21. okt. fór fram knattspyrnumót eldri bekkja grunnskóla í Egilshöllinni.
Árbæjarskóli mætti auðvitað með karla- og kvennalið. Kvennaliðið vann sinn riðil með þremur sigrum og einu jafntefli. Fengu ekki á sig mark. Stelpurnar unnu Háteigsskóla í undanúrslitum 1-0 og voru þar með komnar í úrlitaleikinn.
Strákarnir unnu sinn riðil á sama hátt, eitt jafntefli og 3 sigrar og unnu hann auðveldlega með markatöluna 11-0. Komust þar með milliriðil og léku þar gegn Hvassaleitisskóla sem þeir unnu 5-0 og Hólabrekkuskóla en sá leikur endaði 3-0 fyrir strákana okkar. Þar með voru þeir líka komnir í úrslitaleikinn.
Árbæjarskóli var semsagt með bæði lið í úrslitum.
Stelpurnar léku á undan gegn geysisterku liði Álftamýrarskóla. Á fyrstu mínútu fengu þær tvö dauðafæri en náðu ekki að nýta þau. Leikurinn var annars hnífjafn og á síðustu mínútu náði Álftamýrarskóli að skora eftir hornspyrnu og það dugði þeim til sigurs. Þetta var eina markið sem Árbæjarstelpurnar fengu á sig í allri keppninni. Þær stóðu sig frábærlega allt mótið og að ná 2. sæti í þessu stóra móti er auðvitað stórkostlegt.
Strákarnir léku svo við Foldaskóla (Fylkir – Fjölnir) og leikurinn þróaðist þannig að Árbæjarstrákarnir bökkuðu helst til mikið og Foldaskóli stjórnaði leiknum meira. En varnarleikur liðsins með Pétur í markinu stóðst allar árásir og í einni af sóknarlotum liðsins náði Benedikt Andri að skora, sem reyndist sigurmark leiksins. Þar með var Árbæjarskóli búinn að vinna mótið. Strákarnir skoruðu 20 mörk og fengu ekkert á sig. Liðið var mjög jafnt og það var liðsheildin sem skóp þennan sigur.
Við viljum óska báðum liðum til hamingju með frábæran árangur.
18.10.2007
2. GA
Krakkarnir í 2. GA eru nýbyrjuð á verkefni í samfélags- og náttúrufræðum um hrafninn.
Þau kynntu sér lifnaðarhætti krumma í handbók á bókasafni, teiknuðu mynd og sungu krummavísur. Krummi er merkilegur fugl og þeim fannst gaman að komast að því að hann getur verið bæði þjófóttur, glysgjarn og stríðinn.
GKA
17.10.2007
8. ÁB
16.10.2007
Bekkjarskemmtun hjá 3.ÁÞ
Í gær var bekkjarskemmtun hjá 3.ÁÞ í sal skólans. Nemendur komu með ávexti og
grænmeti á sameiginlegt hlaðborð og fóru í leiki með foreldrum og systkinum. Mjög skemmtilegur og góður tími. Sjá fleiri myndir hér.
kv. 3.ÁÞ
11.10.2007
2. JL
10.10.2007
Þetta er 8 MS
9.10.2007
Fréttir 5. KV
9.10.2007
Lesskimunarkönnunin Læsi
Vorið 2007 tóku nemendur í 2. bekk þátt í könnun sem lögð er reglulega fyrir nemendur í Reykjavík. Alls tóku 1227 nemendur þátt.
Það er mjög ánægjulegt að sjá að nemendur Árbæjarskóla eru með marktækt betri árangur en nemendur í Reykjavík í heild. Náðu þeir 77,5% heildarárangri. Meðaltal réttra svara í Reykjavík var 70,7%. Að mati bekkjarkennaranna Ásu Þrastardóttur, Þórdísar Evu Sigurðardóttur og Þórhildar Þorbergsdóttur, eru það eftirfarandi þættir sem skipta hvað mestu máli:
- Samstarf heimilis og skóla er með eindæmum gott
- Daglegur heimalestur og frjálslestrarstundir
- Mikið aðhald og skemmtilegt umbunarkerfi
Freyja Friðbjarnardóttir, deildarstjóri
8.10.2007
Námsferð 10. SÞ til Danmerkur 15. – 22. september.
Bekkurinn endurgalt heimsókn Friskolen i Viborg, sem komu til okkar 31. ág. - 5. september. Í Viborg dvöldum við hjá nemendum og kennurum í 6 daga og var
fjölbreytt dagskrá allan tímann, sem reyndi á samheldni og samskipti og svo kynntumst við auðvitað dönskum siðum og menningu, m.a. hvernig á að smyrja "madpakke". Við rerum á kanó, skoðuðum miðbæinn, heimsóttum kalknámur, handboltamenntaskóla, teiknikvikmyndaskóla, sváfum undir berum himni úti í skógi ,fórum í "uhyggetur" í myrkrinu, lærðum að elda á báli og fórum í ratleiki með dönsku vinum okkar. Við vorum svo í Kaupmannahöfn í 2 daga, þar sem við skoðuðum miðborgina, m.a. Sívalaturninn, háskólann, Frúarkirkju, Amalienborg, Strikið og svo auðvitað Tivoli. Þar hlustuðum við á Nik & Jay, sem eru meðal fremstu tónlistarmanna Dana í hip hop/rapp heiminum, frábærir tónleikar.
Mjög góð stemning var meðal bekkjarins og þjappaði þeim saman. Þegar við lentum á Íslandi sögðust mörg bara vilja halda áfram að tala dönskuna!
Við fengum frábærar móttökur hjá gestgjöfum okkar og verður án efa haldið áfram að hafa samband við þau í framtíðinni.
Þessi ferð var styrkt af mörgum einstaklingum og fyrirtækjum og færum við þeim kærar þakkir fyrir stuðninginn.
10. SÞ
1.10.2007
Ólympíustærðfræði fyrir grunnskóla.
Háskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið í Ólympíustærðfræði fyrir grunnskólabörn í 5. - 8. bekk. Yngri nemendur geta tekið þátt hafi þeir sérstakan áhuga. Ólympíustærðfræði eru þrautir sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og krefjandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærðfræði, innsæi og samvinnu. Bæklingar eru sendir heim með nemendum og eins er hægt að skoða upplýsingar á heimasíðu námskeiðsins, www.hr.is/os
Árbæjarskóli
5. og 6. bekkur: þriðjudaga kl. 14:45, stofa A-4
7. og 8. bekkur: miðvikudaga kl. 14:45, stofa A-4
Háskólinn í Reykjavík:
5. og 6. bekkur: laugardaga kl. 10:00, stofa 436 og 437.
7. og 8. bekkur: laugardaga kl. 11:00, stofa 436.
Chien Tai Shill
Kennslufræði- og lýðheilsudeild
Ólympíustærðfræði
27.9.2007
10.SH
21.9.2007
Tónmennt
18.9.2007
Stuttmyndasýning grunnskólanemenda í Árbæjarskóla
Þessa vikuna stendur yfir Samgönguvika í Reykjavík. Dagskrá hennar er fjölbreytt og m.a. verður stuttmyndasýning grunnskólanemenda í Árbæjarskóla. Árbæjarhverfi var borgarhverfi Samgönguviku 2006 og í tilefni þess gerðu nokkrir nemendur 9. og 10. bekkjar Árbæjarskóla stuttmyndir um hverfið og samgöngur í því.
17.9.2007
Skólaheimsókn 10. ÞB til Danmerkur
Vikuna 8. – 15. september fór 10. ÞB í ferðalag til Danmerkur. Markmið ferðarinnar var að efla dönskukunnáttu nemendanna og tengsl þeirra við Danmörku. 
Flogið var til Billund og haldið þaðan til Lindved Skole, rétt fyrir utan Vejle á Jótlandi, þar sem nemendur í 9.A (vinabekkur 10. ÞB og jafnaldrar) biðu okkar ásamt foreldrum. Þar var okkur tekið fagnandi. Allir héldu síðan heim til sinnar móttökufjölskyldu þar sem gist var næstu 5 nætur.
Ýmislegt skemmtilegt var gert á Jótlandi m.a. skoðaðar gamlar minjar í Jelling, farið í Legoland, á Himmelbjerget og í Løveparken. Einnig tókum við virkan þátt í dönsku skólalífi ásamt því að kynna Ísland í máli, myndum og söng.
Heimsókn okkar vakti mjög mikla athygli og viðtöl birtust við okkur í 2 dagblöðum, Horsens Folketidende og Vejle Amts Folkeblad.
Við fórum svo með lest til Kaupmannahafnar þar sem gist var í 2 nætur. Þar var haldið á slóðir Jónasar Hallgrímssonar, í Nýhöfn, Amalienborg, að litlu hafmeyjunnni, á Strikið, í Tivoli ofl. Frábær stemning var innan hópsins og var bekkurinn til fyrirmyndar í alla staði og skólanum sínum til mikils sóma.
Enginn vafi er á að svona heimsókn, þar sem nemendur fá að taka virkan þátt í daglegu lífi jafnaldra sinna í öðru landi, skilar miklu. Hún eflir tengsl, er þroskandi og ógleymanleg hverjum þeim sem það upplifir.
Þórunn Sif Böðvarsdóttir og Árni Sverrir Bjarnason
14.9.2007
8. bekkur – Smíði
12.9.2007
Bekkjarkvöld
8 RH var með félagsvist í vikunni. Gaman að sjá að í 17 manna bekk mættu 40 manns þannig að það mættu foreldrar og systkini. Spilað var á 9 borðum í miðrýminu. Vegleg
verðlaun voru í boði fyrir hæsta skor hjá strákum og stelpum. Gerð var smá pitsupása sem mæltist líka frekar vel fyrir. Fólk á öllum aldri var bara ánægt með kvöldið og má mæla með þessari aðferð til að kynnast innbyrðis því að fók er sífellt að færa sig milli borða, sumir minna en aðrir reyndar, og nær því að tala við marga á stuttum tíma.
RH
7.9.2007
Fylkir Íslandsmeistarar í 4.flokki karla
Fylkismenn urðu íslandsmeistarar í 4.flokki karla nú í kvöld eftir sigur á Fram í æsi
spennandi úrslitaleik. Það voru Framarar sem skoruðu fyrsta markið eftir 21 mínútu fyrri hálfleiks sanngjarnt. Við markið vöknuðu leikmenn Fylkis aðeins og áttu nokkrar ágætis sóknir án þess að skapa sér almennileg marktækifæri. Leikurinn jafnaðist nokkuð í seinni hálfleik og fengu bæði lið ágætis færi en inn vildi boltinn ekki. Í uppbótartíma fengu Fylkismenn hornspyrnu og úr hornspyrnunni skoraði Benedikt Óli glæsilegt mark með skalla.
Efri röð frá vinstri: Ólafur Hlynur Guðmarsson þjálfari, Tómas Hrafn Jóhannesson, Benedikt Þorgilsson, Benedikt Óli Breiðdal, Sigurður Jóhann Einarsson, Jón Ófeigur Hallfreðsson,
Árni Þórmar Þorvaldsson, Stefán Víðir Ólafsson, Anton Oddsson, Egill Trausti Ómarsson, Jón Birgir Eiriksson og Kári Jónasson þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Ragnar Bragi Sveinsson, Daði Ólafsson, Ágúst Freyr Hallsson, Kristján Ingi Mikaelsson markmaður, Ásgeir Eyþórsson fyrirliði, Björgvin Gylfason markmaður,
Andri Már Hermannsson, Hjörtur Hermannsson, Styrmir Erlendsson og Ýmir Rúnarsson.
7.9.2007
7. bekkur - Textílmennt
6.9.2007
Textílmennt 5.bekkur
5.9.2007
Námskeið á vegum SAMFOK haustið 2007
Námskeið fyrir foreldraráð
Hvert er hlutverk foreldraráða? Hvað eigum við? Hvað megum við? Hvar er hjálp að fá? Þessar spurningar og aðrar sem brenna á fundarmönnum, verða í brennidepli á námskeiðum fyrir foreldraráðin en þau eru haldin í samstarfi við Þjónustuðmiðstöðvar í hverfum borgarinnar:
4. september kl. 20:00 – 22:00 fyrir foreldraráð í Árbæ og Gafarholti í Félags- og þjónustumiðstöðinni Hraunbæ 105
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfang samfok@samfok.is,
í síma 562-7720 eða í gsm 824-1958 í síðasta lagi á hádegi daginn fyrir námskeiðsdaginn. Þátttaka er foreldrum í Reykjavík að kostnaðarlausu.
Fleiri námskeið sjá www.samfok.net
4.9.2007
Upphaf skólagöngu – ný lífsreynsla
Þessir myndarlegu nemendur í 1. BÞ hófu skólagöngu sína í Árbæjarskóla föstudaginn 24. ágúst sl. Þessa fyrstu skóladaga hafa börnin verið að kynnast hverju öðru, kennurunum sínum og öðru starfsfólki skólans. Einnig hafa þau kynnt sér skólahúsnæðið og þær umgengnisreglur sem allir nemendur skólans þurfa að tileinka sér til þess að samskipti og skólastarf gangi vel fyrir sig. Velkomnir til starfa kæru nemendur í 1. BÞ og farnist ykkur vel.
31.8.2007
Síðdegisfundir með forráðamönnum nemenda í 1. - 7. bekk
Forráðamenn nemenda í 1. -7. bekk Árbæjarskóla eru boðnir velkomnir í hátíðarsal skólans til síðdegisfundar dagana 3.-5. september.
1. bekkur mánudaginn 3. september kl. 17.00
2.-4. bekkur þriðjudaginn 4. september kl. 17.00
5.-7. bekkur miðvikudaginn 5. september kl. 17.00
Á fundunum fer fram kynning á skólastarfinu því mikilvægt er að forráðamenn þekki vel innviði skólans og það starf sem þar fer fram. Forsenda árangursríks skólastarfs er góð samvinna heimilis og skóla og er það von okkar að sem flestir forráðamenn nemenda mæti.
Kveðja
Skólastjórn Árbæjarskóla
29.8.2007
Þýska stærðfræðisafnið
Þriðjudaginn 28.ágúst fóru 3 bekkir saman ásamt
umsjónarkennurum
í Varmárskóla í Mosfellsbæ þar sem staðsett var ferðastærðfræðisafn frá Giesen í Þýskalandi. Þarna mátti fólk spreyta sig á ýmsum þrautum og stærðfræðin sett fram á leikjaformi. Bekkirnir sem fóru voru 8.RH, 9.SG og 10.VD. Fólk fór nú mjög misjafnlega af stað en flestir helltu sér í þrautirnar af fullum krafti og smám saman voru langflestir nemendur orðnir mjög virkir í vinnu sinni. Þarna voru gestaþrautir, speglanir, línurit, sápukúlur, teningar og alls konar kubbar á ýmsum formum. Var ekki annað að sjá og heyra að nemendur hefðu mjög gaman að þessari nálgun á stærðfræðinni.
28.8.2007
Sigurvegarar í Ólympíustærðfræði
Fjölmargir nemendur í 5. – 8. bekk Árbæjarskóla tóku á síðastliðnu skólaári þátt í Ólympíustærðfræði fyrir grunnskóla hjá Háskólanum í Reykjavík (HR). Skráðir voru um 400 þátttakendur í 15 grunnskólum í Reykjavík auk nemenda sem sóttu námskeiðið í HR.
Í mars síðastliðnum var haldið lokhóf þar sem veitt voru verðlaun til þátttakenda fyrir góðan árangur í Ólympíustærðfræðinni. Efstu 10% hlutu gullverðlaun og efstu 50% hlutu silfurverðlaun. Að auki fékk stigahæsti þátttakandi í hverju liði bikar. Nokkrar stúlkur í Árbæjaskóla hlutu verðlaun og voru þær allar nemendur í 5. bekk. Eva Ósk Hjartardóttir hlaut bæði gullverðlaun og bikar og Auður Arna Sigurðardóttir, Katrín Lára Garðarsdóttir og Laufey Guðnadóttir hlutu silfurverðlaun. Er þetta frábær árangur hjá stelpunum og óskum við þeim innilega til hamingju.
Áframhald verður á þessu samstarfi grunnskólanna og HR í vetur og verður fyrirkomulagið líkt og í fyrra. Námskeiðið fer fram í þátttökuskólunum eftir að skóladegi lýkur. Bæklingi verður dreift í skólana um miðjan september og hefst þá skráning á netinu. Nánari tímasetning í Árbæjarskóla verður auglýst síðar.
Í Ólympíustærðfræði eru þrautir sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og ögrandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærðfræði, innsæi og samvinnu.
mynd: Verðlaunahafarnir Eva Ósk, Katrín Lára, Laufey og Auður Arna.
24.8.2007
Síðdegisfundir með forráðamönnum nemenda í 8. - 10. bekk
Forráðamenn nemenda í 8. - 10. bekk Árbæjarskóla er boðnir velkomnir í hátíðarsal skólans til síðdegisfundar dagana 27.-29. ágúst.
Sjá nánar:
23.8.2007
Síðdegisfundur með forráðamönnum nemenda í 8. bekk
Forráðamenn nemenda í 8. bekk Árbæjarskóla eru boðnir velkomnir í hátíðarsal skólans til síðdegisfundar mánudaginn 27. ágúst.
8.8.2007
Skólasetning haustið 2007
Skólasetning verður miðvikudaginn 22. ágúst.
Nemendur mæta á eftirfarandi tímum:
10. bekkur kl. 9.00
9. bekkur kl. 10.00
8. bekkur kl. 11.00
5. – 7. bekkur kl. 13.00
2. – 4. bekkur kl. 14.00
Kennsla hefst síðan skv. stundaskrá fimmtudaginn 23. ágúst.
Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir ásamt foreldrum til viðtals 22. og 23. ágúst.
20.6.2007
Skrifstofa Árbæjarskóla
Skrifstofa skólans verður lokuð frá kl. 13:00 föstudaginn 22. júní til kl. 8:30 miðvikudaginn 8. ágúst vegna sumarleyfa.
Nemendur eiga mæta 22. ágúst nánar auglýst síðar.
5.6.2007
Skólaslit 7. júní
kl: 9.00 1.-4. bekkur
kl.10.00 8. bekkur
kl.10.30 9. bekkur
kl.11.00 5.-7. bekkur
kl.18.00 10. bekkur
4.6.2007
Danssýningar
4.6.2007
Vortónleikar hjá eldri kór Árbæjarskóla
Eldri kór Árbæjarskóla hélt vortónleika sína með kór Digranesskóla mánudaginn 14. maí.
Tónleikarnir voru vel sóttir og mörg skemmtileg og falleg lög sungin.
Dagana 16.- 20. maí tók svo kórinn þátt í norrænu kóramóti, Nordbusang 2007, í Garðabæ. Þar mættu til leiks 34 barna og unglingakórar frá norðurlöndunum alls 600 manns. Mótið stóð yfir í fjóra daga og lauk með stórtónleikum í Mýrinni Garðabæ 20. maí.
1.6.2007
Brunaæfing í Árbæjarskóla
Nú á vordögum var brunaæfing í Árbæjarskóla. Fulltrúar Slökkviliðs borgarinnar voru viðstaddir og voru ánægðir með rýmingaráætlun skólans.
UBB
1.6.2007
Þjóðminjasafn Íslands
25.5.2007
ÍTR dagur í 1. - 4. bekk
22.5.2007
Vortónleikar og vorferð yngri kórs Árbæjarskóla
Fimmtudaginn 3. maí hélt Yngri kór Árbæjarskóla vortónleika sína í sal skólans. Sungin
voru skemmtileg lög sem kórinn hefur æft í vetur. Tónleikarnir tókust vel og afrakstur vetrarstarfsins kom í ljós.
Laugardaginn 12. maí fór Anna María tónmenntakennari með Yngri kórinn í Skálholt. Þar var kóramót með kór Digranesskóla og Barnakór Biskupstungna. Mikið var sungið þennan dag og kl. 14:00 héldu kórarnir þrír tónleika í Skálholtskirkju. Þeir voru afar vel sóttir og tókst ferðin með eindæmum vel. Þreyttir en glaðir kórkrakkar komu heim að kvöldi kosningadags.
14.5.2007
Vorferð 10. bekkjar
Strax eftir síðasta samræmda prófið drifu 10.bekkingar sig heim og náðu í ferðafötin og
betra skapið og mættu galvösk á bílastæði skólans. Lagt var af stað um 4 leytið og ferðinni heitið á Snæfellsnes eins og undanfarin ár. Gist á Lýsuhóli, synt og leikið sér um kvöldið.
Drifið sig upp kl. 8 á fimmtudagsmorgun á Djúpalónssand, steinunum lyft og labbað um fjöruna. Þaðan í sund í Stykkishólmi og á bát út á Breiðfjörð, þar sem m.a. var smakkað á hráum skelfiski, ígulkerjum o.fl.
Farið og borðað á Lýsuhóli, júróvisjon, gítar, spil og útileikir um kvöldið.
Lagt af stað heim um morgun, komið við í fjöru við Ytri-Tungu og kíkt á seli, stoppað í Borgarnesi og svo heim.
Ferðin var gífurlega vel heppnuð og gaman að heyra að allir sem áttu einhver samskipti við krakkana, hrósuðu þeim í hástert. Enda voru þau sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.
Fararstjórar.
10.5.2007
Vorsamvera 1. bekkjar og leikskólabarna.
10.5.2007
Góðir gestir í heimsókn
9.5.2007
Loksins, loksins.
Nú er lokið heljarinnar prófatörn hjá 10. bekkingum Árbæjarskóla. Fyrst kláruðu þau skólaprófin og voru að taka stærðfræðina núna sem var síðasta samræmda prófið.
Gleðin gífurleg yfir því og nú er megnið af krökkunum að fara saman á Snæfellsnesið. Lagt af stað um 4 leytið í dag, 9. maí og komið verður heim aftur á föstudaginn. Gist er á Lýsuhóli og m.a. verður siglt um Breiðafjörð og bara almennt skemmt sér saman þessa 2 sólarhringa.
Þessar ferðir hafa alltaf tekist frábærlega og það verður örugglega engin undantekning á því nú.
RH
9.5.2007
Útileikjadagur í 1. - 4. bekk
Föstudaginn 27. apríl var útileikjadagur í 1. - 4. bekk.
Börnin hlupu hringinn í kringum skólann, fóru í boðhlaup og að því loknu var farið í ýmsa leiki sem börnin höfðu valið sér fyrirfram.
Leikskólabörn komu í heimsókn og tóku fullan þátt með okkur.
MSB
Sjá fleiri myndir hér.
7.5.2007
Skráning er hafin í Vinnuskóla Reykjavíkur
Miðvikudaginn 2. maí hófst skráning nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur. Öll skráning fer fram rafrænt. www.vinnuskoli.is
3.5.2007
4. KÞ
Börnin í 4. KÞ eru fróðleiksfús og leita víða fanga. Undanfarið hafa þau
verið að lesa sögur um Sæmund fróða og vinna verkefni með þeim á
bókasafninu. Þar er að finna mörg gömul orð og orðatiltæki og ýmsan
þjóðlegan fróðleik. Galdrakúnstir Sæmundar hafa alltaf vakið athygli og nú
má búast við að bekkurinn verði rammgöldróttur.
K.Á.Þ.
27.4.2007
Annað sæti í Kappabel.
9 HH lenti í 2. sæti í norrænu stærðfræðikeppninni Kappabel. Um fimtíu bekkir hófu keppni, en níu komust í undanúrslit og svo þrír í úrslit. Bekkurinn valdir 4 fulltrúa til að taka þátt í úrslitunum fyrir sýna hönd, og það voru
þau Málfríður, Ingibjörg, Elís og Árni sem völdust í það. Þau tryggðu bekknum sem sagt 2. sætið og verðlaunafé uppá 80.000 krónur. Fyrir utan það þá voru þau og bekkurinn í heild til algjörrar fyrirmyndar á úrslitunum.
Til hamingju krakkar
Myndir hér.
24.4.2007
Tugir og einingar
30.3.2007
Hattadagur í Árbæjarskóla
30.3.2007
Stóra Upplestrarkeppnin
Fimmtudaginn 29. mars var lokakeppni Stóru Upplestrarkeppninnar haldin í Árbæjarkirkju. Tveir keppendur kepptu frá hverjum skóla.
Auk Árbæjarskóla tóku þátt fulltrúar frá Ártúnsskóla, Selásskóla og Ingunnarskóla. Helga Rakel í 7. KV og Sveinbjörn í 7. GB tóku kepptu fyrir hönd Árbæjarskóla. Okkar fulltrúar sýndu frábæran árangur og unnu bæði til verðlauna, Helga Rakel fékk 2.verðlaun og Sveinbjörn 3. verðlaun. Nemandi úr Selásskóla fékk 1. verðlaun.
Til hamingju Helga Rakel og Sveinbjörn, þið eruð frábærir lesarar !
26.3.2007
Maríta
Fimmtudaginn 29.mars kl. 17:00-19:00
“Hjálpaðu barninu þínu að hætta áður en það byrjar”.
Fræðslufundur verður fyrir foreldra nemenda í 8.-10. Árbæjarskóla, fimmtudaginn 29.mars kl. 17-19, þar sem sýnd verður íslensk mynd þar sem reynt er að sýna íslenskan veruleika í fíkniefnaheiminum. Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi Marita, sem er fyrrverandi fíkill, ræðir við foreldra um fíknina og afleiðingar hennar m. a. á sitt eigið líf.
Á fundinn koma:
Magnús Stefánsson fræðslufulltrúi Marita forvarna- og hjálparstarfs.
Hverfislögreglumaður15.3.2007
Vinadagar 1.- 4. bekkur
Dagana 13., 14., og 15. mars voru vinadagar hjá okkur. Börnin unnu ýmis verkefni tengd vináttunni. Unnið var í hópastarfi, búin voru til myndverk, farið í leiki, búin til vinabönd og leynivinur gladdur. Að lokum var haldin hátíð í matsal skólans
. Þar var sungið saman, borðaður veislumatur og allir fengu ís í eftirrétt.
Meðfylgjandi myndir sýna nemendur í leik og starfi þessa daga.
Kveðja,
Kennarar og nemendur í 1. - 4. bekk.
14.3.2007
Stóra upplestrarkeppnin
Miðvikudaginn 7. mars var skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar haldin hér í Árbæjarskóla. Í keppninni lásu níu lesarar, þrír úr hverjum bekk. Afar vel tókst til, keppendur voru jafnir og erfitt var fyrir dómnefndina að komast að niðurstöðu. Þau sem voru hlutskörpust voru þau Helga Rakel úr 7. KV og Sveinbjörn úr 7. GB. Varamaður þeirra er Árni Hlynur úr 7. GB. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn !
Lesararnir tveir fara síðan í hverfiskeppnina sem haldin verður síðar í þessum mánuði. Þau sem tóku þátt í skólakeppninni auk ofangreindra voru:Ylfa, Pétur Holger, Kolfinna, Sædís, Arnar Þór og Andri Hrafn. Við þökkum þessum frábæru lesurum fyrir sitt framlag og þeirra kennurum fyrir undirbúning Stóru upplestrarkeppninnar í Árbæjarskóla 2006-2007.

13.3.2007
Upplýsingatækni 5. bekkur
13.3.2007
Bekkjarkvöld hjá 3. MJ
Fimmtudaginn 8. mars sl. var stóðu þrjár vaskar mæður fyrir bekkjarkvöldi hjá 3. MJ. Nemendur, foreldrar þeirra og systkini hittust í skólanum og spiluðu bingó. Allir krakkarnir voru leystir út með glæsilegum vinningum. Að auki sungu börnin í 3. MJ lagið "Reikistjörnurnar hringsnúast" við góðar undirtektir gesta.
6.3.2007
Skólatónleikar
Í morgun fóru allir nemendur í 1.- 6. bekk á skólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Þema tónleikanna var "Veðrið", en hljómsveitin lék sýnishorn úr frægum verkum sem lýsa á einn eða annan hátt veðrinu og margbreytileika þess. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Bernharður Wilkinson og Skúli Gautason leikari og söngvari kynnti.
Eftirfarandi verk voru á efnisskránni:
L.v. Beethoven: Sinfónía nr. 6, úr 2. þætti (við lækinn)
A.Vivaldi: Árstíðirnar, stuttur bútur úr 1. þætti "Vorsins"
N. Rimsky-Korsakov: Býflugan
L.v. Beethoven: Sinfónía nr. 6, 4. þáttur (stormur og rigning)
E.H. Brown: Syngjandi í rigningunni ("Singing in the Rain")
B. Britten: Sea Interludes (stormur við hafið)
A.Vivaldi: Árstíðirnar, 1. þáttur úr "Vetrinum"
F. Grofe: Canyon suite (skýfall)
Stuðmenn: Fönn, fönn, fönn (börnin syngja með)
Mikil ánægja var meðal nemenda og allir skemmtu sér konunglega og voru sjálfum sér og skóla sínum til mikils sóma.
5.3.2007
2.ÞÞ
5.3.2007
Íslandsmeistaramót 4. fl. karla
Sunnudaginn 18 febrúar fór fram íslandsmeistaramót 4.fl. karla innanhúss á
Akranesi. Þetta var í síðasta skipti sem þessi keppni fer fram með þessu
sniði. Srákar úr 4.fl. Fylki urðu þar Íslandsmeistarar í flokki a-liða.
Fylkir sigraði lið Akranes 4-3 í hörkuleik eftir framlengingu og
vítaspyrnukeppni, Liðið er skipað leikmönnum úr 8 bekk Árbæjarskóla.
28.2.2007
Textílmennt 6. bekkur.
Nemendur í 6. bekk hafa verið duglegir að prjóna bolta, armbönd og fl. í febrúar og eru núna að sauma bútasaumspúða eins og sést á myndinni. Púðarnir
hafa komið vel út og eru þau óhrædd við að nota mismunandi mynstur og liti við gerð hans. Sumir eru svo byrjaðir á því að sauma stjörnumerkið sitt út í krosssaum.
Steinunn Textílkennari.
27.2.2007
Textílmennt 3. bekkur
16.2.2007
100 daga veisla hjá 1. bekk
Börnin í 1. bekk héldu 100 daga veislu í dag, fimmtudaginn 15. febrúar. Veislan var haldin í tilefni af því að fyrir skömmu rann upp 100. skóladagurinn
á þessum fyrsta skólavetri barnanna. Unnin voru verkefni um 100 talna töflu og svo fengu börnin að tína sér 10 stk. af 10 tegundum af ýmiss konar góðgæti (cheerio´s, rúsínur, saltstangir o.fl.) í poka þannig að allir voru með 100 stk. af einhverju góðu. Síðan horfðu allir saman á mynd um Línu Langsokk og gæddu sér á namminu sínu.
15.2.2007
Árshátíð
Miðvikudaginn 14. febrúar var árshátíð unglingadeildar. Um 400 manns sóttu hátíðina. Dagurinn hófst samkvæmt venju á íþróttahátíð í Fylkishöllinni. Nemendur gengu í skrúðgöngu í lögreglufylgd upp í Fylkishöll og voru þeir klæddir í ýmsa búninga sem þeir höfðu að mestu leyti útbúið sjálfir.
Um kvöldið var haldið í Gullhamra í Grafarvogi og skemmt sér fram á nótt. Sýnd voru ýmis skemmtiatriði, mikið hlegið, borðaður góður matur og síðan dansað í lokin. Segja má með sanni að dagurinn hafi verið með besta móti og allir fóru ánægðir heim.
1.2.2007
8.PH
26.1.2007
Skólahreysti
Í gær tók Árbæjarskóli þátt í skólahreysti. Fyrir hönd skólans tóku þátt Alexander Ágúst Sverrisson, Valdimar Fannar Sölvason, Kristbjörg María Gunnarsdóttir og Stefanía Ósk
Þórisdóttir. Þau stóðu sig öll mjög vel og enduðu í 3.sæti en Hagaskóli var í 1.sæti og Rimaskóli í 2.sæti.
Berglind Daðadóttir
íþróttakennari við Árbæjarskóla
26.1.2007
KappAbel
Hin árlega norræna stærðfræðikeppni 9. bekkinga fór fram í morgun. Þetta felst í að leysa stærðfræðiþrautir þar sem hver bekkur er eitt lið.
Oftast skipta þeir sér í smærri hópa og í lokin sameinast hóparnir um eina lausn. Fyrri lotan fór fram í nóvember og nú voru krakkarnir að ljúka þeirri síðari. Það skapast oft mjög fjörugar umræður um viðfangsefnin og hvernig
svo sem keppninni lyktar þá fer alltaf fram mjög skemmtileg vinna.
En níu bekkir á landinu komst áfram eftir þessa lotu og hefur Árbæjarskóli átt lið þar undanfarin þrjú ár. Sjáum til hvað gerist nú.
RH
26.1.2007
Úrslit í Nema hvað
Í gærkvöldi var úrslitakvöld í hverfi 3 í spurningakeppni grunnskólanna. Lið Árbæjarskóla keppti til úrslita við Hólabrekkuskóla alveg eins og í fyrra. Keppnin
byrjaði vel hjá okkar fólki og tóku þau forystuna eftir hraðaspurningarnar. Fyrir lokasprettinn var staðan jöfn en þá seig Hólabrekkuskóli fram úr og urðu þar með hverfismeistarar. Marta í 10 RH og þeir Sigurgeir og Tryggvi í 9 SÞ sem skipuðu lið Árbæjarskóla stóðu sig eins og hetjur og fengu alltaf yfir 20 stig í sínum leikjum sem er frábær árangur. Þessir þrír krakkar hafa ásamt þeim Árna í 9 SH og Guðrúnu í 10 BB hafa æft vel og verið sjalfum sér og skólanum sínum til mikils sóma. Það sama má segja um þá nemendur sem stutt hafa liðið í þessari keppni. Þeir hafa verið til algjörrar fyrirmyndar í allri hegðun. Vill liðið hér með þakka þeim fyrir stuðninginn.
RH
24.1.2007
Feðgafræðsla
Feðgafræðsla
Foreldrafélag Árbæjarskóla bíður upp á feðgafræðslu sem haldin verður miðvikudaginn, 31. janúar n.k., í Árbæjarskóla kl. 18-20.
Feður, fósturfeður, afar, frændur, eldri bræður og drengir í 6. og 7. bekk
-takið frá daginn.
Nánar auglýst síðar.
Stjórn foreldrafélags Árbæjarskóla
19.1.2007
Bóndadagur
Í dag 19. janúar er bóndadagurinn og upphaf þorra. Af því tilefni fengu nemendur grjónagraut, lifrarpylsu og blóðmör í hádeginu. Einnig var boðið upp á harðfisk og súra sviðasultu. Ánægja var með þorramatinn meðal nemenda.
Þorraþrællinn, Krummavísur og fleiri lög voru síðan sungin af innlifun í hádegismatnum við undirspil Önnu Maríu tónmenntakennara. Margir voru þjóðlega klæddir eins og sést á myndunum og mættu með þjóðlegt nesti.
19.1.2007
Nema hvað
Lið Árbæjarskóla bar sigurorð af liði Breiðholtsskóla í gærkvöldi og er komið í úrslit í spurningakeppni grunnskólanna í borgarhluta 3 úrslitin fara fram að viku liðinni og verða auglýst betur þegar nær dregur það lið sem sigrar í þeirri viðureign keppir við sigurlið hinna borgarhlutanna í útvarpskeppni sem fram fer að loknum borgarhlutakeppnunum. Lið skólans stoð sig með mikilli prýði í gær og úrslitin réðust að kalla má þegar í hraðaspurningum. Fjöldi stuðningsmanna fylgdi liðinu og var hegðun og framkoma þeirra til fyrimyndar. Til hamingju krakkar!
16.1.2007
Próf hjá 6.EG
12.1.2007
Árbæjarskóli sigraði
11.1.2007
1.SS
Hér erum við í 1. - SS mætt aftur í skólann eftir gott jólaleyfi. Við vorum svolítið þreytt fyrstu dagana í skólanum en núna erum við búin að jafna okkur.
Það er mikill hugur í okkur og við erum komin á fullt í alls kyns skemmtilegum verkefnum. Við erum farin að fá bækur að láni á bókasafninu og það finnst okkur mjög spennandi enda erum við svo dugleg að lesa.
Kveðja, Sigrún Snævarr
10.1.2007
Nema hvað 2007
Spurningakeppni grunnskólanna Nema hvað hófst í þessari viku.
Fimmtudaginn 11.jan byrjar keppnin í borgarhluta 3 en þar er Árbæjarskóli ásamt skólum úr
Breiðholtinu. Fyrst mætum við Seljaskóla kl. 19.30
Keppnin er haldin í Miðbergi í Breiðholti eins og undanfarin ár.
Hópurinn í ár er skipaður 5 einstaklingum, þeim Mörtu og Guðrúnu úr 10.bekk og Tryggva, Sigurgeiri og Árna úr 9. bekki. Þrjú þeirra verða í eldlínunni á fimmtudaginn. Á myndinni má sjá krakkanna vera að æfa sig.
Minnum aftur á að á fimmtudaginn 11.jan keppir Árbæjarskóli við Seljaskóla í Miðbergi kl. 19.30. Hvetjum sem flesta til að mæta.
RH.



































